Morgunblaðið - 21.11.1982, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982
Vidtal þetta, er hér fer á eftir, tók blaðamaðurinn A.E. Hotchner við sænsku leikkonuna Ingrid Bergman nokkrum vikum fyrir andlát hennar og birtist þaö í franska vikuritinu Elle.
Ingrid Bergman er sextíu og sex
ára gömul. Hún stendur fyrir
framan hótel sem á stendur Palm-
er House, en um er að ræða hótel í
Lundúnum sem er nánast eftirlík-
ing að Palmer House í Chicago. Hún er
klædd einkennilegri kápu sem er engan
veginn samkvæmt nýjustu tísku og með
hárið strengt aftur í tagl. Með gamia tösku
undir hendinni nálgast hún yfirveguðum
skrefum með teinrétt bak. Þegar mynda-
vélarnar nálgast og lýsingin skellur á,
verður manni skyndilega ljóst, þökk sé
förðuninni, hversu mikil líkindi eru með
þessari konu og Goidu Meir. Þetta er síð-
asti dagur upptakanna, eftir nokkurra
vikna vinnu í óhugnanlegum hita í ísrael,
en óttast hafði verið að Ingrid myndi ekki
auðnast að ljúka við þessa mynd. Hún bug-
aðist aldrei.
Meðan næsta taka er undirbúin, fylgi ég
Ingrid inn í hótelið. Ég vissi að löng bar-
átta hennar við krabbamein hafði skilið
eftir sig mikil ummerki og fegurð hennar
var ekki söm og áður, en ég varð samt sem
áður sleginn er ég gerði mér grein fyrir því
hversu mjög þessi fagra kona, sem ég á
sínum tíma þekkti svo vel í Mílanó, hafði
látið á sjá. En hún brosti er hún tók í hönd
mína og bros þetta vakti mér ljúfar endur-
minningar. Rödd hennar var hrjúf og
þreytuleg og hægri handleggur hennar var
hræðilega þrútinn. Ég segi henni hversu
mjög ég dáist að þeirri braut, sem hún
valdi sér eftir hlutverk Mariu í „For
Whom the Bell Tolls" fram að hlutverki
Goldu Meir.
„Þetta hlutverk," segir hún, „líkist engu
sem ég hef fengist við áður. Þegar mér
bauðst það spurði ég sjálfa mig hvernig há
og grönn, sænsk og lútersk kona gæti leik-
ið litla og þybbna Gyðingakonu. En eftir
því sem ég kynntist Goldu Meir betur, því
hrifnari varð ég af henni og mér finnst að
við höfum átt þó nokkuð margt sameigin-
legt. Við fórnuðum báðar fjölskyldulífinu
fyrir framann. Við giftumst báðar í byrjun
mönnum sem voru í mikilli andstöðu við
lífsmáta okkar, og báðar yfirgáfum við þá.
Við dáðumst báðar mikið að börnum
okkar, en fórum oft frá þeim, þar sem við
gátum ekki hugsað okkur að láta þau
standa í vegi fyrir frama okkar og vorum
því stöðugt fullar sektarkenndar gagnvart
þeim. Við yfirgáfum einnig báðar lönd
okkar og móðurmái til að vera á stöðugu
flakki og hlutum báðar mikinn frama í því
sem við fengumst við. Það er vegna alls
þessa sem ég sagði við sjálfa mig, að þegar
allt kæmi til alls, þá gæti þessa háa
sænska kona vel leikið þessa litlu Gyð-
ingakonu."
En það er einnig annað sameiginlegt
þessum tveimur konum, sem Ingrid minnt-
ist ekki á. I rauninni skýrist það best í
atriði í myndinni, þar sem læknir tilkynn-
ir Goldu Meir að hún hafi beinkrabba, at-
riði sem hefur krafist þess af Ingrid að
hún sýndi mikla ró og yfirvegun, eins og
Golda Meir hafði gert, er hún tók aftur til
starfa sinna sem forsætisráðherra strax
að lokinni meðferðinni gegn krabbamein-
inu. Ingrid tók einnig til starfa eins og
ekkert hefði í skorist eftir að annað brjóst
hennar var numið brott 1974.
Upptökustjórinn kemur nú og tilkynnir
henni að eftir henni sé beðið með óþreyju.
Hún dregur að sér síðasta reykinn úr síga-
rettunni og stendur upp með erfiðismun-
um. Hún samþykkir síðan að sitja fyrir á
nokkrum myndum hjá ljósmyndara hóps-
ins að þessari töku lokinni, með því að
kinka kolli, auðsýnilega þreytt.
Síðla þennan dag, eftir að síðustu tökun-
um er lokið, borðar Ingrid síðustu máltíð-
ina með kvikmyndahópnum. Eftir að hafa
afklæðst gráu hárkollunni, breiðu auga-
brúnunum og fötum Goldu, virðist Ingrid
glöð að eyða þessari kvöldstund með þessu
fólki sem hún hefur unnið með undanfarn-
ar vikur og skála við það í kampavíni. Við
hlið hennar er hjúkrunarkona hennar er
fylgdi henni til ísrael og býr með henni í
íbúð hennar í Lundúnum.
Það var þarna sem Gene Corman, fram-
leiðandi myndarinnar og sá sem með þol-
inmæði sinni tókst að fá Ingrid til að taka
þetta hlutverk að sér, gaf sér tíma til að
spjalla við mig um hana.
„Þér getið ekki ímyndað yður hversu
mjög ég dáist að henni fyrir hugrekki,"
sagði hann vð mig. „Munið þér eftir þess-
ari frægu mynd af Goldu Meir, sem tekin
var er hún hafði hlotið kosningu sem for-
sætisráðherra og hún faldi andlit sitt, sem
þakið var tárum, í höndum sér? Þegar við
komum að þessu atriði í kvikmyndatök-
unni, var hægri handleggur Ingrid svo
þrútinn að við sáum þann kost vænstan að
finna staðgengil. Ingrid var hins vegar svo
mikið í mun að leika þetta atriði, að hún
vafði handlegg sinn þéttingsfast nóttina
áður en upptakan fór fram, og svaf þannig
til að koma í veg fyrir að hann bólgn-
aði... og daginn eftir gat hún tekið þátt í
þessu atriði eins og hverju hinna."
Leikstjóri myndarinnar bað nú um leyfi
þess að fá fyrir hönd hinna sem að mynd-
inni stóðu, að skála fyrir Ingrid. Hún
þakkar fyrir sig með hinu hlýlega brosi
sínu. Samt sem áður fannst mér sem ég
skynjaði hjá henni einhvers konar dapur-
leika, sem maður á ekki að venjast á
stundum sem þessari.
Ingrid býr í notalegri íbúð í rólegu
hverfi í Lundúnum. Á hillu í hlýlegri stof-
unni standa Óskarsverðlaunastytturnar
þrjár, en að öðru leyti er ekki margt sem
minnir á fortíð hennar.
„Ég hef aldrei verið hrædd við að standa
ein frammi fyrir framtíðinni. Það hefur
alltaf verið þannig. Móðir mín lést er ég
var þriggja ára gömul og faðir minn, sem
ég sá nánast aldrei, lést þegar ég var þrett-
án ára.“
— Ernest Hemingway sagði að þú værir
gífurlega hugrökk og dáðist mikið að þér
fyrir þær sakir.
„Ernest var sannur vinur. Traustur og
heiðarlegur. Þegar fjölmiðlar báðu hann
um álit hans á því þegar ég var þunguð,
þrátt fyrir að ég væri ekki gift, svarði
hann: „Ég vona að Ingrid eignist tvíbura.
Ég skyldi bera þá á höndum mér frá
Saint-Pierre til Rómar og verða guðfaðir
þeirra." En allt þetta reyndist mér erfitt.
Ég var ekki tilbúin að taka hræðilegum
afleiðingum ástarævintýris míns. í raun-
inni var ég alls ekki tilbúin til að verða
ástfangin. Ég grét öllum stundum. Ég var
full sektarkenndar yfir því að yfirgefa Piu
og Petter á þennan hátt. En ég var heiðar-
leg gagnvart honum. Ég yfirgaf hann og
var honum ótrú, en skrifaði honum, að ég
vissi að þetta bréf myndi hafa sömu áhrif
og sprengja á heimili okkar, Piu, framtíð-
ina, og fortíðina sem frá hans hendi var
full af fórnum í mína þágu. Ég gerði mér
grein fyrir því að hann yrði héðan í frá
einn innan um rústir sambands okkar, af
mínum völdum, en ég gat ekki veitt honum
neina hjálp, eða hjálpað sjálfri mér.“
— Þú giftist Petter Lindström tuttugu
og eins árs gömul. Var hann þér föður-
ímynd?
„Það hefur aldrei hvarflað að mér,“
sagði hún.
Síðan hugsaði hún sig um eitt andartak.
„í rauninni, kannski það sé eftir allt
hugsanlegt að hann hafi verið á einhvern
hátt uppbót á föður minn. Hann var tíu
árum eldri en ég, en ég skynjaði þann mun
sem meiri. í stað þess að kenna mér að
öðlast sjálfstæði, gerði hann mig háða sér
með því að gera alla hluti fyrir mig og
taka allar ákvarðanir fyrir mig. Ég stjórn-
aði sjálf gerðum mínum fyrir framan
kvikmyndatökuvélina eða á sviði, en þar
fyrir utan gerði hann allt, og þetta hefur
alla tíð verið mér mikill baggi. Því fór svo
að afskiptasemi Petters fór að angra mig.
Þegar ég sneri heim á kvöldin eftir anna-
saman dag og sagði honum allt sem gerst
hafði, var hann stöðugt að stöðva mig í
frásögninni með athugasemdun eins og:
„Settu ekki í brýrnar", „Sittu bein“, og
„Vertu ekki að fikta í höndunum á þér“,
eins og ég væri dóttir hans en ekki eigin-
kona. Hann fylgdist einnig gaumgæfilega
með þyngd minni og skipti sér af því sem
ég lét ofan í mig. Hann þvingaði mig jafn-
vel til að stíga á vigtina fyrir framan
hann.“
— Og Rosselini?
„Hvað þetta snertir var hann algjör
andstæða við Petter, og í mörgum öðrum
málum einnig. Hann víkkaði sjóndeild-
arhring minn. Hann var gífurlega kjark-
mikill og kjarkur hans var smitandi.
„Taktu áhættur, vertu eðlileg og láttu allt
flakka. Ef við viljum að þú eignist þetta
barn, látum þá allt hjal fólks fara til
fjandans, hneykslið og allt sem mun koma
fyrir okkur vegna þess.“
„Þú getur ekki ímyndað þér hversu oft
fólk stöðvaði mig og sagði: „Láttu ekki eins
og bjáni. Láttu eyða þessu fóstri." En það
hafði aldrei hvarflað að mér. Þetta var
okkar barn. Við vorum ástfangin og þetta
barn var staðfesting á ást okkar. Eg á
auðvelt með að segja frá þessu núna, en
það var langt frá því að J>etta væri jafn
auðvelt á þessum tíma. Eg var farin að
hafa það á tilfinningunni að blöðin hefðu
fullkomlega rétt fyrir sér er þau sögðu að
ég væri hræðileg kona að yfirgefa dóttur
mína og eiginmann. Þar að auki fékk ég
gríðarlegan fjölda bréfa frá fólki sem
ásakaði mig um að hafa gert leikarastétt-
inni mikinn óleik, ég hefði eyðilagt algjör-
lega frama minn og mig sjálfa með þessu
athæfi. Það sem er einkennilegt, er að líf
mitt með Roberto varð alveg jafn þvingað
og líf mitt með Petter, bara á annan hátt.
Hvað snertir Roberto, var það eins konar
listamannsleg afbrýðisemi. Eftir giftingu
okkar og eftir eftir að hafa átt saman þrjú
börn mildaðist álit heimsins og mér buð-
ust hlutverk hjá leikstjórum sem mig
hafði ekki dreymt um áður, mönnum eins
og De Sica og Zeffirelli, en Roberto skynj-
aði það sem ég væri að bregðast honum ef
Sauðárkrókur:
„Er þetta ekki mitt líf?“
Sauóárkróki, 18. nóvemher.
SL. SUNNUDAG frumsýndi
Iæikfélag Sauðárkróks sjóníeik-
inn Er þetta ekki mitt líf? eftir
breskan höfund, Brian Clark.
Leikstjóri er Guðrún Snæfríður
Gísladóttir, leikari frá Reykja-
vík, og er hún einnig höfundur
leikmyndar. Aðstoðarleikstjóri
er Ingibjörg Briem.
Húsfyllir var á frumsýning-
unni og leiknum ágætlega tek-
ið. Þrettán leikarar koma
fram í sýningunni. Stærsta
hlutverkið, sjúklinginn, sem
allt snýst um, leikur Guðni
Friðriksson, en Hafsteinn
Hannesson leikur yfirlækninn.
Aðrir leikarar eru: Guðbjörg
Bjarman, Elín Jónsdóttir,
Björgvin Sveinsson, María
Gréta Ólafsdóttir, Helga
Hannesdóttir, Haukur
Þorsteinsson, Geirlaugur
Magnússon, Friðrikka Her-
mannsdóttir, Halldóra Helga-
dóttir, Bragi Haraldsson og
Ólafur Helgi Jóhannsson.
Leiksviðsstjóri er Árni
Egilsson og lýsingu annast
Páll Ólafsson. I leikskrá segir
m.a.: „Rauði þráðurinn í leik-
riti Brian Clarks er ekki líkn-
ardráp, heldur réttur einstakl-
ingsins til ákvörðunar um líf
sitt eða dauða andspænis
skyldum lækna og siðaskoðun
varðandi verndun mannlegs
lífs í lengstu lög ... Leikritið
er ritað miklu fremur í anda
bjartsýni en svartsýni, í anda
vona fremur en vonleysis."
Er þetta ekki mitt líf? var
sýnt í Iðnó fyrir nokkrum ár-
um og vakti þá mikla athygli
og umræður. Leikfélag Sauð-
árkróks á þakkir skildar fyrir
framtak sitt, og er þess að
vænta, að Skagfirðingar kunni
að meta það. önnur sýning
leikritsins var í gærkveldí við
góða aðsókn og undirtektir.
Haukur Þorsteinsson i hlutverki Fillip Hills lögfræöings, og Guðni Friðriksson i
hlutverki sjúklingsins, Kenneth Harrisons.
Þriðja sýning verður mánu-
daginn 22. nóvember nk.
Formaður Leikfélags Sauð-
árkróks er Helga Hannes-
dóttir.
Kári