Morgunblaðið - 21.11.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.11.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 25 að flokkarnir ræðist bara við af fullri hreinskilni og einurð næstu daga, og séu ekkert að hangsa yfir því að átta sig á því hvort þeir geti náð samkomulagi eða ekki, og það komi bara í ljós hvort þeir geta náð því eða ekki.“ (Tíminn 19. okt.) Gunnar segir: „Nefndi ég að ræða þyrfti afgreiðslu nokkurra þing- mála, og þá sérstaklega bráða- birgðalögin um efnahagsaðgerðir og framlengingu á nokkrum tekju- stofnum, sem venja er að ákveða til eins árs í senn og framlengja síðan. Aðaltekjustofninn er hið sérstaka vörugjald frá 1975. Enn- fremur nefndi ég afgreiðslu stjórnarskrárinnar í heild og þar með afgreiðslu kjördæmamáls- ins.“ (Tíminn 19. okt.) Geir segir: „Það er krafa okkar sjálfstæð- ismanna enn sem fyrr að kosn- ingar fari fram hið fyrsta, en áður verði gerðar breytingar á kjör- dæmaskipan og kosningalögum til að jafna misvægi atkvæða. Hvað snertir afgreiðslu þingmála al- mennt þar til af því getur orðið, þá hlýtur Sjálfstæðisflokkurinn að hafa það hér eftir sem hingað til að meginmarkmiði að fjalla um mál efnislega og byggja afstöðu sína á því sem best samræmist þjóðarhag." (Mbl. 19. okt.) Og Kjartan segir: „ ... Gerði ég það að tillögu minni að ríkisstjórnin gerði lista yfir þau mál sem hún teldi að afgreiða þyrfti á næstunni þannig að menn geti áttað sig á stöðunni. Ég tel að þessar umræð- 22. október 1982 Ráðherranefndin efnir öðru sinni til funda með þeim Geir og Kjartani. Geir segir að hann hafi ítrekað fyrri kröfur sjálfstæð- ismanna um að ríkisstjórnin bið- jist samstundis lausnar og ekkert sé því til fyrirstöðu að kosningar fari fram í lok janúar eða byrjun febrúar. „Nú gildir að snúa sér að því að ná víðtæku samkomulagi um breytingar í kjördæmamálinu og ákveða kosningadag," segir Geir í viðtali sem birtist í Mbl. 23. okt. Og Kjartan segir í sama blaði um viðræðufundinn, að hann vilji að stjórnin segi af sér, hins vegar hafi hann orðið fyrir vonbrigðum vegna þess að hann hafi ekki feng- ið umbeðna skrá um óskafrum- vörp ríkisstjórnarinnar. Stein- grímur segir, að krafan um afsögn ríkisstjórnarinnar hafi komið sér „nokkuð á óvart", sín persónulega skoðun sé sú, að skynsamlegt sé að staðnæmast við aprílmánuð við ákvörðun á kosningadegi, en kjör- dag eigi ekki að ákveða „fyrr en menn eru búnir að koma sér niður á meðferð nauðsynlegustu þing- mála ... Ég legg áherslu á að við gerum allt til þess að ná starfs- friði á þinginu, annars verður það okkur til skammar, þingið." (Mbl. 23. okt.) Svavar segir, að ráðherra- nefndin hafi verið sammála um að kanna í viðræðum við stjórnar- andstöðuna, hvort samkomulag geti tekist um „hugsanlegan kjör- dag á fyrri hluta næsta árs og október án þess að setja fram | hugmyndir um starfshætti á Al- þingi og afgreiðslu mála. Fjórda vika Þriðjudagur 2. nóvember 1982 Ráðherranefndin efnir til funda með þeim Geir og Kjartani í þriðja sinn. Geir segir að fundi loknum: „Við sjálfstæðismenn sjá- um ekki að frekari viðtöl af þessu tagi þjóni neinum tilgangi. Ráð- herrarnir tilkynntu, að ríkis- stjórnin væri ekki reiðubúin að biðjast lausnar og það fékkst ekki frekari ákvörðun um kjördag en einhvern tíma á fyrri hluta næsta árs.“ (Mbl. 3. nóv.) Kjartan segir: „Niðurstaðan varð sú að við gerum ráð fyrir að hittast aftur. Það var farið yfir ýmis mál sem ríkis- stjórnin hefur áhuga á að flytja." Ráðherranefndin afhendir for- mönnum stjórnarandstöðuflokk- anna lista yfir 103 þingmál, sem ríkisstjórnin ætli að flytja „en þeim fjölgaði reyndar á fundinum úr 103 í 105 eða 107“, segir Kjart- an í Mbl. 3. nóv. Gunnar segir, að það sé ábyrgðarlaust „að ríkis- stjórn sem styðst við meirihluta á þingi færi að segja af sér“. Fimmta vika Sunnudagur 7. nóvember 1982 Eftirfarandi samþykkt gerð á flokksþingi Alþýðuflokksins: „Flokksþingið telur rétt að Al- Varðandi kjördag þá ræddum við það ítarlega og skoðum það allt saman nánar.“ (Mbl: 10. nóvem- ber.) Kjartan segir að hann sé reiðubúinn til frekari viðræðna um afgreiðslu þingmála við ríkis- stjórnina, ef hún leggi bráða- birgðalögin fram fyrir helgi, ákveði kjördag í síðasta lagi síð- ustu helgina í apríl og viljayfirlýs- ing fáist um stjórnarskrána, segir í frétt Mbl. 10. nóv. Svavar segir um fundinn með Kjartani: „Fór hann fram í vinsamlegu andrúms- lofti,“ og ákveðið hafi verið að hittast aftur eftir næstu helgi og ræða þá málin áfram. (Þjóðviljinn 10. nóv.) Magnús H. Magnússon, varaformaður Alþýðuflokksins, segir eftir fund Kjartans og ráð- herranefndarinnar, að það sé nóg fyrir flokkinn að veita ríkisstjórn- inni„ hlutleysi á mjög takmörkuðu sviði“ til að „hjakka þessum brýn- ustu málum" hennar í gegnum þingið og það hjálpi ríkisstjórn- inní „til þess að stjórna þessa mánuði — til þess að skrölta áfram". (Mbl. 10. nóvember.). 10. nóvember 1982 Bráðabirgðalögin frá 21. ágúst lögð fram í efri deild Alþingis 11. nóvember 1982 Geir segir í Morgunblaðinu: „Kröfur Alþýðuflokksins í viðræð- um við ríkisstjórn eru einskis verðar. Þær hefðu hvort sem er verið innleystar ... Ef marka má orð varaformanns Alþýðuflokks- ins þá hefur flokkurinn ákveðið að að líða að því að stjórnarskrár- nefnd fari að skila greinargerðum til þingflokkanna, nefndin hittist oft. Kjördagur sé til umræðu og athugunar hjá ríkisstjórninni. 13. nóvember 1982 Kjartan segir: „Ég lagði áherslu á það í gær að þessi ákvörðun þingflokksins um að flytja van- traust á ríkisstjórnina fæli meðal annars í sér kröfu um tafarlaus og skýr svör frá ríkisstjórninni við skilyrðum Alþýðuflokksins. For- sætisráðherra sagði í fjölmiðlum í dag, að hann vildi ræða þessi skil- yrði í næstu viku. Þessi skilyrði hafa aldrei verið til umræðu og þessi viðbrögð forsætisráðherra og svör eru sama og að hafna frek- ari viðræðum við Alþýðuflokkinn og það er tilgangslaust fyrir hann að boða mig á frekari fundi. Það er auðvelt fyrir forsætisráðherra að ástunda útúrsnúninga ... Það er auðvitað útúrsnúningur hjá for- sætisráðherra, að í hugsanlegri atkvæðagreiðslu um vantraust á ríkisstjórnina, felist einhvers kon- ar traust á hana. Þessi svör for- sætisráðherra í dag bundu enda- hnútinn á viðræður okkar við rík- isstjórnina." Viðtalið við Kjartan birtist laugardaginn 13. nóv. i Mbl. en er tekið 12. nóv. Sjötta vika 16. nóvember 1982 Gunnar segir: „Ég hef ekki ur snúist um það að ákveða kosn- ingadag og hvernig eigi að fara með landsstjórnina fram til þess tíma.“ (Mbl. 19. okt.) 19. október 1982 Morgunblaðið skýrir frá því að daginn áður hafi komið fram sú hugmynd í þingflokki Alþýðu- bandalagsins, að réttast væri að leggja fram þingsályktunartiltógu og skora á forsætisráðherra að leggja bráðabirgðalögin þegar fram í neðri deild Alþingis. Á þingflokksfundi framsóknar- manna var það niðurstaðan að menn yrðu að sætta sig við þá af- stöðu forsætisráðherra, að hann sé hvorki til viðræðu um þingrof og nýjar kosningar né framlagn- ingu bráðabirgðalaganna. 20. október 1982 Steingrímur og Svavar ganga á fund forsætisráðherra og gera honum grein fyrir þeirri kröfu samstarfsaðila hans, að ekki verði lengur undan því vikist að ákveða kosningar fyrri hluta næsta árs og bjóða stjórnarandstöðunni til við- ræðna um kjördag. Forsætisráð- herra samþykkir þessa kröfu sam- starfsflokkanna. Haraldur Ólafs- son, varaþingmaður Framsóknar í Reykjavík, segir í Tímagrein að ríkisstjórnin sé „afgreiðslustjórn" og bætir við: „Það er í rauninni ekki nema tímaspursmál hvenær þessi stjórn lýkur störfum. Það sem nú er að gerast er einfaldlega það, að reynt verður að semja um hvenær næstu þingkosningar skuli fara fram.“ hinsvegar framgang lykilmála eft- ir nánara samkomulagi. „Þeir (Geir og Kjartan, innsk. Mbl.) drógu hinsvegar báðir inn í þessar viðræður óskylt mál, það er að segja ríkisstjórnina og stöðu hennar ... Að mínu mati getur þetta mál ekki verið á dagskrá í viðræðum við stjórnarandStöðu." (Þjóðviljinn 23. okt.) 23. október 1982 Kjartan Ólafsson, varaformað- ur Alþýðubandalagsins, segir í Þjóðviljanum: „Geti ríkisstjórnin ekki komið nauðsynlegustu mál- um í gegnum þingið vegna deilda- skiptingarinnar og stöðvunarvalds stjórnarandstöðunnar í neðri deild (20 gegn 20), þá á stjórnin að rjúfa þingið og gefa þjóðinni kost á að svára því í kosningum, hvort hún vill veita þessari ríkisstjórn transt eða kalla vfir sior aðro “ Þriðja vika Sunnudagur 24. október 1982 Morgunblaðið segir í forystu- grein: „Tilraunir ráðherranefnd- arinnar til að flækja stjórnarand- stöðuna í blekkingarvefnum, sem hún hefur spunnið til að lengja líf ríkisstjórnarinnar, eru dæmdar til að mistakast. Hið mikla sjónarspil í íslenskum stjórnmálum mun halda áfram svo lengi sem þessi ríkisstjórn situr." Ekkert gerist í þriðju viku í við- ræðum ráðherranefndar og for- manna stjórnarandstöðu. Forsæt- isráðherra flytur stefnuræðu 25. Kjartan Jóhannsson, formaður AlþýAuflokksins, hitti ráðherra- nefndina um framtíð ríkisstjórn- arinnar fjórum sinnum. þýðuflokkurinn haldi áfram við- ræðum við ríkisstjórnina um af- greiðslu brýnustu þingmála og nýjar kosningar, með eftirfarandi skilyrðum: 1) Að ríkisstjórnin leggi bráðabirgðalögin um efna- hagsaðgerðir nú þegar fram á Al- þingi, en það er andstætt grund- vallarreglum þingræðis að halda svo mikilvægu máli utan Alþingis í langan tíma. 2) Að starfi stjórn- arskrárnefndar verði hraðað og reynt verði til þrautar á næstu vikum að ná samstöðu allra þing- flokka um nauðsynlegar breyt- ingar á stjórnarskránni. 3) Að nýjar alþingiskosningar fari fram eigi síðar en í aprílmánuði 1983, en nýtt þing verði kvatt saman þegar að þeim loknum. Haldi við- ræður áfram á framangreindum grundvelli er nauðsynlegt að niðurstaða liggi fyrir ekki síðar en um næstu mánaðamót." 9. nóvember 1982 Ráðherranefndin hittir Kjartan að máli. Eftir fundinn segir Gunn- ar: „Bráðabirgðalögin verða lögð fram á morgun (10. nóvember) í efri deild og koma væntanlega strax til fyrstu umræðu á mánu- dag (15. nóvember en þá var eng- inn þingfundur vegna flokksþings framsóknarmanna, innsk. Mbl.). taka ábyrgð á núverandi ríkis- stjórn og telur sjálfum sér hæfa að „skrölta" með Alþýðubandalag- inu og Framsóknarflokki." Vil- mundur Gylfason, þingmaður Al- þýðuflokksins, segir, að hann skilji ekki viðtalið við Magnús H. Magnússon í Morgunblaðinu 10. nóvember, hann (Vilmundur) sé andvígur ríkisstjórninni og bráða- birgðalögunum. Árni Gunnarsson, j þingmaður Alþýðuflokksins, segir, j að hann sé gallharður á þeirri, _ skoðun að vantrauststillaga á rík-! ' isstjórnina eigi fyllilega rétt á sér. Síðdegis • þennan dag efnir| Kjartan til blaðamannafundar í1 Alþingishúsinu. Tilefnið: Að til- kynna, að þingflokkur Alþýðu- flokksins hafi samþykkt að leggja fram tillögu um vantraust á ríkis- stjórnina. Kjartan segir, að hann ætli að halda áfram viðræðum við ríkisstjórnina. „Skilyrðin sem ég setti verða ekki slitin í sundur og þeim hefur ekki verið fullnægt. Vantraustið er ein aðferðin til þess að knýja á um að ríkisstjórn- in gefi tafarlaust svar.“ (Mbl. 12. nóv.) 12. nóvember 1982 Gunnar segir: „Ég geri ráð fyrir viðræðufundi með formanni Al- þýðuflokksins eftir fáeina daga ... Hún (vantrauststillagan, innsk. Mbl.) verður felld og þá er það um leið traustsyfirlýsing Alþingis til ríkisstjórnarinnar, svo ég vona að þetta verði okkur allt til trausts og halds." (Mbl. 12. nóv.) Og Gunnar segir einnig, að það fari fengið neina tilkynningu um það frá Alþýðuflokknum eða formanni hans um að viðræðum sé slitið og á meðan hún kemur ekki til mín, þá geng ég ekki út frá því sem vísu. Það er enginn fótur fyrir því að ég hafi slitið viðræðum við Al- þýðuflokkinn ... Við höfum geng- ið út frá því að þessar viðræður haldi áfram, hitt er svo annað mál, hvort Kjartan Jóhannsson ákveður að draga sig til baka út úr þessum viðræðum ..." (Mbl. 16. nóv.) Og Steingrímur segir eftir flokksþing framsóknarmanna: „Afstaða okkar til ríkisstjórnar- innar er óbreytt. Við teljum hins vegar að það eigi að ganga til kosninga eins fljótt og hægt er. Áður eigum við að reyna til hlítar að ná samstöðu á Alþingi um af- greiðslu mikilvægustu mála. Rík- isstjórnin á að halda sínu striki og spila eftir eyranu. Ef stjórnar- andstaðan ætlar að gera Alþingi óstarfhæft, þá á að rjúfa þing strax og boða til kosninga í janúar eða febrúar." (Þjóðviljinn 16. nóv.) 17. nóvember 1982 Kjartan segir: „Mér finnst þetta einfalt bragð hjá Gunnari Thor- oddsen. Ég sagði þetta (að viðræð- um Alþýðuflokksins og ríkis- stjórnarinnar væri slitið, innsk. Mbl.) á opinberum vettvangi og það getur ekki verið skýrara. Ég er ekki gefinn fyrir brögð. Mér finnst við þurfa á öðru að halda nú heldur en einhverjum kúnstum." (Mbl. 17. nóv.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.