Morgunblaðið - 21.02.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.02.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982 23 (3S) 1 í heiminum í 75 ár ®S) 1 Á íslandi í 70 ár Œ%±) 1 íslenzk kvenskátun í 60 ár | Hjálparsveitir í 50 ár Fyrsta stjórn Bandalags íslenzkra skáta. Axel Tuliníus skátahöfðingi fyrir miðju, en með honum í stjórn voru: Jón O. Jónsson og Henrik Agústsson frá Væringjum og Henrik Thorarensen og Carl Hemming Sveins frá Örnum. Tuliníus, mikill vexti og drengi- legur ásýndum, og ávarpaði hóp- inn snjöllum hvatningarorðum um hugsjónir og íþróttir skáta. „Hérna sérðu hina fyrstu íslenzku skáta,“ sagði Matthías, „það er hollur félagsskapur sem á fyrir höndum að verða þjóðinni til mik- ils gagns og þroska." Mér er þessi atburður minnisstæður, þekkti suma piltana í portinu og sá síðar, að þessi nýi félagsskapur reyndist þeim giftudrjúgur." Þess má geta að Ásgeir heitinn Ásgeirsson var verndari skátahreyfingarinnar um árabil og sýndi skátastarfinu mikinn áhuga. Axel Tuliníus var eins og fram kemur hér að framan einn af frumkvöðlum skátastarfs hérlend- is, en fyrsta hugmyndin að stofn- un Bandalags íslenzkra skáta kemur fram hjá Ársæli Gunnars- syni, sem um langt skeið var einn mesti forvígismaður og foringi Væringjafélagsins. Það var þó ekki fyrr en 17. dag júnímánaðar árið 1927 sem það bandalag sem nú starfar var stofnað. Axel V. Tuliníus var kjörinn fyrsti skáta- höfðingi íslands og gegndi hann því starfi allt til ársins 1937. Helgi Tómasson tók við af Axel og var skátahöfðingi allt til dánardægurs 1958. Þá var Jónas B. Jónsson kos- inn skátahöfðingi og gegndi hann því allt til ársins 1971. Þá tekur Páll Gíslason við og var skáta- höfðingi allt þar til á síðasta ári, er Ágúst Þorsteinsson var kjörinn skátahöfðingi. Sögu skátahreyfingarinnar hérlendis er vart hægt að rekja af neinni nákvæmni í stuttri blaða- grein, en þcss má geta að fyrsta kvenskátafélagið var stofnað árið 1922 og því fagnar hreyfingin einnig 60 ára tímamótum kven- skátastarfs. Skátastarf hefur í gegnum tíðina verið unnið í flokkastarfi í anda kenninga Baden-Powells. í yngstu flokkum skátastarfsins eru börn á aldrin- um 9—11 ára og hafa þau gegnið undir nafninu ylfingar og ljósálf- ar, einnig léskátar, nú síðustu ár- in. Þá tekur við áfangaskátastarf 11—14 ára, síðan dróttskátastarf. Eldri skátar hafa tekið að sér for- ingja- og hjálparsveitarstörf, einnig hafa þeir stofnað með sér sérstök félög og samtök til að viðhalda gömlum kynnum í tengslum við skátahreyfinguna. í rás tímans hefur hópstarfið tekið nokkrum breytingum og starfa drengir og stúlkur meira saman í flokkum en áður var. Af einstökum merkisatburðum í sögu íslenzks skátastarfs má nefna, að fyrsta landsmót skáta var haldið í Þrastarskógi árið 1925. Síðan hafa iandsmót verið haldin reglulega, nú síðast í Kjarnaskógi við Akureyri á sl. sumri, og var það eitt fjölmenn- asta skátamót, sem haldið hefur verið hérlendis. Fyrsta utanferð skátaflokks var til Ungverjalands árið 1926, en síðan hafa íslenzkir skátar farið fjölmargar ferðir á erlend skáta- mót og ráðstefnur. Tengsl skáta- hreyfingarinnar íslenzku við er- lenda skáta hafa ætíð verið mikil, enda byggir skátastarf í heimin- um á sömu grundvallarkenning- unum, kenningum Baden-Powells. Þá má einnig geta merkra tíma- móta, þ.e. þegar íslenzkir skátar fengu ábúðarrétt á jörðinni Úlf- ljótsvatni í Grafningi árið 1941. Þar hafa skátar rekið skátaskóla og barnaheimili á sumrin, í fjöl- mörg ár. Heyra má í fjölmörgum skátasöngvum og leikjum að á Úlfljótsvatni hafa skátar átt góð- ar stundir. íslenzkir skátar hafa lagt sönglistinni nokkurt lið. Velflestir íslendingar þekkja áreiðanlega skátalög og texta, sem tengjast útivist og ferðalögum. Reykvíkingar, sem slitið hafa barnsskónum, — og rúmlega það — tengja velflestir almennt skáta- starf við gömlu hermannabragg- ana við Snorrabraut, en þar voru höfuðstöðvar skátahreyfingarinn- ar í fjölmörg ár. Þar sem bragga- hverfi þetta stóð, hefur nú risið nýtt hús, sem er sameign hinna ýmsu deilda skátahreyfingarinn- ar. í tilefni af þessu fjórfalda stór- afmæli skátahreyfingarinnar á morgun, verður húsið vígt, auk þess er afmælanna minnst með margvíslegum hætti víða um land þessa helgi og á morgun, hinn 22. febrúar, en þá eru einnig liðin 125 ár frá fæðingu Baden-Powells. F.P. Kitl sinn skáti, ávallt skáti Hef haldið tryggð við skátahreyfínguna Geir Hallgrímsson sem ylfingur. - segir Geir Hallgrímsson „JÁ, ÉG var í félagi, sem hét Ern- ir,“ sagði Geir Hallgrímsson, form- aður Sjálfstæðisflokksins, er hann var að því spurður hvort rétt væri að hann hefði verið skáti í æsku. Væringjar voru þá hitt félagið í Reykjavík. „Mig minnir að ég hafi byrjað svona 10—11 ára, en hætti svo fljótlega eftir að ég fór í menntaskóla. Hann var þá 6 ára og ég byrjaði 12 ára. Félagsstörf innan skólans toguðu í mig og það varð ofan á að ég skildi við skáta- hreyfinguna. Eg á hins vegar margar afar ljúfar minningar frá þessum ár- um. Starfið hafði mikil áhrif á mig á þeim tíma og ég hafði mikla ánægju af veru minni inn- an hreyfingarinnar. Við höfðum góðan leiðtoga, Axel L. Sveins, en hann hafði síðar forgöngu um stofnun Bústaðasóknar. Starfið byggðist upp á 7—9 drengjahóp- um og þetta var þroskandi. Eldri menn voru okkur til leiðbein- ingar, en að öðru leyti fengum við að ráða okkur nokkuð mikið. Ég minnist þess að 1938 var haldið heljarmikið skátamót að Þingvöllum þar sem margir er- lendir gestir voru saman komn- ir. Ég hef verið orðinn 12 ára þá. Nú, skátar fylktu liði á sumar- daginn fyrsta og á mínum árum var það undir stjórn Axels H. Tuliniusar. Sá dagur var alltaf haldinn hátíðlegur og mikið um dýrðir. Skátastarfið var mér gott veganesti og ég á þaðan góðar minningar. Ég hefi alla tíð síðan ég hætti störfum innan hreyf- ingarinnar haldið tryggð við hana og geri vafalítið áfram," sagði Geir. Merkur og góður félags- skapur - segir Guðmundur Jónsson „ÞETTA var ákaflega merkur og góður félagsskapur,“ sagði Guð- mundur Jónsson, framkvæmda- stjóri útvarpsins, er hann var inntur eftir sínum minningum frá skáta- starfinu í gamla daga. Guðmundur var þá í Væringjum frá 13 ára aldri og fram undir tvítugt „en þá skildi leiðir" sagði hann. Guðmudnur Jónsson í Hjálparsveit skáta, sem starfandi var á stríðsár unum. Guðmundur er annar frá hægri í efri röð. „Ég held að ég hafi haft ákaf- lega gott af að vera í skátahreyf- ingunni. Maður lærði að bjarga sér á einfaldan hátt og fékk mikið út úr starfinu. í þá daga voru þeir, sem stjórnuðu þessu, í hreyfingunni af heilum hug og það var einmitt sjálfboðavinnan, gleðin við að byggja skálana með eigin höndum, sem var svo mik- ilvæg í þessu. Ég verð að segja það að ég hef samúð með þeim mönnum, sem standa í forsvari fyrir hreyfing- una í dag. Þetta hefur allt breyst svo gifurlega mikið. Nú hefur Bandalag íslenskra skáta opnað skrifstofu allan daginn og þar er að sjálfsögðu starfsfólk á laun- um. Mér finnst hugsjónin hafa farið fyrir ofan garð og neðan hin síðari ár,“ sagði Guðmundur. Steig mín fyrstu spor í leiklist innan skátahreyfíngarinnar - segir Kjartan Ragnarsson „ÞETTA var virkilega skemmtileg- ur tími,“ sagdi Kjartan Ragnarsson, leikari og leikritahöfundur, er hann minntist veru sinnar innan skáta- hreyfingarinnar. „Ég var í Jórvík- ingum, sem höfdu aðsetur vestur í bæ, í ein fimm ár, frá 11 ára aldri og fram til þess er ég varð 16 ára. Þá hætti ég. Mér fannst ein- hvern veginn eins og mér væri aldrei treyst fyrir neinni ábyrgð. Ég var mjög fljótlega útnefndur aðstoðarflokksforingi, síðan að- stoðarsveitarforingi og loks að- stoðardeildarforingi, en alltaf að- stoðar-eitthvað. Hins vegar var ég heppinn með félagsskap og það er engin spurn- ing um að ég hafði gott af að vera „Steig mín fyrstu ...“ en ekki þau síðustu. Kjartan í hlutverki Grettis, sem leikur listir sínar fyrir pönkpíur. í skátunum. Það, sem ég minnist einna helst svona í fljótu bragði er það, að ég steig liklegast mín fyrstu spor í leiklistinni innan skátahreyfingarinnar, þegar ég kom fram á jólaskemmtunum hjá skátunum. Svona eftir á að hyKRja, veit ég nú ekki hversu góð þessi herímynd, sem viðgekkst a.m.k. þá, er fyrir unglinga." Starfsemi hjálparsveit- anna er minnisstæðust Jón Oddgeir Jonsson - segir Jón Oddgeir Jónsson ALLT frá því fyrsta hjálparsveit skáta var stofnuð fyrir 50 árum hef- ur Jón Oddgeir Jónsson verið einn helsti forvígismaður þeirrar deildar innan skátahreyfingarinnar. Eng- inn hefur lagt meira af mörkum við fræðslu í skyndihjálp og öðru henni viðkomandi. Nær væri að tala um áratugi fremur en ár þegar rætt er um Jón í sambandi við skátahreyf- inguna og enn þann dag í dag legg- ur hann hönd á plóginn. Er hann var að því spurður hvað honum væri einna minnis- stæðast úr starfinu taldi hann að erfitt væri að gera upp á milli einstakra atburða. Útbreiðsla hjálparsveitanna um land allt hefði verið honum mikið ánægju- efni og nú, 50 árum eftir að sú fyrsta var stofnuð, eru 12 slíkar starfræktar. Það væri helst að nefna þær nýjungar, sem hjálp arsveitirnar hefðu bryddað upp á í starfsemi sinni, s.s. blóðgjaf- arsveit, sporhundaþjálfun og síð- ast en ekki síst ríkuleg áhersla á hjálp í viðlögum, sem skátar hefðu alltaf borið fyrir brjósti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.