Morgunblaðið - 30.04.1982, Síða 2
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982
Daglegt
GEGNA MJÖG MIKILVÆGU HLUTVERKI í ÞROSKAFERLI BARNSINS FRÁ FYRSTU TIÐ
„Það er leikur að læra, leikur sá er mér kær ..Á þessum orðum hefst
gamalkunnur söngur sem flest skólabörn kannast við, í það minnsta var
hann sunginn mikið hérna á árum áður. Sumir eru á þeirri skoöun að
nám og leikur eigi litla samleið, það sé enginn leikur að læra, heldur
hörkuvinna, púl og strit. Aðrir ganga jafnvel enn lengra og segja að nám
og leikur séu aldeilis óskyldir hlutir og eigi enga samleið. En hver svo
sem afstaða manna er til þessara mála veröur því ekki neitað aö á fyrstu
æviárum mannsins er nám og leikur nær eitt og hið sama, barnið lærir
aöskiljanlegustu hluti í leikjum sínum og þannig er lagður grundvöllur-
inn að öllu námi og reyndar alhliða þroska viðkomandi einstaklings
seinna meir. Fyrr í vetur kom út bæklingur á vegum Barnavinafélagsins
Sumargjafar sem heitir „Börn, leikir og leikföng11, og er þetta fyrsti
bæklingur sinnar tegundar sem gefinn er út hér á landi. í honum er að
finna ýmsar ráðleggingar til handa foreldrum og öðrum uppalendum
um val á leikföngum og helstu leiki barna á ákveðnum aldursskeiðum.
Hér verður lauslega gerð grein fyrir nokkru af því sem þar kemur fram.
Valgerður Jónsdóttir
Skilningur hinna fullorönu er oft lít-
ill fyrir þessum teikningum eöa
sköpunarverkum barnanna, en öll
örvun þessa skapandi starfs er
barninu ómetanleg. Það vill gjarn-
an sýna fullorönum myndir sínar
og skýra þær út, og þá er þaö
þeim mikils viröi aö ekki sé gert
grín aö öllu saman.
Aö mynda hljóö og syngja
Hljómlist gegnir stóru hlutverki i
þroskaferli barnsins og hefur frá
aldaööli veriö tjáningaraöferö
fólks viö ýmis tækifæri.
Upprunalegasta hljóöfæriö og
þaö nærtækastaer mannsröddin
sem býr yfir hinum ýmsu
blæbrigöum og getur miðlaö
hlýju, uppörvun, gleöi, sorg, ótta
og reiði. Barniö hefur yfirleitt yndi
af því aö syngja, mörg börn fá með
söngnum fullnægt tjáningarþörf
sinni og þaö slaknar á innri spennu
þeirra. Þrátt fyrir takmarkaöan
orðaforöa og skilning lærir barniö
oft einfaldar vísur og uppgötvar
hraða, hljóðfall, tónhæö og styrk.
Söngur er oft tákn um vellíðan og
ánægju og barni, sem raular viö
leik sinn, líöur vel. Þaö tengir sam-
an tónlist og hreyfingu og þaö
hreyfir sig eölilega og óþvingaö
eftir hljóöfallinu. Fyrstu kynni
barnsins af tónlistinni hafa áhrif á
raunverulegan tónlistaráhuga síö-
ar.
Bækur
Þegar barniö er u.þ.b. ársgam-
alt er tímabært aö fara aö sýna því
bækur t.d. meö dýramyndum og
einföldum myndum úr daglega líf-
inu. Um þriggja ára hafa flest börn
náö þroska til aö hlusta á og skilja
atburöarás í samhengi.
Fyrstu sögurnar ættu aö vera
stuttar og auöskildar. Oft á barniö
sér eftirlætissögu sem þaö getur
hlustaö á aftur og aftur, en smátt
Hlutverka- og
hermileikir
Flestir fullorönir kannast viö
þykjustu- og hermileiki barna
sinna, mömmuleik, læknisleik,
búöarleik og fleira í þeim dúr. Leik-
ir þessir endurspegla oft umhverfi
barnsins, það lifir sig inn í og til-
einkar sér ýmsa atburði sem ger-
ast í kring um þaö og tjáir þá í leik
sínum. Barnið er þó ekki eingöngu
aö þykjast vera fulloröiö í þessum
leikjum sínum, heldur gefur þaö til-
finningum sínum lausan tauminn
og lætur í Ijós meira eöa minna
dulda reiði, hræðslu, afbrýöisemi
eöa blíöu.
Á þennan hátt koma oft í Ijós
ýmis vandamál barnsins,
sem þaö getur rætt um viö
annaö barn eöa fulloröna |
þegar þaö eldist, en viö
þriggja til sex ára aldur skilur þaö
ekki hvaö hræöir þaö eöa veldur
því áhyggjum og hefur jafnvel ekki
orðaforða til að tala um þaö. Því er
leikurinn barninu hjálp á sama hátt
og þaö er hinum fullorðnu hjálp aö
tala um vandamál sín.
Byggingarleikir
Frá tveggja ára aldri eru kubbar
ýmiss konar mjög góö leikföng
fyrir börn. í augum hinna fullorönu
eru kubbarnir eingöngu til að
byggja úr en í augum þriggja til
fjögurra ára barns geta þeir breyst
í bíla, fólk, flugvélar eða skip, og
eru einfaldir kubbar því bestir því
þá fær ímyndunarafliö að njóta sín
til fullnustu. Barniö lærir auk þess
ýmsar tölur og hlutföll, oft eru
mörg börn saman í kubbaleik og
læra þau þannig aö vinna saman
aö ákveðnum verkefnum og meta
og viröa rétt sinn og annarra.
Að raða og aðgreina
Leikföng til aö setja saman eða
flokka efla handlagni barnsins og
ímyndunarafl. Barnið áttar sig á úr
hverju hlutirnir eru geröir, lit,
fjölda, stærö og lögun. Púsluspil
og spil af ýmsum geröum auka at-
hyglisgáfu og formskyn barnsins
jafnframt því aö þroska fíngeröar
hreyfingar handarinnar, og er það
hefur náö fullu valdi á aö raöa
myndþrautum og ýmsu þessháttar
eykst sjálfstraust þess og þaö
leggur út í stærri og flóknari verk-
efni.
Að teikna, mála og móta
Barnið þarf að hafa tækifæri til
aö tjá reynslu sína í skapandi leik,
vatn, sandur og leir eru þvi góöur
efniviður. Það aö teikna, mála og
móta er barninu eðlilegt tján-
ingarform, og þaö teiknar þaö sem
það hefur áhuga á og þekkir.
Barnið málar samkvæmt eigin
reynslu og ímyndunarafli og þaö
sem gerist innra meö því skiptir
miklu meira máli en sú framleiösla
eða sá árangur sem þaö skilar.