Morgunblaðið - 21.11.1982, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982
29
um ólöglega vopnabaráttu í
Vestur-Evrópu. Sellurnar hafa
staðið fyrir tugum minni aðgerða,
aðallega minniháttar sprengju-
tilræðum gegn bandarískum her-
stöðvum og íbúðasvæðum.
Félögunum í Byltingarsellunum
er þannig lýst að þeir séu venju-
legt og snyrtilegt fólk sem vinni
frá 9—5. Enginn félagi úr samtök-
unum hefur fundizt þrátt fyrir
ítarlega leit og margar handtökur
sem hafa farið fram þegar efnt
hefur verið til mótmælaaðgerða,
t.d. gegn kjarnorkuverum og
stækkun flugvallarins við Frank-
furt.
Byltingarsellurnar hafa eitt
morð á samvizkunni: víg efna-
hagsráðherra Hessen, Heinz-
Herbert Karry, en það var „slys“,
þar sem ætlunin var sú að skjóta
hann í fæturna til að vara við
byggingu kjarnorkustöðva í fylk-
inu. Þótt Byltingarsellurnar
standi fyrir vopnaárásum eru þær
ekki neðanjarðarhreyfing og þær
eru ekki í slagtogi með hópum,
sem þær fá pólitískan stuðning frá
og geta notað til þess að afla ný-
liða.
FLÓKIÐ ÁSTAND
RAF er aftur á móti neðanjarð-
arhreyfing og einnig svokölluð „2.
júní hreyfing", og þær stóðu báðar
að morðunum á Ponto, Buback,
Schleyer, yfirdómaranum í Vest-
ur-Berlín, Giinter von Drenk-
mann, og auk þess mörgum
lögreglumönnum og vörðum.
Ástandið v.erður hins vegar
flóknara með degi hverjum. Við
rannsóknina vinna yfirvöld út frá
þeirri forsendu, sem þau gefa sér,
að í kunningjahópi Byltingarsell-
anna séu 300 manns, en þeir séu
ekki allir virkir og innbyrðis sam-
band þeirra sé lítið og þeir frétti
hverjir um aðra með því að lesa
blaðafréttir um aðgerðir og yfir-
lýsingar.
Almenningur hefur að sjálf-
sögðu megnustu óbeit á öllum
hryðjuverkum og jafnvel vinstri-
sinnar vilja ekki láta bendla sig
við hryðjuverkastarfsemi. Yfir-
leitt segjast þeir hafna hryðju-
verkastarfsemi og einræðisskoð-
unum hryðjuverkamanna, þeim er
ekki stætt á öðru.
Vinstrisinnar höfðu ekki samúð
með Schleyer, þar sem hann var
gamall nazisti, en eins og sagði í
umdeildri grein eftir svokallaða
„borgarindíána" í Göttingen eftir
morðið á Buback, segjast þeir ekki
viðurkenna kenningu Maos for-
manns um að „valdið spretti fram
úr byssuhlaupinu".
GLEYMDIR
Stuðningsmenn RAF reyna þó
að halda áfram baráttunni.
Hryðjuverkamenn, sem kalla sig
„pólitíska fanga", fara öðru hverju
í hungurverkfall til þess að mót-
mæla aðbúnaðinum í fangelsinu
og stuðningsmenn þeirra utan
múranna láta þá til sín heyra.
Mannréttindasamtökin Amn-
esty International segja raunar að
aðbúnaðurinn sé óviðunandi og
vera má að óvild yfirvalda í garð
hatrammra andstæðinga kerfisins
færist ósjálfrátt yfir á þá hryðju-
verkamenn, sem eru í fangelsi og
geta ekki borið hönd fyrir höfuð
sér. Aðeins þegar yfirvöldum tekst
að góma einhvern þeirra örfáu
hryðjuverkamanna, sem enn leika
lausum hala, muna menn eftir því
að þeir éru til.
Ný kynslóð herskás fólks er
komin til sögunnar í Vestur-
Þýzkalandi og hefur fundið upp á
nýjum aðferðum í stöðugri bar-
áttu við lögregluna, m.a. með því
að leggja undir sig hús í Vestur-
Berlín.
En mikill meirihluti ungra
Vestur-Þjóðverja, sem eru
óánægðir með stjórnmálaástand-
ið, hafnar mati Ulrike Meinhof á
atburði þeim, sem hleypti hryðju-
verkaskriðunni af stað, bruna í
stórverzlun í Frankfurt 2. apríl
1968. Þá sagði hún:
„Framfaraþáttur íkveikju í
stórverzlun felst ekki í eyðingu
vörunnar, heldur í glæpnum sjálf-
um.“
PRÓFKJÖR
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
28.-29. 11. 1982
SKRIFSTOFA STUÐNINGSMANNA
PÉTURS SIGURÐSSONAR
SKIPHOLTI 31, GÖTUHÆÐ
(Vestan viö Tónabíó)
VERÐUR OPIN KL. 12 - 23 ALLA DAGA.
SÍMAR: 25217 OG 25292
Prófkjör Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík
28. og 29.
nóvember 1982
Stuðningsmenn
mínir hafa vinnu-
aðstöðu að Brekku-
gerði 28, vegna und-
irbúnings fyrir
væntanlegt prófkjör.
Opið daglega frá kl.
14.00 til 22.30.
Sími 38770
Björg Einarsdóttir
Þaðfáallir
rétta útkomu með
OMIC
Omic reiknivélarnar okkar eru landsfrægar
fyrir gæði og frábæra endingu. Þær eru líka afburða
þægilegar og einfaldar í meðförum og leysa með sóma allar
reikningsþrautir, sem fyrir þær eru lagðar. Við eigum
ávallt fyrirliggjandi nokkrar gerðir af Omic.
Hringið eða skrifið og fáið upplýsinga-
bækling sendan. • Reiknaðu með Omic.
v»i
SKRIFST OFUVELAR H.F. |
7.^—Hverfisgötu 33
s,m' 20560
Sænsku aðventuljósin
kominafiw
kr. 549.- kr. 529.
Mjög vönduó
aðventuljós úr viði. Fást í 4 litum.
Sími póstverslunar er 30980
HAGKAUP
Rey kja v í k - Aku reyri