Morgunblaðið - 21.02.1982, Side 30

Morgunblaðið - 21.02.1982, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982 Þúsundþjalasmiður að- stoðar við skákstjórn GÓÐUR vinur nokkurra af sterk- ustu skákmönnum íslendinga birtist á skákstað að Kjarvalsstöðum á miðvikudag. Maðurinn heitir Eric Schiller, 26 ára Bandaríkjamaður, sem býr í Bretlandi, sannkallaður þúsu nd þjalasm iður. Hann hefur ferðast víða um heim sem skákstjóri og verður til trausts og halds meðan Reykja- víkurskákmótið stendur yfir. Hann er með háskólapróf í rússn- esku, iatínu og þýzku og hans helzta áhugamál, auk skákarinn- ar, er hljómsveitarstjórn. Hann stendur að útgáfu skáktímarits í Bretlandi og skrifar í annað slíkt í Bandaríkjunum. Hann fylgist grannt með því, sem gerist í skákheiminum, en sjálfur á hann talsvert í land með að verða topp- maður í skák, „því miður", segir Schiller í spjalli við Morgunblaðið í kaffistofu Kjarvalsstaða. Frá því, að Schiller var meðal skákstjóra á Olympíumótinu á Möltu hefur hann víða farið og kom hingað til lands frá móti í London. Þar bæði tefldi hann og var meðal skákstjóra. „Það kemur sér vel að hafa vald á nokkrum tungumálum, við skákstjórnina. Rússneskan er til dæmis yfirleitt vandamál á þessum mótum og þá er gjarnan kallað á mig.“ Við vikum talinu að keppendum á Reykjavíkurmótinu. Um Alburt sagði Schiller, að hann tefldi mik- ið gegn bandarískum skák- mönnum og gengi yfirleitt vel gegn þeim. Þegar hann mætti sterkustu skákmönnum annarra þjóða hefði Alburt hins vegar ein- stakt lag á því að velja rangar byrjanir. Því væri árangur hans oft ekki í samræmi við stigafjölda mannsins. Alburt er með 2550 ELO-stig og er stigahæstur þátt- takenda á Reykjavíkurmótinu, ásamt Adorjan frá Ungverjalandi. Um íslenzku skákmennina hafði hann það helzt að segja, að Jón L., Margeir og Guðmundur væru góð- ir vinir sínir og „Friðrik er dáður og virtur í skákheiminum“. „Jón og Margeir eru eins og svart og hvítt. Sá fyrrnefndi er mikill sóknarskákmaður, en Margeir er á kafi í hinni fræðilegu hlið skákar- innar. Þeir hafa báðir mikla hæfi- leika. Ég tala af reynslu; ég hef tapað fyrir þeim báðum." Mál Korchnois og fjölskyldu bar á góma og lofaði Schiller Friðrik Ólafsson fyrir hans hlut í málinu og sagði, að þessi mál yrðu ekki leyst nema á „diplómatískan hátt“. „Annars get ég alveg sagt þér hvað er næsta hneykslið í skák- inni“, hélt Eric Schiller áfram. „Það er varðandi Lary Kasparov. Honum hefur síðustu mánuði ver- ið boðið á skákmót í Wijk an See, Hastings og London, en á þessi Erk Schiller á skákstað. þrjú mót hafa Rússarnir sent allt aðra menn, einhverja vini Karp- ovs. Ég þekki Kasparov vel, því ég hef þýtt bækur hans yfir á ensku. Núna er hann hins vegar orðinn of sterkur í skákinni og það líkar Karpov ekki. Honum er ógnað. Því fær hann kerfið til að senda ein- hverja vini sína á stórmót erlend- Ivanovic vann Horvath og nálgast nú toppinn. is, þó allt öðrum sé boðið eða um þá beðið. Sama er að segja um Psakhis, hann er að verða of góð- ur. Karpov er hræddur og þess vegna eru þessir skákmenn látnir sitja heima meðan gæðingarnir tefla erlendis," sagði Eric Schiller meðal annars. áij Einkatölm deildarstjórans Apple-tölvan er alveg nýr heimur. Heimur þar sem maður og tölva takast í hendur. Apple býður upp á þriðja kostinn, en ekki aðeins val milli risatölvu eða engrar. Apple er einkatölva, jafn auðveld í notkun og bifreið, en eins lítil og létt og ritvél, en álíka ódýr og venjuleg Ijósritunarvél. Appie er tæki sem léttir þér störfin, eyðir pappírsflóði og gerir þér kleift að taka skjóta, en örugga ákvörðun. Apple-tölvan kannar fýrir þig afleiðingar væntanlegra ákvarðana þinna. Hún sér um að leysa stjórnunarverkefni (t.d. fjárhagsáætlun, rekstraráætlun o.s. frv.) og getur jafnvel skrifað bréf og skýrslur. Apple er fjölhæft verkfæri, sem getur unnið eftir miklum fjölda forrita, hvort sem þú ert lögfræðingur eða læknir, sölu-, markaðs-, skrifstofu- eða fjármálastjóri. Er áhugi vakinn? Ertu tortrygginn eða í vafa? Komdu þá við hjá okkur, og sjáðu hvernig Apple-tölvan leysir fyrir þig áætlanagerð. Þú verður fljót(ur) að sjá, hve þægilegt er að hafa við höndina öfluga einkatölvu. Þú hugleiðir alvarlega að fá þér Apple. Hafðu samband við okkur |gý applc computor Sahovic lagði Helga Ólafsson í gærkvöldi, en að baki Júgóslavans er Forintos frá Ungverjalandi greini- lega skemmt. Stórmeistararnir Friðrik Olafsson og Edmar Mednis hafa verið langt frá sfnu bezta á mótinu, enda hefur hvorugur þeirra taflmennskuna að aðalstarfi. Júgóslavneski skákmaðurinn Abr amovic, en hann er alþjóðlegur meistari.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.