Morgunblaðið - 13.01.1982, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 13.01.1982, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982 31 Jóhann Ö. Guðmundsson Peningun- um verður skilað „KG Á KKKl von á öðru en að þessuni peningum verði skilað aftur til gefenda. Við hér á íþróttadeildinni erum ekki fjár- málastjórar sjónvarpsins og því ekki rétt að koma með pen- ingana til okkar,“ sagði Bjarni Kelixson í gærkvöldi. Bjarni bætti því við, að það væri margt sem þyrfti að athuga I sambandi við svona útsendingu og peningahliðin væri bara einn lítill þáttur í því. — 1»K Tom Lund kjörinn NORSKI knattspyrnumaðurinn Tom Lund var fyrir skömmu kjörinn íþróttamaður Noregs fyrir árið 1981. Lund sigraði í kosningu norskra íþróttafréttamanna með talsverðum yfirburðum og kom það varla á óvart, því norska knattspyrnulands- liðið vann nokkur afar góð afrek á árinu og ber þar hæst að sjálfsögðu sigurinn yfir Knglandi á Ulleval- leikvanginum. Kinnig vannst sigur gegn Sviss á útivelli. Lund er fyrsti karlmaðurinn sem kjörinn er í Nor egi í ein fimm ár, en helstu íþrótta- afreksmenn Norðmanna síðustu ár in hafa verið kvenmenn. 28 raðir voru með 11 rétta Kr. 3.900.00 fyrir 11 rétta Vegna vetrarveðráttunnar á Bret- landseyjum fyrir helgina varð að nota teninginn til þess að fá úrslit í 10 leikjum af 12 á 18. getraunaseðli. Úrslitaröðin varð þannig: 11X — 21X — 111 — 2XX. Fram komu 28 raðir með 11 rétta leiki og var vinningur fyrir hverja röð kr. 3.900.00, en með 10 rétta voru 264 raðir og vinningur fyrir hverja röð kr. 178.00. Vilja bjóða íslendingum á Wembley! JÚ, ÞAÐ KR rétt, ég afhenti Sjón- varpinu ávísun upp á 25.000 krónur frá fyrirtækinu Securitas með það fyrir augum að Ríkisútvarpið sjái sér fært að sýna beint frá úrslitaleik ensku bikarkeppninnar sem fram fer á Wembley-leikvanginum í vor. Við teljum að upphæðin eigi að nægja að einhverju eða öllu leyti fyrir þeim útgjöldum sem fram koma,“ sagði Jóhann Guðmundsson hjá umræddu fyrirtæki í samtali við Morgunblaðið í gær, en hann var þá nýkominn af fréttastofu Sjónvarps- ins, þar sem Bjarni Felixson íþrótta- fréttamaður tók við ávísuninni. „Ástæðan fyrir því að við gerð- um þetta," hélt Jóhann áfram, „er sú að það er gífurlegur áhugi á leik þessum hér á landi og ófært má heita að öll skilyrði skuli vera hér fyrir hendi til þess að sýna svona viðburði, en ekkert hægt að gera vegna fjárskorts. Með þessu viljum við gera Sjónvarpinu kleift að bæta þessum úrslitaleik inn í dagskrá sína og stuðla þannig að verulegri dagskrárbót. En það er rétt að taka það fram, að þó að Bjarni hafi veitt peningunum við- töku, er engan veginn ljóst á þessu stigi málsins hvort eða hvernig farið verður með þá. En það er þó skýrt tekið fram í bréfi sem fylgir ávísuninni, að við ætlumst til þess að verði peningarnir notaðir, þá verði það í sambandi við þennan ákveðna leik.“ — gg 1.VERÐLAUN í samkeppni sem Útvegsbankinn efndi til meðal almennings um hugmyndirað sjónvarpsauglýsingu fyrir sparibauka bankans hlaut tillagan Veiðiferð eftir Inga Gunnar Jóhannsson 1. verðlaun. Rúmlega 80 tillögur bárust. SJÓNVARPSAUGLÝSINGIN: VEIÐIFERÐ hefur nú verið framleidd. Frumsýningin verður n.k. föstudag í fyrri auglýsingatíma sjónvarpsins. Sýningarverða sem hérsegir: Föstud. 15. janúar í l.tíma Sunnud. 24.janúar í l.tíma Laugard. 16.janúar í l.tíma Þriðjud. 26.janúar í l.tíma Mánud. 18. janúar í l.tíma Miðvikud. 27. janúar í l.tíma Þriðjud. 19.janúar í l.tíma Föstud. 29. janúar í l.tíma Föstud. 22. janúar í l.tíma Sunnud. 51. janúar í l.tíma 2. verðlaun hlaut hugmyndin Grímuball eftir Jóhönnu, Evu og Braga Valsbörn. Sjónvarpsauglýsingin Grímuball var sýnd nokkrum sinnum nú fyrirjólin. Hún verður nú sýnd tvisvar aftur, þ.e.: Föstud. 15.janúar í l.tíma

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.