Morgunblaðið - 06.05.1982, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1982
Rétt samneysla aspir-
íns og vínanda vinnur
gegn blóðtappa
Boston, 29. apnl. Al'.
NHHIRSTAÐA sérfræðinga i Kandaríkjunum hefur leitt í Ijós, að rétt hlut-
fall aspiríns og vinanda i blóði komi í veg fyrir myndun blóðtappa. Er
ennfremur talið að þessi niðurstaða skýri að einhverju leyti þá staðreynd að
fólki sem neytir áfengra drykkja, hættir síður við hjartasjúkdómum.
Hins vegar er varað við því í
leiðinni að þetta sé ekki algilt.
Umrætt hlutfall aspiríns og vín-
anda kann að valda skyndiblæð-
ingum hjá sumum. Áhrifin eru
mismunandi frá manni til manns
en langalgengast er þó að þau séu
mjög svo til hins betra. Aspirín
eitt sér vinnur gegn blóðtappa-
myndun, en í samvinnu við vín-
anda er verkunin enn áhrifaríkari.
Læknar gerðu tilraun á 12
mönnum og konum, sem látin voru
drekka blöndu, sem var til helm-
inga 50% vodka og ávaxtasafi.
Kom í ljós, að vínandinn hafði
engin áhrif ef hans var neytt 12
tímum fyrir töku aspirínsins.
Drykkja samfara aspiríntöku og
allt að 36 tímum eftir hana hafði
hins vegar greinileg áhrif á blpð-
rásina.
Er gerð var rannsókn á fólkinu
tveimur stundum eftir að það
hafði innbyrt vínanda og aspirín
saman, kom í ljós að blóðrásin
örvaðist um 62% í samanburði við
töku aspiríns eins sér. Blóðrásin
var enn örari en venjulega fjórum
dögum eftir þessa neyslu.
Norskir málaliðar
berjast í Líbanon
Frá Jan Krik Lauré í Osló.
MINNST tveir Nordmenn, ef til vill
fleiri, eru málalióar í Falangista-her
Saad Haddads majórs í Suður-Libanon
að sögn Aftenposten. Tólf sænskir
málaliðar taka einnig þátt í bardögum
gegn Frelsissamtökum Palestínu,
PLO.
Norsk blöð hafa áður skýrt frá því
að minnst 10 Norðmenn, þar af
Ráðherra
dæmdur
Tel Aviv, 19. apríl. Al*.
AHARON Abu-Hatzeira, verka-
lýðsráðherra fsraels, var sekur
fundinn í dag um þjófnað, fjársvik
og trúnaðarbrot.
Hann var leiddur fyrir rétt
fyrir að draga sér fé úr góðgerða-
sjóði, sem fær styrk frá ríkinu og
var gefinn með gjafabréfi í nafni
föður hans á árunum 1975—'78.
Vegna skorts á sönnunum var
hann sýknaður af ákærum um að
hafa reynt að afla sér ríkisstyrks
á röngum forsendum.
Sakfellingin getur haft áhrif á
stöðu ríkisstjórnar Menachen
Begins forsætisráðherra, þar sem
ísraelsk lög kveða á um að þing-
maður segi af sér ef hann er
dæmdur í meira en eins árs fang-
elsi. Fyrir þjófnaðinn einan á
Abu Hatzeira á hættu sjö ára
fangelsi.
Begin þarf stuðning lítils
flokks Abu-Hatzeira til að halda
þingmeirihluta sínum. Begin hef-
ur aðeins 61 þingsæti af 120.
Tami-flokkur Begins hefur þrjú
þessi 61 þingsæti.
Samstarfsmaður Abu-Hatzeira
sagði að hann mundi ekki segja af
sér. Hann er fyrrverandi borgar-
stjóri í Ramieh, útborg Tel Aviv.
nokkrir sem hafa verið í þjónustu
friðargæzluliðs SÞ, séu á mála hjá
Haddad majór. Fyrrverandi enskur
málaliði hefur ráðið Norðmennina
til starfa (Mbl. hefur áður sagt frá
starfsemi Michael „Rocco“ Ryan og
fullyrðingum um að ráðnir hafi verið
íslenzkir málaliðar).
Fréttaritari Aftenpostens í Mið-
austurlöndum sá a.m.k. 60 málaliða
þegar hann heimsótti aðalstöðvar
Haddads i Suður-Líbanon. Sjálfur
hafði Haddad majór ekki handbærar
tölur um fjölda þeirra norsku og
sænsku hermanna, sem hann hefur í
sinni þjónustu, þótt hann teldi að
þeir væru um 10.
Nöfn þeirra Norðmanna, sem berj-
ast með Haddad gegn PLO, hafa
ekki verið látin uppi. Nokkrir þeirra
munu hins vegar vera fyrrverandi,
lágtsettir foringjar úr norska hern-
um og sumir þeirra munu hafa verið
í norskum friðargæzlusveitum SÞ.
Falangista-her Haddads hefur oft
skotið á norsku friðargæzlusveitirn-
ar og heldur uppi stöðugum árásum
á PLO-sveitir á norska friðargæzlu-
svæðinu og nálægt því. Haddad nýt-
ur stuðnings Israelsmanna og senni-
lega er það sá stuðningur sem gerir
honum kleift að halda uppi mála-
liðaher.
Ensk kona ól
glasatvíbura
JOSEPHINE Smith, eiginkona
bréfbera, ól í nótt fyrstu „glasa-
tvíbura" Bretlands, tvo drengi.
Móður og börnum heilsast vel.
Þetta eru þriðju tvíburarnir,
sem getnir hafa verið í tilraunagl-
ösum, síðan Louise Brown, fyrsta
glasabarn heimsins, fæddist í
Bretlandi 25. júlí 1978.
„... að öðrum kostí verðurðu bara að taka þessar venjulegu 50 milljónir
dollara og setjast að á Florida með hinum strákunum."
Möngolia
No'wegiar
Soviet Union
JROP
Chlna
Turkey
Mediterraneai
Arabian Sea
Flaugar austurs og vesturs
Rússar ráða yfir meiri hernaðar-
mætti en Vesturveldin, bæði á
sviði kjarnorkuvopna og venju-
legra vopna, að því er fram kemur
i svartsýnni NATO-skýrslu, þar
sem gerður er samanburður á
hernaðarmætti austurs og vesturs.
Frá þessari skýrslu sagði í frétt í
Mbl. í gær. Hér fylgja tvö kort,
sem sýna samanburð á kjarnorku-
eldflaugum Rússa á NATO. Annað
kortið sýnir skotdrægni sovézkra
SN-20-eldflauga frá skotpöllum
austan Úralfjalla (Brezhnev lofaði
að engum SS-20-eldflaugum yrði
komið fyrir vestan Úralfjalla þegar
hann lagði fram tilboð sitt um
svokallaða frystingu kjarnorku-
vopna). Hitt kortið sýnir hve langt
má draga með hinum nýju GLCM
og Pershing II-eldflaugum, sem
NATO ætlar að koma fyrir í
Vestur-Evrópu.
Iranir kenna Irökum um
dauða alsírska leiðtogans
Nikósíu, 4. maí. AP.
ÍRANIR sökuðu íraka í dag, þriðjudag, um að hafa verið valdir að flugslys-
inu, sem varð utanríkisráðherra Alsirs, Mohammed Benayahia, að bana,
manninum sem stjórnaði sáttaumleitunum þeim, sem leiddu til þess að
bandarísku gíslarnir í íran voru látnir lausir i fyrra.
íranska utanríkisráðuneytið
sagði að Gruman G-2 þota Bena-
yahia hefði brotlent rétt innan við
írönsku landamærin eftir að tvær
írakskar herþotur hefðu veitt
henni eftirför í tyrkneskri loft-
helgi.
Alsír er eitt fjögurra Araba-
ríkja, sem styðja írani í stríðinu
við íraka, og Benayahia var á leið
til Tehran frá Algeirsborg til að
reyna að binda endi á bardagana.
Níu háttsettir, alsírskir embætt-
ismenn, blaðamaður og fjögurra
manna áhöfn þotunnar fórust auk
Benayahia.
í yfirlýsingu íranska utanríkis-
ráðuneytisins segir að flugslysið
„lýsi ennþá einu sinni glæpsam-
legu eðli Saddam-stjórnarinnar".
Mir Hossein Musavi,. forsætis-
ráðherra írans, sagði að Benaya-
hia hefði „orðið fórnarlamb
ómannúðlegs samsæris íraks-
stjórnar" og hét því að íranir
myndu koma fram hefndum.
Musavi lýsti yfir þriggja daga
þjóðarsorg.
Starfsmaður íröksku fréttastof-
unnar INA sagði að ásakanir ír-
ana væru „of heimskulegar til að
neita þeim“.
íranska utanríkisráðuneytið
segir hljóðritanir sanna að
íröksku þoturnar hafi elt þá al-
sírsku uppi og hljóðritanirnar
verði látnar Alsírsstjórn í té.
Þegar þotan kom ekki fram á
réttum tíma var sendiherra Alsír í
Teheran fyrst tjáð að hún hefði
lent í Damaskus. Síðan var reynt
að afla réttra upplýsinga í marga
klukkutíma.
Flugturninn í Tabriz ráðlagði
þotunni að fljúga til Ankara þar
sem henni væri veitt eftirför, en
síðan rofnaði fjarskiptasamband-
ið við hana.
Iranska utanríkisráðuneytið
sagði að flugvél Lufthansa hefði
einnig orðið fyrir „árás“, en Luft-
hansa sagði í yfirlýsingu að ekki
hefði verið skotið á hana. Luft-
hansa sagði að flugvélin hefði snú-
ið við til Ankara þegar lofthelgi
írans var skyndilega lokað.
Benayahia lifði af flugslys í
Mali í maí í fyrra. Hann gegndi
mikilvægu hlutverki í frelsis-
baráttu Serkja. Hann varð utan-
ríkisráðherra í janúar 1979 og
hafði áður gegnt fjórum ráðherra-
embættum og stöðum sendiherra í
Moskvu og London. Hann stjórn-
aði viðræðum Bandaríkjamanna
og írana um gíslamálið með þeim
árangri að gíslunum var sleppt.
Hann var fimmtugur.