Morgunblaðið - 21.11.1982, Page 37

Morgunblaðið - 21.11.1982, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 37 Iandsárunum. Hann þekkti marga innviði utanríkisþjónustunnar vegna fyrri starfa sinna, en þver- tekur fyrir að hafa nokkru sinni verið njósnari. Hann hefur kynnt sér staðhætti víða vegna bóka sinna. Hann ferðaðist mikið um Suðaustur-Asíu, er bók hans The Honourable Schoolboy var í smíð- um, og hann fór víða um Mið- Austurlönd vegna siðustu bókar sinnar, The Little Drummer girl. Orðfæri hans í njósnasögunum er að sumu leyti eigin tilbúningur en að öðru leyti ekki. Moldvarpa var sovézkt duhiefni, áður en hann kom því á framfæri. Hann skrifar óvenjulega skýr og lifandi samtök og það stafar m.a. af því, að hann hefur frábæra athyglis- og eftir- hermugáfu. Þegar hann skrifar samtöl hefur hann hvert orð yfir upphátt, áður en hann skrifar það niður. Le Carré hefur skipulagt fram- tíð sína eins gaumgæfilega og er hann leggur drög að nýjum sögu- þræði. Nýjasta bók hans gerist í Mið-Austurlöndum og fjallar um heróín, og þar fer hann inn á nýj- ar slóðir. Af sinni alkunnu ná- kvæmni hefur hann reiknað út, að hann eigi aðeins eftir að skrifa 10 bækur, ef hann gerir ráð fyrir að vinna tvö til þrjú ár að hverri þeirra. Ekki er þó þar með sagt, að hann muni ekki beina huga sínum að öðrum viðfangsefnum. Er hann vann að síðustu bók sinni fór hann m.a. til ísraels og Líbanon og hann skrifaði hatramma fordæmingu í The Observer vegna innrásar ísra- elsmanna. Hann hefur líka ein- dregnar skoðanir á innanlands- málum. Hann er mjög ánægður með þær viðtökur, sem Blindskák hlaut, ekki sízt þar sem hann telur að verkið hafi leitt almenningi fyrir sjónir sitthvað sem ekki er daglegt brauð í njósnasögum, þ.e. bellibrögð hinna fáu útvöldu, sem halda öllum þráðum njósnakerfis- ins í hendi sér. Að þessu leyti sé Blindskák ólík verkum, er fjalli um háþróðaða njósnastarfsemi. Það má teljast furðuleg tilviljun, að flett var ofan af njósnaranum Blunt um svipað leyti og verkið kom út. Le Carré er sannfærður um, að víða sé pottur brotinn í æðstu stjórn fyrirtækja og stofn- ana í Bretlandi. Hann kætist mjög, þegar flett er ofan af þeim, sem valdið hafa. Brezka kerfið er eitur í hans beinum. Eigi að síður er hann mikill föðurlandsvinur og trúr utanríkisþjónustunni. Hann segir að allar bækur sinar um brezku leyniþjónustuna vitni um nákvæmni hennar í störfum. Á hinn bóginn má ólíklegt teljast, að hann verði sæmdur orðu eða hon- um hlotnist önnur ámóta viður- kenning. Hann hefur alltaf kosið Verka- mannaflokkinn og hefur horn í síðu íhaldsmanna. Samt viður- kennir hann núna, að hann viti ekki sitt rjúkandi ráð í pólitíkinni. „Það er varla til nokkur Verka- mannaflokkur lengur til að greiða atkvæði, og aldrei skal ég kjósa sósíaldemókratana. Ekkert trió er mér fjær skapi að styðja en Roy Jenkins, David Owen og Shirley Williams. Það gæti jafnvel svo farið, að ég kysi frú Thatcher, ef hún segði eitthvað sértakt kvöldið fyrir kosningar ... forusta hennar er jafnvel skárri en engin for- usta.“ En skriftirnar eru samt að verða yndi hans og ástríða. í við- horfi sínu til ritlauna minnir hann einna helzt á þjálfaðan pókerspil- ara, en útgefendur keppast um að lokka hann til sín á svipaðan hátt og veiðimenn reyna að egna fyrir vænan silung. Þeim er svo mikið í mun að fá að gefa út bækur hans, að þeir yfirbjóða hver annan, þótt það kunni að hafa í för með sér alvarlegar afleiðingar síðar. Aðal- atriðið er að gera samning, er fær- ir útgefanda það mikinn hagnað að hann telji það þess virði að bjóða vel, þegar næsta handrit liggur fyrir. Le Carré notar rit- launin til að svala bílaástríðu sinni. Fyrir söluna á handriti að The Little Drummer Girl keypti hann sér Volkswagen GTI. — NICHOLAS WAPSHOTT Leikfélag Akureyrar með sýn- ingu á Atómstöðinni í Þjóð- leikhúsinu á þriðjudaginn Á þriðjudagskvöldið leggur Leikfélag Akureyrar undir sig Þjóðleikhúsið og breytir því í Atómstöð a la Bríet Héðinsdóttir. En aðeins þetta eina kvöld. „Því miður var ekki hægt að hafa fleiri sýningar," sagði Sveinn Einarsson, þjóðleikhús- stjóri. „Það þurfti talsverðar tilfæringar, bæði af hálfu Leik- félags Akureyrar og Þjóðleik- hússins til að gera þessa einu sýningu mögulega. En það er virkilega gaman að þetta skuli þó hafa tekist." „Mey skal að morgni lofa,“ skaut Bríet inn í, „það er ekki að vita nema einhverjir verði veðurtepptir fyrir norðan." Þetta var daginn eftir óveðrið mikla, svo svartsýni Bríetar var e.t.v. skiljanleg. Atómstöðin eftir Halldór Laxness, í leikgerð Bríetar Héðinsdóttur, er fyrsta verk- efni Leikfélags Akureyrar á þessu starfsári. Hefuí leikritið verið sýnt 16 sinnum fyrir norðan, og var fullt hús á öllum sýningum, nema þeirri síðustu, „enda geisað þá óveður hið mesta," sagði Bríet. Ekki eru Á myndinni sjist tveir *f 16 leikend- um i Atómstöðinni i hhitverkum sín- um. Þad eru Kjartan Bjargmunds- son, sem leikur feimnu lögguna, og Guðbjörg Thoroddsen, sem leikur Uglu. fyrirhugaðar fleiri sýningar á verkinu á Akureyri, og er und- irbúningur þegar í fullum gangi fyrir næsta verk leikfé- lagsins, sem er barnaleikrit eftir Signýju Pálsdóttur, og heitir Siggi var úti. 5P00P PÓS7GIRÓ FRAKKLAND Áætlunarflugið til Amsterdam, bílaleigubíll eða framhaldsflug til Zurich, opnar ótal leiðir til sjálfstæðra skíðaferða. Þú ferð á eigin vegum, með fjölskyldunni eða í góðum kunningjahópi, velur úr hundruðum gististaða í fimm löndum og kaupir flug, gistingu og e.t.v. bílaleigubíl að auki á hagstæðu heildarverði hjá Arnarflugi. Um leið ertu frjáls í skíðabrekkunum, óháður fyrirfram ákveðinni hópferðadagskrá. Lengd ferðarinnar er frjáls, gistinætur í stórborgunum sjálfsagður viðauki og tilvalið er jafnvel að heimsækja ólík skíðasvæði í sömu ferðinni. Pú hefur þetta einfaldlega eins og þér hentar best. Á söluskrifstofu Arnarflugs eru veittar allar nánari upplýsingar og þar fást bæklingar með öllum upplýsingum um áfanga- og gististaði. Með vali á þeim finnurðu heppilegasta staðinn fyrir þína fjárhagsáætlun og færð að sjálfsögðu alla aðstoð við skipulagningu í kaupbæti! Aukið s^/ífesvigrúm með Arnarflugi. Flugfélag með ferskan blæ ARNÁRFLUG Lágmúla 7, sími 84477

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.