Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
35
Daglegt
Valgeröur Jónsdóttir
Þessi bæklingur er fyrst og
fremst miðaður viö verðandi lífeyr-
isþega og honum er ætlaö aö veita
ýmsar upplýsingar um efri árin og
á hvern hátt mögulegt er aö koma
í veg fyrir ótímabæra hrörnun,"
sagöi Þórir.
„Eftir því sem ég hef kynnst og
lesið mér til um, aukast möguleikar
á góöri heilsu og vellíöan á efri
árunum eftir því hvort menn temja
sér heilsusamlegt liferni, en á þann
hátt er hægt að koma í veg fyrir
fjölda sjúkdóma og hrörnun fyrir
aldur fram.“ En hvaö gerist þegar
viö eldumst? Þarna er aö finna
upplýsingar um helstu breytingar
sem eiga sér staö í líkamanum
meö hækkandi aldri og þær fé-
lagslegu breytingar sem þeim fylg-
ir, ásamt upplýsingum um ýmis
réttindi aldraðra og þá þjónustu
sem þeim stendur til boða. Þórir
sagðist vona aö þessar upplýs-
ingar gætu haft í för meö sér ýms-
ar fyrirbyggjandi aðgeröir, hægt
væri í auknum mæli aö koma í veg
fyrir aö fólk þurfi aö liggja á dýrum
stofnunum. En er einhver skýring
til á því hvers vegna menn eldast
jafn mishratt og raun ber vitni?
„Þaö er taliö aö erfðir skipti miklu
máli,“ sagöi Þrórir, „þeir eru til-
tölulega langlífastir sem eiga lang-
lífa foreldra, og þaö er einnig mikið
til í hinu gamla máltæki sem segir
aö lengi búi aö fyrstu gerö, því
óhætt er aö fullyrða aö miklu
skiptir fyrir seinni tímann aö menn
hafi lifaö þolanlegu lífi á unga aldri
og undir sæmilega öruggum kring-
umstæðum, búiö viö félagslegt og
fjárhagslegt öryggi. Þaö eru því
miöur margir af elstu kynslóðinni í
dag sem ekki hafa haft bolmagn til
aö kaupa sér húsnæöi og þaö
veldur þessu gamla fólki miklum
kvíða og óöryggi, þaö er sífellt
hrætt við aö verða sagt upp og
þurfa aö flytja, og slíkt óöryggi hef-
ur bæöi áhrif á líkamlega og and-
lega heilsu fólks.“ En lítum nánar á
þær líkamlegu breytingar sem eru
því samfara aö eldast. Meö hærri
aldri veröa breytingar á skynfær-
um, svo sem sjón, heyrn, bragö-
og lyktarskyni, breytingar veröa á
líkamlegu þreki, á hjarta og æöa-
kerfi, liöum og beinum og á náms-
hæfileikum. Þessar breytingar eru
öllum þeim sem eldast eölilegar og
viö fengum leyfi Þóris til aö draga
saman helstu upplýsingarnar sem
fram koma í bæklingnum.
Sjón
Eitt mikilvægasta skynfæriö er
sjónin. Sjóngæsla meöal aldraöra
er þvi veigamikill þáttur í almennri
herlsugæslu þeirra. Mannsaugaö
er stðöugt aö breytast frá fæöingu
og fram á elliár og augaö sjálft er í
vexti fram yfir tvítugsaldur. Fyrstu
merki þess aö viö séum komin af
léttasta skeiði, koma fram á aug-
um er aldursfjarsýni byrjar, en þaö
er um 45 ára aldur hjá fólki meö
eðlilegt sjónlag. Með aldrinum
minnkar tærleiki hinna gagnsæju
hluta augans. Þar sem Ijósiö hefur
ekki eins greiöa leiö inn í augað,
þarf roskiö fólk mun meiri birtu en
ungt fólk til aö sjá skýrt. Þá minnk-
ar næmleiki sjónfrumanna meö
aldrinum og sjónvíddin minnkar.
Siggmyndun eöa kölkun kemur á
æðaveggi, blóörás verður tregari
og flutningur súrefnis og næringar-
efna minnkar.
Allt á þetta sinn þátt í hrörnun-
arbreytingum í hinum viökvæmu
vefjum augans og er oft erfitt aö
draga mörkin milli sjúklegs
ástands og ellihrörnunar. Segja
má, aö hrörnun dragi úr Ijósnæmi
en sjúklegar breytingar úr sjón-
skerþu.
En hvaöa alvarlegir augnsjúk-
dómar eru algengastir hér á landi
meðal aldraös fólks? Sjúkdómar
af meðfæddum og/ eöa arfgeng-
um uppruna eru allt til sextugsald-
urs langalgengastir þeirra sjúk-
dóma, sem orsaka sjóndepru eöa
blindu á báöum augum. Eftir þann
aldur fara ellihrörnunarsjúkdómar
aö gera vart viö sig. Á elliárum eru
algengustu augnsjúkdómar sem
leitt geta til blindu eöa sjóndepru
Þórir S. Guðbergsson
eftirfarandi: ellidrer, hægfara gláka
og ellirýrnun í miögróf sjónu. Sam-
eiginlegt meö öllum þessum sjúk-
dómum er aö þeir byrja aö gera
vart viö sig upp úr miöjum aldri, en
eftir sjötugt eykst tíöni þeirra mjög
hratt.
Heyrn
Strax viö 10—12 ára aldur
minnkar næmleiki okkar til aö
greina aö háa tóna. Næmi aldr-
aöra á lágtíöni helst hinsvegar bet-
ur. Ef aldraö fólk hefur skerta
heyrn er því oftast betra aö tala viö
þaö rólega, skýrt og með lágum
hljóöum en aö hrópa hátt og hvellt
eins og mörgum hættir til.
Meö skertri heyrn er hætta á aö
margir aldnir einangrist um of. Þeir
eiga erfitt meö aö fylgja samræö-
um í hóp, eiga erfiöara meö aö
hlusta á útvarp en áöur og hafa
auk þess minna úthald til aö fylgj-
ast meö í sjónvarpi o.s.frv. Heyrn-
artæki koma þó mörgum aö notum
og því nauðsynlegt aö leita læknis
fljótlega eftir aö fólk finnur aö
heyrnin er aö breytast. Mörgum
öldruöum hættir jafnvel til aö af-
neita því aö sjón sé farin aö dapr-
ast og heyrn aö skeröast og leita
því e.t.v. ekki til læknis fyrr en á
síöustu stundu.
Bragð og
lyktarskyn
Bragö og lyktarskyn slævist
meö aldrinum og kvarta jafnvel
sumir aldraöir yfir því, aö þeir finni
hvorki angan af blómum né lykt af
mat lengur. Slíkt þarf þó ekki aö
veröa til aö draga úr matarlystinni,
því hægt er að krydda matinn bet-
ur og tilreiöa hann á fjölbreyttari
hátt.
Hættan sem fylgir skertu bragö-
og lyktarskyni er oft sú, aö fólki
hættir til aö neyta einfaldari fæöu
en áöur. Fæöan verður þá stund-
um snauö af nauðsynlegum nær-
ingarefnum eöa efnum sem hafa
t.d. góö og örvandi áhrif á melting-
una, en hollur og næringarríkur
matur hefur ótrúlega mikla þýö-
ingu fyrir almennt heilsufar ungra
sem aldinna.
Þol og þrek
Líkamlegt þol og þrek breytist
meö aldrinum. Hámarksþreki er
náö um 25—30 ára aldur, en eftir
þaö fer þaö þverrandi eftir því sem
fólk eldist. Ef reiknaö er meö aö
hámarksafkastageta 25 ára manns
sé 100, þá má gera ráö fyrir aö
hámarksgeta 50 ára manns sé 70
og um 55 hjá sjötugum manni.
Benda má á aö aldraðir geta oft
nýtt orku sína betur en yngri kyn-
slóðin vegna reynslu og hag-
kvæmni og þó eldra fólk búi yfir
minna þreki en þaö yngra, nýtir
yngra fólkið oft ekki nema hluta af
orku sinni og geta þvi hinir eldri
sýnt svipuð afköst og þeir sem
yngri eru. Þá er einnig hægt að
halda viö þreki og þoli langt fram
eftir aldri meö markvissri þjálfun
og æfingu. Þaö er þvi ekkert sem
mælir gegn því aö 65 ára maður í
góöri þjálfun hafi jafn mikla
afkastagetu og vinnuþrek og sá
sem er tuttugu ára. Ef líkamleg
vinnugeta skeröist verulega eftir
\aö menn hafa náö fertugsaldri á
o
Sýndar veröa 1983 árgerðirnar af MAZDA 323, sem nú
koma á markaðinn í nýju útliti meö fjölmörgum nýjungum
og auknum þægindum og luxusbílinn MAZDA 929. Komið á
sýninguna og sjáið það nýjasta frá MAZDA.
BÍLABORG HF. Smiðshófða 23