Morgunblaðið - 06.05.1982, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MAÍ1982
47
Ásgeir skrifar undir
samning við Stuttgart
afmælisdaginn
,,l»að er nú ekki rétt, hafí það ein-
hversstaðar komið fram í blöðum, að
ég sé búinn að skrifa undir samning
hjá Stuttgart. V iðraður hafa verið í
gangi og eru þær nú á lokastigi bæði
hjá mér og Bayern. Við leikum gegn
Stuttgart á heimavelli á laugardag-
inn og eftir þann leik verður gengið
frá lokasamningum. I»á fyrst kem ég
til með að skrifa undir," sagði As-
geir Sigurvinsson er Mbl. ræddi við
hann í gær. „Ég hef gert nákvæm-
lega sömu kaupkröfur og ég hef hjá
Bayern. Ég mun ekki og hef að
sjálfsögðu ekki neinn áhuga á því að
lækka í launum og hefði verið áfram
hjá Bayern ef það hefði verið i boði.
En með því að fá sömu laun og að
vera nokkuð viss um að fá að leika
mína stöðu á vellinum og vera með,
gerir það að verkum að ég hef áhuga
á að skipta um lið. Stuttgart er nú í
sjöunda sæti í „Bundesligunni" og
ég get ekki séð annað en að liðið
ætti að geta verið mjög sterkt á
næsta keppnistímabili með þeim
leikmönnum sem skipa liðið,“ sagði
Ásgeir. Þess má geta að fjögur
knattspyrnulið höföu haft samband
við Bayern Miinchen og sýnt Ásgeiri
mikinn áhuga. Það var stórliðið AC
Roma, Ítalíu, FC Ziirich, Sviss, FC
Nurnberg, og franska liðið Paris SG.
„Salan fer fram 1. júlí. Fram að
þeim tíma telst ég vera leikmaður
með Bayern. Ég reikna með því að
þurfa að vera mættur í æfinga-
búðir hjá Stuttgart 13. júli. Þessi
félagaskipti ættu því að gefa mér
nokkuð gott sumarfrí. Eg er að
sjálfsögðu tilbúinnn til þess að
leika landsleiki fyrir ísland verði
þess farið á leit við mig, en það
þarf að gera tímanlega til þess að
ég fái leyfi hjá Bayern." Ásgeir
sagðist eiga enn við smá meiðsli
að striða í nára og vonaðist hann
til þess að fá bata í sumar. Ásgeir
sagðist reikna með því að fara í 15
daga sumarfrí til Canada og
Bandaríkjanna og ætlaði hann að
fylgjast með heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu þaðan.
Vfb.Stuttgart seldi nýlega eina
af af knattspyrnustjörnum sínum,
landsliðsmanninn Hansa Múller,
til Inter Milano á Ítalíu og fékk
rúmar tvær milljónir marka fyrir
hann. Þýsku landsliðsmennirnir,
bræðurnir Karl Heinz og Bernd
Föster, gerðu það að skilyrði þeg-
ar þeir endurnýjuðu samning sinn
við Stuttgart, að góður leikmaður
yrði fenginn í stað Hansa Múllers
og jafnframt yrði fenginn nýr
þjálfari til liðsins. Nýi þjálfarinn
kemur frá Basel í Sviss en hann
óskaði sérstaklega eftir þvi að
Ásgeir yrði keyptur til liðs við
Stuttgart í stað Hansa. Þá mun
Kurt Niedermayer, sem er líka
leikmaður hjá Bayern, ganga til
liðs við Stuttgart-liðið. Frægir
leikmenn eins og Didier Six og
Didier Múller, báðir þekktir
landsliðsmenn í knattspyrnu,
leika með Stuttgart-liðinu sem á
nú góða möguleika á að vinna sér
rétt til að keppa í UEFA-keppn-
inni í knattspyrnu næsta
keppnistímabil.
Asgeir sagði það leggjast vel í
sig að skipta um félag. Hann hefði
verið mjög þolinmóður hjá Bay-
ern. Sýnt góða frammistöðu þegar
hann hefði fengið tækifæri en það
hefði ekki dugað til. Hann hefði
svo til aldrei fengið að leika sína
stöðu á vellinum og það hefði líka
gert honum erfitt fyrir. Þjálfarinn
væri greinilega eitthvað á móti
honum. Það er mjög erfitt að
þurfa að sitja lengi á bekknum,
sagði Ásgeir, sem á afmæli á laug-
ardaginn, verður þá 27 ára gamall.
Þá mun hinn nýi þjálfari hans
vera mættur til Bayern og hefur í
hyggju að bjóða honum út á laug-
ardag eftir leikinn, í tilefni dags-
ins. —ÞR./SS.
p *
Ife*
I
>*
• Ásgeir Sigurvinsson verður 27 ára gamall á laugardaginn, en þá mun hann
skrifa undir samning hji Vfb Stuttgart. En það verður þriðja knattspyrnufé-
lagið sem hann gerist atvinnumaður hjá. Ljósm. Mbl. Þórarinn Ragnarsson.
Granddad
Efni: Dením og 100% gæöa bómull, margir litir.
Verö: 549,00 kr.
ísfiröingar
sigursælir
DAGANA 16.—19. mars var haldið á
ísafírði framhaldsskólamót í svigi og
stórsvigi. Fóru leikar þannig að liö
Menntaskólans á ísafirði sigraði
bæði í sveitakeppninni í svigi og
stórsvigi karla og kvenna.
í svigi skipuðu sveitina þeir: Bene-
dikt Einarsson, Friðgeir Halldórs-
son, Birkir Hreinsson og Sigurður B.
Guðmundsson og fengu tímann
2:13,3. í stórsvigi skipuðu þessir
sveitina: Benedikt Einarsson, Frið-
geir Halldórsson, Hjalti Karlsson og
Lúðvík Ólason, fengu þeir tímann
2:27,7.
í kvennaflokki fengu stúlkurnar
tímann 2:07,1 og í stórsvigi 2:11,8.
Sigrún Þórólfsdóttir, Sólrún Geirs-
dóttir og Auóur Yngvadóttir skipuðu
sveitina.
^ IHovtumblnMtt
ilTCniinj
„UNISEX“
buxur
KARNABÆR
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
Cesar — Akureyri, Eplið — ísafiröi, Eyjabær — Vestmannaeyjum, Fataval — Keflavik,
Hornabær — Hornafirði, Alfhóll — Siglufirði, Óðinn — Akranesi, Ram — Húsavík,
Bakhúsið — Hafnarfirði, Austurbær — Reyðarfiröi, Kaupfél. Rangæinga — Hvolsvelli,
Sparta — Sauðárkróki, Skógar — Egilsstöðum, isbjörninn — Borgarnesi, Lea — Ólafsvík,
Lindin — Selfossi, Paloma — Vopnafirði, Patróna — Patreksfiröi, Báran — Grindavík,
Bjólfsbær — Seyöisfiröi, Þórshamar — Stykkishólmi, Inga — Hellissandi, Aþena — Blönduósi.