Morgunblaðið - 21.11.1982, Page 23

Morgunblaðið - 21.11.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 23 \ Ingrid Bergman í Cheynegarði í London í apríl síðastliðnum. ég tók að mér hlutverk hjá öðrum en hon- um. Því miður varð engin þeirra mynda sem við unnum í sameiningu fræg og þeg- ar Hollywood ákvað að taka áhættuna og bjóða mér hlutverk í „Anastasia", sem átti að taka upp í Lundúnum, ákvað ég að setja mig upp á móti Roberto. Ég hafði verið í einangrun frá starfi mínu í sjö ár og það nægði... Þegar ég tilkynnti honum að ég hefði þegið hlutverkið í „Anastasia" rifumst við heiftarlega og eins og fyrr hótaði hann að fremja sjálfsmorð með því að aka bifreið sinni á tré. í rauninni hafði samband okkar Roberto verið að fjara út af ýmsum ástæðum, en ekki einungis af völdum þessa hlutverks. Hann gerði mér lífið mjög erfitt er að skilnaðinum kom, sérstaklega varðandi börnin okkar þrjú. En eftir að allt var um garð gengið urðum við góðir vinir og vor- um það allt til dauða hans ... Það eina sem ég sé eftir er dóttir mín Pia. Þegar ég reyndi að fá rétt til að heimsækja hana og fá leyfi til að fá hana í heimsókn til mín á Italíu, þurfti ég að eiga það mál við sér- stakan dómstól í Bandaríkjunum, þar sem Petter hafði neitað mér. Svör hennar fyrir réttinum þennan dag eiga eftir að fylgja mér alla ævi. Þegar hún var spurð að því í vitnastúkunni hvort hún elskaði mig, svar- aði hún: „Nei, ég get ekki sagt að ég elski hana, en mér líkar ágætlega við hana.“ Hún var þá spurð að því hvort hún vildi koma í heimsókn til mín og svarði: „Nei.“ Hún vildi heldur dvelja hjá föður sínum um sumarið. Hún var síðan spurð að því hvort henni þætti ekkert vænt um mig: „Ekki mikið held ég.“ Að sjálfsögðu hafnaði dómarinn beiðni minni. Mér sárnaði gífurlega. Nú orðið, eftir að hún varð fullorðin höfum við rætt þetta oft og ítarlega, en þrátt fyrir að hún skilji útskýringar mínar, óttast ég að hún viðurkenni þær ekki alltaf innst inni.“ Ég spurði Ingrid hvort hún sæi eftir fleiri málum en þeim sem snerta Piu. „Ég býst við að ég hefði getað verið varkárari, og kannski stjórnað lífi mínu á diplómatískari hátt. Ég hef alltaf verið fullkomalega heiðarleg hvað mig snertir. Ég get ekki þóst vera annað en ég er. Fjöl- miðlar hafa oft ásakað mig fyrir að vera að þykjast vera heiðarleg og látlaus. En ér er ekki að þykjast vera eitt né neitt. Ég er látlaus og hrein og bein. Ég segi það sem mér finnst og það er einmitt það sem fólk á ekki að venjast." Ingrid hefur vissulega verið heiðarleg hvað varðar baráttuna við krabbameinið, sem fannst, þegar hún var að leika í „The Constant Wife“ á leiksviði í Lundúnum. Fyrst var annað brjóstið fjarlægt og í kjölfar þess fylgdi erfið geislameðferð, síð- an var hitt numið brott og geislameðferðin endurtekin. Ingrid brást við þessu af sömu einbeitn- inni og hún hafði áður sýnt í fyrri erfið- leikum sínum. Skurðaðgerðirnar höfðu dregið svo mikið af henni, að hún treysti sér ekki til að leika framar á sviði, en hún vonast til að geta um ókomna framtíð leik- ið fyrir framan kvikmyndatökuvélarnar. „Tíminn styttist óðum, en hver dagur sem ég hef betur en krabbameinið er sigur fyrir mig og ég er mér meðvituð um það. Ég er orðin sátt við þetta og ætla mér að fá eins mikið og ég get út úr þeim tíma sem ég á ólifaðan. Ég hélt í fyrstu að mér myndi ekki auðnast að leika framar. Samt sem áður er ég að Ijúka við fjögurra klukkustunda langa mynd, mjög erfiða, sem hefur verið mjög hvetjandi allt frá upphafi til enda. En þetta hefur verið frábær upplifun, bæði hvað varðar hlut- verk leikkonunar og vegna þess að þarna er ég í rauninni að fá meira út úr lífinu en áður var fyrir séð. í gærkvöldi hélt fram- leiðandinn kvöldverðarboð fyrir okkur öll sem að þessari mynd hafa staðið og við rifjuðum upp endurminningar frá tökum myndarinnar í ísrael og hér í borg. Hversu ljúft! Síðan sneri ég heim í þessa litlu, tómu íbúð og allt í einu fannst mér ég vera innantóm og sorgmædd ... og sem ég stóð við þennan glugga og horfði á ljósin fyrir utan, fór ég að gráta. Einkennilegt, finnst þér ekki? Ég gat ekki hætt að gráta. Ég ætti að hafa tekið þátt í nógu mörgum kvikmyndum til að vera orðin vön þeirri tilhugsun að allt er skyndilega yfir staðið, en þrátt fyrir það stóð ég þarna og var í þann veginn að gráta frá mér allt vit. Hvað verður, hver veit? Kannski var þetta í síðasta skiptið, sem ég stóð andspænis minni gömlu, kæru vinkonu, kvikmynda- tökuvélinni." Þýtt: E.J. „í rauninni var ég alls ekki tilbúin til aö veröa ástfangin. Ég grét öllum stundum.“ „Vid vorum ást- fangin og þetta barn var staöfest- ing á ást okkar.“ „Líf mitt með Rob- erto varö alveg jafn þvingaö og líf mitt með Petter, bara á annan hátt.“ „Þegar ég tilkynnti honum aö ég hefði þegiö hlutverkiö í „Anastasia“ hótaði hann, sem fyrr, að fremja sjálfs- morö.“ „Ég er ekki að þykjast vera eitt né neitt. Ég er látlaus og hrein og bein. Ég segi það sem mér finnst — og það er einmitt það, sem fólk á ekki aö venjast.“ „Hver dagur sem ég hef betur en krabbameinið er sigur fyrir mig.“ ii Skrifstofa stuðningsmanna Geirs H. Haarde er að Túngötu 6. Símar 27227 og 19999. Skrifstofan er opin frá 14—22. Stuðningsmenn velkomnir. ! Stuðmngsmenn TÓNLISTARGJÖFIN í ÁRI Kærkomin sending til vina erlendis. Ath: vandað textablað ffylgir einnig snældunni. Umsagnir blaða: .Þaö er ævinlega gaman aö fá í hendurnar plötu eins og nýju plötuna hennar Bergþóru Árnadóttur, Bergmál. Plötu sem gam- an er að hlusta á aftur og aftur og enn og aftur. Plötu sem hefur góð áhrif á sálartetriö hvort sem geöiö er glatt, æst eöa dapurt. Plötu sem má setja á fóninn hvort sem amma og afi eru í heimsókn eða ættingjar á erfiðum aldri.” (Þ.E. Vikan 14.10.). „Enda væri þaö dauöur maöur, sem lögin, útsetning þeirra og söngur Bergþóru kæmi ekki viö taugaendana á. Bergmál ómi alls staöar." (FRI. Tíminn 9.10.). FÆST í NÆSTU HLJÓMPLÖTUVERSLUN Draifing FALKINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.