Tíminn - 22.07.1965, Page 7

Tíminn - 22.07.1965, Page 7
FIMMTUDAGUR 22. júlí 1965 Sjötugur: Kolbeinn Kristinsson Sjötugur er í dag, hinn 7. júlí Kolbeinn Kristinsson frá Skriðu- landi í Kolbeinsdal, nú til heim- ilis á Tjarnargötu 43 í Reykjavík. Ég lofaði Kolbeini vinj mínum því, er við kvöddumst heima hjá mér fyrir hálfum mánuði eftir skamma samverustund, að skrifa ekki um hann afmælisgrein. Það loforð ætla ég að efna — og þyk- ist efna, þótt ég sendi honum kveðju Guðs og mína og árni hon- um allrar blessunar, þessum forn- eskjulega vitrjngi og vammlausa manni, þessu viðkvæma tryggða- trölli, sem hugsar með hjartanu, þessum óskasyni íslenzkrar tungu, sem talar og ritar fegurra mál en flestir aðrir, þessum einhuga manni, sem alla stund hefur verið hann sjálfur — í hugsun, í orði, í athöfn — og aldrei annar en hann sjálfur. Gott er að vita hann vafinn umhyggju góðrar konu og góðra dætra. Það eitt skyggir á, að Skagafjörður skín ekkj við sólu í Tjarnargötunni. Megi honum og hans vanda- mönnum allt til auðnu horfa. Gísli Magnússon. Ættarmót að Gils- bakka í Axarfirði Sá athyglisverði mannfagaaður átti sér stað á Gilsbakka, að ætt- ingjar og venzlafólk hjónanna Sig urlaugar Jósefsdóttur og Sigvalda Sigurgeirssonar, sem bæði eiu látin, mæltu sér mót á föðurleiíð sinni 3. og 4. júlí s.i., en 3. 3Úlí er fæðingardagur Sigvalda. Mót- ið sóttu 90 manns, en taiið er að ættbálkurinn telji nú yfir 130 meðlimi. Öll Gilsbakkasystkinin voru mætt þama, 11 að töln, og ein uppeldissystir þeirra. — Sam- heldni hefur verið einstók innan þessarar ættar og fólkið því aldr- ei látið neitt tækifæri ónotað til að treysta ættarböndin. Oft hefur verið rætt um allsherjar ættar- mót að Gilsbakka, þo ekKi hafi orðið af því fyrr en nú. Halldór Sigvaldason, einn af Gilsbakka-bræðrunum, býr á Gil- haga, en það er nýbýli, byggt í Gilsbakkalandi, en tengdasonur Halldórs, Einar Þorbergsson, býr nú á Gilsbakka. Daginn fyrir hátíðina fór íólk að drjfa að úr ýmsum áttum, t.d frá Reykjavík, Keflavík, Akui- eyri og Dalvík og reisti tjaldborg á staðnum, bæði svefn- og veit- ingatjöld. Samkoman hófst með því, að Halldór á Gilhaga fluttl ræðu og bauð ættingja sína vel- komna að Gilsbakka, síðan var setzt að veizluborðum. AUir komu með það bezta til hófsins, sem þeir áttu í búri sínu og kon- ur sáu um það, að borð svignuðu undan krásum báða veizludagana. Þar gat fólk fengið sér saðningu eftir vild á milli þess, sem það .skemmti sér við ræðuhöld, söng og leiki. Á laugardalskvöldi í indælu veðri var kveikt bál gengið um nágrennið og vitjað æskustöðva. Samkomunni lauk á sunnudag með því, að fjölskyldan gtkk í kirkju á Skinnastað, og þar færðu systkinin kirkjunni fagran og vandaðan messuskrúða til minn- ingar um foreldra sína. Séra Páll Þorleifsson þakkaði gjöfina og fór hlýjum viðurkenningarorðum um þau hjónin Sigurlaugu Jósefsdótt ur og Sigvalda Sigurgeirsson, Allir þátttakendur í þessu ætt- armóti munu sammála um, að það hafi tekizt mjög vel og hafa fullan hug á að mæta á Gilsbakka að 6 árum liðnum á 100 ára afmæli Sigvalda og þá eru líka 70 ár liðin sjðan þau hjónin Sigurlaug og Sigvaldi hófu búskap að Gils- bakka. Þórarinn Haraldsson. BRÉF TIL BLAÐSINS Um mörg undanfarin ár hefur Sigurður Magnússon, flugfulltrúi, verið einn af allra vinsælustu út varpsmönnum landsins. Venjulega hefur hann haft þann hátt á, að hann leggur spumingu fyrir fjóra menn og stillir þannjg til, að tveir mennirnir svari spurningunni ját- andi en tveir neitandi. Hann hef- ur vafalaust kynnt sér að nokkru skoðanir mannanna fyrjrfram, svo að þátturinn megi vel takast, enda hefur hann skemmt hlustend- um vel, og jafnframt frætt þá um mikilsverð málefni, svo að málið liggur ljósara fyrir en áður. En í eitt skipti hefur þetta brugðizt- og það var hér fyrr í sumar. Spurningin, sem var til umræðu, var eitthvað á þá lejð. hvort við íslendingar ættum að taka upp „hægrihandar-akst- ur." Sigurður leiddi að hljóðnem- anum 4 menn samkvæmt venju, og voru þrír þeirra ákveðn- ir „hægrihandarmenn" og einn gjörsamlega hlutlaus. — Við sem barizt höfum gegn þessari fá- sinnu (þ.e. hægrihandarakstri) átt um oarna engan fulltrúa. Þetta var aiveg ófyrirgefanlegt af Sig- urði, þar sem margir hafa látið frá sér fara skoðanir sínar í þessu máli og sýnt með rökum, að breyt ingin er hrein fásinna eða sér- vizka, sem kostar þó þjóðina um eða yfir 50 milljónir og senni- lega marga tugi mannslífa. Ekki getur Sigurður borið Því við, að hann hafi heyrt raddir þeirra manna, sem berjast gegn þessari vitlausu breytingu, því að margir hafa látið í ljós álit sitt á prenti, svo sem „Hannes á horn inu,“ undirritaður (sem hefur skrifað flejri greinar um málið,) ! svo og ýmsir fleiri. Við eigum full \ an rétt á því, að fá tækifæri til 1 þess, að láta þjóðina heyra okk- j ar röksemdir í útvarpi. Þetta er það stórt mál og mikilsvarðandi fyrir alla þjóðina, að það er hrejnt ófyrirgefanlegt, að leyfa aðeins „hægrihandarmönnum." að láta ljós sitt skína Við „vinstrihand- arrnenn" höfum svo sterk rök að færa. máli okkar til stuðnings, að þau þurfa að koma fram og eiga að koma fram. Þótt við skrif- um í blöðin. er það ekki nægj- legt. En í útvarpinu hefðum við fengið ómetanlegt tækifæri tii að kveða niður „hægrihandar-draug inn.“ TÍMINN 7 Hestamannamót Kappreiðar og góðhestasýning hestamannafélags- ins Snæfellings verða sunnudaginn 1. ágúst á Kaldármelum í Kolbeinsstaðahrepp og hefjast kL 4 e.h. Keppt verður í eftirtöldum greinum ef næg þátttaka fæst: 250 m skeiði 300 m stökki 250 m folahlaupi , Boðreið Þeir, sean ætla að sýna góðhesta, þurfa að mæta eigi síðar en kl. 1 e.h. Strax að loknum kappreiðum hefst dans í Lindar- tungu. Þátttaka í hlaupum og gæðingakeppni tilkynnist til séra Árna Pálssonar, Söðulsholti, eða Leifs Kr. Jóhannessonar, Stykkishólmi. Stjórnin. fbúð óskast Maður, sem er að byrja að byggja, óskar eftir 3ja — 5 herbergja í búð frá 1. okt. n.k. í Reykja- vík, Kópavogi eða Garðahreppi. Fernt í heimili. Engin börn. •Tilboð, er greini íbúðarstærð, verð og greiðslu- skilmála, sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 6. ágúst n.k., merkt „1. október.“ Skrifstofustúlka óskast Veitingastað úti á landi vantar góða starfsstúlku strax. Tilboð sendist blaðinu með upplýsingum og síma- númeri fyrir föstudaginn 30. þ.m., merkt „Veit- ingastaður". Lokað vegna sumarieyfa dagana 24. júlí til 9. ágúst. GLER OG LISTAR HF., Dugguvogi 23. BÍLAKAUP Opel Caravan ‘63 ekinn 44 þús. km. skipti möguleg. Verð 160 þús. Chevrolet ‘60 Hardtop skipti mögul. á ódýrari bíl. Renault R-8 ‘63 skipti möguleg. Verð 110 þús VW 1500 ‘63 skipti á 5 manna yngri. Verð 135 þús. VW ‘58 skipti mögul. og rúmir greiðsluskilmálar. VW ‘58. Vill skipca á yngri VW. Chevrolet ‘57 station, góður bíU, skipti möguleg, verð 85 þús. Commer Cod ‘62 í toppstandi. Skipti mögul. á 4—5 manna bíl. Verð 100 þús. Simca 1000 ‘63 ekinn 27 þús km. Verð 110 þús. Volvo Amazon ‘63 Skipti mögul. á nýl. ieppa. Verð samkl. _ Consul 315 ‘62 Verð 115 þús. Zodial ‘58 Fallegur bíll. Verð 100 þús. staðgr. Taunus 12m ‘63 Verð 125 þús. Skoda ‘57 Skoðaður 1965, skipti mögu leg á jeppa. Verð 15—20 þús Skoda Octavia ‘62 Verð 80 þús staðgr. Opel Caravan ‘56 Vill skipta á stærri stat;on. Verð samkl. Opel Rekord ‘60 2já 'dyra, skipti á Saab eða Volvo. Verð 105 þús. Opel Rekord ‘64 Skipti mögul. á amerísisutn bíl. Verð 175 þús. Opel Kapitan ‘61 góður bíll samkl. með greiðsl ur. Verð 150 þús. Opel Kapitan ‘61 Skipti á jeppa mögul. Verð 180 þús. Landrover ‘62 ekinn 12 þús, fasteignatr. bréf kemur til greina. Verð kr. 125 þús. Landrover ‘64 ekinn 24 þús, sérlega ffóður, Verð 140 þús. Buick ‘57 2j dyra, 8 sýl. sjálfskiptur, allsk. skipti. Verð 75—80 þús. Mercury Comet ‘63 Verð 220—230 þús staðgr. Plymouth ‘55 6 sýl. beinsk. fæst fyrir vel tryggt verðbréf. Plymouth ‘56 station í toppstandi. Verð 60 þús. staðgr. Plymouth ‘57 ágætur vagn, 8 sýl sjálfs'i. skipti mögul. á minni bíL Opel Caravan ‘55 verð 25 þús staðgr. Dodge ‘55 skoðaður 1965, 6 sýl. siáif- sk Verð 45—50 hús ■sarnkl. Gjörið svo vei að líta ínn. Við nöfum ávallt Kaupendur á biðlista eftir nýjum og nýleg um 5-manna bílum af flestum gerðum. BÍLAKAUP (Rauðara Skúiagötu 55 Simi- Augtýsið í Tímanum 1 öpf r.skrifstofan Iðnaðarbankahúsinu IV. hæð. Vilhjálmur Arnason. Tómas Arnason og BOLHOLT 6 (bús Belgfagerðarinnar) SÍMI 19443. JON 6YSTEINSSON lagfrseSingur ögfræðlsk-ifstots uaugavogl 11, Simi 21516 TIL SOLU 3ja herbergja kjallaraíbúð í Vogahverfi og 5 herb. íbúð í Þingholtum. Félagsmenn, sem óska að nota forkaupsrétt sinn að íbúðunum, snúi sér til skrifstofunnar Hverfisgötu 39 fyrir 27. júlí. B. S, S. R„ sími 23873. Látið okfeur stilia og herfla npp nýfn hffreiðina. Fylglzt ve) með blfreiðinnl. 8ÍLASK0ÐUN Skúlagötu 32 • simi 13-100 Benjamín Sigvaldason.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.