Morgunblaðið - 21.11.1982, Síða 2

Morgunblaðið - 21.11.1982, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 Hafskip greiddi ekki toll af vörulyfturum: Málið sent ríkissak- sóknara en lyftararn- ir afhentir Tollstjóraembettið hefur tekið í sína vörslu ellefu vörulyftara í eigu Ilafskips hf. vegna vangoldinna tolla af Uekjunum. Páll Bragi Kristjóns- son fjármálastjóri Hafskips sagði í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins í gær, að rétt væri að Haf- skip hefði ekki greitt toll af lyfturun- um eins og lög segðu til um. Á und- anfornum árum hefði félagið fjölgað lyfturum sinum úr þremur eða fjór- um í hátt á fimmta tug, og því hefði verið erfitt að greiða toll af þeim öllum jafnharðan. Eftir væri að greiða af umræddum ellefu tækjum, starfsmönnum llafskips hefðu hér orðið á mistök, málið hefði verið skýrt fyrir yfirvöldum, og væri von- andi úr sögunni. Vildi Páll Bragi undirstrika það, að hér væri ekki um smygl af neinu tagi að ræða, allir pappírar hefðu verið með eðlilegum hætti og bankastimplaðir og kaupendur þar með fengið þá greidda, er lyft- ararnir hefðu komið til landsins, og tollyfirvöld vitað af þeim. Það eina sem gerst hefði væri að Haf- skip hefði tekið sér frest á að greiða tollinn. Klausturhólar: Bækur sem stolið var fundnar á morgun Kristinn ólafsson tollgæslu- stjóri sagði í samtali við Morgun- blaðið, að það sem gerst hefði væri að Hafskip hefði tekið sér frest I að greiða toll af umræddum lyft- urum. Nokkurn tíma hefði tekið að fá málið á hreint, en forráða- menn Hafskips hefðu viðurkennt mistökin og þegar boðist til að greiða tolla og dráttarvexti. Yrði lyfturunum því væntanlega skilað á morgun, mánudag, en málið sent ríkissaksóknara til ákvörðunar. Engu stolið eftir mikla fyrirhöfn að brjótast inn í FYRRINÓTT var brotist inn i sölu- turninn aó Njálsgötu 23. I Ijósi þess hve mikið var fyrir því haft að brjót- ast inn, þá kom á óvart að engu var stolið. Reynt var að brjótast inn bakdyramegin og kúbeini beitt en ekki tókst kumpánum að komast inn i söluturninn. Því var farið að framanverðu og tvær hurðir brotnar og þannig komust þeir inn i söluturninn. En eftir alla fyrirhöfnina löbbuðu þeir í gegnum söluturninn og út bak- dyramegin þrátt fyrir að á borði væri skiptimynt og auk þess mikil verðmæti í tóbaki og öðrum vörum. MorfiwblaaU/Kristján Einnrsson. Leifar Mávsins í Vopnafjarðarbotni blasir við sérkennileg sjón, skipsmöstur og bómur standa þar upp úr haffletinum steinsnar undan fjöruborðinu. Þetta eru leifarnar af Mávinum, sem fórst í Vopnafirði í fyrrahaust, en skipið var með saltfiskfarm þegar það strandaði. Hrammur Ægis hefur leikið skipið grátt og m.a. sópað af því yfírbyggingunni. Skrokkurinn sekkur sem óðast í sandinn og vonast Vopnfírðingar til að sem fyrst hverfí það sjónum manna, því þeim þykir óprýði að flakinu. Tæpt ár er frá strandinu. Ráðstefna um fjármálastefnu sveitarfélaga SAMBAND íslenzkra sveitarfélaga efnir til ráðstefnu um fjármál sveit- arfélaga á Hótel Sögu í Reykjavík mánudaginn 22. nóvember. A ráðstefnunni verður einkum rætt um fjármálastefnu sveitarfé- laga á tímum verðtryggingar lána, um lánsfjáröflun til gatnagerðar í þéttbýli og um samskipti sveitar- félaga við ríkisstofnanir á sviði fjármála auk hinna hefðbundnu viðfangsefna á slíkum ráðstefn- um, sem eru forsendur fjárhags- áætlana sveitarfélaga fyrir kom- andi ár. Liðlega tvö hundruð sveitar- stjórnarmenn hafa boðað komu sína á ráðstefnuna. Borgarafundur á Hótel Borg ÍBÚASAMTÖK Vesturbæjar og íbúasamtök Þingholtanna gangast fyrir almennum borgarafundi um málefni gamla Vesturbæjarins og Þingholtanna með borgarfulltrúum í Reykjavík næstkomandi mánu- dagskvöld á Hótel Borg 22. nóvem- ber kl. 20.30. Fundurinn er hugsaður sem vettvangur skoðanaskipta milli íbúa hverfanna og borgarfulltrúa um málefni þessara hverfa. Fundurinn verður í fyrirspurn- arformi, engar framsöguræður verða haldnar, en íbúum hverf- anna gefst tækifæri til að leggja spurningar fyrir borgarfulltrúana um þau mál, sem sérstaklega snerta íbúa þessara hverfa. Fundur, sem þessi, var haldinn fyrir síðustu kosningar og þótti takast mjög vel. BÆKIJR sem stolið var í Klaust- urhólum um leið og málverkum fyrir skömmu, eru komnar í leit- irnar, þrjár bækur að verðgildi um 15 þúsund krónur. Bókunum höfðu þjófarnir komið í geymslu hjá kunningjafólki sínu, sem síð- an reyndi að selja þær í forn- bókaverslun. I»ar var stúlku sem kom með eina bókina bent á að um þýfí væri að ræða, og skilaði hún því þá í Klausturhóla. Bæk- urnar voru óskemmdar, enda innpakkaðar bæði í milliskyrtu og plastpoka. Er málverkunum og bókunum var stolið var einnig tekið tals- vert af gamalli mynt, og er hún nú öll komin í leitirnar. Tveir ungir menn hafa viðurkennt inn- brotið, sem meðal annars varð til þess að verðmætt Kjarvalsmál- verk eyðilagðist og önnur dýr- mæt verk skemmdust. Úngu mennirnir hafa nú báðir verið látnir lausir. Samtök rétthafa myndbanda á Islandi: Hlutur ríkisins 1.681 króna af hverju innfluttu myndbandi „SAMKVÆMT hóflegri áætlun eru nú í notkun hérlendis um 20—25.000 ein- tök af myndböndum, og þar er talið að u.þ.b. 10.000 eintök séu komin inn i landið með ólögmætum hætti, þ.e.a.s. hafi verið smyglað. Eftirfarandi dæmi skýrir ástæður þessa háa hlutfalls ólögmæts innflutnings, og sýnir glöggt hvernig innkaupsverð hér um bil fjór- faldast frá dreifingaraðila upp í heild- söluverð." í fréttatilkynningunni segir enn- fremur: „Innkaupsverð myndbands er £30, eða 798 krónur, miðað við gengi frá 28. október sl. Á það leggst 10% flutningsgjald, eða 80 krónur, þann- ig að verð til útreiknings tolls er 878 krónur. Á þetta leggst síðan 75% tollur, þannig að verðið er orðið 1.315 krónur áður en kemur til út- reiknings vörugjalds. Það er 40% og þegar því hefur verið bætt við, fæst innkaupsverðið, kr. 1.841. Þá leggst á það 15% álagning innflutningsaðila, eða kr. 276, svo að áður en kemur til útreiknings söluskatts, er verð myndbandsins orðið kr. 2.117. Þá leggst 23,5% söluskattur á verðið, eða kr. 498, svo að heildsöluverð dreifingaraðila er orðið kr. 2.615, og hefur nærri því fjórfaldast. Samtals er því hlutur ríkissjóðs 1.681 króna af hverju innfluttu myndbandi, en tap vegna alls þessa meinta ólöglega innflutnings á myndbðndum, sem til eru í landinu, um 16,8 milljónir. Ætla má, að innheimt leigugjöld vegna þessa ólögmæta innflutnings séu ekki gefin upp til skatts, þar sem Skólastjóra Þelamerkurskóla vikið frá — og kennara einnig Menntamálaráðuneytiö hefur leyst Sturlu K ristjánsson frá skólastjórastörfum í Þelamerkur- skóla í Hörgárdal vegna deilna t skólanum og jafnframt hefur Kjart- an Heiðberg kennari verið leystur frá störfum í skólanum, en honum hefur verið boðin kennarastaða við Grunnskóla Akureyrar í staðinn. Gangi hann ekki að því boði verður honum sagt upp fyrirvaralaust, að sögn Sigurðar Helgasonar deildar- stjóra. Brottvikning Sturlu miðast við sl. þriðjudag, en lausnarbréf kenn- arans var dagsett í gær. Sturlu hefur ekki verið boðin önnur staða, en hann er í leyfi frá fræðslustjórastöðu á Norðurlandi eystra til 1. ágúst nk. Að sögn Sigurðar voru atriði deilunnar í Þelamerkurskóla orðin mörg og farin að vefja utan á sig þegar gripið var til þess að víkja skólastjóranum og kennaranum. Fyrst og fremst var þó um að ræða ágreining um stjórnun og skipulag kennslunnar. Fleiri kennarar fylgdu kennaranum að málum en skólastjóranum í þeirri deilu. Sigurður sagði að fyrr í vetur hefðu skólastjóranum verið sett viss starfsskilyrði í því augnamiði að lægja öldur innan veggja skól- ans, ön það væri álit ráðuneytisins að skólastjórinn hefði ekki haldið þau, og því hafi brottvikningin verið eina leiðin úr því sem komið var. í framfialdi af umræddum skil- yrðum baðst Sturla lausnar með þriggja mánaða fyrirvara. Skóla- nefnd tók það mál ekki fyrir strax, en hún á að mæla með erindum af því tagi eða gegn, að sögn Sigurð- ar, og í millitíðinni dró Sturla um- sóknina til baka. Engu að síður óskaði ráðuneytið eftir því að skólanefndin tæki uppsögnina til umfjöllunar og niðurstaðan varð sú að nefndin samþykkti með fjór- um atkvæðum gegn þremur að mæla með því að skólastjórinn fengi lausn. Kvað Kjartan Heiðberg kennara snerti sagði Sigurður Helgason það hafa verið samhljóða álit skóianefndar Þelamerkurskóla að honum bæri að víkja frá störfum. „Mér er afar sárt að þurfa að fara héðan," sagði Kjartan Heið- berg í samtali við Mbl. Hann sagði Kennarasambandið vera að kanna forsendur fyrir því að honum var sagt upp. „Eg tel að það hafi ekki verið nein ástæða til að víkja mér héðan,“ sagði Kjartan. Hann vildi ekki tjá sig um deiluna nánar, sagði deiluatriði margflókin og enginn vissi hvað kom henni af stað og menn gefist upp á að grafa upp rætur hennar. Hann kvað menntamálaráðuneytið hafa boðið sér stöðu á Akureyri og hefði hann ekki afþakkað þá stöðu, þótt hann krefðist þess að fá að vera áfram að Þelamörk. Morgunblaðið hefur árangurs- laust reynt að ná í Sturlu til að fá hans sjónarmið fram. þessi myndbönd eru hvergi til á pappírum. Af hverri útleigu á að greiða söluskatt og miðað við að hvert myndband sé leigt 50 sinnum (sem er talin meðalnotkun) á 60 krónur í hvert skipti, þá er sölu- skattstap ríkissjóðs þar 5,7 milljónir króna. Samkvæmt þessu nemur tekjumissir ríkissjóðs vegna smygls og söluskattsbrota kr. 22,5 milljón- Þetta gefur glögglega til kynna hvernig ríkisvaldið vinnur gegn eig- in hagsmunum með of hárri gjald- heimtu af þessum varningi, en veld- ur um leið því ófremdarástandi, sem nú ríkir á íslenskum myndbanda- markaði, því það segir sig sjálft að þar sem jafnstór hluti er ólöglega kominn til landsins og algjörlega eftirlitslaus, þá er nánast útilokað að gæta hagsmuna hinna ýmsu rétt- hafa. Rétthafar myndbanda á ís- landi hafa hingað til þurft 70-80 sinnum að hafa afskipti af yfir 40 aðilum vegna misnotkunar á efni, og er nú verið að reka alls 18 mál fyrir dómstólum af þeim sökum. 14 þeirra eru vegna ólögmæts efnis á mynd- bandaleigum, en 4 vegna ólögmætra sýninga á efni í svonefndum mynd- bandakerfum." Þá segir loks í fréttatilkynning- unni frá Samtökum rétthafa mynd- banda á íslandi, að þessi dæmi ættu að nægja til að gefa nokkra mynd af ástandinu á myndbandamarkaðin- um hér á landi og hvers vegna ís- lenskir umboðsaðilar myndbanda- efnis frá erlendum dreifingaraðilum og framleiðendur íslensks mynd- bandaefnis hafa talið sig knúna til að stofna Samtök rétthafa mynd- banda á íslandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.