Morgunblaðið - 17.09.1982, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1982
Siglt verdur niöur Trisuli-ána í stórum gúmmíbátum.
Ævintýraferð til
mhí
Við suðurjaðra hinna miklu Himalaja-fjalla og landa-
mæri Indlands í norðri liggur lítið konungsríki, sem fram
til þessa hefur ekki borið oft á góma í umræðum ís-
lenskra ferðalanga. Hér er auðvitað átt við Nepal og
raunar hafa menn litið á ferðir þangað og til Indlands
sem fjarlægan draum fremur en raunhæfan veruleika.
íslenskir ferðamálafrömuðir, sem á seinni árum hafa
smátt og smátt verið að teygja anga sína til allra heims-
horna, hafa þó vissulega komið auga á þá möguleika
sem Nepal og Indland hafa upp á að bjóöa og ferða-
skrifstofan Útsýn hefur nú skipulagt ferðir til þessara
landa í október nk.
Sveinn Guðjónsson
Hér er um að ræða 24 daga
ferö, sem hefst hinn 14.
október og lýkur 6. nóvember og
af ferðalýsingu má ráöa aö
óvænt ævintýri bíði þeirra sem
leggja upp í ferð þessa. Ævin-
týraferðinni til Nepal má skipta í
þrennt: Fyrstu vikuna, sem helga
má menningu og trúarbrögðum,
önnur vikan felur í sér fljóta- og
frumskógaferö og þriöju vikuna
gefst mönnum kostur á göngu-
ferðum um hlíðar Himalaya. Far-
arstjóri i þessari ferð verður
Gyöa Sveinsdóttir, sem er vel
kunnug á þessum slóðum og hef-
ur hún meðal annars tekið þátt í
samskonar ferðum og hér um
ræðir.
Um Nepal
Eins og áður segir er Nepal
sjálfstætt konungsríki í suöur-
hlíöum Himalaya-fjalla og þótt
íbúarnir séu fátækir og landið lítt
tæknivætt á vestrænan mæli-
kvarða ber það samt reisn
stórbrotinnar náttúrufeguröar
Stórbrotin náttúrufegurö konungsríkisins Nepal lætur engan ósnort■
inn.
þar sem fjallarisarnir Everest,
Kangchenjunga, Annapurna og
Dhaulagiri gnæfa hátt yfir gróð-
ursælum hlíðum og dölum, sem
fallvötnin hafa grafið í landið í
aldanna rás. íbúarnir eru áætlað-
ir eitthvaö um 14 milljónir og eru
frumbyggjarnir af mongólsku
kyni, en töluvert blandaöir hind-
úum frá Indlandi. Höfuðborgin er
Kathmandu og er hún staðsett
um það bil í landinu miöju.
Hin stórbrotna náttúra lands-
ins meö öllum sínum fjölbreyti-
leika, frumstæö fjallaþorp og
framandi mannlíf, gegnsýrt af
ævafornri menningu og trúar-
brögðum gerir það aö verkum,
að landið býöur upp á óvenju-
lega lífsreynslu fyrir feröalanginn.
Vegakerfi landsins myndi vera
talið ófullkomiö, jafnvel á ís-
lenskan mælikvaröa, en margir
telja það eitt af því sem er mest
aðlaðandi viö Nepal — hversu
landið er tiltölulega ósnortiö af
manna völdum. Menn ferðast á
milli þorpa á troðningum, sem
myndast hafa í aldanna rás og
segja má meö nokkrum rétti, að
aðeins með því að ferðast fót-
gangandi um landið kynnist
maður því á ósvikinn hátt. En
auðvitað feröast menn ekki að-
f feröinni veröur
feröast um trumskóga
Nepal á fílsbaki.
Frumstætt fjallaþorp í Nepal.
eins fótgangandi um Nepal og i
ferðinni kynnast menn ekki að-
eins fegurö fjallanna. Hin forna
menning, ævagömul þorpin og
vingjarnlegir íbúar láta engan
ósnortinn og eins og sjá má af
feröalýsingu býöur Útsýnarferðin
upp á þrjá ólíka þætti.
Ferðatilhögun
Lagt veröur af stað með Flug-
leiðaþotu síðdegis hinn 14.
október og flogið til London þar
sem gist verður í Cumberland-
hótelinu. Næsta morgun veröur
flogið meö breiðþotu til Delhí á
Indlandi og komið þangaö aö
morgni hins 16. október. Á Ind-
landi verður dvaliö í þrjá daga,
og farið í skoðunarferöir um
Delhí og markverða staði í ná-
grenni hennar. Þarna gefst kost-
ur á að skoða gömul menningar-
verömæti svo sem hið fræga Taj
Mahal-musteri í Agra og hina
fornu höfuðborg Fatehpur Sikri.
Að morgni 19. október verður
flogið til Kathmandu, höfuðborg-
ar Nepal, og fyrstu tveir dagarnir
notaðir til skoöunarferða um
borgina og nágrenni, en í Kath-
mandu getur að líta stórmerk hof
buddhatrúarmanna og hindúa.
Lýkur þar með fyrstu vikunni
sem kalla má „menningar- og
Sagt frá fyrirtækjum í Bandaríkjunum, sem minnka vinnuálagið með því að leyfa starfsmönnum að
meö tónlist í vinnunnl
ví hefur verið haldið fram, aö
tónlist kyrri úfið skap og fólk
slaki á er það hlustar á hljómlist.
„Þetta er óefað sannleikur, sem
æ fleiri forráðamenn fyrirtækja
eru farnir aö taka alvarlega,“ segir Richard
Larenz sölustjóri hjá Singer-verksmiöjun-
um í Bandaríkjunum.
Það er ekki óvenjuleg sjón hjá Singer-
fyrirtækinu, aö sjá deildarstjóra fyrirtækis-
ins loka sig inni á skrifstofum sínum á miðj-
um vinnudegi meö heyrnartæki á höföinu.
Þannig sitja þeir og stara út í loftiö á meö-
an þeir hlusta á Chopin eða Bach. Flestir
þessara manna hafa sótt óformleg nám-
skeið hjá Larenz í því, sem hann kallar „aö
láta hugann reika“.
Námskeið hans er byggt upp á þeirri
kenningu, aö ef hlustað sé á sérstaka teg-
und tónlistar, valdi þaö andlegri vellíöan og
hvíld og örvi sköpunargáfuna. Larenz
byggir kenningu sína á reynslu sinni, er
hann starfaöi að undirbúningi geimferðar
meö Appollo-farinu. Sagöi hann að geim-
fararnir og samstarfsmenn þeirra hafi veriö
undir gífurlegu álagi á meöan á þjálfuninni
stóð, þaö var því mikilvægt að finna leið til
aö þeir gætu komist í gegnum 16—18
stunda vinnudag, sem hafði í för meö sér
ómælda streitu.
En þaö voru fá tækifæri til hvíldar. Aö
eyöa klukkutíma á ströndinni reyndist gera
lítið gagn. Það þurfti því aö finna aðferö til
afslöppunar, sem hægt væri að grlpa til
hvenær sem færi gæfist.
Richard Larenz, sem stundaöi fiðluleik
áöur en hann varð rafmagnsverkfræöingur,
segir, að hann hafi þá tekiö til þess ráðs,
að safna saman 10 mönnum í hóp, þar sem
hann kenndi þeim aö hlusta á tónlist. I
2—3 klukkutíma í senn lék hann af plötum
hina margvíslegustu tónlist. Eftir 4—5 slík
skipti voru flestir þátttakendurnir færir um
að velja sér tónlist, sem þeim fannst hafa
góö áhrif á sig, völdu þeir þessa hljómlist
úr safni 1.500 verka, sem Larenz haföi
mælt með.
Flest þessara verka voru klassísk. „j
popptónlist er of mikið af jafnvægisleysi
hins daglega lífs, sem þessir menn voru aö
reyna að komast frá. Sú tónlist, sem varð
fyrir valinu, var því laus við allan mishljóm,
þannig að menn gátu óáreittir hafið dag-
drauma sína. En aö dreyma dagdrauma er
lykillinn aö því, aö fólk geti slakaö á svo um
muni, segir Larenz.
Rannsóknir vestur-þýskra sálfræðinga
hafa sýnt fram á aö dagdraumar hafa góð
áhrif á andlega heilsu. Larenz ráöleggur því
þátttakendunum á námskeiðunum aö láta
tónlistina hjálpa sér til aö hefja dag-
drauma, hann segir þeim aö reyna að hafa
vald á hvaöa stefnu dagdraumarnir taka og
beina þeim á jákvæöar brautir meö þvi aö
hugsa um eitthvaö skemmtilegt.
„Strax eftir fyrstu skiptin segir fólk
venjulega við mig, aö það heföi aldrei gert
hlusta á tónlist í vinnutímanum
sér grein fyrir hvílík vellíöan er fólgin í því
aö hlusta á tónlist," segir Larenz. Og hann
bætir viö: „Nú hafa nokkur fyrirtæki komið
upp sérstökum vistarverum, þar sem
starfsmennirnir geta hlustaö á þá tónlist
sem þeim finnst þægilegust. En algengast
er aö fólk taki sér 20 mfnútna hlé frá störf-
um sínum og hlusti þá á lítiö segulbands-
tæki, sem það hefur meö sér í vinnuna.
Flugmenn og þeir starfsmenn, sem þurfa
að ferðast mikið vegna vinnu sinnar, slaka
á meö því aö leika af segulböndum sínum á
hótelherbergjum sínum.“
Fleiri hafa komist aö svipaðri niöurstöðu
í þessum efnum og Larenz. Tónlistarmaö-
urinn Stephen Halpern, sem er yfirmaöur
„Spectrum Research Institute" í Kaliforníu
hefur samiö tónlist, sem á aö gera fólki
mögulegt aö slaka á.
„Það er hægt að raska jafnvægi líkam-
ans með utanaökomandi hljóöum," segir
Halpern.
„Óþægileg hljóð frá ritvél eöa tölvu svo
tekin séu dæmi geta valdiö streitu og
þreytu. En hljóðin þurfa ekki að vera hávær
svo þau valdi streitu heldur geta lágvær
hljóð ekkert síöur veriö þreytandi.
Rannsóknir á því hvaða áhrif mismun-
andi hljóö hafa á andlega og líkamlega
heilsu hafa verið geröar. Sýna þær meöal
annars aö rokktakturinn getur dregið úr
vöðvaþrótti starfsmanna," segir Halpern.
Ýmis önnur tegund tónlistar hefur gagn-
stæð áhrif og virkar uppbyggjandi,” segir
Halpern ennfremur.