Tíminn - 22.07.1965, Síða 14
14
FIMMTUDAGUR 22. júlí 1965
TÍMINN
NÝJAR ERLCNDAR BÆKUR
Louis XVI Furinture. Höf-
u-ndur: F.J.B. Watson. Útgef-
andi: Alec Tíranti 1960.
Verð: 50/-.
Húsbúnaður hefur sjaldan
verjð íburðarmeiri en á 18. öld
í Frakklandi. Forsendurnar fyr
ir þessari blómstrun voru, mik
il eftirspum og fagfélög, sem
gerðu mjög strangar kröfur til
félagannna. Það verða miklar
framfarir í iðninni á öldinni,
rókókó tekur við að barrok
stílnum og Lúðvík XVI stíll
á þangað rætur sínar að rekja.
Það sem sérkennir þann stíl
er einhverskonar blanda af ró-
kókó og klassjsisma, en klassis-
isminn kemst mjög í tízku í
Frakklandi á síðasta hluta ald-
arinnar. Það fer þó að bera á
þessu fyrr, strax þegar farið
var að grafa í rústir Herculane
um og Pompeii vaknar mikill
áhugi í Evrópu fyrir þeim leif-
um fornmenningarinnar, sem
þar birtist. Rétt upp úr miðri
öldinni birtist rit Winckel-
manns og við það eykst þessi
áhugi mjög, fjöldi rita kemur
út helgaður þessum efnum og
ferðir til Ítalíu komast í tízku
og með ferðamönnunum berast
stöðugt áhrif norður yfir Alpa.
Það er farið að safna fornum
minjum, höggmyndum, kerum
og smástyttum og bráðlega er
farið að sækja fyrirmyndir að
húsgögnum til Pompeii. Hús-
gögn þessara tíma voru marg-
þætt smíði, sem margir unnu
að, hver á sínu sviði, enda voru
þau mjög dýr. Nú er mest um
þessi húsgögn á Englandi, sök-
um þess að á byltingaárunum
var mikið magn þeirra selt úr
landi og einnig eftir Napóle-
onsstyrjaldirnar, það var alltaf
mikil eftirspurn eftir frönsk-
um húsgögnum í Englandi
fram á 19. öld. Þessi bók er
mjög vönduð, ítarlegur inn-
gangur um mótun þessa stíls
og getið helztu iðnaðarmanna,
svo fylgir skrá yfir munina,
þeim lýst og getið hver hafi
smíðað og ferill þeirra rak-
inn ef unnt hefur reynzt, 242
myndir fylgja af mununum,
einnig fylgir bókaskrá. Þetta
er hin fegursta bók.
Die Kaiserin Galla Placidia.
Höfundur: Henry Benrath. Út-
gefandi: Droemer Knaur 1964.
Verð: DM 3.80.
Henry Benrath er höfundar
nafn Alberts H. Rausch, sem
fæddist í Friedberg í Hessen
1882. Hann lagði stund á ger-
mönsk og rómönsk mál í París
og Genf, las einnig sögu og
heimspeki. Bækur hans um
drottningarnar, Konstönu, Þeó
dóru og Göllu Placidiu urðu
vinsælastar bóka hans, auk
þess setti hann saman kvæði
og greinar um heimspekileg
efni. Ævi Placidiu var storma-
söm, hún var drottning, marg-
gift og varð að þola útlegð
og fangelsisvist. Grafhýsi henn
ar í Ravenna, er eitt fegursta
dæmi byggingarstíls þessa tíma
bils. Hún lifir á þjóðflutninga-
tímunum, tímum upplaysnar i
og , öryggislQysis. Persór
..
’ 'sem I
ágætt efni i skáldsögu. Höfund
ur viðaði að sér ýmsum heim-
ildum til þess að geta lýst ald-
arfarinu og ferðaðist mikið um
þær slóðir sem sagan gerist á.
Höfundi hættir til að gera veg
Rómverjanna eitthvað lakari,
en efni standa til, en mikla
aftur á móti germönsku þjóð-
flokkana, sem koma svo mikið
við sögu um þetta leyti. Sam-
töl og orðræður persónanna
vilja oft vera heldur langdregn
ar og smekkur manna og við-
horf minna oft fullmikið á við
horf samferðamanna höfundar.
Ring Rat. Höfundur. James
Clavell. Útgefandi: Panther
Books 1965. Verð: 5/-
Þeessi saga gerist í fangabúð-
um. Japanir ráða hér ríkjum
með aðstoð svikara úr hópi
fanganna. Þetta er hryllilegt
líf, menn verða að skepnum
og gera hvað sem er fyrir auka
skammt og vindling. Þeir, sem
eru í náðinni hjá Japönum
hafa það, sem þeir óska, en
hinir eru auðmýktir og bækl-
aðir af harðstjórn og skortj.
Það hefur mikið verið skrifað
um fangabúðalíf undanfama
áratugi bæði sannferðugar
skýrslur, frásagnir og skáldsög
ur, en raunveruleikinn verður
hér áhrifameiri en skáldsagan,
þótt hann birtist í þurr-
um skýrslum. í þessari sögu er
áherzlan lögð á baráttu svik-
arans og landa hans.fyrst í stað
eru fangarnir fullir heiftar í
garð svikarans, en . eftir • því .
sem á líður kúgast .þeiir.^yfull- !
kominnar uppgjafar og verða
einhverskonar hálf-menn, vilja
laus skriðkvikindi. Þessi bók
er hrollvekja.
ÞAKKARÁVÖRP
Þökkum hjartanlega hlýhug og vinakveðjur á fimm-
tíu ára hjúskaparafmæli okkar, 25. júní s.l.
Jón Helgason, Hólmfríður Þórðardóttir.
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför mannsins míns,
föður og bróður,
Ásgeirs Jónssonar
frá '1+vammi, Landssveit
Hanna Ólafsdóttlr og synlr,
Guðmundur Jónsson og
Vilhjálmur Ólafsson.
VITA- OG HAFNARMÁL
Framhald af bls. 1
Unnið hefur verið undanfarið
við endurbætur á Grindavíkur-
höfn og standa vonir til að við
það verk verði lokið í ár. Verður
að þeim mikil bót, enda hefur
bryggjupláss verið þar lítíð, en
nú eiga þúsund tonna skip að geta
athafnað sig þar með góðu móti.
Þá er verið að dýpka innsigling
una í Sandgerði og eiga þá flestir
bátar að geta komjzt þar hindrun
arlaust án þess að þurfa að sæta
sjávarföllum, eins og nú er.
Stærstu framkvæmdimar eru í
Njarðvík og Þorlákshöfn. Lokið
verður viðgerð ytri hafnargarðs
ins í Njarðvík í sumar, ef allt fer
fram sem horfir, og í Þorlákshöfn
verður gerð 40—50 metra lenging
á innri bryggjunni.
Litlar framkvæmdír hafa verið
í Rifi í sumar, en í ólafsvík er
unnið að dýpkun og stendur til að
byggja þar nýja bátabryggju í
sumar. Nú er að Ijúka smíða slipps
fyrir 250 tonna báta í Stykkis-
hólmi.
Ekki er mikið um nýbyggingar
vita í sumar, en eðlilega mikið að
gera við viðhald þeirra að venju.
Þó verða byggðir tveir vitar, báð-
ir fremur smáir. Annar þeirra er
við Gjögurtá við Eyjafjörð og er
hann stærri, en hinn vitinn verð
ur á Krísuví'kurbjargi. Verður
byrjað á báðum þessum bygging
um innan hálfs mánaðar.
BRÚ
Framhald af 16. síðu.
Björn Ólafsson verkfræðingur
sagði okkur, að verið væri að undir
byggja veg frá brúnni og austur
í hraunbrúnina, og frá enda hans
er eftir um 1700 metra spölur
austur á vestari enda nýja vegar
ins í Eldhrauninu, en austan nýja
vegarins er enn eftir þriggja og
hálfs kílómetra spölur austur úr
hrauninu. Björn kvaðst gera sér
vonir um að árið 1967 yrðj kom
inn nýr, beinn og breiður vegur
austur úr hrauninu, en eins og þeir
bezt vita, sem ekið hafa um
Skaftáreldahraun, er ekki van
þörf á að nýr vegur komi þar og
má telja kraftaverki næst að stór
slys gk^ili^ekki oft.hafa orðið á
hinu^jý, gájnla þrpnga vegi, með
öllum sinum beygjum og blindhæð
um.
HJALTLAND
Framhald af bls. 1
hún var fyrir flotann um daginn,
þegar síldin veiddist rétt við Jan
Mayen.
í kvöld var komin bræla á mið
unum fyrir austan og hálfgerðar
mæðutónn var í Samræðum skip
stjóranna. Munu margir þeirra
halda tú Vestmannaeyja og sumir
hafa hugsað sér ag taka sér smá-
frí, þar til veður og veiðihorfur
batna, að sögn manna í landi,
sem fylgdust með talstöðvarvið-
skiptum síldarflotans.
DUNSÆNGUR
Vöggusængur,
ÆÐARDÚNN
Gæsadúnn,
Fiður.
Hálfdúnn,
Fiðurhelt og dúnhelt
léreft.
Damasksængurver.
Koddar, þrjár stærðir,
Lök.
Svefnpokar m. kodda
GALLABUXUR, Teri-
lyn drengjabuxur
Stakir drengjajakkar
Drengjajakkaföt frá
6—14 ára.
Telpubuxur, teygju-
nylon 2—6 ára,
grænar, rauðar og
bláar.
PATTONSULLAR-
GARNIÐ, allir litir
og grófleikar.
Póstsendum.
Vesturgötu 12 — Simi 13570
GJAFA-
HLUTA-
BRÉF
Hallgrimsklrklu
fást bjá prest-
um landsins og 1
Reykjavík hjá:
Bókaverzlun Sigf. Eymundssonar.
Bókabúð Braga Brynjólissonar.
Samvinnubankanum Bankastrætl.
Húsvörðum KFUM og K og bjá
Kirkjuverði og kirkjusmiðum
HALLGRÍMSKIRKJU á Skólavörðu
hæð. Gjafir til kirkjunnar ma draga
frá telcjum við framtöl til skatts
Dóttir mfn og systir okkar,
Laufey Ása ÞórSardóttir
frá Reykjum
andaðist 19. þ. m. Útförin fer fram frá Selfosskirkiu, laugardaginn
24. þ. m. kl. 1,30 e. h. jarSsett verSur aS Ólafsvöllum.
Blóm vinsamlegast afþökkuö.
GuSrún Jónsdóttir og börn.
Eiginkona mín og móSir okkar
Fríða Björnsdóttir
andaStst á sjúkrahúsinu Sólvangi hinn 20. þ. m.
JarSarförin ákveSln s|Sar.
Kristján Jensson og börn.
Hjartkaer eiginmaSur minn, faöir, tengdafaSir og afi •
Guðmundur Guðjónsson
gjaldkeri, Kariagötu 21.
andaSist á Landsspítalanum 21. júlí.
Kristín Rrynjólfsdóttir. börn tengda
börn og barnahörn
Fyrjr skömmu kom liingað
til lands Finninn Kivikoski.
sem i vetur bar sigur af hólmi
i getraunakeppni þeirri, sem
Jón Hclgason prófessor i Kaup
mannahöfn stjórnaði og sýnd
var i fjölmörgum sjónvarps-
stöðvuni á Norðurlöndum
Kivikoski kom hingað til þess
að eyða hér hveitibrauðsdög
unum með brúði sinni Taimi
Poutiainen, en þau gengu i
hjónaband 16. júlí. Myndin er
af þeim hjónum og finnsku
■w—.vr,.
flugfreyjunnj Susanna Rydman
frá Helsinki, sem starfar nú
hjá Loftleiðum .1 verðlaun í
keppninni fékk Kivikoski 600
krónur sænskar og auk þess
þriggja vikna ferðalag til fs-
lands.