Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 10
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA?
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
Leikendur i Höfðubólinu og hjileigunni.
Leikfélag Keflavíkur:
Höfuöbóliö og
hjáleigan
Leikfélag Keflavíkur frumsýnir
gamanleikinn Höfuöbóliö og hjá-
leiguna eftir Sigurö Róbertsson í
Félagsbíói, Keflavík’ laugardaginn
13. nóvember nk. kl. 21. Leikstjóri
er Jónína Kristjánsdóttir. Leikritiö
fjallar á gamansaman hátt um
brottrekstur Lúsifers frá Himnaríki
og um sköpunina. Meö helstu hlut-
verk í leiknum fara Árni Margeirs-
son, Jóhannes Kjartansson, Gísli
Gunnarsson, Guöfinnur Kristjáns-
son og Unnur Þórhallsdóttir. Önn-
ur sýning veröur þriöjudaginn 16.
nóvember í Félagsbíói.
Ráö málfreyja
á íslandi
Ráösfundur veröur haldinn á
Akranesi, laugardaginn 13. nóv-
ember 1982 aö Hótel Akranesi og
hefst kl. 10 árdegis.
Gestur fundarins veröur Jenny
Wood Allen, fyrrverandi forseti
ASM.
Gestgjafi Málfreyjudeildin Ösp.
„Sjónhverf-
ingar á skurð-
arborðinu“
Laugardaginn 13. nóvember kl.
15, opnar í Skruggubúö, Suöur-
götu 3A, sýning á teikningum og
smáhlutum eftir Sjón. Sjón er ís-
lenskur súrrealisti sem hefur starf-
að meö súrrealistahópnum Med-
úsa síöustu ár. Hann hefur áöur
sýnt á samsýningum Medúsu og er
höfundur nokkurra Ijóðabóka.
Sýningin mun standa til 29. nóv-
ember og veröur Skruggubúö opin
kl. 15—21 um helgar, en kl. 17—21
virka daga.
Gunnar Halldór Sigurjónsson:
Málverkasýning
Gunnar Halldór Sigurjónsson
hefur opnaö málverkasýningu aö
Strandgötu 4, Hafnarfiröi (áður
verslunarhúsnæði Jóns Mathiesen
o.fl ). Gunnar sýnir þar 45 myndir,
flestar málaöar í akrýl og olíu. Sýn-
ingin er opin kl. 3 til 7 alla daga.
Garðakirkja
kynnir verk Ey-
þórs Stefáns-
sonar tónskálds
Næstkomandi sunnudag, 14.
nóvember, fer fram helgisamkoma
í Garóakirkju og hefst hún kl. 2 e.h.
Viö þessa athöfn veröa verk Ey-
þórs Stefánssonar, tónskálds á
Sauðárkrókí, kynnt.
Garðakórinn undir stjórn Þor-
valdar Björnssonar, organista,
mun syngja lög hans viö sálma og
helgiljóö og einsöngvararnir Steinn
Erlingsson og Sverrir Guðmunds-
son munu syngja lög tónskáldsins.
Séra Jónas Gíslason, dosent,
mun flytja ræöu og í upphafi flytur
ávarp formaður sóknarnefndar,
Helgi K. Hjálmsson. Organistinn
mun og leika orgelforleik eftir Ey-
þór Stefánsson.
Aö lokinni kirkjuathöfn verða
kaffiveitingar seldar á Garðaholti
og þar mun kórinn, einsöngvararn-
ir ásamt Snæbjörgu Snæbjörns-
dóttur enn flytja lög eftir tónskáld-
lö.
Eyþór Stefánsson og kona hans
veröa heiöursgestir samkomunn-
ar. Samkomur þessar eru tengdar
söfnunardegi Hjálparsjóös Garöa-
sóknar, en um þessa helgi samein-
ast ýmis félagasamtök í Garöabæ
um söfnun fjár til stuönings sjóðn-
um, en hann er ætlaöur til hjálpar
þeim, er veröa fyrir óvæntum áföll-
um.
Breskur pub
á Loftleiðum
Barnum á Hótel Loftleiöum hef-
ur veriö breytt í breskan pub og
þar skemmtir píanóleikarinn Sam
Avant. Pubbinn er opinn á hverju
kvöldi fram til 21. nóvember en þá
skemmtir Sam í síöasta sinn. Ýms-
ir smáréttir eru á boöstólum eins
og tíökast á krám í Bretlandi. Sam
Avant hefur skemmt víöa um heim
viö góöar undirtektir og margir
þekkja kappann frá fyrri heim-
sóknum hans hingaö. í kvöld,
föstudagskvöld, veröur sérstakt
villibráðarkvöld að Hótel Loftleiö-
um og þar gefst tækifæri til aö
smakka gómsæta rétti sem ekki
eru í boði á öörum tímum.
Alþýðuleikhúsið
Barnaleikritiö „Súrmjólk meö
sultu" verður sýnt á sunnudaginn
nk. kl. 15.00 í Alþýöuleikhúsinu í
Hafnarfiröi.
„Súrmjólk með sultu" er gaman-
leikur fyrir yngstu áhorfendurna,
og gerist í eldhúsi „venjulegrar fjöl-
skyldu" einn sunnudagsmorgunn.
Verkiö sýnir aö jafnvel í eldhúsum
geta leynst ævintýr, enda er undir-
titill leikritsins „ævintýr í alvöru".
Sýningar eru nú aö nálgast 6.
tuginn, og fer því hver aö veröa
síðastur aö sjá þessa sýningu.
Fjalakötturinn
— kvikmynda-
klúbbur
Fimmtudaginn 11. nóvember
veröur aukasýning á myndinni
Under Milkwood sem gerö er í
Bretlandi 1972 eftir hinu fræga
leikriti Dylan Thomas meö þeim
Richard Burton, Elisabeth Taylor
og Peter O’Toole í aöalhlutverk-
um, en leikstjóri er Andrew Sin-
clair. Leiksviöiö er ímyndað þorp á
strönd Wales en gæti verið hvaöa
þorp sem er. Þaö gerist á einum
degi og lýsir hugsunum og geröum
þorpsbúa. Um helgina lýkur sýn-
ingum á Tríal eöa Réttarhöldin,
leikstjóri er Orson Welles og er
myndin byggö á sögu Franz
Kafka. Þessi mynd er gerö í
Frakklandi 1962 og fjallar hún um
Joseph K. sem á aö leiða fyrir rótt
án þess aö nokkur sjáanleg
ástæöa sé fyrir því. Þaö er Anth-
ony Perkins sem leikur aöalhlut-
verkiö. Um helgina verður einnig
sýnd myndin Hnífur í vatninu, leik-
stjóri er Roman Polanski og er
myndin gerö í Póllandi 1962. Þetta
er fyrsta mynd hans í fullri lengd
og hefur hlotiö fjölda verölauna.
Hún fjallar um ung hjón sem ætla
aö eyöa helgi um borö í seglskútu.
Á leiöinni taka þau upp i bílinn
ungan puttaling og þegar á leiöar-
enda er komið bjóöa þau honum
aö koma meö á seglskútunni. Milli
þessa fólks myndast mikil spenna.
Gríska myndin Stella veröur einnig
sýnd í síðasta sinn um helgina. Sú
mynd er gerö í Grikklandi áriö
1956, leikstjóri er Michael Caco-
yannis sá sem geröi Zorba en i
aðalhlutverki er Melina Mercouri.
Fimmtudagur:
Vélprjónasam-
bandið með sölu
í Fáksheimili
á laugardag
Vélprjónasamband íslands efnlr
til sölu á prjónavarningi í Fáks-
heimilinu, laugardaginn 13. nóv-
ember frá kl. 2. Þar veröur á
boðstólum nærföt, peysur, tízku-
fatnaður og ýmsilegt fleira.
Vélprjónasambandiö var stofn-
aö í desember 1974 og hefur unnið
aö því m.a. aö kynna vörur
kvenna, sem vinna heima.
Djassað í
Stúdenta-
kjallaranum
Þetta veröur á sunnudagskvöld-
ið og byrjar kl. 21.00. Þéir sem
leika eru Eyþór Gunnarsson, pí-
anó, Friörik Karlsson, gítar, Gunn-
laugur Briem, trommur, Siguröur
Flosason, saxófónn og Tómas Ein-
arsson, bassi.
Skáld-Rósa
í Kópavogsbíói
í kvöld, föstudagskvöld, kl.
20.30, verður Leikfélag Horna-
fjarðar meö sýningu á leikriti Birgis
Sigurössonar, Skáld-Rósu, í Kópa-
vogsbíói.
Sigfús á tón-
skáldakynningu
Laugardaginn 13. nóvember
gengst menningarmálanefnd
Mosfellshrepps fyrir tónskálda-
kynningu í samkomusal Varmár-
skóla kl. 16.
Kynntur veröur Sigfús Hall-
dórsson, en auk hans koma fram
Snæbjörg Snæbjarnardóttir og
Friöbjörn G. Jónsson. Verö aö-
göngumiöa kr. 1Ö0.
Lokatónleikar
Tadsjikanna
í Gamla bíói
á sunnudaginn
Lokatónleikar og danssýning
listafólksins frá sovétlýöveldinu
Tadsjikistan, sem kom hingað til
lands i síöustu viku til þátttöku í
Sovéskum dögum MÍR, veröa í
Gamla bíói á sunnudagskvöld, 14.
nóvember kl. 20.30.
Síðasti dagur
Thorvaldsen-
sýningar
Thorvaldsen-sýningunni á
Kjarvalsstööum lýkur nú um helg-
ina og veröur síöasti sýningardag-
ur á sunnudag, opiö til kl. 22.00.
Málverkasýningu Karólínu Lár-
usdóttur og sýningu Aöalbjargar
Jónsdóttur á prjónuðum kjólum
veröur fram haldið um helgina, en
þeim lýkur um næstu helgi.
Auður Haralds á
bókmennta-
kynningu
Héraösbókasafn Kjósarsýslu og
Leikfélag Mosfellssveitar gangast
fyrir bókmenntakynningu í Bóka-
safninu í Mosfellssveit mánudag-
inn 15. nóvember kl. 20.30. Aö
þessu sinni veröur Auöur Haralds
kynnt og lesið úr verkum hennar.
Guörún Sigríður Friðbjörnsdóttir,
söngkona.
Ljóðatónleikar
á Egilsstöðum
Guörún Sigríöur Friöbjörnsdótt-
ir, söngkona, heldur Ijóöatónleika í
Valaskjálf á Egilsstööum á sunnu-
dag kl. 17. Undirleikari verður
Anna Norömann.
Gjörningur í
Norræna húsinu
Gjörningur verður í Norræna
húsinu á laugardaginn, 13. nóv-
ember, kl. 20.30. Þar koma fram
sameiginlega listamennirnir Bat-
Yosef, tvíburabræöurnir Haukur
og Höröur Haröarsynir, Elías
Davíösson og Orthulf Prunner.
Hugmyndin er aö þrjár listgreinar,
myndlist, hreyfilist og tónlist, renni
saman í eina heild.
Bat-Yosef, sem nýverið hélt
myndlistarsýningu í Gallerí
Lækjartorgi, hefur frá árinu 1964
unnið aö því aö tengja saman ólík-
ar listgreinar. Sýningar af því tagi
sem hún hefur átt frumkvæöi aö
hafa verið sýndar á nútímalista-
söfnum víða.
Haukur og Höröur munu sýna
hreyfilist: „formfræöilega könnun á
hreyfingu", við tónlist eftir Elías
Davíðsson og Orthulf Prunner.
Þeir veröa málaðir af Bat-Yosef.
Tónlist þeirra Elíasar og Prunner
er samin fyrir hljóöfæri sem Elías
hefur sett saman úr íslenskum
steinum og kallar „steinaspil".
Ferðafélag
íslands
Gönguferö veröur farin kl. 13.00
á sunnudaginn. Ekiö veröur upp á
Hellisheiöi, Þrengslaveg, og geng-
iö á Lambafell (546 m) og síðan aö
Eldborgunum. Þetta er létt göngu-
leiö, enda lagt upp á Lambafelliö
úr ca. 300 m hæð. Aö venju er
fariö frá Umferðarmiöstööinni,
austanmegin og fargj. greitt viö
bílinn.
Feröafólk, sem feröast hefur
með Ferðafélaginu, er beðið aö at-
huga aö á skrifstofunni eru margir
óskilamunir, m.a. margar mynda-
vélar og önnur verömæti sem vert
er aö huga aö.
Foreldradagur í
Fellahelli
í tilefni af 8 ára afmæli félags-
miöstöövarinnar Fellahellis, sem
var 9. nóvember, hefur veriö
ákveöiö aö hafa opiö hús fyrir
unglinga úr Breiöholti og foreldra
þeirra nk. sunnudag milli kl.
14—17. Ætlunin er aö kynna for-
eldrum það starf sem fram fer í
Fellahelli og gefa þeim kost á að
hitta starfsfólk. Einnig veröur selt
kaffi og kökur sem unglingarnir
baka sjálfir og munu þeir njóta
ágóöans í sölunni. Eru alllr foreldr-
ar eindregið hvattir til þess aö láta
loksins veröa af því aö kynnast
þeim staö, þar sem börn þeirra
eyöa miklu af frítíma sínum.
Nýlistasafnið
Árni Ingólfsson og Guörún
Tryggvadóttir sýna í Nýlistasafn-
inu, Vatnsstíg 3B, um helgina. Sýn-
ingin opnar kl. 20.00 í kvöld en kl.
14.00 á laugardag og sunnudag.
Sýningin stendur aöeins þessa
einu helgi.
Kökubasarog
flóamarkaður
í Laugarnes-
kirkju
Næstkomandi laugardag, 13.
nóvember, veröur hinn árlegi
kökubasar og flóamarkaöur Kven-
félags Laugarnessóknar. Mark-
aöurinn veröur í kjallara kirkjunnar
og hefst kl. 14.00. Ágóöinn af söl-
unni rennur til byggingar safnað-
arheimilisins, sem nú er í bygg-
ingu.
Kökum veröur veitt móttaka
fyrir hádegi á laugardag.