Morgunblaðið - 06.05.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1982
37
fclk í
fréttum
HNEFALEIKAR
+ Þaö eru skiptar skoöanir um
ágæti hnefaleika sem keppnis-
íþróttar, en flestir samþykkja aö
hnefaleikar séu hin besta líkams-
æfing og engir íþróttamenn fá jafn
góöan skrokk og hnefaleikakapp-
ar. Islendingar eru líklega eina
þjóöin í heiminum sem hefur bann-
aö hnefaleika algerlega, svo hand-
taka má menn fyrir að bregöa á sig
hönskum í heimahúsum. Nokkrar
þjóöir hafa hins vegar bannaö
hnefaleika sem keppnisíþrótt.
Hnefaleikar eru víöa um heim vin-
sælasta sjónvarpsefni, jafnt hinir
léttari flokkar sem þungavigtin.
Nú, þegar Larry Holmes einokar
þungavigtina, og þykir þó ekki sá
allra snjallasti í hnefaleikasögunni,
þá beinast augu manna aö léttari
flokkunum og þar er aö finna
kappa eins og Sugar Ray Leonard.
Danir hafa jafnan átt frambærilega
hnefaleikamenn í léttari flokkum
og einn er Hans Henrik Palm. Hans
varöi nýlega Evrópumeistaratitil
sinn, tókst þá aö sigra ítalann Pira
í æsilegri keppni, en um nóttina
hélt hann strax úr hringnum til
læknisins. Hann var nefnilega æöi
illa útleikinn og fyrst sigurvegarinn
var svona leikinn, hvernig var þá
hinn sigraði? Hans Henrik sagöi
eftir keppnina: „Ég er í sjöunda
himni yfir aö halda titlinum. Ég
heföi ekki getaö afboriö þá smán
aö missa titilinn. Nú er ég hinn eini
sanni meistari og hvaö er þaö þá
aö þurfa að þola kvalir í nokkra
daga?“ Viö birtum hér mynd af
Hans Henrik eftir keppnina og eina
úr slagnum . . .
+ Brigitte Bardot, leikkonan
fræga, sem tekið hefur upp
baráttu fyrir verndun sela viö
misjafnar undirtektir fiski-
manna og vísindamanna, hefur
nú samþykkt tilboö franskrar
sjónvarpsstöövar um aö segja
lítillega af sjálfri sér í þremur
sjónvarpsþáttum. BBC og ITV
berjast nú um sýningarréttinn á
þáttum þessum í Bretlandi og
sjálfsagt veröa þeir sýndir i
fleiri löndum þessir samtals-
þættir viö Brigitte Bardot. Viö
sjáum hana hér á mynd sem
Ijósmyndari Mbl. tók af henni á
Keflavíkurflugvelli áriö 1977.
COSPER
SIEMENS
SIWAMAT
þvottavélin
frá Siemens
• Vönduö.
• Sparneytin.
SMITH &
NORLAND HF.,
Nóatúni 4, sími 28300.
COmDI cnmp/easy
Viö opnun Combi Camp tjaldvagninn þá lýkst upp
nýr möguleiki til feröalaga. Combi Camp er sérstak-
lega sérhæfður fyrir íslenzka staöhætti bæöi fyrir
lélega vegi og kalda veöráttu. Hann er því bæöi hlýr
og traustur.
Einnig er gott geymslurými fyrir allan viölegubúnað
5—8 manna fjölskyldu.
Verð frá 30.710.
tll atgr. strax.
BENCO,
Bolholti 4, sími 21945.
h
‘r-sJ
Lærið ensku í London
Angloschool er á einum besta staö í Suður-London og er
viðurkenndur meö betri skólum sinnar tegundar í Englandi.
Skólatíminn á viku er 30 tímar og er lögö mikil áherzla á talað
mál. Skólinn er búinn öllum fullkomnustu kennslutækjum.
Kynnisferöir eru farnar um London, Oxford, Cambridge og
fleiri þekkta staöi. Viö skólann er t.d. Crystal Palace, iþrótta-
svæði þar sem hægt er að stunda allar tegundir íþrótta.
Er til London kemur býrö þú hjá valinni enskri fjölskyldu og
ert þar í fæöi. Margir islendingar hafa veriö viö skólann og
líkað mjög vel. Stórkostlegt tækifæri til aö fara í frí og þú nýtir
tímann vel og lærir ensku um leið.
1. tímabil
2. tímabil
3. timabii
4. timabil
5. tímabil
6. timabil
7. timabil ______
ÖH aðstoö veitt við útvegun farseöla og gjaldeyris. Er þegar
byrjaö aö skrifa niður þátttakendur. Sendum myndalista á
íslensku og ensku.
AHar nánari uppl. veitir í sima 23858 eftir kl. 7 á kvöldin og
allar helgar
Magnús Steinþórsson.
Hringdu strax í dag.
1. júní 4 vikur
7. júni 4 vikur
28. júni 4 vikur
5. júli 4 vikur
2. ágúst 4 vikur
31. ágúst 4 vikur
27 sept. 4 vikur
Klskaróu mig, Kolskeggur?