Morgunblaðið - 30.04.1982, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982
39
UpplýainRar og reglugarð ■
HJánamlðlun og kynningu.
Pelr, sem leita til þessarar stofnunar, þurfa að útfylla
í skýralu og láta af henði *ynd af aár, aem feat er á akfraluna.
Lum lelð greiða þelr kr.____________________. »•« «u Tinnulaun
KtíÖ akfraluaamanburð. begar aamband er geflð mllli karla og
[ konu, þá greiða báðir aðilar afnar kr--------------—----- hTor»
|saratala kr._______ -—.*
En heppniat ekkl aarabandið, ber báðura aðilu* að láta Tlta
það, þTÍ þá Terður haldið áfram að finna ráttan fálaga.
Peningar, ek/rela og mynd Terða geymd hár, og getur TÍð-
| komandl aðill ekki afturkallað það.
Yerður reynt eftir beatu getu að Tinna í þeaeu einkamáli.
Pálkið ejálft hefur ráðln.
Ondirritaður etarfar aem trúnaðarmaður Tið einkamál þeea.j
Kriatján S.Jáaefaaon.
Kynnlngarmaður:
Krlatján S.Jáaefaaon.
Sfmi: 26628.
HJánaralðlun og kynning.
Reykjavfl
Skfralunáraer_
Heimiliafang:________
Pmðlngardagur og ár:.
Nafnnáner:___________
P*ðingarataður:
Sfmi undirrltaða:_______
Htb mörg böm og aldur:
Kkkill:_________________
Reglusaraur/söra:
Heilaufar:______
Xfnahagur:______
AtTlnnai'_______
__Lðglega ekllin(n)T_
__Menntun:_____________
____Hraðl_____________
Práekilin(n):
Xhugamál:________________—
Aðakillnn fjárhagur:________
SakaTottorð, (éf áakað ar):
Mynd eða myadl,r:_
Augnalitur:
Skap:.
Hrað heltlr fyrrrerandi maður/konaY_
IGrelðala, hT# mlkilt---------------
Öeklr Tiðkomanda eru peeear:.
Aðrar upplýelngar og atörf:
Hvaða þjáðart
Kvartanlr:
__Pagmraleka:
matsölustaö eöa kaffihúsi. Ég mæli yfirleitt
með því aö þau hittist á fremur rólegum
staö, fari saman í leikhús, út aö boröa eöa
annaö þessháttar. Þaö er mjög óæskilegt
aö fara á skemmtistaði í glaum og hávaöa,
því þannig umhverfi er yfirleitt mjög trufl-
andi. Margt af þessu fólki hefur einnig
stundaö skemmtistaðina mikið og orðið
leitt á þeim, þaö hafa margir talaö um þaö
viö mig aö þeir fái lítiö út úr lífinu og finni
sér ekki félaga á þann hátt. Annars er allur
gangur á þessum stefnumótum, sumir fara
jafnvel í feröalög."
„Hverjir leita aöallega til þín?“
„Þetta er fólk á öllum aldri, hingaö hafa
komiö stúlkur undir lögaldri og í þeim til-
fellum hef ég haft samband viö foreldra
þeirra og fengiö samþykki þeirra fyrir því
aö þær leituöu hingaö. Þessar stúlkur hafa
veriö meö börn á framfæri sínu, og hafa
náö sér í góöa félaga og stundum einnig
húsnæöi. Lengi framan af voru fleiri karl-
menn sem leituðu hingaö en konur, þaö
voru svo margir karlmenn sem komu utan
af landi, úr sveitum og annars staðar. í dag
eru hlutföllin hinsvegar nokkuö jöfn, hingaö
hefur leitaö fólk úr öllum stéttum þjóöfé-
lagsins, hámenntaö háskólafólk sem og
þeir sem litla menntum hafa fengið, stórút-
geröarmenn og stóreignafólk jafnt þeim
sem eiga engar eignir. Algengasti aldurinn
er þó milli 40 og 50 ára.“
„Hefuröu ekki lent í mörgu frásagnar-
veröu í sambandi viö þetta starf?”
„Jú, ég gæti sagt frá heilmörgu, en þaö
fólk sem leitaö hefur til mín hefur yfirleitt
veriö mikið afbragösfólk, þaö hefur þó
komið fyrir aö gift fólk hafi hringt í mig og
spurt vort þaö geti ekki fengiö samband í
eitt kvöld, en ég hef alltaf sagt aö ég vilji
ekki spilla heimilisfriönum."
„Fylgistu eitthvaö meö þínu fólki áfram?“
„Þaö hafa margir samband viö mig,
bjóöa mér í mat og kaffi og eru þakklátir
fyrir það sem ég hef gert. Eins kemur fólk
gjarnan sem flutt hefur út úr bænum, kem-
ur viö hjá mér ef þaö er í bænum.
„Ganga þessi sambönd vel?“
ísienaka dýrasafnið hefur
verið til húsa í Breiðfirð-
ingabúð undanfarin 12 ár, en
er við litum þar við var verið
að pakka öllum dýrunum
niður, þessir tveir hestar
stóðu þó enn á gólfinu
„Stærsti og minnsti hestur-
inn voru þeir í lifanda lífi,“
sagði Kristján er hann tók
sér stöðu á milli þeirra.
„Ekki veit ég annaö, þó hefur komiö fyrir
aö fólk hafi skiliö og komi síöan aftur svona
eftir 3 ár eöa þar um bil. Ég reyni aö finna
hugarfar fólksins, hvort þaö er gott í skapi,
hafi réttan hugsunarhátt og fleira. Ein
spurninganna sem fólkiö svarar í upphafi
er hvort þaö sé reglusamt, ef ég sé hins-
vegar einhvern af þeim sem eru á skrá hjá
mér drukkinn lagfæri ég þaö sem hann
hefur sagt, og þaö veikir stööu hans.“
„Eru einhverjar sérstakar óskir sem þér
finnst vera algengastar?“
„Þaö er mjög misjafnt, þó vilja karlmenn
stundum hafa möguleika á aö eignast erf-
ingja og þá verö ég oft aö spyrja konurnar
hvort þaö komi til greina. Þaö er einnig
spurt um fjárhag og má segja að það sé
kostur ef hann er góöur, en þó þarf þaö
ekki aö vera neitt atriði, ef fólk skilur hvort
annað þarf þaö engar eignir. Ég mæli yfir-
leitt meö því aö fólk byrji meö aö hafa
aöskilinn fjárhag, svo ekki veröi leiöindi út
af þessu."
„Eru fleiri sem reka hjúskaparmiölun hér
i bæ sem þú veist um?“
„Það hafa einhverjir fleiri fengist viö
þetta en ég held ég megi segja aö ég sé sá
eini sem hef rekið þetta í einhverjum mæli."
Helmilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Það er hægt að breyta því,
sem til er í klæðaskápnum
í Heimilishorni hefur nokkrum sinnum veriö á þaö minnst
hvernig breyta má flíkum, sem til eru, og gera sem nýjar. Þar
sem í Ijós hefur komiö að þessar ábendingar hafa falliö í góöan
jarðveg og beiöni um fleiri tillögur hafa borist dálkahöfundi, er
hér bætt við. Það eru oft myndir og ráöleggingar um slíkt í
erlendum blöðum, en það eru ekki allir, sem hafa aögang aö
þeim og fyrir þá eru einmitt þessar hugmyndir birtar.
Skyrtublússu breytt
Skyrtublússur hafa lengi veriö
vinsælar og veröa væntanlega enn
um hríð. En aldrei fer þaö nú samt
svo, að maöur veröi ekki þreyttur á
flíkum, sem klæöst hefur veriö lengi,
þó góöar séu og enn i fullu gildi.
Á myndinni, sem hér fylgir, er ein-
mitt sýnt hvernig skyrtublússu er
breytt í dálítiö stásslegri flík og fyrir-
höfnin ekki ýkja mikil. Sett er 3—4
cm rykkt blúnda í staöinn fyrir krag-
ann og einnig fest yfir brjóst og axlir.
Þaö er hægt að láta blúnduna enda
við axlasaum, en fallegra er aö hafa
hana einnig yfir bakiö. Einnig má
sauma pífu úr einhverju því efni, sem
til er á heimilinu, og nota á sama hátt
og blúnduna, ef of mikið þykir að
leggja í kaup á blúndu. Punktalínurn-
ar á minni myndinni sýna hvar festa á
blúnduna á blússuna, og ef kragan-
■ um er sprett af má geyma hann og
! festa á aftur þegar blúndu- og pífu-
skeiöiö er á enda runniö.
Þe*ta gæti oröiö hin fallegasta
sumarblússa, eins og sjá má á mynd-
inni.
V
Þaö eru not fyrir
gamla rúllukragapeysu
Ef rúllukragapeysan er oröin slitin
á ermum, en allt í lagi meö kragann
og efri hlutann, er hægt aö búa til
nokkurskonar kraga til aö nota undir
opna blússu eöa peysu. Eins og sjá
má á myndunum, sem hér fylgja, tek-
ur þetta sig Ijómandi vel út. A mynd-
inni með punktalínunum er sýnt
hvernig klippa á af peysunni, þ.e.
kraginn er hafður siðari að framan,
þar sem er heil lína, en punktalínan
sýnir kragann á aftan. En málin eru
þau aö kraginn er látinn ná ca. 20 cm
niöur aö framan, aöeins styttra aö
aftan og ca. 80 cm á öxlum.
Kraginn af gamalli rúllukraga-
peysu nothæfur á ný.
Viö höfum kótilettur
Það hefur áöur veriö á þaö
minnst í þessum dálkum, aö þaö
gefur góöa raun aö nota lambakóti-
lettur í ýmsar þær erlendu upp-i
skriftir þar sem gert er ráö fyrir
ööru kjöti. Þaö þarf því alls ekki aö
fæla neinn frá aö reyna uppskriftir
þó þær fjalli um aöra tegund af kjöti
en þaö, sem viö höfum viö höndina.
Kótilettur meö ávöxtum
Kótiletturnar eru brúnaöar á
pönnu, eftir aö mesta fitan hefur
veriö fjarlægö (ef notaðar eru
lambakótilettur). Síöan eru þær
settar í ofnfast fat og hálft epli sett
á hverja kótilettu. Ef til er safi af
niöursoðnum ávöxtum af einhverri
gerö er hægt aö búa til sósu úr því,
bæta í sítrónusafa eöa ööru aö
smekk eða hella dál. vatni í fatiö og
bæta súputening í og hafa soösósu
meö.
Kótilettur meö lauk og eplum
6 þunnar kótilettur
1 matsk. smjörlíki
1 matsk. olía
2 tsk. karrý
2 laukar
2 epli
2 matsk. hveiti
1 peli af soöi
1 dl. rjómi
salt, pipar
agúrka.
Laukurinn brytjaöur smátt, eplin
skorin í teninga. Kjötiö brúnaö
ásamt karrý, lauknum bætt á pönn-
una ásamt eplabitunum. Þegar
þetta er orðiö gegnumbrúnaö er
hveitinu stráö yfir og síöan hellt yfir
soöi (eða vatni og súputen.) og
rjóma hellt í og látiö smásjóöa þar
til kjötiö er orðiö meyrt. Sósan
bragöbætt að smekk, brytjaöri ag-
úrku stráö yfir um leiö og boriö er
fram.
Paprikukótilettur
Kótilettunum velt upp úr hveiti,
sem í er blandaö paprikudufti, og
brúnaö á pönnu, soðiö. Boriö fram
meö hálfum steiktum tómat á
hverja kótilettu ásamt grænum pip-
arhring. Boriö fram meö Roman-
off-salati.
Romanoff-salat
1 dl. rúsínur, 1 dl. ananasbitar, dál.
af salatblööum skorið í strimla, sal-
atsósa búin til úr þeyttum rjóma,
sem í er hrært ediki, sykri, sinnepi
og enskri sósu, allt eftir smekk.
Marineraöar kótilettur
4 kótilettur, smjör eða smjörlíki
til að steikja úr, salt, pipar, hveiti til
að jafna sósuna og rjómi.
Marinaði
1 hluti vínedik, 3 hlutar olía, 1 lár-
viöarlauf, timian, pipar, 2 hvít-
lauksrif, örsmátt brytjuö.
Kótiletturnar lagöar í löginn og
hafðar í ca. 2 tíma áöur en matbúiö
er. Kjötiö þerraö vel á eftir og síðan
steikt báöum megin, vatni bætt á.
Síöan látið malla eöa smásjóöa um
stund eöa þar til þaö er meyrt. Sós-
an jöfnuö meö hveiti, bragöbætt að
smekk og rjóma bætt í, persille
stráö yfir um leið og boriö er fram.
Danny Kay
leikur enn í
kvikmyndum
Margir muna eflaust eftir
bandaríska gamanleikaranum
Danny Kay, þó myndir með
honum hafi ekki veriö sýndar
hér í kvikmyndahúsum síöustu
árin.
En hann fæst enn við kvik-
myndaleik og er nýlega lokiö
töku sjónvarpsmyndar, þar sem
hann leikur eitt aöalhlutverkið.
Sögusviöið er bærinn Skokie í
lllinois-fylki í Bandaríkjunum, en
þar búa mjög margir gyðingar
og jafnframt margir, sem kom-
ust lífs úr fangabúöum nasista i
síöari heimsstyrjöldinni.
Á árunum 1977—’78 ruddust
fylkingar af nasistum mörgum
sinnum inn í bæinn Skokie, til
að storka gyöingum þar og lít-
ilsvirða. Ibúarnir brugöust auö-
vitað allt annaö en vel viö og
heimtuðu vernd lögreglu. En
Danny Kay leikur mann aö nafni
Max Feldmann, sem lifaö haföi
af hörmungar fangavistar nas-
ista og snýst hann til varnar,
eins og fleiri ibúar bæjarins.
Þykir Danny Kay túlka vel hlut-
verk hins alvörugefna Feldman
og sýna góöan leik, þó fremur
hafi hann átt viö gamanhlutverk
á ferli sínum fram til þessa, eins
og kunnugt er.
Danny Kay i hlutverki Max
Feldman í Sjónvarpskvikmynd-
inni „Skokie“