Morgunblaðið - 30.04.1982, Síða 11
HVAÐ ER AD GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982 4 3
Tónleikar í
Austurbæjarbíói
Laugardaginn 1. maí kl. 2 e.h. mun
Tónmenntaskóli Reykjavíkur halda tónleika
í Austurbæjarbíói.
Á þessum tónleikum koma einkum fram
yngri nemendur skólans meö einleik og
samspilsatriöi á ýmis hljóöfæri. Auk þess
veröur hópatriöi úr forskóladeild. Aögang-
ur er ókeypis og öllum heimill.
Yngri nemendur Tónmenntaskóla
Reykjavíkur.
Jói á hakanum
Hljómsveitirnar „Jói á hakanum“ og
„Ólafur ósýnilegi'1 munu halda tónleika nk.
laugardagskvöld, 1. maí, í Djúpinu.
Kjarvalsstaðír:
Gísli Sigurösson —
Myndir úr Ijóðheimi
Eins og heitiö á sýningunni ber meö sér,
sækir Gísli Sigurðsson föng sín í Ijóö og
kemur víöa viö, enda eru samtals 60 verk á
sýningunni. Þetta eru allt olíumálverk á
dúk, máluö síöastliöin þrjú ár, og flest sín
föng sækir Gísli i Ijóö nútímaskálda. Þetta
er í fyrsta sinn, sem heil sýning af þessu
tagi er sett saman og sýningargestum til
fróðleiks lætur Gísli fylgja meö í sýn-
ingarskránni öll 60 Ijóöin. Þarna eru myndir
viö alkunn Ijóö, svo sem við Vatnsmýrina
eftir Tómas Guömundsson, Söknuö eftir
Jóhann Jónsson, Tímann og vatniö eftir
Stein Steinarr. Myndin sem hór fylgir meö
er af einni stærstu myndanna á sýningunni.
Hana hefur Gísli málaö viö Ijóö Kristjáns
frá Djúpalæk, sem heitir Martröö og lýsir
draumi Guörúnar á Bægisá, þegar hana
dreymir fyrir þvi, aö djákninn kemur á Faxa
sínum og nemur hana á brott. Sýningin
veröur opin fram til 10. mai.
Meö Útivist í
fuglaskoöunarferð
á Garöskaga
Tvær dagsferöir eru á dagskrá feröafé-
lagsins Útivistar um helgina. Laugardaginn
1. maí veröur farin 4. kynningarferö á
Reykjanesfólkvang. Veröur ekið á Hös-
kuldarvelli og gengiö þaðan um Lambafell
og Hrútagjá. í Lambafelli er mikil
misgengissprunga, sem gengið er í gegn-
um. Brottför er klukkan 13. Sunnudaginn
2. maí er fuglaskoðunarferö og strand-
ganga og er brottför einnig kl. 13. Fariö
verður aö gamla Garöskagavitanum og
einnig um ströndina aö Sandgeröi og þaö-
an í átt aö Hvalsnesi eins og tíminn leyfir.
Gott er að hafa meö sér sjónauka. Farar-
stjóri veröur Árni Waag. Brottför veröur frá
BSÍ, bensínsölu, í hvora tveggja feröina.
Rétt er aö vekja athygli á aö sunnudaginn
9. maí verður sérstakur útivistardagur
fjöskyldunnar. Veröa þá farnar 2 feröir kl.
10.30 og kl. 13.
Málverkasýning
í Eden
Þorlákur R. Haldorsen heldur mál-
verkasýningu í Eden, Hverageröi, dagana
29. april til 10. maí. Synir hann 45 verk,
olíumálverk, pastel og olíukrítarmyndir.
Myndirnar eru m.a. frá Reykjavíkurhöfn,
Þingvöllum, Eyrarbakka, Stokkseyri og
fleiri nálægum stööum. Þetta er 24. einka-
sýning Þorláks en hann stundaöi teikninám
hjá Eggerti Guðmundssyni listmálara og
var viö nám í Statens Kunstakademi í Osló.
Vorfagnaöur
Átthagasamband Héraösmanna heldur
vorfagnað í félagsheimili starfsmanna
Rafveitunnar viö Elliöaár laugardaginn 1.
maí. Húsiö opnar kl. 20.30. Eysteinn Jóns-
son fyrrv. Ráöherra flytur ávarp, upplestur
og söngur viö undirleik Machiko Sakurai.
Hljómsveitin Slagbrandur leikur fyrir dansi.
Sýning á verkum
Brynjólfs Þórð-
arsonar framlengd
Vegna ágætrar aösóknar aö yfirlitssýn-
ingu á verkum Brynjólfs Þóröarsonar í
Listasafni Islands, hefur veriö ákveöiö aö
framlengja sýninguna um eina viku, og
mun henni þvi Ijúka sunnudaginn 9. maí.
Sýningin veröur opin þá viku á venju-
legum sýningartíma safnsins, þriöjudag,
fimmtudag, laugardag og sunnudag kl.
13.30—16.
Leiðrétting
í síöasta þætti var birt frétt frá Samtök-
unum '78 og þau nefnd „Félag kynvillinga á
islandi". Guöni Baldursson, formaöur Sam-
taka '78, hefur óskaö eftir leiöréttingu á
þessu og segir aö félagsskapurinn heiti
„Samtökin ’78 — félag lesbía og homma á
islandi“ og ekkert annaö. Er þessu þar meö
komiö á framfæri.
Tónleikar
í Grindavík
Skólahljómsveit Grindavíkur heldur sina
árlegu vortónleika laugardaginn 1. mai kl. 2
í félagsheimliinu Festi.
Hljómsveitina skipa 30 nemendur í yngri
og eldri deild og leikur Karl Jóhannesson
einleik meö eldri nemendum.
Eftir tónleikana veröa kaffiveitingar frá
3—5 og eru tónleikagestir og aörir vel-
komnir meöan húsrúm leyfir og kaffi til á
könnunni.
Rokkað á Eyrinni
Tónleikar veröa haldnir í Alþýöuhúsinu á
ísafiröi í kvöld kl. 21.00. Þar kemur fram
ísfirska hljómsveitin „Allsherjarfrík“ og
mun hún eingöngu flytja frumsamiö efni.
Aö auki munu væntanlega spila tvær til
þrjár hljómsveitir aörar, skipaöar isfiröing-
um.
Sýning í Nýja
Galleríinu
Guölaugur Ásgeirsson opnar myndlista-
sýningu í Nýja Galleríinu viö Laugaveg 12.
26 verk eru á sýningunni, teikningar og
grafík. Þetta er fyrsta einkasýning Guö-
laugs en hún er opin frá 30. april til 10. maí
frá 14.00 til 22.00 daglega.
Matthea Jónsdóttir
í Ásmundarsal
Nú á sunnudaginn 2. maí lykur sýningu
Mattheu Jónsdóttur í Ásmundarsal viö
Freyjugötu. Hún sýnir þar 23 olíumálverk í
aðalsal og 28 vatnslitamyndir i baksal.
Þetta er sjöunda einkasýning Mattheu en
hún hefur hlotiö ýmsar viöurkenningar fyrir
verk sín á alþjóölegum sýningum m.a. í
Frakklandi og Belgíu. Sýningin er opin frá
14.00 til 22.00 um helgar.
Fræðslufundur
Skógræktarfél. Rvík.
Skógræktarfélag Reykjavikur heldur
fræðslufund sinn í Skógræktarstööinni í
Fossvogi sunnudaginn 2. mai kl. 14.00. Á
dagskrá er: kynning á trjáplöntum og runn-
um, plöntuval í garða, ræktun og tilhögun
gróöurs í sumarbústaöalönd, gróöursetn-
ing trjáa og runna, fært til tré, stoöir viö
tré, skýling trjáa og skjolgrindur og fleira.
Gítartónleikar
á Flateyri
Gítarieikarinn Pétur Jónasson heldur
tónleika á föstudaginn í héraðsskólanum
Núpi kl. 21.00 og á Flateyri 1. maí kl. 16.00
í samkomusal Hjálms.
Alþýðuleikhúsið:
Síðustu sýningar
á Don Kíkóta
Nú eru aö veröa síöustu forvöö aö sjá
sýningu Alþýöuleikhússins á Don Kikóta.
Næsta sýning veröur á laugardaginn kl.
20.30. Leikarar eru: Arnar Jónsson, Bjarni
Ingvarsson, Borgar Garðarsson, Eggert
Þorleifsson, Guðmundur Ólafsson, Helga
Jónsdóttir og Sif Ragnhildardóttir. Leik-
stjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir.
Dansleikur til styrktar Alþýðuleikhúsinu
veröur haldinn 1. maí í Félagsstofnun stúd-
enta og verður hann frá kl. 22.00. Þar
munu Grýlurnar leika fyrir dansi og Peysu-
fatakór kvennaframboösins syngur nokkur
lög.
Þremur sýning-
um lýkur á
Kjarvalsstöðum
Sýningu Huldu Siguröardóttur í austur-
forsal Kjarvalsstaöa á textilverkum lýkur á
sunnudagskvöld. Hún er lærö í Skotlandi
en þetta er hennar önnur einkasýning. Hún
hefur og tekið þátt i samsýningum ytra. 46
verk eru á sýningunni. Þá lýkur á sunnu-
dagskvöldiö yfirlitssýningu á verkum Hös-
kulds Björnssonar og einnig lýkur sýningu
á Ijósmyndum áhugaljósmyndara er kalla
sig Hugmynd, á sunnudagskvöldiö. Kjar-
valsstaðir eru opnir frá kl. 14.00 til 22.00.
Tónleikar í
Hafnarfjarðarkirkju
Kór Öldutunsskóla heldur tónleika í
Hafnarfjarðarkirkju sunnudaginn 2. maí kl.
16.00. Á efnisskránni eru lög eftir innienda
og erlenda höfunda allt frá 16. öld til okkar
daga, þar af eru þrjú þeirra frumflutt. Á
tónleikunum koma fram um 100 nemendur,
en kórinn starfar í þremur deildum. Eftir
tónleikana veröur kaffisala í Góötemplara-
húsinu.
Um miöjan maí heldur kórinn í tónleika-
ferö til Finnlands þar sem hann syngur á
ýmsum stööum og tekur m.a. þátt í alþjóð-
legu kóramóti í Lahti auk þess aö koma
fram i útvarpi og sjónvarpi. Stjórnandi kórs
Öldutúnsskóla er Egill Friöleifsson.
Kór Oldulúnsskóla.