Morgunblaðið - 17.09.1982, Side 11
HVflÐ ER AÐ GERAST UH HEL6IHA?
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1982 ■ 43
Þjóðleikhúsiö
frumsýnir tvíleik
á Litla sviöinu
Á sunnudagskvöldið frumsýnir
Þjóöleikhúsiö á Litla sviöinu nýtt
breskt verðlaunaleikrit, Tvíleik, eft-
ir Tom Kempinski, en verk þetta er
nú veriö aö sýna víöa um heim.
Úlfur Hjörvar hefur íslenskaö
verkiö, Birgir Engilberts gerir
leikmyndina, lýsingu annast Ás-
mundur Karlsson, en Jill Brooke
Árnason er leikstjóri sýningarinn-
ar. — í Tvíleik eru aðeins tvö hlut-
verk og eru þau leikin af Þórunni
Magneu Magnúsdóttur og Gunnari
Eyjólfssyni.
Þegar þetta leikrit var frumsýnt
fyrir tæpum tveimur árum í Lon-
don vakti þaö þegar mikla athygli
og jafnvel hneykslan og deilur.
Deilurnar stóöu þó ekki um verkiö
sjálft, heldur hvort höfundurinn
væri aö fjalla um raunverulega
manneskju, þ.e. sellósnillinginn
Jacqueline du Pré og sjúkdóm
hennar, eöa hvort hann væri aö
miöla sinni eigin reynslu. Um ágæti
verksins var ekki deilt og þaö var
kosið besta leikrit ársins 1980 í
Bretlandi.
Frumsýningin á sunnudags-
kvöldið hefst kl. 20.30.
Skemmtun fyrir
þroskahefta
í Tónabæ
Skemmtun á vegum Styrktarfé-
lags vangefinna fyrir þroskahefta
veröur haldin i Tónabæ nk. laugar-
dag 18. september kl. 20—23.30.
Blómasýning á
Akureyri
17.—19. sept-
ember
Blómamiöstööin hf„ sem hefur
aösetur í Reykjavík, hefur ákveöiö
aö gangast fyrir blómasýningu á
Akureyri dagana 17.—19. sept-
ember til kynningar á framleiöslu
blómabænda. Blómasýningin í
jþróttahöllinni veröur opin almenn-
ingi frá kl. 15—22 á föstudag 17.
sept. og frá kl. 10—22 laugardag-
inn 18. sept. og sunnudag 19.
sept.
Blómamiðstööin er í eigu
blómabænda, en fyrirtækiö dreifir
og selur blóm til verslana um allt
land. Hefur veriö lögö rík áhersla á
aö þjóna landsbyggöinni hvaö
þetta snertir. Framleiösla blóma-
bænda Blómamiöstöövarinnar er
fjölbreytileg, bæöi hvaö varðar af-
skorin blóm og pottaplöntur.
Til sýningarhaldsins hafa bæjar-
yfirvöld Akureyrar veitt Blóma-
miöstööinni afnot af húsnæöi í sal-
arkynnum innan anddyris hinnar
nýju og glæsilegu Svæðisíþrótta-
hallar viö Þórunnarstræti. Sömu-
leiöis mun garöyrkjustjóri Akureyr-
ar og hans starfsliö veita aöstoö
viö undirbúning sýningarlnnar.
Vakin skal athygli á, aö hér
veröur um aö ræöa fyrstu sýningu
á inniblómaframleiöslu garðyrkju-
bænda sem haldin er á Noröur-
landi. Þótti Akureyrarbær sjálf-
kjörinn í þessu skyni, enda hefur
ræktunarmenning veriö hvaö
lengst þar viö lýöi og til fyrirmynd-
ar. Blómamiöstööin væntir þess
aö bæöi Akureyringar og íbúar
nágrannabyggöanna kunni aö
meta þetta framtak blómabænda
og fjölmenni á sýninguna til aö sjá
og kynnast þeim gróöri sem er
ómissandi liður í allri híbýlaprýöi.
Helgarferðir FÍ
Farið veröur í tvær helgarferöir í
kvöld kl. 20.00, þ.e.:
1. Landmannalaugar — Herbjarn-
arfell (935 m). Gist er í sæluhúsinu
í Landmannalaugum. Á laugardag
er ekin Dómadaisleiö og gengiö á
Herbjarnarfell.
2. Álftavatn — Torfahlaup —
Stórkonufell (945 m), en þaö fjall
er á Emstrum sunnan Álftavatns.
Gist er í sæluhúsi viö Álftavatn.
Þriöja helgarferöin er á laugar-
dag kl. 08.00 og er þá farið í Þórs-
mörk, haustliiaferö. Nú eru haust-
litir í algleymingi og ætti fólk aö
athuga vel aö þaö munar um
hverja vikuna á þessum árstíma, ef
veöur fara aö spillast.
Sunnudaginn 19. sept. eru tvær
dagsferöir:
1. kl. 09.00, Skjaldbreiöur (1060
m). Tilkoma línuvegarins hefur
gjörbreytt aöstööunni við aö
ganga á Skjaldbreiö. Nú er ekiö
noröur fyrir fjalliö og gengiö þaöan
og tekur gangan um 2 klst. frá því
fariö er úr bílnum, þar til komiö er
á topp fjallsins.
2. kl. 13.00, Haustlitaferö til Þing-
valla. Haustlitir á Þingvöllum hafa
löngum glatt auga feröamannsins.
Réttir og kaffi í
Lækjarbotnun
á sunnudag
Ibúum höfuöborgarsvæöisins
gefst kostur á því aö fara í réttir á
sunnudag, er réttaö verður í Lög-
bergsrétt. Réttarkaffi veröur líka á
boöstólum sem vera ber.
Lionsklúbbur Kópavogs býöur
til góöra veitinga í Kópaseli sem er
aöeins steinsnar frá réttunum. All-
ur ágóöi af kaffisölu rennur til líkn-
armála.
Lionsmenn í Kópavogi hafa haft
þennan hátt um allmörg ár og er
þaö ómissandi þáttur í lífi margra
fjölskyldna á mölinni aö fara í
Lögbergsréttir og taka síöan góö-
an toll af veislukosti i Kópaseli.
Lionsmenn munu setja upp veg-
vísa til þess aö auövelda fólki aö
finna leiöina aö réttum og réttar-
kaffinu.
Námskeiö á veg-
um aöventista
Námskeiö sem ber heitiö 18 eft-
irminnileg kvöld á vegum aövent-
ista veröur haldiö á sunnudags-
kvöld 19. sept. kl. 20 í aöventista-
kirkjunni Ingólfsstræti 19. Þar mun
dr. J. Berglund fjalla um ýmis
vandamál samtímans, s.s. tauga-
spennu, streitu, tilfinningalífiö og
leiöir til almennrar vellíöunar.
Námskeiöiö er fjögur kvöld í viku,
sunn., þriöj., miöv. og föstu-
dagskvöld. Námskeiösgjald má
greiöa á skrifstofu aöventista,
Skólavöröustig 16 eöa í upphafi
námskeiös.
Dr. Berglund hefur haldið nám-
skeiö af svipúöu tagi í nágranna-
löndum.
Allir eru velkomnir á þetta nám-
skeiö hér á landi.
Kynningarfund-
ur hjá málfreyj-
um í Hafnarfirði
Nú eru íslenskar málfreyjur um
þaö bil aö hefja sitt vetrarstarf.
Málfreyjur eru aöilar aö alþjóöa-
samtökum kvenna, sem á ensku
heita International Toastmistress
Clubs og telja 26.000 félagsmenn.
Markmiö þessara samtaka er aö
efta meö einstaklingum sjálfs-
þroska og hæfni til aö tjá sig.
Fyrsta íslenska málfreyjudeildin
var stofnuö í Keflavík áriö 1975 og
í dag eru alls 10 starfandi deildir
hér á landi.
Næstkomandi laugardag 18.
sept. ætlar Málfreyjudeildin jris i
Hafnarfiröi aö halda kynningar-
fund í Hraunprýöi, húsi
Slysavarnafélagsins, aö Hjalla-
hrauni 9, kl.,2 e.h.
Ljósmyndasýn-
ing í Listmuna-
húsinu
Ljósmyndasýning svissneska
Ijósmyndarans Max Schmidts
stendur nú yfir í Listmunahúsinu
Lækjargötu 2 í Reykjavík. Á sýn-
ingunni sem ber heitiö Annaö
sjónarhorn eru 74 myndir sem
flestar eru frá islandi. Max
Schmidt hefur tekiö myndir víös
vegar i heiminum. Síöan 1968 hef-
ur hann komið a.m.k. einu sinni á
ári hingaö til lands. Schmidt hefur
haldiö nokkrar sýningar i Þýska-
landi og Sviss síöustu árin. Sýning.
hans hér er opin alla daga frá kl.
10—18, nema laugardaga kl.
14—18. En lokaö er á mánudög-
um.
Töframaður á
Hótel Esju
Töframaöurinn lan Charles mun
sýna matargestum, ungum sem
öldnum, listir sínar á laugardag.
Hóteliö munn ennfremur bjóöa
fjölskyldum upp á þríréttaöa mál-
tiö og fá börn ókeypis hamborg-
ara.
í Skálafelli koma svo fram Hauk-
ur Morthens og félagar, en þeir eru
nýkomnir erlendis frá. í ráöi er aö
þeir muni troöa upp á föstudags-
og sunnudagskvöldum á Hótel
Esju í vetur.
Kræklingaferð
Útivistar
í Hvalfjörð
Árleg haustferð inn á Kjöl verö-
ur farin kl. 20 í kvöld. Fariö veröur
aö Beinahól, þar sem Reynisstaöa-
bræöur urðu úti fyrir rúmum 200
árum. Einnig veröur fariö í Grett-
ishelli og á Strýtur í Kjalhrauni. Á
sunnudeginum verður gengið á
Snækoll í Kerlingarfjöllum eöa
Bláfell. Gist veröur í húsi á Hvera-
völlum, en þar er sem kunnugt er
eitt fegursta hverasvæöi landsins
og minjar um veru þeirra Fjalla-
Eyvindar og Höllu. Á laugar-
dagskvöldiö veröur góö kvöld-
vaka.
Á sunnudag kl. 13 veröur
kræklingaferö í Hvalfjörö. Krækl-
ingurinn veröur steiktur og
snæddur á staönum. Kl. 13 á
sunnudag veröur einnig boöiö upp
á létta göngu úr Kjós yfir í Fossár-
dal. Þetta er gömul þjóöleiö i fal-
legum haustlitum.
Allar búðirnar hillar
af nýjum vöru m
Verslanir í Reykjavík eru í Skeifunni 15, Lækjargötu
og Kjörgarði og á Akureyri að Norðurgötu 62.
Sími póstverslunar er 30980.
v Opið í kvöld til kl.10 og til hádegis á morgun y
HAGKAUP