Morgunblaðið - 21.11.1982, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982
17
Hallgrímur Guðmundsson (t.v.) og Þorsteinn Bergsson halda á milli sín
þrívíddarteikningu af framtíðarskipulagi Bernhöftstorfunnar. Myndin er tek-
in uppi á lofti veitingahússins Torfunnar, og á veggjunum hanga nokkrar
þeirra mynda sem verða til sölu á sýningunni sem hefst í dag.
Torfusamtökin 10 ára 1. desember:
Sölusýning
um 1 tilefni
TORFUSAMTÖKIN — „félags-
skapur áhugafólks um umhverfis-
vernd og varðveislu menningarverð-
mæta á íslandi" — voru stofnuð 1.
des. 1972. Eins og alkunna er hefur
höfuðverkefni samtakanna frá upp-
hafi verið að stuðla að verndun
Bernhöftstorfu og lífgun. Eftir mikla
baráttu samtakanna voru húsin frið-
uð þann 7. ágúst 1979, og 20. nóv.
sama ár tóku Torfusamtökin endur-
byggingu þeirra á sínar herðar.
á listaverk-
afmælisins
En samhliða þessari sölusýn-
ingu verður einnig kynning á sögu
húsanna, það mun liggja fyrir
bæklingur með söguágripi um
hvert hús fyrir sig. Einnig getur
fólk fengið að skoða teikningar,
sem Stefán Stefánsson arkitekt
hefur gert, að framtíðarskipulagi
Torfunnar en þessum teikningum
mun fylgja texti um þá starfsemi
sem fyrirhuguð er í þeim húsum
sem eftir á að reisa.
ARMULI 8
SÍMi: 86080
„Ég hygg að flestir séu sammála
um að vel hafi til tekist að það sé
full ástæða til bjartsýni um að svo
verði einnig framvegis, nú þegar
endurbygging bakarísins og bak-
húsanna er að hefjast," sagði
Hallgrímur Guðmundsson, for-
maður samtakanna.
Torfusamtökin munu halda upp
á 10 ára afmæli sitt með kynningu
á markmiðum sínum og sölusýn-
ingu á listaverkum til fjáröflunar
og endurbyggingarinnar.
Þorsteinn Bergsson hefur haft
veg og vanda að undirbúningi sýn-
ingarinnar, sem hefst á laugar-
daginn, og hafði hann eftirfarandi
að segja:
„Þetta hefur verið í deiglunni í
hálft ár. Við fórum þess á leit við
fjölda listamanna að þeir legðu til
verk á þessa sýningu og létu helm-
inginn af söluandvirðinu renna til
Torfusamtakanna. Við bjuggumst
nú við því að margir listamenn
mundu taka vel í þessa bón, en
undirtektir þeirra fóru fram úr
björtustu vonum. Samtals eiga 94
listamenn verk á sýningunni, en
fjöldi verka nálgast það að vera
300. Það er óhætt að fullyrða að
aldrei áður hafa jafn margir aðil-
ar sýnt á einni sýningu hérlendis.
Og eins og nærri má geta eru
verkin á sýningunni mjög fjöl-
breytt og ættu allir að geta fundið
eitthvað fyrir sinn smekk.
Þetta verður dálítið sérstæð
sýning að öðru leyti líka: Þar sem
það er útilokað að koma fyrir 300
verkum í þessum tveimur húsum
sem við höfum til umráða, þ.e.
Torfunni og Lækjarbrekku, þá
verða verkin einfaldlega tekin
niður jafnóðum og þau seljast og
ný sett upp í staðinn.
V^terkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Fyrsta flokks
innihurðir í
öllum karma-
breiddum.
. i _____
Spónlagðar með völdum
náttúrulegum spæni.
Pantið strax, afhending fyrir jól.
Sérstaklega hagstæðir greiðsluskilmálar.
▼ Timburverzlunin Völundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19. SÍMI 85244