Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 22
54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
nmmnt i
A A • • • • c ■ • • • • Jk • • • • • • V.v/.'.K.l i ;.••••*. •K,.|. i !*••••• •i.*.*I* 5 ?*•*•*• v.v s 4*.••••*•*••<' • FEGRUKW \ XSTOFA yfl l(í i f
„Gc in0í \>é/ ueH'
Við urðum að hætta við hollustu-
máltíðirnar því gestirnir tóku bara
sprettinn út á götuna!
Með
morgunkaffínu
l>etta eru örugglega ekki myndirn-
ar sem konan mín tók og tilheyra
einhverri annari konu sem leggur
stund á júdó!
HÖGNI HREKKVÍSI
„eF þis LAbiGAR TIL. AB> FARA OG LBltZA KEILO-
ÍPll- .FAKÐU pA/ ! GOPAWNA 15ÆNUM//1'
Frábær upplestur
(leikur) Geirlaugar
Katrín skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Eg er ekki ein af þeim
pennaglöðu, en ég get ekki
látið vera að skrifa þér nú.
Það er alltaf verið að skrifa
um það sem miður fer eða
ógert er látið, en það ætla ég
ekki að gera, heldur lýsa
hrifningu minni.
Það var sl. fimmtudags-
kvöld, 28. október, að ég var
að hlusta á útvarpið með
öðru eyranu, því að ég hef því
miður ekki vanið mig á að
hlusta mikið á útvarpið. Þá
heyri ég þennan frábæra
upplestur (leik) Geirlaugar
Þorvaldsdóttur leikkonu. Það
er langt síðan ég hef orðið
svona hrifin af efni í
fjölmiðlum okkar eins og
þetta kvöld. Hafi Geirlaug
heila þökk fyrir, og ég vona
að hún haldi áfram á þessari
braut."
Grænmetisverslun landbúnaðarins:
Svar við fyrirspurn
Jóns I. Bjarnasonar
Fyrirspurn
um höfunda
Páll llelgason, Akureyri, skrifar 5.
nóvember:
„Velvakandi.
Hjálagt sendi ég þér tvö ljóð,
sem mig langar til að biðja þig að
spyrjast fyrir um höfunda að.
Ljóð þessi eru talsvert sungin,
t.d. hefur Karlakór Akureyrar
sungið þau, en ekki tekist að fá
vitneskju um höfunda, sem þeim
þykir slæmt, þar sem venja þeirra
er að geta höfunda laga og ljóða í
söngskrám sínum. Hefi ég orðið
var við að þú hefir oft fengið upp-
lýsingar um svipað efni og hér um
ræðir, og vænti góðrar fyrir-
greiðslu.
Með kveðju."
VIOLETTA
Máninn á himni hlær,
húmid það færist nær.
Báturinn vaggast vært,
vindur fær laufið bært.
Heyr mitt ljóð,
Violetta,
sem ég leik við gluggann þinn.
Komdu ein út í bátinn minn,
komdu út í bátinn minn.
Eina ég þrái þig.
Þig sem að elskar mig.
Hjarta mitt aðeins finnur frið
í faðmi þínum,
fagra mær.
Komdu ein út í bátinn minn,
komdu út í bátinn minn.
NEGRAVÖGGUVÍSA
Sofðu góði,
ég svæfi þig með ljóði.
Ég syng þér vöggukvæðin mín
er hálfmáninn skín.
Sofðu vinur, •
að bjargi báran hrynur.
Hinn blíði kliður leiði þig
um draumanna stig.
Ó, bíum, bíum, bamba, mömmudrengur.
Heyrðu kvöldsins klukkur óma.
Litli vinur vors og blóma,
ég skal vagga þér í blund.
Ég vagga, vagga þér í næði,
syng þér öll mín ástakvæði.
O, eigöu í svefni sælustund
er sólin blessuð roðar tind og grund.
Hvað er að
tarna
Guðm. Guðmundsson skrifar:
„Velvakandi.
Vegna þess, að Framsókn
virðist, rétt einu sinni, opin í
báða enda (nú í vaxtamálum)
kom mér til hugar vísa Sigur-
laugs Jónssonar, frá Brjáns-
stöðum á Skeiðum:
Opinn í báða enda stóð,
einn í djúpu svaði:
Hvað er að tarna, heyr mín þjóð:
Hver er sá fortapaði?
Með þökk fyrir birtingu."
Velvakanda hefur borist svar við
fyrirspurn Jóns 1. Bjarnasonar rit-
stjóra frá 7. nóvember sl. Gunnlaug-
ur Björnsson skrifar 8. nóvember
f.h. Grænmetisverzlunar ríkisins:
1. Reiknuð rýrnun er 5%
2. Spurt er hvort Grænmetis-
verzlunin setji þá skemmdar
kartöflur í neytendaumbúðir,
það magn sem fer fram yfir
reiknaða rýrnunarprósentu. Því
fer fjarri að svo sé gert, en við
pökkun standa starfsmenn
Grænmetisverzlunarinnar við
færiband og tína úr allar kart-
öflur, sem sjáanlega eru sýktar,
skaddaðar eða skemmdar.
Reiknuð rýrnun nægir tæplega
fyrir þeirri yfirvigt, sem nauð-
synleg er á neytendapakkning-
unni til að mæta uppgufuninni
úr kartöflunum, sem á sér stað
á leið þeirra til neytenda, en
eins og allir vita eru kartöflur
yfir 80% vökvi.
í viðtalinu var þetta tilgreint
til að undirstrika, að ekki væri
áhugi hjá Grænmetisverzlun-
inni á að taka á móti kartöflum,
sem mikið þyrfti að tína úr.
3. Hvort yfirmatsmaður ráði allt-
af matinu. Það verður að ætla
að svo sé eftir starfsskipan
hans. Að vísu getur hvor aðili
fyrir sig krafist yfirmats, séu
þeir ekki sáttir við úrskurð
hans (sbr. reglug. nr. 473 gr.
17).
4. Dylgjum um hvort mati yfir-
matsmanns hafi verið breytt af
„æðra valdi" hefur fyrirspyrj-
andi varla ætlast til að væri
svarað, nema þá er viðkemur
yfirmati enda í reglugerð. Hér
hlýtur fyrirspyrjandi að vera
að beina skeytum sínum annað
en að Grænmetisverzluninni."