Morgunblaðið - 21.11.1982, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAÓuR 21. NÓVEMBER 1982
3
Borgarfjörður eystri:
Talsvert byggt og konur
með barnavagna sjást nú
Borgarfirði eystri, 10. nóvember.
ÞÁ ER NÚ blessuð áttin okkar Borg-
firðinga — norðaustanáttin — sest að
völdum. í dag er kalsarigning og
stormur í byggð, en krapaslydda til
fjalla og er trúlegt að brátt teppist
vegurinn um Vatnsskarð til Héraðs.
Undanfarið hefur tíð verið góð og
löngum gefið á sjó og línubátar fiskað
vel, en nú kemst enginn bátur á sjó.
Þeir minnstu komnir á land, en hinir
stærri út að Hafnarhólma, þar sem
þeir geta haldist viö, þótt þeir séu þar
á engan hátt öruggir, ef eys upp miklu
norðaustanbrimi, eins og dæmi eru
tiL
Nú er endanlegri síldarsöltun lokið
og var saltað í 2400 tunnur.
A síðasta ári voru hér byggð þrjú
tvíbýlishús á vegum hreppsins og er
það fjórða í smíðum. Auk þess eru
tveir einstaklingar að reisa sér þak
yfir höfuðið. Loks er hér í smíðum
alifuglasláturhús á vegum tveggja
alifuglabænda og iðngarðar á veg-
um hreppsins.
Fram að þessu hefur húsnæðis-
leysið verið ein af fleiri orsökum
þess að ungt fólk hefur lítið sem
ekkert sest hér að, en nú hefur það
Bátafloti Borgfirðinga var í öruggu vari við Hafnarhólma, austan við fjörð-
inn, gegnt þorpinu, en bátarnir eru þó engan veginn öruggir þar ef gerir brim
af norðaustri. Ljósm. — áij
breyst við þessa húsnæðisaukningu
og allmargar ungar fjölskyldur
hafa stofnað heimili sín hér. Bendir
allt til að fólki fari að fjölga og
sjást þess nú þegar nokkur merki,
a.m.k. sést nú stundum kona með
barnavagn á götum þorpsins, en
slíkt var sjaldgæft fyrirbrigði fyrir
nokkrum árum. Á síðasta manntali
voru þó aðeins 235 skráðir íbúar
hreppsins.
Borgfirska fyrirtækið Álfasteinn
hf. starfar af krafti. Framleiðir það
m.a. 'fánastangir, pennastatív,
skrautklukkur, bréfapressur, bóka-
stoðir, dyraplatta, verðlaunaplatta
og skrautsteina, svo að eitthvað sé
nefnt. Gripirnir eru unnir úr ís-
lenskum steinum, s.s. gabbrói, bas-
alti, líparíti, hrafntinnu, jaspís o.fl.
Eru þetta hinir fegurstu gripir.
Framkvæmdastjóri Álfasteins hf.
er Helgi M. Arngrímsson.
— Sverrir Haraldsson
Sérfræðingar
í sérfargjöldum
Helgarferðir Utsýnar
KAUPMANNAHÖFN
Brottför á fimmtudögum. Verö frá kr. 6.300.-
OSLÓ
Brottför á föstudögum. Verö frá kr. 6.020 -
GLASGOW
Brottför á föstudögum. Verö frá kr. 5.690.-
STOKKHÓLMUR
Brottför á föstudögum. Verö frá kr. 7.120.-
LUXEMBORG
Brottför á föstudögum. Verö frá kr. 6.100.-
LONDON
Brottför á fimmtudögum. Verö frá kr. 5.435.-
AMSTERDAM
Brottför á föstudögum. Verö frá kr. 6.100.-
Vikuferðir Útsýnar
LONDON
Brottför á þriöjudögum. Verö frá kr. 7.075.-
NEW YORK
Brottför á laugardögum. Verö frá kr. 10.260,-
BROTTFARARDAGAR
24. nóvember 16. febrúar
15. desember 9. mars
5. janúar 30. mars
26. janúar 20. apríl
Sértilboð:
Fyrir unga og aldna. Gildir aðeins
í ferðir 5. og 26. janúar.
HerU
VmlferAur
Gyte
Ejjólfur
Ferðaþjónusta er sérhæft fag
Yfir aldarfjórðungs reynsla í ferðaþjónustu í sí-
breytilegum heimi er þekking, sem treysta má.
— Notfæriö ykkur hana.
Brazilía
Jóla- og
óramótaævintýri
íRíó
19 dagar Lissabon — Ríó
Brottför: 16. desember.
Verö frá kr. 29.900,-
Innifalin glæsileg jóla-
og nýársveisla.
Örfá sæti laus.
FERÐIRj.
19. desember
2. janúar
16. janúar
30. janúar
13. febrúar ^
27. febrúar
13. mars
[27. mars
Kitzbiihel
Zillertal
Lech
Ferðaskrifstofan
ÚTSÝN
Austurstræti 17,
Reykjavík.
Sími 26611.
Akureyri.
Sími 22911.
Hafnarstræti 98.