Morgunblaðið - 30.04.1982, Síða 10
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA?
4 2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982
Betanía í Reykjavík:
Kaffisala kristni-
boöskvenna 1. maí
Laugardag 1. maí veröur kaffisala í Bet-
aníu viö Laufásveg 13 í Reykjavík á vegum
Kristniboösfélags kvenna i Reykjavík. Hefst
kaffisalan kl. 14.30 og stendur til kl. 22. t>á
veröur kl. 14.30 opnaöur flóamarkaöur í
kjallara hússins.
Ágóöa kaffisölunnar veröur variö til
starfs Sambands ísl. kristniboösfélaga í
Kenýa og Eþíópíu. í haust fara kristniboöar
til starfa í Eþíópíu og aftur í ársbyrjun 1983,
en þá fara einnig nýir kristniboöar til starfa
í Kenýa. Kristniboöarnir sinna margháttuöu
skóla- og heilsugæslustarfi auk boöunar
kristinnar trúar.
Kirkjukór Lög-
mannshlíðarkirkju
Kirkjukór Lögmannshlíöarkirkju, söng-
stjóri Áskell Jónsson, heldur tónleika í
Borgarbíói á Akureyri laugardaginn 1. maí
kl. 17.00. Einsöngvarar veröa Helga Al-
freösdóttir, Eiríkur Stefánsson og Þórarinn
Halldórsson, en hljóöfæraleikarar úr Tón-
listarskóla Akureyrar, kennarar og nem-
endur, leika undir á orgel, píanó og
strengjahljóðfæri.
Á efnisskrá eru þrír kórar úr Messu nr. 2
í g-dúr eftir Franz Schubert, fjórir kórar úr
Alþingishátíöarkantötu Björgvins Guö-
mundssonar, íslands þúsund ár, tveir kórar
úr óratoríunni Friður á jöröu eftir Björgvin
Guömundsson og þar aö auki ýmis söng-
lög eftir íslensk tónskáld.
Aðgöngumiöar veröa seldir viö inngang-
inn, og rennur allur ágóöi til byggingar
safnaöarheimilis í hinni nýju Glerársókn.
Tónleikarnir veröa ekki endurteknir.
Ó hve létt er þitt
skóhljóð
Dagskrá úr Ijóöum Halldórs Laxness,
sem Þórhallur Sigurösson leikari tók sam-
an og nemendur 3. bekkjar Leiklistarskóla
íslands hafa aö undanförnu flutt í Norræna
húsinu, veröur í síöasta sinn, laugardaginn
1. maí kl. 17.00.
Dagskráin er aö mestu byggö á Kvæöa-
kveri Halldórs Laxness, en brotum úr
blaóagreinum og öðrum verkum skáldsins
er skotiö milli Ijóöanna og sungin eru lög
eftir Jón Ásgeirsson, Jón Þórarinsson, Jón
Nordal, Áskel Másson og Eyþór Árnason.
Undirleik annast Páll Eyjólfsson, gítarleik-
ari.
Aögangur aö dagskránni er kr. 50 og eru
miöar seldir í skrifstofu Norræna hússins
og kaffistofu.
Söngskemmtun í
Vestmannaeyjum
Karlakórinn Stefnir í Mosfellssveit heldur
söngskemmtun næstkomandi laugardag 1.
maí kl. 17 í Samkomuhúsinu í Vestmanna-
eyjum. Einsöngvarar með kórnum eru:
Ólafur Magnússon frá Mosfelll og Svein-
björn Einarsson á Heiöarbæ. Undirleikari
er Bjarni Snæbjörn Jónsson sveitarstjóri.
Söngstjóri er Lárus Sveinsson trompetleik-
ari.
Meðal annars eru flutt lög og Ijóö eftir
kunna Vestmanneyinga. Síöar sama kvöld
heldur kórinn skemmtun í Samkomuhúsinu
og hefst hún kl. 22.
Mexíkaninn í
MÍR-salnum
Kvikmyndasýning veröur í MÍR-salnum,
Lindargötu 48, nk. sunnudag, 2. maí, kl. 16.
Sýnd veröur sovéska kvikmyndin „Mexí-
kaninn“, sem gerö var 1956 eftir sam-
nefndri skáldsögu Jack Londons. Leikstjóri
er V. Kaplunovskí, en meö aöalhlutverkiö
fer O. Strizhenov. Meðal annarra leikenda
er Tatjana Samoilova, sem síöar varö
heimsfræg fyrir leik sinn í „Trönurnar
fljúga“. Þetta var fyrsta kvikmyndahlutverk
hennar.
Rússneskt tal er í myndinni og engir
skýringatextar, en ágrip sögunnar veröur
kynnt fyrir sýningu. Aögangur er ókeypis
og öllum heimill.
Kvennadeild Borg-
firðingafélagsins
með kaffisölu
Á laugardaginn 1. maí nk. veröur
Kvennadeild Borgfirðingafélagsins meö
sína árlegu kaffisölu og skyndihappdrætti í
Domus Medica. Húsiö veröur opnaö klukk-
an 2.30. Kvennad.eildin hefur starfaö í 18 ár
og unniö að líknar- og menningarmálum. Á
síöasta ári fór verulegur hluti af ágóöa
kaffisölunnar til sundlaugarsjóós sjúkra-
húss Akraness.
Kirkjukór Lögmannshlíóarkirkju.
Kaffisala —
hlutavelta
Kvennadeild Skagfiröingafélagsins í
Reykjavík veröur meö sitt árlega veislukaffi
og hlutaveltu í Lindarbæ laugardaginn 1.
maí nk. kl. 14. Engin núll. Ágóðinn rennur
til líknarmála annað hvort á höfuöborg-
arsvæöinu eöa heima í héraöi eftir því sem
getan leyfir. Félagskonur vænta þess að
allir velunnarar deildarinnar og aörir, sem
áhuga hafa á málefninu, leggi leiö sína í
Lindarbæ 1. maí.
„Anna Lísa“ á
Hvammstanga
Laugardaginn 1. maí klukkan 17.00 sýnir
Leikklúbburinn Saga á Akureyri leikritiö
„Önnu Lísu“ eftir Helga Má Barðason í fé-
lagsheimilinu á Hvammstanga. Leikstjóri er
Þröstur Guöbjartsson, en lýsingu hannaöi
Viöar Garöarsson. Tónlist er eftir Jóhönnu
Birgisdóttur.
Á sunnudagskvöld kl. 20.30 veröur
„Anna Lísa“ sýnd á Hofsósi. Um næstu
helgi sýnir klúbburinn í Hrísey og á Greni-
vík.
Þjóðleikhúsið
um helgina
Meyjaskemman var frumsýnd um síö-
ustu helgi og hefur veriö uppselt á sýningar
til þessa. Einnig er uppselt í kvöld og
næsta sýning á söngleiknum veröur á
sunnudagskvöldiö.
Gosi veröur tvisvar á feröinni nú um
helgina og er sýningum aö Ijúka. Sýning er
í dag kl. 14.00 og á sunnudaginn kl. 14.00.
Sýningin á sunnudag er næstsíöasta sýn-
ingin á verkinu, en rúmlega sextán þúsund
áhorfendur hafa séö Gosa til þessa.
Amadeus eftir Peter Schaffer veröur á
fjölunum á laugardagskvöld og er fólki
bent á aö sýningum á þessu leikriti fer nú
fækkandi.
Uppgjörið eftir Gunnar Gunnarsson
veröur sýnt í allra síöasta skipti nú á
sunnudagskvöld. Búiö er aö sýna verkiö 70
sinnum á vinnustööum og í skólum og
nokkrum sinnum á Litla sviöinu. Sýningar
geta ekki orðið fleiri vegna þess aö Guö-
mundur Magnússon er á förum til útlanda,
en sem kunnugt er leika þau Edda Þórar-
insdóttir og Guömundur hlutverkin í sýn-
ingunni. Sýningin hefst á Litla sviöinu kl.
20.30.
Úr Meyjarskemmunni.
Tónleikar í
Dómkirkjunni
Sunnudaginn 2. maí kl. 17.00 heldur
Dómkórinn tónleika í Dómkirkjunni. Á efn-
isskrá er mótettan „Jesu, meine Freude"
eftir Bach, nýtt orgelverk eftir Þorkel Sigur-
björnsson og tónlist eftir Hessenberg og
Strawinsky.
Stjórnandi Dómkórsins er Marteinn H.
Friöriksson.
Ferðafélag íslands:
Ferð á Vífilsfell
Laugardaginn 1. maí veröur ferö á Víf-
ilsfell kl. 13. Vífisfelliö er 656 m hátt.
Sunnudaginn 2. maí veröa tvær gönguferö-
ir. Kl. 11 verður ferö á Tindstaöafjall (786
m), en Tindstaöafjall er norövestan í Esju.
Kerlingargil gengur inn í Tindstaöafjall aö
noröan og liggja hreppamörk Kjósar- og
Kjalarneshrepps um giliö. Kl. 13 er ferö í
Kerlingargil og gefst þá farþegum tækifæri
til aö fá upplýsingar um bergtegundir, sem
kynnu að blasa viö augum, þar sem berg-
fræöingur veröur meö í ferðinni.
Samkvæmt prentaöri áætlun átti aö fara
söguferö kringum Akrafjall og ennfremur
ganga á fjallið 2. maí, en vegna þunga-
takmarkana á vegum veröur aö fresta
þessari ferö, enda gert ráö fyrir því í ferða-
áætlun aö breyttar aöstæöur geti ruglaö
fyrirkomulagi á feröum.
LA frumsýnir
„Eftirlitsmanninn“
Næstkomandi föstudagskvöld frumsýnir
Leikfélag Akureyrar gamanleikinn „Eftirlits-
manninn" eftir Gogol í nýrri leikgerö, sem
leikstjórar sýningarinnar Guörún Ás-
mundsdóttir og Ásdís Skúladóttir hafa
unnið ásamt Jóni Hjartarsyni. Ivan Török
hannaöi leikmynd og búninga, Gunnar
Reynir Sveinsson sér um leikhljóö og tón-
list og David Walters lýsir sýninguna. Leik-
ararnir sem koma fram í sýningunni eru:
Gestur E. Jónasson, sem leikur titilhlut-
verkið, Þráinn Karlsson, Guðlaug Her-
mannsdóttir, Guöbjörg Thoroddsen,
Sunna Borg, Ingibjörg Björnsdóttir, Andrés
Sigurvinsson, Þröstur Guöbjartsson,
Jónsteinn Aðalsteinsson, Heimir Ingi-
marsson, Marinó Þorsteinsson og Theodór
Júlíusson. LA býður eldri borgurum ásamt
fylgdarmanni 50% afslátt á 2. sýningu
sunnudaginn 2. maí.