Morgunblaðið - 21.11.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.11.1982, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR 261. tbl. 69. árg. SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins Páfi á Sikiley: Hvetur til baráttu gegn Mafíunni Palermo, Sikiley, 20. nóvember. AP. JÓHANNES Páll II páH kom í dag til Sikileyjar, aöeins nokkrum klukkustundum eftir aö mafían haföi drepiö fjóra menn í úthverfi Palermo. Arafat ræðir við Assad fljótlega Damaskus, Sýrlandi, 20. nóvember. AP. ÞESS ER vænst, aö Yasser Arafat leiö- togi PLO hitti Hafez Assad Sýrlands- forseta að máli í næstu viku og verði einnig forseti stefnumótandi fundar í miðstjórn samtaka PLO, samkvæmt heimildum eins yfirmanna PLO í dag. Khaled Fahoum, sem er formaður hins útlæga þings PLO, neitaði fregnum þess eðiis að fundi í mið- stjórn samtakanna, sem hafi átt að hefjast í Damaskus í gær, hafi verið frestað vegna þess að Assad hafi móðgað Arafat þegar þeir voru í Moskvu við útför Leonid I. Brezhn- evs. „Ég fullyrði að fregnir um að ein- hver móðgun hafi átt sér stað eru rangar," sagði Fahoum í viðtali við AP-fréttastofuna, en fregnir um það hafa heyrst að undanförnu. „Arafat ræddi við Assad í Moskvu og mið- stjórnarfundur mun verða haldinn innan nokkurra daga í Damaskus." Fyrsti áfangi í ferð páfa var að heimsækja Belice-dalinn, u.þ.b. 120 kílómetra suðaustur af Pal- ermo, þar sem jarðskjálfti varð þrjú hundruð manns að bana árið 1968 og þar sem þúsundir manna búa enn í tjöldum og bíða eftir nýjum heimkynnum. Páfinn flaug fyrst yfir svæðin í þyrlu áður en hann lenti í Salap- aruta, en þar biðu þúsundir manna eftir að heyra hann og sjá og heiðruðu hann með fagnaðar- ópum. Páfinn mun snúa aftur til Pal- ermo síðar í dag, þar sem hann hittir að máli kirkjuyfirvöld, verkamenn og ungt fólk. Miklar öryggisráðstafanir eru á Sikiley vegna komu páfa og hefur lögregl- an í því sambandi bannað alla um- ferð til Palermo. Páfinn mun dvelja að heimili erkibiskupsins í nótt, en þetta er í fyrsta skipti sem hann er lengur en einn dag í ferðum sínum um Ítalíu. Kirkjuyfirvöld á Sikiley vænta þess, að koma páfa til eyjarinnar muni hafa hvetjandi áhrif á íbúa hennar til að skera upp herör gegn starfsemi mafíunnar og hryðju- verkum hennar. Vaxtalækkun í Bandaríkjunum YVashington, 20. nóvember. Al*. SEÐLABANKINN bandaríski skýrði frá því í gær, að vextir á því fé, sem hann lánar öðrum bönkum Stjórnarflokk- urinn sigrar í Brazilíu Brasilíu, Brazilíu, 20. nóvember. AP. TALNING stendur enn yfír úr kosn- ingunum í Brazilíu og miöar víða mjög hægt þótt kosiö hafí veriö sl. mánudag. Sums staðar hafa aöeins 10% atkvæöa verið talin enn sem komið er en Ijóst er þó, aö stjórnar- fíokkurinn mun fá hreinan meiri- hluta. Stjórnarflokkurinn má heita viss um sigur í 16 fylkjum af 23 en í hinum sjö sigrar örugglega stærsti stjórnarandstöðuflokkur- inn af fjórum. Rúmlega 50 millj- ónir Brazilíumanna kusu í þessum kosningum, sem eru þær mestu síðan núverandi stjórn tók völdin í sínar hendur árið 1964. Sam- kvæmt kosningalögum, sem stjórnin setti, eru kjörnir sex menn úr hverju fylki án tillits til íbúafjölda og munu þeir kjósa nýj- an forseta árið 1985. Þar sem stjórnarflokkurinn er sterkastur í fámennustu fylkjunum er ljóst, að hann mun ráða forsetaembættinu fram til 1991. og fjármálastofnunum, yrðu lækk- aðir frá og með mánudeginum um '/:%, úr 9'/2 í 9%. Þessi ákvöröun bankans mun að líkindum valda enn frekari vaxtalækkun á al- mennum markaöi. Vaxtalækkun seðlabankans nú er sú fyrsta frá öndverðum október og sú sjötta frá miðjum júlí sl. Að sögn talsmanna bank- ans er ástæðan fyrir henni lægri almennir vextir en margir hag- fræðingar halda þó hinu gagn- stæða fram. Að bankinn ætli sér í raun að knýja fram vaxtalækk- un í viðskiptalífinu á kostnað baráttunnar gegn verðbólgunni og losa um leið tökin á peninga- magni í umferð. Sjónarmið seðlabankans eru aftur á móti sögð þau, að viðvarandi sam- dráttur í efnahagslífinu sé svo alvarlegur, að nauðsynlegt sé að grípa i taumana auk þess sem því er trúað að verðbólgan muni ekki vaxa á ný. Hagfræðingar ýmsir óttast þó, að losaraleg stefna í peningamálunum auki aftur verðbólguóttann, ýti undir vaxtahækkanir og stemmi að ósi uppgang efnahagslífsins. Frá og með mánudegi nk. hafa seðlabankavextir í Bandaríkjun- um ekki verið lægri frá 1. nóv- ember 1978 þegar þeir voru hækkaðir úr 8% í 9%. Verkamenn í Gdansk einhuga með Walesa (.dansk, 20. nóvember. AP. VERKAMENN í skipasmíðastööv- unum í Gdansk, sem fyrstir studdu draum Lech Walesa um sjálfstætt verkalýössamband, létu í dag í Ijós ánægju meö aö hann er laus úr fang- elsi og kváöust styðja hann einhuga. Þeir ítrekuðu einnig fylgi sitt viö Samstööu og sögöust aldrei mundu taka þátt í öörum samtökum. „Við bindum vonir okkar við Walesa því að hann er fæddur leiðtogi," sagði einn verkamann- anna, Andrzej að nafni, sem unnið hefur í skipasmíðastöðvunum í átta ár. „Við vildum, að hann kæmi aftur til vinnu hér en vitum þó, að það fær hann ekki.“ Haft er eftir heimildum í Gdansk, að um miðjan október hafi allar 43 deildir skipasmíða- stöðvanna, fulltrúar 16.000 verka- manna, komið saman til fundar og hafnað tillögum stjórnarinnar um nýja skipan verkalýðsfélaga. „Jafnvel félagar í kommúnista- flokknum greiddu atkvæði gegn því,“ sagði einn verkamannanna. „Við viljum ekki önnur samtök en Samstöðu og þeir þora ekki að koma öðrum á fót.“ Lech Walesa NBC-sjónvarpsstöðin banda- ríska sagði frá því í fyrradag, að öryggislögreglan hefði boðað á sinn fund nokkra kirkjunnar menn og sýnt þeim myndir, sem gefið hefðu til kynna eitthvað dá- lítið vafasamt siðferði Walesa sem kaþólsks og kvænts manns, og einnig skjöl, sem ráða hefði mátt af, að Walesa væri ekki mikill reiðumaður í fjármálum. Var sagt, að þetta væri trygging fyrir því, að Walesa hefði hægt um sig. Talsmenn kirkjunnar neita þessum fréttum hins vegar alfarið og segja rakalausan þvætting. A það er bent, að ólíklegt sé, að pólska lögreglan grípi til þessara bragða þvi að í siðferðilegum efn- um taki Pólverjar ekki Kalvín heitinn sér til fyrirmyndar. Ásak- anir um fjöllyndi í ástum kynnu því að snúast í höndum þeirra, sem þeim beittu, og yrðu aðeins hafðar að gamanmátum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.