Morgunblaðið - 17.09.1982, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1982
41
Á skuldadeginum í San Joté da
Ribarteme fara fram jaróarfarir
og hátíðahöld þar aam ungir og
aldnir akammta aér.
látin. Ef heilaga Marta heföi ekki
hjálpaö mér heföi ég dáiö.“
Fólk, sem komið er saman í
kringum „hina látnu“, kemst í
geöshræringu. Gamla konan,
Saladina aö nafni, segir frá reynslu
sinni; hún haföi veriö haldin illkynj-
uöum blóösjúkdómi. Eftir bænir og
áheit í 2 ár til heilögu Mörtu hvarf
sjúkdómurinn fyrir fullt og allt.
Hundruö manna hafa ekki ólíka
sögu aö segja. Þeir sem verst voru
haldnir fyrir „kraftaverkiö“ klaaöast
hvítum líkklasðum. Aörir bera kerti,
dýr, ávexti og allir koma meö pen-
ingaseðla til þess aö færa dýrl-
ingnum.
Um 800.000 pesetar safnast
Beðió aftir eigin útför.
saman í glerkassann fyrir framan
líkneski heilögu Mörtu dag hvern.
Seldar eru myndir af dýrllngnum til
þess aö bera í göngunni. Þegar
best lætur geta safnast saman
40.000 pesetar í einni göngu vegna
sölu þessara mynda.
Þaö sem venjulega er gert viö
hluta þessara peninga er aö greiöa
kostnaö vegna hátíöahaldanna.
Nýjar grafir eru geröar og líkhólf
og líkklefar eru smíöaöir í kringum
kirkjuna.
Dauöinn er stööugur í lífi þessa
fólks. Og ekki aðeins í San José de
Ribarteme. í mörgum öörum þorp-
Áhait og gjafir handa hailögu
Mörtu; afnaóur dýrlingur.
um Galisíu-héraös eru sams konar
trúar- og þakkarhátíöir haldnar.
Fólk upplifir sína eigin „útför" með
vinum og vandamönnum. Krabba-
mein, gigt, augnsjúkdómar og
önnur veikindi; þaö lítur út fyrir aö
þau hverfi fyrir fullt og allt eftir aö
byrjaö er aö ákalla dýrlingana.
Sumir dýrlingar framkvæma ekki
kraftaverk þegjandi og hljóöalaust.
Sá, sem ekki stendur viö heit sitt
viö heilögu Mörtu, má vara sig því
hún ku vera óbilgjörn og getur
refsaö þeim er svíkja loforö sín.
„Þegar faöir minn lá á banabeði
sínu baö hann okkur aö koma
hvert ár hingaö til San José til þess
aö færa heilögu Mörtu fórnir, sem
þakklæti fyrir aö hafa lifaö af borg-
arastyrjöldina,“ segir Silvestre Al-
onso Fernández, einn af útfarar-
söngvurunum. Hann á fleiri fjöl-
skyldumeölimi sem „gera upp“ viö
dýrlinginn í San José de Ribart-
eme á hverju ári.
Antonio Marcelino Gil, 16 ára
gamall þjónn, leggst ofan í Ifkkistu,
sem vinir hans bera ár hvert síðan
hann læknaöist af sjúkdómi fyrir 7
árum. Áöur en hann fer í sína eigin
líkkistu ber hann kistur fyrir aöra.
Antonio segist ekki hræöast dauö-
ann.
Þaö sama segir Ramona Pérez,
82 ára gömul bóndakona. Hún var
þungt haldin af magakrabbameini
og baö heilögu Mörtu ásjár. Ram-
ona fékk fullan bata og er alltaf
mætt í San José de Ribarteme
meö líkkistu sína til þess aö vera
viöstödd sína eigin jaröarför.
f raun er ein skýringin á þessari
athöfn sú aö veriö sé aö hæöast
aö dauöanum, eins konar ögrun á
leyndardómana.
Ár eftir ár fer fram fagnaöarhá-
tíö þeirra er heföu dáiö (aö áliti
sjúklinganna sjálfra) ef trúin á heil-
ögu Mörtu heföi ekki bjargaö
þeim.
Eftir aö skrúögöngunni lýkur og
allir hafa kveikt á sínu altariskerti,
fjölmargar kistur komnar ofan í
jöröina (aörar eru notaöar aftur og
aftur) og síöast en ekki síst greidd-
ar allar skuldir til heilögu Mörtu
koma viöstaddir sér fyrir fyrir neö-
an risavöxnu grenitrén stutt frá
kirkjunni. Dansinn dunar, ungir og
gamlir drekka, eta, hoppa og
syngja. Prestur er einsöngvarinn
og hrókur alls fagnaöar. Glerkass-
inn fyrir framan líkneski heilögu
Mörtu er fullur.
Enginn efast um gæðin fra General Electric
Toppklassa, kæli- og frystiskápar, pvottavélar og
þurrkarar fyrirliggjandi.
Þaö besta veröur ávallt ódýrast, pegar til lengdar
lætur.
( %
HEIMILISTÆKI
STÓR OC SMÁ
RAFTÆKJADEILD