Alþýðublaðið - 09.09.1920, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 09.09.1920, Blaðsíða 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ 3 Ui daginn 09 Yepi Kyeikja ber á hjólreiða- og bifreiðaljóskerum eigi síðar en kl. 8 í kvöld. Yeðrið Vestm.eyjar Reykjavfk . ísafjörður . Akureyri . Grfmsstaðir Seyðistjörður Þórsh., Færeyjar Stótu stafirnir Loftvægislægð land; loftvog hægt fallandi á Suð- urlandi og í Færeyjum; mjög stilt veður. Utlit fyrir hæga aust- og norðiustlæga átt. morgHH. A, hiti ASA, hiti logn, hiti logn, hiti logn, hiti logn, hiti logn, hiti merkja áttina. fyrir suðvestan 8,0. 6,7. 6,0. 6,o. 3.2- 6,3. 8,5- Skipaíerðir. Skonnortan Ruth kom í gær frá Kaupmannahöfn, með ýrnsar vörur til kauptnann. Kári Sölmundarson togari kom frá Englandi hlaðinn kolum. Sk. Martha fór í gær til Grikk- lands með saltfisk fyrir Copland. Leifur Hepni togari kom frá Englandi í gær með kol. í morgun kom msk. Njáll frá Vesturlandi. Mb. Bliki kom af síldveiðum. Konuverö. Nýlega kom mjög einkennilegt mál fyrir réttinn í Newark í New- Jersey í Bandaríkjunum. Maður nokkur, að nafni Chisholm, krafð- ist þess af öðrum manni, að nafni Parker, að hann léti annaðhvort konu sína í friði, eða þá að hann tæki við henni gegn því að greiða sér 20 þús. dollara í sárabætur. Chisholm kvaðst vera orðinn yfir sig leiður á hátj:alagi Parkers og konu sinnar. Parker væri maður, sern hefði skapgerðareinkenni lista- manns, hann væri af þeirri tegund manna, er hefði dularfuli ahrif á konur og töfraði þær þannig að þær mistu hæfileikann til að greina á milli þess er þeim bæri að gera og þess er þeim bæri eigi að gera. Herra Parker kom þetta mjög illa vegna þess, að hann hafði ekki ætlað sér neitt frekar með konuna að hafa og vildi hvorki né gat greitt féð. Málinu er eigi lokið ennþá, en það vakti geisilegt hneiksli sökum þess, að þarna átti ,fínna“ íólkið í hlut, lítlenðar jrítlir. Yout Peters sýndi listir sínar í gærltvöldi og tókst ekki lakar upp en áður. Slys. Þegar Ethel var í Eng- landi síðast, gengu hásetar á land upp, eins og þeirra er siður. Vildi matsveininum, er Þóroddur heitir Ásmundsson, þá það slys til, ein- hverju sinni er hann ók í opnum sporvagni, að hann hrökk út úr honum og lenti önnur hendin und- ir einn hjólinu, og marðist hún svo, að taka varð hana af. Lá Þóroddur eftir í Englandi á sjúkra- húsi, er Ethel fór þaðan. Nieolai Bjarnason afgreiðslu- maður Kóru upplýsir að jslenzkir seðlar séu teknir á skipsfjöl, þó skipsmönnum sé ver við þá. Það hafi líka verið vani, að selja sem mest af fafseðlum í landi. Bretinn hræddnr! Sir A. Conan Doyle hefir ný- lega skrifað grein í Times Week- ly þar sem hann talar um þá miklu hættu sem stafar af útbreiðslu bolsivíka á kenningum síuum í Austurlöndum svo sem Indlandi. Hann kveður það ráð við því, þótt hann óttist að um seinan sé, að Bretar hefji „propoganda" fyrir brezkum hugsjónuni! og sambandi Indlands við Bretland um eilífð. Hann segir að það rnegi t. d. segja Indverjum hver ógnar hætta stafi af bolsivíkum, og hve miklu ákjósanlegra sé fyrir Indtrerja að vera áfram í sambandi við Breta. Hann minnist ekkert á það að segja Indverjum sannleikann. Furð- ar nú nokkuru á lygum og blekk- ingum auðvaldsblaðanna ensku og frönsku, úr því jafn þektur maður sem Conan Doyle ræður til að æsa Indverja upp gegn bolsivík- um, með réttu eða röngu. Hún hefir löngum verið göfug, brézka nýlendupólitíkin 1 5ímariúmer Þorláks Ófeigssonar trésmiðs. er SkólítiÖiti í Kirkjustræti 2 (Herkastalanusn) selur mjög vandaðan skófatnað svo spid: Karlmanna- og Verkamannastfg- vél, Barnastígvél af ýmsuin stærð- um og sérstaklega vandað kven- skótau; há og lá stígvél af ýms- um gerðutn. Atiar viðgerðir leyst- ar fljótt og vel af hendi. Kotnið og reynið! Virðingarfylst Ól. Th. Saltkjöt, góð tegund, á kr. 1.10 1/2 kgr., fæst í verzlun Símonar Jónssonar. Laugaveg 12. Sími 221. Alþbl. er blað allrar afþýðu! Uppþot í Illinois. Ráðist á útlendinga og þeir drepnir. Fjöldi manns flýr. Það fáheyrða atvik skeði í borg- inni Illlinois f Bandaiíkjunum, að- faranótt 7. ágúst, að uppþot urðu mikil víða um borgina og var árásunum stefnt að útlendingum, heimilisfóstum þar, Voru fimm menn drepnir og kveikt í 50 hús- um útlendinga, er voru þegnar annara ríkja, og íbúunum mis- þyrmt, er þeir flýðu úr eldinum. Mörg þúsund manna flýðu bæinn og fóru svo leikar, að borgar- stjórnin varð að kveðja til hjalpar 5 herdeildir til þess að skakka leikinn. Reuters fréttastofa gefur þessa fregn út og er oss eigi kunnugt hver orsökin hefir verið til þessara fólskuverka, nema ef vera skyldi bolsivíkahatur ameríkana. :

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.