Morgunblaðið - 13.01.1982, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.01.1982, Blaðsíða 32
r Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 JllovfliinWníiili Síminn á afgreiöslunni er 83033 JfloTjjitnííIaíitfc MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982 AU.STUR-þjóðverjar sigruðu íslendinga í landsleik í handknattleik í gærkvöldi með 19 mörkum gegn 17. Á myndinni má sjá hvar Hafnfirðingurinn ungi Kristján Arason reynir skot að þýska markinu. Liðin mætast aftur í kvöld. Sjá íþróttasíðu: Samningafund- inum frestað Búið að skrá áhafnir á báta á Suðurnesjum og í Eyjum VIÐRÆÐIIM sjómanna og útgerðarmanna um kaup og kjör sjómanna var frestað um klukkan 23.30 í gærkvöldi eftir að fundur hafði staðið með litlum hléum frá því á mánudagsmorgun. Fundur hefst að nýju klukkan 9 fyrir hádegi í dag undir stjórn sáttasemjara ríkisins. I ndanfarna sólarhringa hefur mestum tíma verið varið í að ræða um frídaga sjómanna og á tímahili í gær munaði litlu að upp úr slitnaði að sögn heimildarmanna Morgunblaðsins. Meðan sjómenn og útgerðarmenn ræðast við er vart að búast við nýju fiskvcrði. upphafi samningalotunnar kröfðust sjómenn helgarfría á neta- bátum fyrri hluta vetrarvertíðar, en undanfarin ár hafa verið gefin helgarfrí á netabátum frá 1. apríl. I fvrra tókust samningar um eitt helgarfrí í mánuði frá upphafi ver- tíðar til 1. apríl og einn aukafrídag að auki, en nú vilja sjómenn frí um ailar helgar. Útgerðarmenn sam- þykktu þessa kröfu sjómanna, þó þannig, að fríin verði annað hvort á laugardegi eða sunnudegi. Samn- inganefnd sjómanna hefur ekki viljað una þessu og krefst þess að helgarfríið verði á sunnudögum, þannig að útgerðarmenn geti ekki valið hvorn daginn verði frí. Mikill tími hefur farið í að ræða þetta mál og það hefur valdið mestum erfið- leikum í viðræðunum til þessa. Heimildarmenn Morgunblaðsins sögðu að enn væri ekkert byrjað að ræða um kauptryggingu sjómanna að öðru leyti en því, að minnst hefði verið á 5% hækkun tryggingar. Þegar mun vera búið að skrá áhafnir á fjölda báta á Suðurnesj- um og í Vestmannaeyjum. Sjómenn munu víða vera orðnir þreyttir á hægagangi við samningsgerðina og sömuleiðis hvað varðar ákvörðun fiskverðs. Steingrímur Hermannsson, sjáv- arútvegsráðherra, sagði síðdegis í gær, að ríkisstjórnin hefði ákveðið að hinkra aðeins við meðan úrslita- tilraun væri gerð til að ná sam- komulagi í kjaradeilunni. „Við vilj- um ekki spilla fyrir því, að slíkt samkomulag megi takast, en hins vegar finnst mér alveg voðalegt, að þegar um svona mál er að ræða skuli viðræður deiluaðila ekki hafa hafist löngu fyrr, því kröfur lágu fyrir snemma í desember. Það var hins vegar ekki talast við fyrr en allt var komið í óefni," sagði Steingrímur Hermannsson. Vill borga beina út- sendingu í (íÆR fékk Sjónvarpið að gjöf 25 þúsund krónur, 2,5 milljónir gkr., frá öryggisgæzlufyrirtækinu Secur itas. í gjafabréfi sem Jóhann Ö. Guðmundsson framkvæmda- stjóri fyrirtækisins lét fylgja, kom fram, að peningunum skuli verja til þess að greiða beina út- sendingu á úrslitaleik ensku bik- arkeppninnar í maí nk. Sagði Jó- hann að gífurlegur áhugi væri á leik þessum og þar sem einhverj- ar vöflur virtust á sjónvarps- mönnum að sýna leikinn, vildi hann sem iþróttaáhugamaður stuðla að því að landsmenn fengju að sjá hann. Bjarni Felixson íþróttafrétta- maður sagði í gærkvöldi, að lík- lega yrði peningunum skilað, þeir á iþróttadeildinni væru engir fjármálastjórar Sjónvarpsins. Kostnaðurinn við efni sem þetta væri mun meiri en 25 þús. kr. þegar greitt hefði verið fyrir sýningarrétt og sendingu efnis upp í gervihnött. Sjá nánar á íþróttasíðu. Sérstök skráning atvinnuleysis: 4.551 skráður á mánudag 1200 á skrá um áramót NIÐURSTÖÐUR hinnar sérstöku skráningar félagsmálaráðuneytisins á at- vinnuleysi, sem framkvæmd var sl. mánudag eru þær að 4.551 létu skrá sig, en það eru 4,2% af áætluðum heildarmannafla. Um 60% skráðra eru konur, en að sögn Oskars Hallgrímssonar deildarstjóra í félagsmálaráðuneytinu eru komnar tölur frá langflestum stöðum og ekki vantar tölur frá neinum útgerðarstað. Um síðustu áramót voru 1200 manns skráðir atvinnulausir og sagði Óskar því líklegt að 3.351 hefði misst atvinnu sína nú síð- ustu daga í verkfalli sjómanna. Meðal helstu niðurstaðna má nefna að í Reykjavík voru 608 skráðir, á Akranesi 258, þar af 277 konur, á ísafirði 337, á Sauðár- króki 83, Akureyri 418, Fáskrúðs- firði 77, Stokkseyri 77, í Vest- mannaeyjum 332, þar af 307 kon- ur, og í Keflavík 235. Þá kvaðst Óskar vita um staði þar sem tölur ættu eftir að hækka, t.d. Ólafs- fjörð, þar sem margir mnnu fara af launaskrá á morgun. Þá kvað hann þessar tölur nokkuð lægri en menn hefðu búist við, því heyrst hefðu áætlanir um allt að 6.500 manns. Langflestir eru landverka- menn og einkum fiskvinnslufólk nema á Vestfjörðum þar sem sjó- menn eru einnig skráðir, en á Vestfjörðum voru alls skráðir 802. Skráningu þessa sagði Óskar Hallgrímsson gerða til að fá betri mynd af atvinnuástandinu um þessar mundir. Úthlutunarnefndir verkalýðsfélaga myndu í fram- haldi af þessu kanna rétt hvers og eins til bóta hjá atvinnuleysis- tryggingasjóði, en bætur færu stighækkandi eftir hversu mikið menn hefðu unnið síðustu misseri. Ekki væri fyrr en eftir það hægt að gera sér grein fyrir hversu mikla fjármuni þyrfti til bóta- greiðslna. Vestfirdir: 43,1% mannafla við fískveiðar og -vinnslu - 3,1% vinna við sömu greinar í Reykjavík YFIRSTANDANDI verkfall sjó- manna á fiskiskipaflotanum kemur misjafnlega niður á fólki og fer það Steingrímur Hermannsson um skipti á vísitölu og kaupmætti: Ættu engum að koma á óvart og geta komið til greina eftir því í hvaða landshluta búið er. Til dæmis vinna aðeins 3,1% mann- aflans í Reykjavík við fiskveiðar og fiskvinnslu, en aftur á móti vinna 43,1% mannaflans á Vestfjörðum við fiskveiðar og -vinnslu. Kemur þetta fram í viðtali sem Morgunblaðið hefur átt við Matthías Bjarnason, al- þingismann, og birtist á miðopnu í dag. I viðtalinu kemur fram að sam- kvæmt útreikningum sem Fram- kvæmdastofnun ríkisins gerði árið 1979 vinna 14,3% mannaflans í landinu við fiskveiðar og fisk- vinnslu og er þá miðað við slysa- tryggðar vinnuvikur. RÍKISSTJORNIN ræddi efnahagsmálin á fundi sínum í gærmorgun og þann vanda, sem skapast hefur vegna stöðvunar fiskiskipaflotans og fiskvinnsl- unnar. Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegsráðherra, sagði í gær, að sérfræðingar va-ru nú að vinna úr hugmyndum ráðherra um efnahagsmálin og væri þess að vænta, að þeir skiluðu áliti fljótlega. Aðspurður um hverjar móttökur hugmyndir framsóknarmanna um vísitöluskerðingu hefðu fengið í ríkisstjórninni sagði Steingrímur Hermannsson: „Það er Ijóst, að í fyrra var skipt á verðbótavísitölu og kaupmætti, þannig að slfkt ætti engum að koma á óvart og slík skipti geta vitanlega komið til greina." Aðspurður um afstöðu ráðherra Alþýðubandalagsins til þessara hugmynda sagði Steingrímur: „Ég kannast ekki við deilur um nein af þessum atriðum, sem rædd hafa verið, og ef þú ert að tala um það að skipta á verðbótavísitölu og kaupmætti þá hef ég ekki orðið var við annað, en menn hafi sætt sig við það útaf fyrir sig.“ Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hafa ráðherrar enn ekki orðið á eitt sáttir um á hvern hátt beri að bregðast við þeim vanda, sem við er að glíma í efna- hagsmálum. Takist samningar um kjör sjómanna er búist við, að fiskverð verði myndað með sjó- mönnum og útgerðarmönnum í verðlagsráði, en enn er óljóst hve fiskverð þarf að hækka mikið svo seljendur standi að ákvörðun fisk- verðs. I framhaldi af ákvörðun fiskverðs er gengisfelling óumflýj- anleg, en hvort gengið verði fellt um 11—13% og krónan síðan látin síga um það sem á vantar til að frystingin komist á núll eða hvort um eina stóra gengisfellingu verð- ur að ræða er deilt um í ríkis- stjórninni. Þá er einnig deilt um hvort ákveða beri fiskverð til 1. marz, til 1. marz með viðbótar- hækkun þá, eða hvort verðið verð- ur ákveðið til 1. júní. Um þessa þrjá kosti er deilt. Eins og fyrr segir þá er aðeins 3,1% mannafla í Reykjavík bund- inn fiskveiðum og fiskvinnslu, í Reykjaneskjördæmi vinna 17,3% við umræddar greinar, í Norður- landskjördæmi eystra vinna 18,6% við fiskveiðar og -vinnslu, 19,8% í Norðurlandskjördæmi vestra, 22,1% í Suðurlandskjör- dæmi, 25,6% í Vesturlandskjör- dæmi, 32,1% í Austurlandskjör- dæmi og í Vestfjarðakjördæmi vinna 43,1% mannaflans við fisk- veiðar og fiskvinnslu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.