Morgunblaðið - 06.05.1982, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MAÍ1982
23
Helmingsafslátt-
ur á fargjöldum SAS
FRÁ og með næstu mánaðamótum lækka fargjöld SAS á Norðurlöndum
verulega, ef stjórnir landanna veita tilskilin leyfi. Eftir lækkunina kost-
ar flugmiði borga á milli álíka mikið og lestarferð á öðru farrými. Og í
sumum tilfellum er ódýrara að fljúga en fara með lest milli tveggja
borga.
Þannig mun það aðeins kosta
590 krónur danskar að fljúga með
SAS fram og til baka milli Kaup-
mannahafnar og Stokkhólms eftir
1. júní, en ferðalag af þessu tagi
kostar 1150 krónur í dag. Ódýrasta
fargjaldið milli Óslóar og Kaup-
mannahafnar, fram og til baka
kostar 570 eftir 1. júní, miðað við
1150 í dag.
Ef menn kjósa hins vegar að
fara þarna á milli með járnbraut-
arlest, kostar ódýrasta ferðin 690
krónur fram og til baka. Er þar
um að ræða fargjald á öðru far-
rými, en ekki svefnvagn. Ódýrasti
ferjumiðinn í svefnplássi milli
Óslóar og Kaupmannahafnar
kostar 710 krónur danskar.
Fargjaldalækkanir SAS eru
framlag félagsins á „Norrænu
ferðaári" í því markmiði að auka
ferðalög milli Norðurlandanna.
Alls verður hægt að ferðast á
þessum lágu fargjöldum til 11
norrænna borga frá Kaupmanna-
höfn, og að auki frá Álaborg til
Gautaborgar í Svíþjóð og Krist-
iansand í Noregi.
í frétt frá SAS segir, að félagið
hyggist ekki einvörðungu lækka
fargjöld milli Norðurlandanna,
heldur séu hafnar viðræður við
flugfélög annarra Evrópulanda, og
sé það von félagsins að hægt verði
að bjóða samskonar lækkun til
annarra Evrópulanda frá 26. sept-
ember næstkomandi.
Tyrkneskur konsúll
myrtur í skotárás
Somerville, 5. maí. AF.
Orhan R. Gunduz, ræðismaður
Tyrklands, var myrtur í gærkvöldi er
maður í bláum hlaupagalla og vopn-
aður tveimur skammbyssum skaut
án afláts á bifreið hans við vegamót.
Ræðismaðurinn hafði þverskall-
ast við ábendingum um að verða
sér úti um vernd eftir að sprengju
hafði verið komið fyrir í skrifstofu
hans. Einnig ók hann alltaf sömu
leið úr og í vinpu, þrátt fyrir
áskoranir lögreglu um að breyta
þar út af.
Hringt var til AP-fréttastof-
unnar í Los Angeles og tilkynnt að
aftökusveitir Armeníumanna
bæru ábyrgð á verknaðinum, og
kona, sem kvaðst vera í sveitun-
um, hringdi til skrifstofu AP í
Beirút og sagði: „Svona göngum
við til verks. Við berjumst fyrir
réttlátri meðferð og frelsi Arm-
eníumanna, og eigum eftir að láta
til skarar skríða á ný.“
Nicholas Taylor, 32 ára gamall
flugmaður Harrier-þotunnar, sem
Argentínumenn skutu niður yfir
Falklandseyjum í fyrradag. Hann
var fyrsti breski hermaðurinn sem
féll í átökunum. Sím»myn<l-Al‘.
Harry Taylor, faðir Nicholas Tayl-
ors, flugmannsins sem fórst með
Harrier-þotunni. „Ég er hreykinn
af því að hafa átt son, sem lést við
skyldustörf sín fyrir foðurlandið,“
sagði hann við fréttamenn eftir að
honum hafði verið skýrt frá son-
armissinum. Sím»mynd-AI*.
Faðir flugmannsins sem fórst:
„Hreykinn af
syni mínum“
Kyme Intrinsica, 5. maí. AP.
FAÐIR brezka flugmannsins, sem
fórst er Argentinumenn skutu
niður Harrier-þotu hans við Falk-
landseyjar, sagðist hreykinn af
syni sínum, sem dáið hefði við
þann starfa sem hann unni mest,
fyrir landið sem hann elskaði.
Flugmaðurinn, lautinant
Nicholas Taylor, var 32 ára.
Hann tók þátt í árás á skotmörk
á Falklandseyjum á þriðjudag,
þegar flugvél hans var skotin
niður. Eftirlifandi eiginkona
hans er í brezka sjóhernum.
Taylor gekk í brezka flugher-
inn strax að loknu skyldunámi,
18 ára gamall. „Allt hans líf
snerist um flug. Hann vissi
hvaða hættur kynnu að vera
fluginu samfara, og þegar hann
hélt til Falklandseyja, vissi hann
að erfiðir tímar gætu verið
framundan.
Talsmaður Buckingham-hallar
sagði að Elísabet drottning væri
harmi slegin vegna skipsskaðans
og flugvélatapsins við Falk-
landseyjar í gær.
Baskaland:
ETA-skæru-
liðar drápu
forstjóra
byggingar-
fyrirtækis
Kilhao, N-Spáni, 5. maí. AP.
SKÆRULIÐAR ETA, aðskilnað
arsamtaka Baska, skutu í dag til
bana forstjóra byggingarfyrirtæk-
is, skömmu áður en forstjórinn
ætlaði að undirrita samning við
héraðsstjórn Baska í Vittoria.
Samningurinn snerist um fram-
kvæmdir við mjög umdeilt kjarn-
orkuver í Baskalandi. Forstjórinn,
Angel Mugica, var ásamt syni sín-
um og tveimur lífvörðum að aka
frá heimili sínu, þegar tveir ETA-
menn hófu skothríð á bílinn. Tutt-
ugu skot hæfðu Mugica, en hann
virtist að sögn AP kasta sér fram
til að koma í veg fyrir að skot
lentu i syninum, hvað og tókst.
Lífverðirnir særðust ekki.
Mugica var annar verkfræðing-
urinn sem hefur komi nærri
kjarnorkuversmálinu sem er
drepinn á því ári sem liðið er frá
því byggingu þess var lokið. Enn
hefur ekki verið gengið frá upp-
setningu og gerð tækjabúnaðar í
það og starfræksla því ekki hafin.
ETA-skæruliðar hafa hótað að
linna ekki látum fyrr en kjarn-
orkuverið hafi verið rifið til
grunna.
MICHELIIV R4DIAL
ERUMÝKRI
OG E\T)AST Mli LEIGIR
Michelin Radial dekk eru mjúk og með
breitt yfirborð, sem gefur gott grip og eykur
öryggi í akstri.
Michelin Radial dekk laðafram bestu
akstureiginleika hvers bíls.
, tiMBOÐ
ISDEKKHF
Smidjuvegi 32 — Kópavogi
Sími 78680