Morgunblaðið - 21.11.1982, Side 36

Morgunblaðið - 21.11.1982, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 Lokakafliim er hámarkið Viðtal við John Le Carré rithöfund John Le Carré hefur enga bók i takinu þessa stundina. — Núna er maður í því að sýna sig og sjá aðra, — segir hann. Um daginn sat hann fyrir framan hljóðnema og las bók sína Smileys People inn á snældu. Daginn áður hafði hann haldið fyrir- lestur við National Film Teatre, og daginn þar áður var hann viðstaddur er starfsmenn BBC lögðu síðustu hönd á upptöku sjónvarpsþátta eftir bókinni Smileys People. Verkið er í 6 þáttum og áætlað var að hefja sýn- ingu þeirra í septemberlok. En á meðan sumarleyfi standa yfir i brezkum skólum dveljst John le Carré ásamt Jane eiginkonu sinni og syni þeirra Nico, sem er 9 ára að aldri, í húsi fjölskyldunnar á Corn- wallskaga. Húsið stendur hátt og sér þaðan vítt yfir strandlengjuna. Þar hefur rithöfundurinn vinnustofu og þar tekur hann á móti gestum og gangandi og hefur auk þess mikið samneyti við sveitunga sína. Hann stundar líkamsrækt og iðkar skotæf- ingar með Nico. Hann borðar hollan og kjarnmikinn mat. Það sem hann tekur sér fyrir hendur er yfirleitt dálítið sérstætt og þaulhugsað. Þótt andlit hans sé rúnum rist, er hann hreystin upp- máluð og lítur út eins og kvik- myndaleikari í stöðugri þjálfun. Rautt hár hans er farið að grána, en miklar augabrúnir slúta yfir hlýlegum augum hans. Grannar hans kalla hann stundum Bleik, en hann lýsti því eitt sinn yfir við þá eftir miklar rökræður, að hann vildi fremur fá Rússa til Cornwall heldur en Trident-eldflaugar. Hann gerði mikið veður út af leið- angri, sem fór um héraðið til að kanna neyzluvatn, og taldi að hann hefði óhreint mjöl í pokan- um. John le Carré spyr menn oft spjörunum úr um geysimikla fjar- skiptastöð þarna í grenndinni. Hnýsni er mjög áberandi þáttur í fari hans. Hann segir, að þessi árátta eigi rót sína að rekja til umbrotasamra æskuára og telur að bernsku sinni hafi á margan hátt^vipað til bernsku hins kunna njósnara Kim Philby. „Móðir mín fór að heiman, þeg- ar ég var 6 ára gamall og ég sá hana ekki aftur, fyrr en ég var kominn yfir tvítugt. Fjölskylda föður míns var strangtrúuð og til- heyrði meþodistakirkjunni, og hann hafði sagt skilið við hana til að brjóta sér braut til fjár og frægðar. En allt gekk á afturfót- unum og gjaldþrot vofði stöðugt yfir. A tímabili stóðum við pabbi og bróðir minn í stöðugum flutn- ingum, því að pabbi gat ekki stað- ið í skilum með afborganir á til- settum tímum. Okkur lærðist fljótt að koma ár okkar fyrir borð með svikum og svindli bæði í skóla og annars staðar." Faðir hans er nú látinn. Hann gekk í skóla í Sherbourne og stundaöi háskólanám í Berne. Síðan fór hann til Oxford og vinir hans þar fullvissuðu hann um, að hann hefði ekki hugmynd um, í hvorn fótinn hann ætti að stíga. Þá hóf hann kennslu við Eton, gekk svo í utanríkisþjónustuna og um svipað leyti fór hann að skrifa. „Eg gerði mér grein fyrir því, að í mér bjó mikil sköpunarkraftur. Þegar ég gekk í utanríkisþjónust- una og þurfti að vera á stöðugum ferðalögum til og frá London, fór ég að krota í stílabækur á löngum lestarferðum. Þannig varð mitt fyrsta verk til. Ég sýndi Collins- bókaútgáfunni það, en hún hafn- aði því. Þá fór ég til Gollancz og þeir keyptu útgáfuréttinn." Nafnið John Le Carré varð til, er hann gekk í utanríkisþjónustuna. Áður hét hann David John Moore Cornwell. Hann er ekki alveg viss um, hvers vegna hann vildi þessa nafnbreytingu, og þegar menn ganga hart að honum með spurn- ingar, svarar hann út í hött. Fyrsta bók hans kom út árið 1961 og var njósnasaga, Call for the Dead. Næsta bók hans hét A Murder of Quality og fjallaði um dularfullt morð i einkaskóla. Hann starfaði fyrir utanríkis- þjónustuna í Bonn, og síðan varð hann ræðismaður í Hamborg, og þar nýtti hann hverja stund til að skrifa. „Ég hafði beðið endurskoð- andann minn að gera mér viðvart, þegar ég ætti 20.000 sterlingspund á banka. Á þessum árum voru 20.000 pund stórfé. Maður gat keypt sér ágætt hús í London fyrir 8.000. Skömmu eftir að bókin mín, The Spy Who Came In From The Cold kom út, lét hann mig vita, að markinu væri náð. Þá hætti ég að messa yfir Þjóðverjum um Efna- hagsbandalag Evrópu og hafa yfir kórrétt það sem stjórnmálamenn- irnir í London sögðu. Síðan hef ég ekki þurft að hafa áhyggjur af peningum." Njósnasaga eftir John le Carré jók mjög hróður hans og fyrir bragðið komst hann í samband við útgefendur Grahams Green í Vestur-Þýzkalandi. Það leiddi svo til þess, að Green tók hinn unga ^ ; '• f@> t * f jintöd at a /Jettý down the shore,^ cjf fcc '-W /} <A- j m• a fortyfoot aotor-launch • Hotel awaiting demolitlon. The i, one o£ thœn was smashed, another wap repaired with Scotch tape. A W-the end oí the jetty, he realisecl oin >Ibb öwiiiiSgr: . & ^ *** or&j had slipped her moorings at'HÖ'é' Itclrn""and' ifted twelve feet out to sea, which was probably tbe. longest journey she would ever make. The cabin doors . v were closed, their windows témm curtained. There was saall-boat, —--------------— . *if you want^him, call him,.' the old man V* \ mt* f-a «- •*** • “ r \ hís eateel agmtm* the wator, -hwh vmSm '' \ ' w/X f\. : V . Jfe X JSSááVSf ffli'ippod. . called softly, then fflöre loudly, but inside the atrsri called ’Otto'. He •-> n • • a . . . .. WmfJw ‘ .......I rithöfund, sem aðeins var 32ja ára gamall, undir sinn verndarvæng. Þeir sátu að sumbli klukkustund- um saman, sögðu hvor öðrum sög- ur þindarlaust, en minntust aldrei orði á ritstörf sín. En þegar le Carré skrifaði bók um Kim Philby njósnara og tók óvægna afstöðu gegn svikaeðli hans lét Graham Green vináttu þeirra lönd og leið. í viðtali við vikuritið Time sagði hann, að maðurinn, sem hann þekkti aðeins af dulnefndi á dul- nefni ofan hefði ekki getað skrifað þetta. Carré varð niðurbrotinn og næstu árin urðu miklir fáleikar með þeim. Le Carré tók svo fyrsta skrefið til sátta, er hann sendi Green afmæliskveðju eitt sinn og Creen tók i útrétta hönd hans. Eitt ár dvaldist le Carré í Vín- arborg, en hann hefur að öðru leyti verið óslitið í Bretlandi, þrátt fyrir „refsiskattana“ sem hann þarf að greiða. „Hér vil ég vera vegna þess að ég vil ekki losna úr tengslum við það, sem ég er að skrifa um, fólkið og málið. Ekki gæti ég hugsað sér að hola mér niður einhvers staðar í Suður- Frakklandi til dæmis. Maður yrði þá ekki lengur í snertingu við þjóð sína og tungu. Ég myndi sakna óumræðilega allra þeirra blæ- brigða, sem maður heyrir í dag- legu máli hér í Cornwall og víðar. Nú, það er heldur ekki hægt að skattleggja nema 60% af tekjum manns, og endurskoðandinn getur yfirleitt komið því niður í 50%, þannig að það væri ekkert skárra að vera í Bandaríkjunum að þessu leyti.“ Við upphaf 7. áratugarins lék lánið við le Carré. Hann hlaut við- urkenningu fyrir skrif sín og þrjár skáldsögur hans voru kvikmynd- aðar. En svo reyndi hann að fara nýjar leiðir. Hann skrifaði bók, sem var öðrum þræði frásögn af sambandi hans við annan rithöf- und og eiginkonu hans. Bókin hér The Naive and Sentimental Lover og kom út árið 1971. En hún hlaut dræmar viðtökur, og le Carré tel- ur, að það hafi verið sér mikil gæfa. „í rauninni var það stórkostlegt, því að fyrir vikið fór ég að skrifa Blindskák (Tinker, Tailor, Soldier, Spy) en það veitti mér sterka vígstöðu, sem ég stöðugt naut góðs af. Þetta bjargaði mér frá því að skrifa fyrir gagnrýnendur." Og þarna varð til andhetjan George Smiley, smávaxinn, þybbinn og með gleraugu — óborganleg per- sóna. Og með aðstoð Sir Alec Guinn- es, sem fór með hlutverk Smiley í þáttum BBC-sjónvarpsins varð þessi persóna eins konar þjóð- hetja, þótt ólíkar væri öðrum slík- um — klaufalegur og kokkálaður eftirlaunaþegi. Le Carré hefur reynt að láta hann róa en án árangurs. — Ég reyndi að skrifa Blindskák án þess að Smiley kæmi þar við sögu,“ segir hann. „I fyrstu vonaði ég að í rás óskyídra at- burða myndu lesendur reyna að varpa fram spurningum en það gekk ekki. Ég varð að fá Smiley til að taka þá við hönd sér, spyrja spurninganna fyrir þá og leysa fyrir þá ráðgátuna." Það orð leikur á, að fyrirmyndin af Smiley sé Maurice Oldfield fyrrum yfirmaður í brezku leyni- þjónustunni. John le Carré vill taka skýrt fram, að svo sé ekki. „Smiley var fullskapaður frá minni hendi áður en ég hafði nokkru sinni séð Oldfield," segir hann. Hitt er svo annað mál, að Sir Alec spurði höfund Smiley að þvi, hvernig slíkur maður myndi vera í klæðaburði, er hann var að búa sig undir hlutverkið. Lé Carré sagði þá við hann; „Þú verður eig- inlega að hitta Maurice 01dfield,„ og svo fóru þeir þrír saman út að borða í Chelsea. Vel má vera, að George Smiley hafði runnið sitt skeið. Le Carré hefur afhent útgáfufyrirtækinu Hodder og Stoughton handrit af síðustu þók sinni. The Little Drummer Girl, sem á að koma út í febrúar á næsta ári, og vettvang- urinn er óravegu frá Smiley og viðfangsefnum hans. „Smiley var orðinn mér til trafala," segir hann. „Gamall, þunglyndur maður með þreytulegt augnaráð setur rithöfundi ýmsar skorður. Það er ekki þar með sagt, að ég muni aldrei skrifa um hann aftur. Kannski gæti ég skrifað um hann á fyrri árum ævinnar, en mig langar ekkert til þess. Kannski sný ég mér að honum aftur. Þegar árin færast yfir mig. Kannski skrifa ég þá nokkrar smásögur um hann. Hver veit?“ Le Carré tekur daginn snemma. „Það er ekkert betra en að fara á fætur um fimmleytið og vinna til klukkan átta. Þá fyrst borðar maður morgunmat. Það er eins og að þjófstarta deginum." Honum verður mest úr verki á heimili sínu í Hampstead. Samt fellur honum ekki við London. Hann un- ir sér bezt í húsinu sínu í Corn- wall, þar sem friður og kyrrð ríkir, en þar nýtur hann hvíldar og hressingar. Hann vélritar ekki, heldur skrifar allt með bláu bleki og leiðréttir síðan með rauðu. Síð- an vélritar konan hans handritið, sem hann les svo yfir aftur, krotar í, strikar út og leiðréttir. Hann segir engum frá efnis- þræði verka sinna fyrirfram og hlítir engum fyrirmælum frá út- gefendum. Hann vill heldur ekki ræða við konuna sína um verk þau, sem hann er með í smiðum. „Ég hugsa að þetta sé eins hjá öll- um. Langmesta vinnan er fólgin í fyrstu köflunum, — fyrstu blað- siðunni, en hlutirnir ganga hægt fyrir sig, mjakast áfram. Um miðbik bókarinnar fer allt af stað, og svo eykst hraðinn stig af stigi. Frá upphafi hef ég allgóða hug- mynd um, hvað um er að vera og hvar fiskur liggur undir steini, en mér er ekki alltaf ljóst, hvernig leiðin þangað liggur. Það er æsileg fullnæging að skrifa lokakaflann." Hann er mjög nákvæmur í vinnubrögðum og byggir ákaflega mikið á reynslu sinni frá Þýzka-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.