Tíminn - 22.07.1965, Blaðsíða 2

Tíminn - 22.07.1965, Blaðsíða 2
TÍMINN FIMMTUDAGUR 22. júlí ISbö SIYSAVARNAFELAGIÐ Ot HRAFNISTA FÁ KUIKKUR FB—Reykjavík, þriðjudag. Slysavarnafélagi íslands og dvalarheimili aldraSra sjómanna bárust stórgjafir í dag, en það var Ólafur Al- bertsson, kaupmaður í Kaupmannahöfn, gjaldkeri slysavarnafélagsins Gefjun- ar þar í borg, sem færði klukkur, sem eru gjafir frá honum og konu hans, Guð- rúnu, til þessara tveggja stofnana. Blaðamönnum var boðið að skoða klukkurnar og ræða við Ólaf, sem hefur starfað í Gefj- uni frá því þe&si deild var stofn- uð árið 1953. Gunnar Friðriks- son, forseti Slysavarnafélags ís- lands, kynnti Ólaf fyrir blaða- xnönnum, en síðan sagði Ólafur frá starfsemi Gefjunar. Deild- in var stofnuð 29. janúar árið 1953 á íuttugu ára afmæli Slysa varnafélagsins. Hvatamenn að stofnuninni voru þeir Matthías Þórðarson, ritstjóri og Jón Helgason, kaup maður, og voru þeir í fyrstu stjóm félagsins, auk Ólafs, sem befur setið í stjórninni frá því Jyrsta. Núverandi formaður Gef j unar er séra Finur Tuliníus sem einnig er meðal elztu félags- manna. Markmið félagsins er að gefa fólki í Danmörku, bæði íslend- ingum og Dönum, og þar að auki ýmsum dönskum fyrirtækj- um kost á því að styrkja gott málefni, og er fé safnað árlega með því að senda út beiðnir um framlög til deildarinnar. Frá upphafi hafa safnazt um 134 til 140 þúsund krónur og hefur Slysavarnafélag íslands fengið um 80 þúsund krónur af þeirri upphæð, en afgangurinn er í sjóðum Gefjunar. Hætti deild- in starfsemi sinni, rennur allt fé hennar til Slysavarnafélags íslands. Ólafur Albertsson, kaupmaður hefur verið búsettur í Kaup- mannahöfn um 35 ára skeið, og hefur ekki komið hingað til lands síðustu 19 árin. Hann sagðist nú færa Slysavarnafélaginu og Hrafnistu þessar gjafir, þar sem hann væri sjálfur af sjómönnum kominn, og hefði viljað sýna áhuga sinn á þessari starfsemi hér á einhvern hátt. Klukkan, sem Slysavarnafélagið hefur á skrifstofum sínum, er tvö hundr- uð ára gömul, smíðuð í Eng- landi og hin mesta gersemi. Hún leikur allmörg lög, og ekki þarf að, taka fram, að hún gcngur eins rétt og frekast verðúr á kosið, þrátt fyrir háan aldijr. Klukkan, sem nú stendur í dag stofunni að Hrafnistu, er 175 ára gömul og smíðuð í Frakk- landi, og er hún engu minni en hin. Auðunn Hermannsson, Myndln er af Gunnarl iFriðrikssynl (t. v.) forseta Slysavarnafélags- Ins, Ólafi Albertssyni kaupmanni og Auðni Hermannssyni fram- kvæmdastjóra Hrafnistu. Standa þeir fyrlr framan klukku Slysa- varnafélagslns. Hér til hliðar er svo klukkan, sem stendur í dag- stofunni i 'Hrafnistu. (Tjmamyndir GH) '<- f » -< > ;>■ i.í' , ■----- framkvæmdastjóri Hrafnistu, þakkaði Ólafi gjöfina fyrir hönd vistmanna, en hann sagði, að Framhald á 12. síðu BINDINDiSMA í HÚSAFELLSSK KJ-Reykjavík, miðvikudag. Um verzlunarmannahelgina verð ur efnt til Bindindismannamóts í Húsafellsskógi í Borgarfirði, og verður það í 6. sinn sem slíkt mót er haldið. Ólafur Jónsson umdæmistempl ar Umdæmisstúkunnar nr. 1 skýrði fréttamönnum frá þessu fyrjrhug aða móti bindindismanna og fleiru sem Umdæmisstúkan hefur haft Síldarfréttir miðvikudaginn 21. júlí 1965. Gott veður var á síldarmiðun um s. 1. sólarhring, en mikil þoka. Voru skipin einkum að veiðum á sömu slóðum og s. 1. 2—3 sól- arhringa. Alls tilkynntu 24 skip um afla, samtals 10.350 mál og tunnur. Dalatangi. Lómur KE 700 mál, Guðbjörg ÓF 100 tn. Einar Hálfdáns ÍS 800, Sæhrímir KE 450, Helga RE 700, Sigurður SI 600, Þorbjörn GK 300, Loftur Baldvinsson EA 250, Bjarmi II EA 1500, Pétur Jónsson ÞH 100, Víðir GK 100 Framnes ÍS 400, Glófaxi NK 750, Kambaröst SU 200, Bára SU 100, Guðrún GK 1000, Ögri RE 200, Jón Kjartansson SU 200, Héðinn ÞH 300, Gwðrún Jónsdóttir ÍS 250, Hoffell SU 100, Hafþór RE 200, Björg NK 300, Auðunn GK 700. Lík finnst í V.eyjum í höfninni í Vestmannaeyjum fannst í gærmorgun lík Örlygs Haraldssonar, 18 ára pilts. sem týndist í Vestmannaeyjum 29. júní síðastliðinn. Frá aðalfundi Byggðatrygginga h.f. Blönduósi Aðalfundur Byggðatryggingar .h.f. var haldinn að Blönduósi, 20. júní s.l. Formaður, Stefán Á. Jónsson og framkvæmdarstjóri Sig urður Kr. Jónsson fluttu skýrsl ur um hag og starfsemi félagsins á liðnu árj Heildariðgjöld félagsins á árinu 1964 námu kr. 674.000,00 og er það um 38% aukning á iðgjöldum frá því á árinu 1963 Tjónagreiðslur á árinu námu um kr. 240.000,00 og er það um 10% minni bóta- grpiðsltfr an árið 1963 Á árinu yar sajnið um tryggingar vjð Siglu fjarðárbæ.'og hefur félagið nú tek ið við öllum lausafjártryggingum bæjarins, nema Síldarverksmiðj- unni Rauðku í vor flutti félagið í nýja og rúmgóða skrifstofu í nýbyggðu húsi við Húnabraut 32, á Blöndu- ósi, og er framkvæmdarstjóri fél- agsins, Sigurður Kr Jónsson, þar til viðtals eftir hádegi, á virkum dögum og í síma 122. Á árinu voru opnuð umboð á Siglufirði, Hofsós, Sauðárkróki, Þambárvöllum í Strandasýslu, Grafarnesi í Grundarfirði, enn- fremur hafa verið opin umboð á Hvammstanga og Skagaströnd frá stofnun félagsins. Gefinn er 10% arður til við- bótar venjulegum bónus af ábyrgð artryggingum bifreiða eftir tjón laust ár. Einnig var greiddur 10% arður af iðgjöldum brunatrygg- inga. Félagið hefur til reynslu tekið upp það nýmæli að láta það ekki varða bónusmissi þótt ökumaður verði fyrir því slysi að aka á skepnur. Þetta er gert með að fyrir augum að síður sé ekið frá dauðum eða slösuðum skepnum bæði af mannúðarástæðum og við- komandi eiganda sé ekki valdið tjóni, sem ekki fæst bætt ef eng- inn gefur sig fram sem tjónvald- ur. Það sem af er þessu ári hafa tryggingar hjá félaginu aukizt töluvert, meðal annars um 50 nýj- ar bifreiðatryggingar. Stjórn félagsins var enddrkjör- in og hana skipa: Formaður, Stef- án A. Jónsson, Kagaðarhóli, vara- form. Jóhannes Björnsson. Laug- arbakka. ritari, Björgvin Brynj- ólfsson, Skagaströnd, og með- stjórnendur, Jón Karlsson, Blönduósi og Sigurður Tryggva- son, Hvammstanga. Endurskoðend ur, Björn Lárusson og Jó- (hannes Guðmundson, Auðunnar stöðum. Varastjórn skipa: Björn Bjarnason, Hvammstanga, Þor- steinn G. Húnfjörð, Biönduósi og Kristmundur Stefánsson, Grænu- hlíð. með höndum að undanförnu TTm- dæmisstúkan nr. 1 er sambana allra stúkna á svæðinu frá og með Skaftafellssýslum og norður í Dalasýslu. Eru á þessu svæði 19 undirstúkur með. 1500—200 fé- laga, ungtemplarafélög 6 að tölu með um 400 félaga, 28 barna- stúkur með yfir 3000 félaga og fjórar þingstúkur sem er fulltrúa ráð stúkna í bæjum og kaupstöð um. Umdæmisstúkumar eru þrjár í landinu og annast þær út breiðslustarfsemi hver í sínu um dæmi. Hefur Umdæmisstúka nr. 1 þannig nýlokið ferð til Ólafs víkur þar sem haldinn var út- breiðslufundur fyrir fullu húsi, í samráði við æskulýðsnefnd ÓI- afsvíkurkauptúns. Indriði Indriða son og sr. Hreinn Hjartarson héldu þar ræður, og auk þess voru ýmis skemmtiatriðj og dans. Umdæmisstúkan stofnaði á sín um tíma Skálatúnsheimilið í Mos- fellssveit fyrir vangefin börn og rak heimilið fyrstu fimm árin, en siðan í samvinnu við Styrktarfé- lag vangefinna. 28 börn eru nú á heimilinu og verið er að byggja mikið við heimilið. Fyrir nokkru síðan var haldinn bazar og kaffi sala í Góðtemplarahúsinu í Reykja vík og urðu tekjur af því sam tals rúmlega 134 þúsund krónur, sem látnar voru ganga til Skálatúns heimilisins, og þess óskað að hluta upphæðarinnar að minnsta kosti yrði varið til sundlaugarbyggingar á staðnum sem aðstandendur og foreldrar barnanna þar standa fyr ir að byggja. Þorsteinn Þor- steinsson kaupmaður í Reykjavík hefur nýverið stofnað minningar sjóð um konu sína frú Helgu Ólafsdóttur til styrktar starfsemi heimilisins og nemur sjóðs- upphæð nú um 50 þúsund krónum. Þá hefur einnig verið stofnaður leikfangasjóður við heimlið. Full trúar Umdæmisstúkunnar í barna heimilisnefnd eru Margrét Sig- urðardóttir og Páll Kolbeins. Árni Norðfjörð dagskrárstjóri Bindindismótsins í Húsafellsskógi skýrði svo frá að á fyrra árj hefðu um 2000 manns sótt mótið, og það hefði heppnazt vel þótt ekki hafi verið búizt við slík um mannfjölda. en í ár eru for svarsmenn mótsins viðbúnir mikl um mannfjölda. Formaður móts nefndar, Gissur Pálsson, mun setja mótið klukkan átta á laugardags- kvöld og síðan hefst dagskráin. Unglingahljómsveitin Tempó mun sjá um dansmúsikina, en en auk þess verða ýmis skemmtiatriði, varðeldur, þjóðdansar, fjöldasöng ur og fleira. Verðu dansað til klukkan tvö bæði laugardags og sunnudagskvöld en skemmtiatrið in inn á milli. Á sunnudeginum kl- 14.00 verður guðsþjónusta, sr. Björn Jónsson í Keflavík messar, og á eftir verður gengið á Strút farið í útileiki við tjaldbúðirnar og auk dansins og skemmtiatrið anna um kvöldið verður flugelda sýning.^Mótinu verður síðan slit- ið um hádegi á mánudag. Einar Hannesson skýrði á fund inum sem Umdæmisstúkan hélt með fréttamönnum frá Jaðars- mótinu sem haldið verður i átt unda skiptið dagana 14,—15. ág- úst n. k. Hafa mót þessi verið fjölsótt á undan förnum árum, og verður dagskráin með líku sniði að þessu sinni. Ungtemplarar eru um þessar mundir að leggja upp í hópferð til Færeyja 30 talsins, og hafa auk þess haldið uppi fjöl breyttri starfsemi í sumar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.