Morgunblaðið - 06.05.1982, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1982
Það hallar undan fæti
— kafli úr eldhúsdagsræðu Halldórs Blöndals
Hér fer á eftir kafli úr
ræðu þeirri, sem Halidór
Blöndal alþm. flutti við eld-
húsdagsumræöur í síöustu
viku.
Það sem gerist ef Sjálfstæðis-
flokkurinn vinnur borgina aftur er
það, að Gunnar Thoroddsen boðar
til alþingiskosninga mánuði síðar,
sagði Guðrún frá Lundi. Ihugun-
arefni er hvað liggur til grundvall-
ar þvílíkum orðum þess þing-
manns Alþýðubandalagsins, sem
auðveldast hefur verið að tileinka
sér sovézkan hugsunarhátt og er
þá kamelljónið Ólafur Ragnar
Grímsson ekki undanskilið.
I hnotskurn lýsa ummælin því,
að sú óskhyggja hafi blundað með
þeim alþýðubandalagsmönnum,
þegar þeir settust í ríkisstjórn
með Gunnari Thoroddsen, að
Sjálfstæðisflokkurinn yrði brot-
inn á bak aftur í eitt skipti fyrir
öll, brjóstvörn borgaralegs þjóð-
skipuiags hér á landi.
Eining meðal
sjálfstæðismanna
Síðasti landsfundur Sjálfstæð-
isflokksins var harður. Menn tóku
djúpt í árinni, en hjá öllum var sá
undirtónn að sjáifstæðismenn
yrðu og myndu ná saman á ný.
Það gerðist síðan í rökréttu fram-
haldi, að full eining náðist meðal
sjáifstæðismanna hér í Reykjavík
um framboð til borgarstjórnar-
kosninga. Sömuleiðis á Akureyri
og hvarvetna annars staðar. Þessi
eining hefur smitað út í þjóðfélag-
ið og undirtektir almennings eru
slíkar, að sérhver forystumaður
Sjáifstæðisflokksins hlýtur að
finna til þeirrar ábyrgðar fyrst og
fremst, að á næstu mánuðum og
misserum verði unnið að því að ná
flokknum aftur saman.
Það var þessi hugsun, sem lá til
grundvallar hjá Friðjóni Þórðar-
syni á fundinum í Borgarnesi, þeg-
ar hann gaf yfirlýsinguna um, að
ríkisstjórnin hlyti að víkja, ef ein-
ingu Sjálfstæðisflokksins yrði
hætt til frambúðar. Það er þessi
hugsun, sem lýsir sér í afstöðu
Eggerts Haukdals á Alþingi í
ýmsum þýðingarmiklum atkvæða-
greiðslum upp á síðkastið og fleiri
dæmi mætti rekja sem öll vísa til
þess að sú verði gifta flokks og
þjóðar, að Sjálfstæðisflokkurinn
rísi upp sterkari en nokkru sinni
fyrr, enda ríður á eins og ástandi
þjóðmála er háttað. Með hliðsjón
af þessu varð ræða háttvirts for-
sætisráðherra mér vonbrigði. Svo
mjúkmáll sem hann þó var í aðra
röndina. Honum er sárt um metn-
að sinn. I lengstu lög hlýt ég þó að
halda í þá von, að hugur hans til
Sjálfstæðisflokksins sé sá sami og
áður.
Svarta ræðan
Hin svarta ræða Seðlabanka-
stjóra sannfærði þá sem áður voru
í vafa, um að lengur verður ekki
haldið áfram á sömu braut. Við-
vörunarorð hans voru einörð og
skýr: Það hallar undan fæti. Ein-
ungis með því að jafna aðstöðu at-
vinnuveganna og nýta til hins ýtr-
asta þau tækifæri til framleiðslu-
aukningar, sem fyrir hendi eru, er
von um bata.
Ólafur Jónsson á Skjaldarstöð-
um kom einu sinni snemma vors
að Óxnhóli á hálfhoraðri brúnni
meri. Þegar hann var stiginn af
baki, gekk Sigurður að merinni,
skoðaði hana í krók og kring og
mælti: „Ó já, karlinn, þú hefur
fengið þér í nokkrar súpur af
henni þessari í vetur."
Hraðfrystiiðnaðurinn hefur ver-
ið burðarásinn, sem velferð okkar
hefur hvílt á. Ef sú gamla upp-
gjörsaðferð er notuð sem menn
þekkja vel og eru fljótir að átta sig
á, kemur í ljós, að frystingin var
rekin með 5—6% tapi bæði árin
1980 og 1981. Ó já, við höfum feng-
ið okkur í nokkrar súpur af henni,
frystingunni, þessi síðustu misseri
og afleiðingin lætur ekki á sér
standa. Fjárfesting í hraðfrysti-
iðnaði hefur engin verið og fram-
þróun þar af leiðandi ekki heldur.
Nú gæti þetta kannske gengið, ef
við værum einir í heiminum, en
það er síður en svo. Við eigum í æ
harðari samkeppni við Kanada-
menn á Bandaríkjamarkaði og
hefðum þess vegna þurft að bæta
rekstrarstöðu frystiiðnaðarins til
muna, svo hann gæti haldið þeim
mörkuðum, sem hann hefur unnið
á liðnum árum.
Sjálfskaparvíti
Nú standa sakir þannig að fisk-
verkendur hafa brugðið á það ráð
að auka saltfisk- og skreiðarverk-
un til þess að sjá fyrirtækjum sín-
um borgið. Aukningin í báðum
þessum greinum er 30% á þessu
ári og var þó ærin fyrir, enda vita
allir, að teflt er á tæpasta vað um
saltfiskmarkaðinn að við yfirfyll-
um hann ekki. Þeir, sem veðjuðu á
skreiðina, standa nú þegar
frammi fyrir því að Nígería hefur
lokast með þeim afleiðingum m.a.
að Seðlabankinn veitir ekki lengur
afurðalán út á skreið.
Auðvitað er þessi staða sjálf-
skaparvíti. Afleiðing af því að
þannig var haldið á stjórn gjald-
Halidór Hlöndal
eyrismála á sl. ári, að frystingin
fékk innlendar kostnaðarhækkan-
ir ekki uppi bornar með sölu af-
urða sinna. Gengisfellingin í janú-
ar og hratt gengissig síðan hefur
að vísu valdið því að frystingin út
af fyrir sig stendur nær núll-
punktinum en áður og er þá öllu
til skila haldið. Þannig er ekkert
afgangs til þess að endurgreiða
eða standa undir þeim hallæris-
lánum, sem veitt hafa verið til
þess að koma í veg fyrir stöðvun
fyrirtækjanna. Ég ætla að' um-
sóknir um frekari hallærislán séu
nær 40 talsins, sem sýnir ljóslega,
að þau frystihús, sem átt hafa í
mestu fjárhagserfiðleikunum,
eygja enga glætu framundan.
Sumarbúðir
skáta að Úlf-
ljótsvatni
í SUMAR verða skátar með
sumarbúðir að Úlfljótsvatni eins
og undanfarin sumur. Að vanda
byggir dagskráin á reynslu skáta
og er kennsla og þjálfun í ýms-
um léttum skátastörfum stór
þáttur í dagskránni. Ahersla er
lögð á útiveru, s.s. gönguferðir,
náttúruskoðun, íþróttir, leiki,
sund og bátsferðir. Einnig er
föndur og handavinna bæði úti
og inni að ógleymdum kvöldvök-
um og varðeldum.
Námskeiðin standa yfir í eina
viku og hefjast 11. júní. Þessi
námskeið eru fyrir börn á aldrin-
um 7—12 ára og er dagskránni
hagað eftir aldri, þannig að hver
aldurshópur fær dagskrá við sitt
hæfi. Almennu námskeiðunum
lýkur 18. ágúst en 20. ágúst hefst
svo flokksforingjanámskeið fyrir
12—14 ára börn. Einnig geta börn
dvalið tvær vikur í senn. Ferðir
vegna sumarbúðanna eru frá Um-
ferðarmiðstöðinni og alltaf er lagt
af stað kl. 13.
Innritun í sumarbúðirnar hefst
mánudaginn 3. maí á skrifstofu
Bandalags íslenskra skáta.
Nýja kortið yflr aðalskipulagið er fáanlegt á skrifstofu Borgarskipulagsins, en til samanburðar er einnig birt mynd af eldra skipulagskortinu.
Ljosm. kristján.
Nýtt aðalskipulagskort af Reykjavík
Nýtt kort af Reykjavík er sýnir gildandi aðalskipulag borgarinnar er
komið út, en að útgáfu þess stóðu Borgarskipulag og skipulagsstjóri
rikisins, er hafði forgöngu um útgáfuna og kostaði hana. Kortið sýnir
staðfest skipulag austursvæða ásamt aðalskipulagi vestan Elliðaáa, sem
staðfest var 3. júlí 1967, með öllum áorðnum breytingum. Nær skipulagið
til aldamóta en það er endurskoðað á fimm ára fresti.
Á fundi með fréttamönnum
kynntu kortið þau Guðrún
Jónsdóttir, forstöðumaður Borg-
arskipulags, Zóphónías Pálsson,
skipulagsstjóri og kortafræðing-
urinn J.P. Biard, sem teiknaði
kortið. Meðal helstu breytinga
sögðu þau vera að á Eiðsgranda-
svæðinu væri nú verið að reisa
íbúðarhús, en þar hafði áður ver-
ið ráðgert iðnaðarsvæði. Svæði í
Sogamýri sem ætlað var til úti-
vistar væri nú tekið undir úti-
vistar- og íbúðarsvæði og sama
mætti segja um svæði á Laugar-
ási, spilda norðan Öskjuhlíð-
arskóla væri tekin undir íbúð-
arbyggð, þar átti að vera útivist-
ar- og stofnanasvæði. Ártúnsh-
olti er breytt úr útivistar- og
stofnanasvæði í íbúðar- og at-
vinnusvæði með þjónustukjarna
og útivistarsvæði í austurhluta
Borgarmýrar verði fyrir iðnað,
vörugeymslur og verslun.
Þá voru á síðasta ári staðfest-
ar af ráðherra eftirtaldar breyt-
ingar á skipulagi gatnakerfis í
miðborg Reykjavíkur: Suðurgata
frá Túngötu að Geirsgötu verði
felld niður, Suðurgata milli
Hringbrautar og Túngötu verður
felld niður sem stofnbraut og
breytt í tengibraut, Kirkju-
stræti/ Amtmannsstígur/ -
Grettisgata verða ekki sem sam-
felld tengibraut og hver um sig
breytist í safngötu eða húsagötu
og Vonarstræti verður tengi-
braut.
Hið nýja skipulagskort var
prentað hjá Prentsmiðjunni
Odda og geta þeir sem vilja feng-
ið kortið hjá Borgarskipulagi
Reykjavíkur, Þverholti 15.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
til sölu árg. 1972. Mjög vel meö
farinn. Ekinn aöeins 56 þús. km.
Sami eigandi frá upphafi. Uppl
hjá Vélad. SÍS í síma 39810,
heimasimi 13019.
I.O.O.F 5 = 164568’/2 =
I I.O.O.F. 11 = 164568V, = 9.1
Afliö meiri tekna
meö því aö vinna erlendis, t.d. í
USA, Kanada, Saudi-Arabiu,
Venezuela o.fl. löndum. Um
timasakir eöa til frambuöar
Starfsfólk óskast t.d. verzlunar-
fólk, verkamenn og faglært fólk.
Nánari upplýsingar fást meö því
aö senda nafn og heimilisfang til
Overseas, Dept. 5032, 701
Washington St. Buffalo, Ny.
ÚTIVISTARFERÐIR
Vorferð til fjalla
7. maí kl. 20.00
Eyjafjöll. Gist i góöu húsi. Uppl.
á skrifstofunni, Lækjargötu 6,
sími 14606.
Útivist.
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Ræöumaöur Tryggvi
Eiríksson.
Samhjálp
Samkoma veröur annaö kvöld
kl. 20.30 aö Hverfisgötu 44, sal
Söngskólans. Ræöumenn:
Hulda Sigurbjörnsdóttir og Jó-
hann Pálsson. Allir velkomnir.
Samhjálp
Skíðadeild Ármanns
Innanfélagsmót, í svigi, veröur
haldiö í Bláfjöllum. laugardaginn
8 mai kl 12.00.
Stjórnin.
S.K.R.R.
Öldungamót SKRR 1982
Skíöamót fyrir alla sem vilja
reyna meö sér i skíöafimi veröur
haldiö i Bláfjöllum sunnudaginn
9/5 og he' kl. 13.00. Keppt
verður í göngu og svigi, i eftir-
töldum aldursflokkum.
Ganga
Karlar
35— 40 ára
41—45 ára
46 ára og eldri
Svig
Karlar
30—35 ára
36— 40 ára
41—45 ára
Konur
30— 39 ára
40—49 ára
50 ára og eldri
Konur
25—30 ára
31— 35 ára
36—40 ára
46 ára og eldrí 41—45 ára
46 ára og eldri
Skráning viö Bláfjallaskála kl.
12.00 og verölaunafhending eftir
mótiö. Mætum vel skiöafólk.
Skiöaráö Reykjavikur.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 oa 19533.
Dagsferðir sunnu-
daginn 9. maí:
1. Kl. 10 Fuglaskoðunarferö
suöur meö sjó. Fararstjóri:
Erling Olafsson, liffræöingur.
Til aöstoöar: Gunnlaugur Pét-
ursson og Grétar Eiríksson
Verö kr. 150.
2. Kl. 13 Gengiö frá Keflavík til
Leiru um Hólmsberg og
Helguvik. Fararstjóri: Baldur
Sveinsson. Verö kr. 100.
Fariö frá Umferöarmiöstööinni
austanmegin. Farmiöar viö bil.
Frítt fyrir börn í fylgd fulloröinna.
Feröafétag Islands.
Hjálpræðis-
*t herinn
Kirkjustræti 2
I kvöld kl. 20.30. Almenn sam-
koma. Allir velkomnir.
Aöalfundur
Þjóöræknisfélags Islendinga í
Reykjavík veröur haldinn aö
Hótel Esju 2. hæö fimmtudaginn
13. maí kl. 20.30. Aö loknum
fundi veröur sýnd stutl kvik-
mynd frá Kanada.
Stjórnin.