Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
55
\^L?AKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MANUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
^ ny if
Lífið við mig leikur nú:
Vona að söngurinn hafi
aðeins verið upphafið
Jórunn Halla skrifar 4. nóvem-
ber:
„Velvakandi góður.
Mig langar til að biðja þig að
skila kæru þakklæti til sjónvarps-
ins fyrir söngþáttinn „Lífið við
mig leikur nú“, sem fluttur var í
gær, miðvikudag, með söng þeirra
Garðars, Ágústu og Anne.
Segja má að hingað til hafi
sjónvarpið vanrækt þetta svið að
mestu leyti, þ.e.a.s. kristilega tón-
list. Ég gladdist því mjög er ég
hlustaði á unga fþlkið í gær. Einn-
ig var vel til fundið að senda þátt-
inn út á þessum tíma kvöldsins,
þ.e. næst á eftir fréttum.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að söngáhugi er mjög al-
mennur hér á landi. Þeir eru ófáir
sem einhvern tíma ævinnar hafa
sungið í kór eða minni hópum.
Kirkjukórarnir eru margir og þar
ríkir sönggleði mikil. Hafa þeir
sumir gert garðinn frægan. Einnig
skilst mér að kristilegu leik-
mannafélögin leggi mikla áherslu
á góðan söng. Og þannig mætti
lengi telja.
Ég vona því innilega að söngur-
inn í gær hafi aðeins.verið upphaf-
ið að góðum og fjölbreyttum kristi-
legum söngþáttum í sjónvarpinu í
vetur. Slíkir þættir munu áreið-
anlega eiga fleiri hlustendur er
marga grunar.
Garðar, Ágústa og Anne.
Aðeins lítil ábending eftir að
hafa hlýtt á flutninginn í gær:
Boðorð númer eitt hlýtur að vera
það að söngtextinn komist vel til
skila. Þetta er mikilvægt að hafa í
huga í sambandi við undirleik og
myndskraut.
Um leið og ég sendi sjónvarps-
mönnum bestu kveðjur, fagna ég
því einnig að „Húsið á sléttunni"
er aftur komið á skjáinn. Tel ég að
þættirnir þeir séu eitt besta fjöl-
skylduefnið sem sjónvarpið hefur
sýnt.
Með kærum þökkum.
Þessir hringdu . . .
Hvert skyldi ég
vera að senda
þessa umsókn?
S.N. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja:
— Ég skora á Morgunblaðið að
ríða á vaðið og neita að taka við
atvinnuauglýsingum frá fyrir-
tækjum sem krefjast, í skjóli
nafnleyndar, hvers kyns upplýs-
inga frá umsækjendum, möguleg-
um og ómögulegum en láta ekkert
í móti koma. Slíkar auglýsingar
eru móðgun við fólk sem er að
leita sér að atvinnu. Ég hef stund-
um hugleitt það, þegar ég hef sent
inn umsókn: Hvert skyldi ég vera
að senda þessa umsókn? í hvaða
ruslakörfu skyldu þessir pappírar
lenda? Er þetta fyrirtæki í Hafn-
arfirði, Kópavogi, Garðabæ eða
inni í Vogum? Þá hefði ég að öll-
um líkindum enga umsókn sent.
Eða er það e.t.v. í næsta nágrenni
við heimili mitt? Ekki veit ég það
og þess vegna verð ég að senda inn
til vonar og vara. Fæ ég svar sem
tekur af skarið, jákvætt eða nei-
kvætt: Þér eruð ráðin. Eða: Þökk-
um umsókn yðar, en það tilkynnist
hér með, að ráðið hefur verið í
stöðuna sem auglýst var. Nei, því
miður er því ekki svo farið. Um-
sækjandinn fær að velkjast í vafa
svo lengi sem hann ákveður sjálf-
ur, fáist ekki jákvætt svar. Það
hef ég reynt af nafnlausu fyrir-
tækjunum og einnig hinum, sem
þó auglýsa undir nafni.
Hann gefur mér
kraft og frið
Jón Júlíusson verkamaður
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja:
— Mig langar til að þakka séra
Árelíusi fyrir það hve mikill
Séra Árelius Níelsson
mannvinur hann er. Mér er kunn-
ugt um hversu oft og mikið hann
hefur gefið þeim sem bágt eiga,
bæði sjúkum, gömlum og fátæk-
um. Stundum kemur það fyrir, að
Bakkus kemur í heimsókn til mín.
Þá hringi ég alltaf til séra Árelí-
usar og hann gefur mér kraft og
frið. Hann kemur þá gjarna til
mín með strætisvagninum til að
reyna að rétta sína hjálparhönd.
Ef nokkur maður starfar í anda
Jesú Krists, þá er það séra Árelí-
us.
*
Eg hef skömm
á svona
vinnubrögðum
Guðrún Kristjánsdóttir hringdi
og hafði eftirfarandi að segja:
— Mikið skelfing fara þættir
eins og Félagsheimilið í fínu taug-
arnar í mér. Mér finnst satt að
segja, að venjulegu fólki sé ekki
bjóðandi að horfa upp á þetta. Við
lifum nú á tímum andófs gegn
víndrykkju, a.m.k. misnotkun
áfengis, og hver stórsamtökin af
öðrum eru stofnuð til höfuðs þessu
þjóðarböli, og dugir hvergi nærri
til. Er ekki skrýtið að horfa á
sama tíma upp á, að svo til eina
innlenda dagskrárefnið er lítið
annað en ómerkilegt brennivíns-
sukk frá upphafi til enda. Ég veit
ekki, hvað fólk segir um svona
vinnubrögð, en ég hef skömm á
þeim. Ég hef enga ánægju af að
horfa á vitiþrotið drykkjufólk
velta hvað um annað. Eigum við
ekki að reyna að nýta naum fjár-
ráð sjónvarpsins að minnsta kosti
þannig, að það verði ekki til van-
sæmdar. Ég trúi því ekki, að and-
ans menn hér á landi hafi ekki upp
á eitthvað skárra að bjóða okkur
en fylleríisröfl og fáviskuþrugl.
Mig langar til að nota þetta tæki-
færi til að hrósa útvarpinu. Það
hefur tekið miklum framförum
með vetrardagskránni. Og þáttur-
inn Gull í mund er alveg prýði-
legur. Það er gaman að eiga von á
honum á morgnana, gaman að
vakna með honum. Mikill munur
frá því sem var í fyrra.
GÆTUM TUNGUNNAR
Heyrst hefur: Allir drupu höfði.
Rétt væri: Allir drúptu höfði.
(Ath.: Þetta er sögnin að drúpa, ekki drjúpa.)
BASAR
Kvenfélagiö Aldan heldur basar laugardaginn 3. nóv.
kl. 2. e.h. aö Hrafnistu Laugarási. Kökur og jóla-
skreytingar.
Basarnefndin.
mmmmmm^^m^^mmm^mmmmmmmmmmm*
Sovéskir dagar 1982:
Tónleikar og danssýning
Lokatónleikar listafólksins frá Miö-Asíu, óperusöngkon-
unnar Ojat Sabzalíevu, píanóleikarans Valamat-Zade og
Söng- og dansflokks rúbobleikara Ríkisfílharmóníunnar í
Tadsjikistan, verða í Gamla bíói sunnudaginn 14. nóv.
kl. 20.30.
Aðgöngumiðar á kr. 100 — seldir á listiðnaðarsýning-
unni í Asmundarsal við Freyjugötu föstudag kl. 16—19
og laugardag og sunnudag kl. 14—19, og við inngang-
inn ef eitthvað verður þá óselt.
Missið ekki af einstæðum tónleikum og litríkri dans-
sýningu.
MÍR.
EKN
Skólavörðustíg 12
Sími 10848.
^l/
Frönsk kvöld
ALLA HELGINA
Nú tökum við
sérstaklega fyrir mat
frá Frakklandi
Hinn frábæri franski matreiöslumeistari
Paul Eric Calmon, eldar franskan mat
eins og hann gerist beztur.
SOIRÉE FRANCAISE
MENU
La Soupe de Carbes
ou
La Terrine de Rénne Mariné
— O —
La Coquilles
Sant-Jacques au Gratin
ou
Les Éscargots au Pernod
— O —
Le Gigot a L’ail et au Thym
ou
Le Poulet au Vinaigre
— O —
Les Légumes de Saison
La Salade Mimosa
— O —
La Mousse de Roquefort
ou
La Glace aux Betteraves
Grettir björnsson, harmonikkusnillingur leikur
franska slagara á harmonikkuna.
Veriö velkomin
nini ivjui ivmui
BM
JHtfgmw
5 Gódan daginn! QO ^