Morgunblaðið - 17.09.1982, Blaðsíða 13
SJÓNVARP
DAGANA
18.-25
L4UG4RQ4GUR
18. september
17.00 fþróttir.
I'nska knattspyrnan og fleira.
Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
19.15 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Löður.
Kandarískur gamanmynda-
dokkur (71). Þýðandi Ellert Sig-
urbjörnsson.
21.05 Biágrashátið.
Hljómsveitin „The Seldom
Scene“ leikur bandaríska
sveitatónlist. Þýðandi Halldór
Halldórsson.
21.35 Adam átti syni fjóra.
(Adam Had Four Sons)
Bandarísk bíómynd frá 1941.
Leikstjóri er Gregory Ratoff.
Aðalhlutverk: Ingrid Bergman,
Warner Baxter og Susan Hay-
ward.
Ung kennslukona fær það erf-
iða hlutverk að ganga fjórum
stálpuðum strákum í móður-
stað.
Þýðandi Oskar Ingimarsson.
22.50 Dansar frá Suður-Ameríku.
Frá heimsmeistarakeppni í suð-
rænum dönsum í Helsinki 1981.
Þýðandi Trausti Júlíusson.
(Eurovison — Finnska sjón-
varpið).
23.55 Dagskráriok.
SUNNUD4GUR
19. september
18.00 Sunnudagshugvekja.
Örn Bárður Jónsson flytur.
18.10 Súsanna og drekinn.
Nútímaævintýri fyrir börn og
fullorðna um fimm ára telpu
sem oft er ein heima á kvöldin.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið)
18.45 Fyrirsátur við Masai Mara.
Bresk náttúrulífsmynd um Ijón
í þjóðgarði í Kenýa í Afríku og
hjarðirnar sem þau iifa á. Þýð-
andi og þulur Jón O. Edwald.
19.10 Hlé.
Endurreisn Feneyja
Á miðvikudagskvöld verður á dagskrá bresk heimildamynd, Endurreisn Fen-
eyja. Fyrir einum áratug leit helst út fyrir að borgin Feneyjar á Ítalíu mundi
hrörna og síga í sæ, en þar hefur síðan verið unnið mikið endurreisnarstarf til
að forða borginni frá þeim örlögum.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Sjónvarp næstu viku.
21.00 Jóhann Kristófer.
Sjöundi hluti.
Efni 6. hluta: Tónverk Jóhanns
Kristófers fá góða dóma í Róm
og verður það honum mikil
hvatning. En hann á ekki upp á
pallborðið hjá Parísarblöðunum
þar til hann hittir aftur Graziu
sendiherrafrú, sem beitir áhrif-
um sínum til að greiða götu
hans.
Þýðandi Sigfús Daðason.
21.55 Hljómleikar norrænu ungl-
ingahljómsveitarinnar.
85 manna hljómsveit skipuð
ungmennum af öllum Norður-
löndum leikur sinfóníu nr. 8 í
g-dúr eftir Antonin Dvorák und-
ir stjórn Kjell-Áke Bjérmings.
l'pptakan var gerð í Lundi
sumarið 1981.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið)
22.35 Dagskrárlok.
Sönn
saga
Á dagskrá sjónvarps á
mánudagskvöld er
frönsk sjónvarpsmynd,
Sönn saga (Historie
vraie), byggð á sam-
nefndri sögu eftir Guy
de Maupassant. Leik-
stjóri er Claude Sant-
elli, en í aðalhlutverk-
um Pierre Mondy og
Marie-Christine Barr-
ault. Myndin lýsir
skammvinnum ástum
óðalseiganda og þjón-
ustustúlku hans.
/MN4UD4GUR
20. september
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.40 Tommi og Jenni
20.45 íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
21.15 Sönn saga
(Histoire vraie)
Frönsk sjónvarpsmynd byggð á
samnefndri sögu eftir Guy de
Maupassant.
Leikstjóri Glaude Santelli.
Aðalhlutverk: Pierre Mondy og
Marie-Christine Barrault.
Myndin lýsir skammvinnum
ástum óðalseiganda og þjón-
ustustúlku hans.
Þýðandi Ragna Ragnars.
22.20 Heimskreppan 1982
Ládeyða
Fyrsti þáttur af þremur um
efnahagsmál í heiminura, sem
BBC hefur nýlega látið gera, og
fjallar hann um hnignun þjóðar-
búskapar Bandaríkjanna.
Þýðandi Björn Matthíasson.
23.10 Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDKGUR
21. september
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Bangsinn Paddington
Myndasaga ætluð börnum.
Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
Sögumaður Margrét Helga Jó-
hannsdóttir.
20.40 Saga ritlistarinnar
Þriðji þáttur
I þessari mynd er sýnd bóka-
gerð, þróun prentlistar og fyrstu
stálpennar.
Þýðandi og þulur Þorsteinn
Helgason.
21.10 Derrick
Akvörðunin
Morð er framið í svefnvagni
hraðlestar, eii Derrick þykist
vita að maðurinn hafi verið
drepinn i misgripum.
Þýðandi Veturliði Guðnason.
22.10 Kjarnorkuvopnakapphlaupið
Norskur fréttamaður ræðir við
Robert McNamara, sem var
varnarmálaráðherra í stjórn
Kennedys, og Solly Zuckerman,
lávarð, sera lengi var ráðunaut-
ur breskra rikisstjórna um
varnarmál.
Þýðandi og þulur Bogi Arnar
Finnbogason.
(Nordvision — Norska sjón-
varpið).
22.55 Dagskrárlok.
AIIÐNIKUDKkGUR
22. september
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Meðferð og geymsla græn-
metis
Hollusta grænmetis og garð-
ávaxta er ekki dregin í efa og er
raikils virði að varðveita þessi
matvæli fersk fram eftir vetri. í
þessura þætti, sem sjónvarpið
hefur látið gera, leiðbeinir
Kristján Særaundsson, mat-
reiðslumaður, um meðferð og
geymslu grænmetis.
Umsjónarmaður Örn Harðar-
son.
20.55 Austan Eden
Annar hluti.
I fyrsta hluta sagði frá Cyrus
Trask sem var tvíkvæntur og
átti son með hvorri konu, þá
Adam og Charles. Þegar þessir
ólíku bræður eru uppkomnir
gengur Adam í herinn en Charl-
es sér um búið með Töður sín-
um. Þegar Adam kemur heim
kynnist hann Cathy, konu með
vafasama fortíð, og gengur að
eiga hana. Þeir bræður skipta
með sér arfi og Adam flyst með
Cathy til Kaliforníu.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.25 Endurreisn Feneyja
Bresk heimildarmynd
Fyrir einum áratug leit helst út
fyrir að borgin Feneyjar á Ítalíu
myndi hrörna og síga í sæ en
þar hefur siðan verið unnið
mikið endurreisnarstarf til að
foröa borginni frá þeim örlög-
um.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
23.10 Dagskrárlok.
FÖSTUDtkGUR
24. september
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Skonrokk
Dægurlagaþáttur í umsjón
Þorgeirs Ástvaldssonar.
21.10 A döfinni
Þáttur um listir og menningar-
viðburði í umsjón Karls Sig-
tryggssonar.
21.20 Teiknað með tölvum
Bresk heimildarmynd um tölvu-
notkun við gerð uppdrátta og
listaverka.
Þýðandi og þulur Bogi Arnar
Finnbogason.
22.10 Þúsund litlir kossar
Israelsk bíómvnd frá árinu
1981.
Leikstjóri Mira Recanati.
Aðalhlutverk: Dina Doronne,
Rivka Neuman og Gad Roll.
Ung stúlka missir fóður sinn.
Hún fær pata af því að hún sé
ekki eina barn hans og ákveður
að grafast nánar fyrir um það.
Þýðandi Jón Gunnarsson.
23.45 Dagskrárlok.
L4UG4RD4GUR
25. september
17.00 íþróttir
Enska knattspyrnan og fleira.
Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
19.15 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Löður
Bandarískur gamanmynda-
flokkur (72).
Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson.
21.05 í sjálfheldu
(The Prisoner of Second
Avenue)
Kjarnorku-
vopna-
kapp-
hlaupið
Á þriðjudags-
kvöldið verður sýnd-
ur viðræðuþáttur frá
norska sjónvarpinu.
Fréttamaður ræöir
um kjarnorkuvopna-
kapphlaupið við Rob-
ert McNamara, sem
myndin er af hér aö
ofan, en hann var
varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna í
stjórn Kennedys, og
Solly Zuckerman lá-
varð, sem lengi var
ráðunautur breskra
ríkisstjórna um varn-
armál.
Þúsund
litlir
kossar
Á föstudagskvöld í
næstu viku sýnir
sjónvarpiö ísraelska
bíómynd, Þúsund
litla kossa, frá árinu
1981. Leikstjóri er
Mira Recanati, en í
aðalhlutverkum Dina
Doronne, Rivka Neu-
man og Gad Roll. —
Ung stúlka missir
föður sinn. Hún fær
pata af því, aö hún sé
ekki eina barn hans
og ákveður að grafast
nánar fyrir um það.
Bandarísk bíómynd frá árinu
1975.
Leikstjóri Melvin Frank.
Aðalhlutverk: Jack Lemmon og
Anne Bancroft.
Grátbrosleg mynd um hrell-
ingar stórborgarlífsins og mið-
aldra borgarbúa sem missir at-
vinnuna og giatar við það
sjálfstraustinu um skeið.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.40 Tíðindalaust á vesturvíg-
stöðvunum
Endursýning. (.411 Quiet on the
Western Front)
Bandarísk verðlaunamynd frá
árinu 1930 gerð eftir sögu þýska
rithöfundarins Erich Maria
Remarques.
Leikstjóri Lewis Milestone.
Aðalhlutverk: Lew Ayres, Louis
Wolheim og Slim Summerville.
Myndin gerist í skotgröfunum í
fyrri heimsstyrjöld og lýsir
reynslu ungra, þýskra her-
manna af miskunnar- og til-
gangsleysi styrjalda.
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
Myndin var áður sýnd í sjón-
varpinu í desember 1969.
00.20 Dagskrárlok.
í
§
Bein braut í
Búnaöarbankann
Nú eftir nýgerðar lagfæringar er einnig greið
leið fyrir alla í afgreiðslusali og til bankastjórnar
í aðalbanka við Austurstræti.
Útibú Búnaðarbankans við Hlemm og
Hótel Esjueru hönnuð með það fyrir augum
að þar eigi allir jafn greiðan aðgang.
í sjálf-
heldu
Á laugardagskvöld í næstu
viku sýnir sjónvarpiö banda-
ríska bíómynd, I sjálfheldu
(The Prisoner of the Second
Avenue), frá árinu 1975.
Leikstjóri er Melvin Frank, en
í aöalhlutverkum eru Jack
Lemmon og Anne Bancroft.
Grátbrosleg mynd um hrell-
ingar stórborgarlífsins og
miöaldra borgarbúa sem
missir atvinnuna og glatar viö
þaö sjálfstraustinu um skeiö.
— Kvikmyndahandbókin:
Tvær stjörnur.
GUÐAÐ Á SKJÁINN
Sjónvarpsmyndaflokkur
eftir Þyrnifuglunum
MARGIR bestu sjónvarps-
þættir, sem geröir eru, eru
geröir eftir kunnum listaverk-
um úr heimi bókmenntanna,
líkt og íslenskir sjónvarps-
áhorfendur sjá þessa dagana
í hinum frábæra myndaflokki
Austan Eden. — Þar hefur
snilldarverk nóbels-
verölaunarithöfundarins
bandaríska, John Stein-
becks, verið skrifað um á eft-
irminnilegan hátt fyrir sjón-
varp og meistaraverk Stein-
becks öðlast nýtt líf fyrir þeim
er áöur þekktu það, og
opinberast hinum er ekki
hafa lesið bókina.
Bókin Þyrnifuglarnir, The
Thorn Birds, eftir Colleen
McCullough, varö metsölu-
bók er hún kom út árið 1977,
og síðan hefur hún komið út
á fjölmörgum tungumálum.
ísafold gaf bókina sem kunn-
ugt er út á síðasta ári, í
ágætri þýöingu Kolbrúnar
Friöþjófsdóttur, sem er
bóndakona vestur á Baröa-
strönd. — Höfundur bókar-
innar, Colleen McCullough,
er fædd í Ástralíu, en fluttist
ung til Bandaríkjanna. Líkt og
Austan Eden tekur sagan
Þyrnifuglarnir til margra
kynslóöa, og nú hafa borist af
því fréttir aö ABC-sjón-
varpsstöðin í Bandaríkjunum
sé aö gera sjónvarpsmynda-
flokk eftir sögunni, þar sem
margt kunnra leikara kemur
við sögu. Ekki er ólíklegt að
Þyrnifuglarnir veröi því
komnir á skjáinn hjá íslensk-
um sjónvarpsáhorfendum
áöur en langt um líöur.
í Þyrnifuglunum er fjallað
um Cleary-fjölskylduna,
Paddy, fátækan landbúnaö-
arverkamann á Nýja-Sjá-
landi, og innflytjanda frá Ir-
landi, konu hans, börn og
barnabörn. Sögusviöiö flyst
til Ástralíu og Evrópu, og
mikill fjöldi fólks kemur viö
sögu áöur en hún er öll.
Aöalsöguhetjan er Meggie
Cleary, og er hún fjögurra ára
er sagan hefst, en fulltíöa
kona er skilist er viö hana í
bókarlok. Kjarni bókarinnar
er ást hennar og tiins glæsi-
lega prestvígöa manns, Ralph
de Bricassarts, þar sem tek-
ist er á um mikil mannleg ör-
lög. í sjónvarpsþáttum ABC
leikur hin 24ra ára Rachel
Ward söguhetjuna Meggie.
Richard Chamberlain leikur
Bricassart, Jean Simmons
leikur móöur Meggie, og
Barbra Stanwych, sem er
74ra ára aö aldri, leikur
frænkuna Mary Carson. — Á
meöfylgjandi mynd sjást þau
fjögur í hlutverkum sínum í
Þyrnifuglunum, Chamberlain
aftast, og frá vinstri: Simm-
ons, Rachel Ward og Stan-
wyck. — Vonandi veröur ekki
alltof langt þar til viö fáum aö
sjá þessa frægu sögu á
skjánum hér.
— AK