Morgunblaðið - 21.11.1982, Page 38

Morgunblaðið - 21.11.1982, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 Breskur námsmaður, 22 ára, með áhuga m.a. á ljósmyndun og íþróttum: Chris Studman, 2 Purwell Lane, Hitchin, Hertforshire SG4 ONE, England. Nítján ára hollenskur piltur óskar eftir bréfasambandi við íslenskar stúlkur: Peter Kreemers, Boven Boukul 38, 6071 AC Swalmen, Nederland. Tveggja barna 32 ára hollensk húsmóðir óskar eftir pennavinum: Ria Sarneel, v.Wassenaerstraat 33, 2461 R.A.Langeraar, Nederland. Japönsk kona, 23 ára, með áhuga á íþróttum, fjallaklifri, söng, ferða- lögum, Iistum o.fl.: Yoshiko Machiyama, 40 Shimoyagiri-cho, Matudo-shi, Chiba-ken, 271 Japan. Tvítugur þýskur sagnfræðistúdent óskar eftir pennavinum. Ferðaðist um Island í þrjár vikur í fyrra og hreifst mjög af landinu. Skrifar á ensku auk þýzku: Hans-Dieter Bienert, Justinus-Kerner-Strasse 37, D-7157 Murrhardt/Wurtt., W-Germany. ítalskur karlmaður, 24 ára, skrif- ar á ensku og óskar eftir bréfa- sambandi við 18—23 ára gamlar stúlkur. Hefur mörg áhugamál: Marco Caruso, Via Costella 9, 57100 Livorno, Italy. Sextán ára japönsk skólastúlka með iþróttaáhuga: Ritsuko Nukumizu, 2045-1 Suzawa Omi-mach, Nishikubiki-gun, Niigata 949-03, Japan. Tvítugur franskur læknanemi skrifar á ensku og óskar eftir bréf- asambandi við 18—20 stúlkur eða pilta. Hefur margvísleg áhugamál: Eric Filiol, Res.Grancanal Bat.B, 54 quai de Jemmapes, 75010 Paris, France. Átján ára stúlka frá Norður-Sví- þjóð óskar að skrifast á við 18—20 ára gamlar stúlkur eða stráka. Segist hafa áhuga á öllum mögu- legum hlutum: Annika Maki, Brunnsgatan 13A, S-95200 Kalix, Sverige. Þrítugur Japani með tónlistar- áhuga: Kiyofumi Nakajima, 10 Aucuti Tatunokuti, Nomi Isikawa, 923-12 Japan. Tékkneskur karlmaður, 34 ára, langar til að skrifast á við íslend- inga. Safnar nælum með merkjum íþróttafélaga, einnig póstkortum og frímerkjum. Skrifar á ensku og segir að ef sendar séu nælur, verði bréfin að vera í ábyrgð: Zdenek Kucera, Marxova 624, 278 01 Kralupy n/Vlt. II., okr. Melník, Checkoslovakia. FYRRVERANDI STARFSMAÐUR KGB SEGIR FRÁ VALDARÁNI SOVÉTRÍKJANNA í AFGANISTAN VLADIMIR Kazichkin, 35 ára gamall og fyrrverandi starfsmað- ur KGB (sovézku leynilögregl- unnar) dvelur nú í Bretlandi. Hann hefur gefið einstaka lýs- ingu frá sjónarhóli KGB af af- skiptum Sovétríkjanna í Afgan- istan, sem eru ef til vill grófasti blctturinn á ferli Leonid Brezhn- evs, hins látna leiðtoga Sovétríkj- anna. Kazichkin flýði til Bret- lands í júní sl. Hann starfaði leynilega í fímm ár í íran. Hann var í hinni rammleynilegu deild “Directorate S“, sem hefur yfir- stjórn yfír „ólöglegum“ njósnur- um, það er þeim, sem fæddir eru í Sovétríkjunum. í einkaviðtali við bandaríska tímaritið Time í síðustu viku sagði Kazichkin m.a.: 1) Brezhnev hafnaði sjálfur endurteknum ráðleggingum frá KGB undir stjórn Yuri Andro- povs þess efnis, að Afganistan yrði ekki gert að sovézku lepp- ríki. 2) Forseti Afganistan, Babrak Karmal, var njósnari KGB um langt skeið. 3) Fyrir- rennari Karmals var myrtur í höll sinni af sérþjálfaðri sovézkri KGB-morðsveit. Hér á eftir fer frásögn Kazichkins: Reyndari foringjar innan KGB kippa sér sjaldnast upp vegna þess, sem gerist í stjórnmálum. En margir þeirra eru æfir yfir því, sem gerzt hefur í Afganistan. Þannig er haft eftir einum KGB-foringja fyrir skemmstu: Afganistan er okkar Víet Nam. Sjáið bara, hvað hefur gerzt. Við byrjuðum með því einu að styðja við bakið á vinsam- legri ríkisstjórn. Smám saman urð- um við flæktari og flæktari í það, sem var að gerast í landinu. Síðan fórum við að ráða gerðum stjórn- valdanna, stundum með örvænt- ingarfullum ráðum og núna? Nú erum við fastir í styrjöld, þar sem við getum ekki sigrað né heldur farið burt. Þetta er hlægilegt.' Þetta er vandræðaástand. Og það er Brezhnev og stuðningsmönnum hans að kenna, að við höfum ratað í þessi vandræði. Þessi KGB-maður hefur sagt það réttilega, sem margir, er komið hafa við atburði í Afganistan hvort sem þeir starfa innan KGB, hersins eöa annars staðar, hugsa, en hafa ekki þorað að tjá sig um. Þetta byrjaði allt mjög sakleys- islega. í hálfa öld höfðu aldrei komið upp nein verulega erfið vandamál milli okkar og konung- anna í Afganistan. Síðan gerðist það á árinu 1973, að (Múhameð) Daoud kollvarpaði konungsveldinu með atbeina vinstri sinna. Enda þótt foringjar vinstri sinna hefðu verið þjálfaðir í Sovétríkjunum, þá höfðum við ekki hvatt þá til þess að hrinda konunginum af stóli. Engu að síður þá voru viðbrögðin í Sov- étríkjunum á þann veg, að þessi breyting væri til góðs. Samskipti okkar við Daoud voru aldrei virkilega góð. Hann hafði hug á að halda opnum tengslum sínum við Vesturlönd. Hann hafði engan hug á að verða bundinn okkur. Þeir okkar, sem kunnugir voru Afganistan, voru sannfærðir um, að þetta ætti ekki eftir að hafa nein vandræði í för með sér. Afg- anir myndu drepa hverjir aðra kynslóð eftir kynslóð án tillits til þess, hvort þeir kölluðu sig komm- únista. Okkur fannst það óhugsandi, að Afganistan gæti orðið Sovétríkjun- um að nokkru gagni, hvað þá held- ur „kommúnismanum". Við sögðum hver við annan: Látum Afgani eiga sig. Við getum aldrei stjórnað þeim né heldur geta aðrir gert það. Við fengum forsmekkinn af því, sem átti eftir að koma, á árinu 1978. Daoud snerist gegn kommúnistum, sem höfðu hjálpað honum að kom- ast til valda. Hann lét sér ekki nægja að handtaka forystumenn afganska kommúnistaflokksins, heldur hafði hann jafnframt í hyggju að taka þá af lífi. Kommún- istar í Afganistan voru nú í skelfi- legri aðstöðu. Þeir leituðu aðstoðar hjá sovézka sendiráðinu í Kabúl. Stjórnin í Moskvu varð fljót til þess að staðfesta það, að við mynd- um styðja fyrirhugaða byltingu gegn Daoud. Rétt áður en það var orðið um seinan, fyrirskipuðu for- ystumenn kommúnista valdaránið satt að segja úr fangelsisklefum sínum. Valdaránið tókst og Afganistan varð kommúnistaríki. En Brezhnev og aðstoðarmenn hans ýttu til hlið- ar hinum mikilvægu aðvörunum, sem komu frá KGB og afleiðing- arnar voru skelfilegar. I fyrstu hélt stjórnmálanefndin, að nú væri tækifæri til þess að ná verulegum árangri í Afganistan. Ekkert skyldi til sparað, hvorki fé né menn. Tengsl Afganistans við Vesturlönd skyldu smám saman rofin. Afgan- istan yrði ekki bara nágrannaríki, sem við hefðum góð samskipti við líkt og Finnland heldur einnig meðlimur „kommúnistafjölskyld- unnar". KGB reyndi með lagni að út- skýra, að stórfelldir erfiðleikar væru samfara valdatöku kommún- ista í Afganistan. Við bentum á, að þrátt fyrir öll manndráp Daouds, þá hefðu ættflokkarnir í Afganist- an fallist á hann sem sinn löglega stjórnanda. Ríkisstjórn, sem væri yfirlýst kommúnistastjórn, myndi vekja fjandskap, sem síðan ætti eftir að beinast gegn Sovétríkjun- um. Það var greinilega afar þýð- ingarmikið, að Afganistan fengi réttan stjórnanda. Valið stóð á milli Karmals, sem var leiðtogi svonefnds Parcham-arms innan afganska kommúnistaflokksins og (Noor Múhameð) Tarakis, sem var foringi fyrir svonefndum Khalq- armi. Við vissum heilmikið um báða mennina. í skýrslum þeim, sem við sömdum fyrir forsætis- nefndina, gerðum við nákvæma grein fyrir styrkleika þeirra og veikleika. í álitsgerð okkar kom það fram, að val á Taraki væri hin hræði- legasta skyssa. Hann var hreinn villimaður í skapi, hafði litla til- finningu fyrir, hvernig leysa skyldi fiókin pólitísk vandamál og myndi auðveldlega láta stjórnast af þeim þorpurum, sem hann hafði allt í kringum sig, en ekki af okkur. Karmal aftur á móti, sögðum við, hefur næman skilning á flóknum stjórnmálum. Þar að auki hefði hann verið KGB-njósnari árum saman og það mátti treysta því, að hann myndi fara að ráðum okkar. Stjórnmálanefndin ákvað að styðja Taraki, vegna þess að Brezhnev sagðist þekkja hann persónulega. Brezhnev kvaðst full- viss um, að Taraki myndi standa sig. En allt fór á annan veg en áformað var strax frá upphafi. Taraki sendi Karmal burt með því að gera hann að sendiherra í Prag. Síðan hófst hann handa um að drepa sem flesta stuðningsmenn Karmals (en margir þeirra voru okkar eigin njósnarar). Brezhnev gerði ekkert til þess að koma í veg fyrir þessi manndráp og Karmal, sem þegar var orðinn óánægður, fylltist nú megnri beizkju gagnvart Sovétríkjunum. En lengi getur vont versnað. Keisaranum í Iran hafði verið steypt af stóli. Fullvíst var, að stefna Tarakis ætti eftir að leiða til víðtækrar uppreisnar múham- eðstrúarmanna í Afganistan. Tar- aki brást við á þann hátt, að hann lét drepa alla þá, sem sýndu honum minnsta mótþróa. I Moskvu reyndu menn að leiða Taraki fyrir sjónir, að með þessu væri hann að bjóða stórfelldum vandræðum heim. Hann ætti ekki að endurtaka þau mistök, sem Stalín hefði framið. Taraki svaraði með því, að í Moskvu skyldu menn ekki skipta sér af því, sem þeim kæmi ekki við. En að því kom, að horfurnar virtust betri. Maður að nafni (Haf- izullah) Amin kom skyndilega fram, án þess að nokkur vissi eig- inlega hvaðan og hann varð aðstoð- armaður Tarakis. Hann var mennt- aður Austurlandamaður, gæddur persónutöfrum. I kyrrþey hófst Amin handa um að ná völdunum frá Taraki. Enn meira máli skipti þó, að hann sannfærði stjórnvöld í Moskvu um, að hann gætrdregið úr þeirri hættu, sem stafaði frá mú- hameðstrúarmönnum. Við hjá KGB höfðum hins vegar frá upp- hafi okkar efasemdir um Amin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.