Morgunblaðið - 21.11.1982, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982
41
Mmti heiður swn Simonmn hafur hiotnmt. Hér lyftir hann gullknettinum
sem hann hlaut ar hann var kosinn Knattspyrnumaður Evrópu árið 1977.
Ævintýrið um litla strákinn frá
Vejle sem vakti heimsathygli fyrir
getu sína í knattspyrnunni, og
varð einn af bestu leikmönnum í
bransanum, skiptist í marga
kafla.
Hann vakti fyrst almenna at-
hygli á Ólympíuleikunum í
Munchen 1972 og þar sá einn besti
þjálfari Evrópu, Hennes Weis-
weiler, Simonsen leika listir sínar
og hvað í honum bjó. Og varla var
Ólympíuleikunum lokið þegar
Weisweiler hafði fengið því fram-
gengt að Simonsen skipti um at-
vinnu. Hyrfi frá starfi sínu sem
lagermaður í Vejle og léki í stað
þess knattspyrnu með Borussia
Mönchengladþach.
Bestur í Evrópu
í sex ár var hann svo hjá liðinu,
þar sem valinn maður var í hverju
rúmi, og þeir urðu Þýskalands-
meistarar, unnu UEFA-bikarinn
og léku síðan til úrslita í Evrópu-
keppni meistaraliða 1977. Þeir
töpuðu þar 3—1 fyrir ensku meist-
urunum Liverpool en fyrir Simon-
sen var leikurinn stórsigur.
Fyrir framan 55.000 áhorfendur
á Ólympíuleikvanginum í Róm og
milljónir sjónvarpsáhorfenda lék
hann einn sinn allra besta leik á
ferlinum og skoraði stórglæsilegt
mark. Mark, sem enn er í minnum
haft í knattspyrnuheiminum.
Sama ár varð hann fyrsti og eini
Daninn sem kjörinn hefur verið
knattspyrnumaður Evrópu. Var
það að sjálfsögðu mikill heiður
fyrir hann, heiður sem skipar hon-
um á bekk með stjörnum eins og
Stanley Matthews, Alfredo Di
Stefano, Bobby Charlton, Johan
Cryuff, Franz Beckenbauer og
Kevin Keegan svo einhverjir séu
nefndir.
Erfitt í upphafi
En þrátt fyrir að hafa náð frá-
bærum árangri hjá „Gladbach"
gekk ekki allt of vel hjá honum í
upphafi. Hann komst ekki í liðið
strax og það var ekki fyrr en eftir
að Weisweiler hætti hjá félaginu
1975 sem hann fór fyrst að sýna
hvað í honum bjó.
Með fyrstu leikjum hans með
aðalliði Borussia voru Evrópuleik-
irnir gegn Vestmannaeyingum og
skoraði hann í báðum þeim leikj-
um og spilaði mjög vel. Eftir þessa
leiki var hann settur út aftur en
stóð þó nær liðinu en áður. Er
þetta var, var Weisweiler enn við
stjórnvölinn hjá liðinu.
Síðan blómstraði Simonsen eftir
að nýr þjálfari hafði tekið við lið-
inu og hann fékk loksins að
spreyta sig fyrir alvöru. Varð
hann fljótlega einn albesti leik-
maður í Bundesligunni. Franz
Beckenbauer var eitt sinn spurður
um álit sitt á Simonsen og svaraði
hann þá: „Það eina sem ég veit um
Simonsen er að ég þekki hvaða
númer er á bakinu á peysunni
hans.“ Simonsen hafði farið frek-
ar illa með „Keisarann" er lið
þeirra mættust, en það var heldur
sjaldgæft að mönnum tækist það.
„E1 Barca“
Stærsta umbreytingin á ferli
Simonsen voru félagaskipti hans
frá „Gladbach" til Barcelona
sumarið 1979. Á mettíma vann
hann hug og hjörtu allra fylg-
ismanna stórklúbbsins. „Simon-
sen, Simonsen," hljómaði á hinum
risastóra Neu Camp-leikvangi
liðsins i hvert skipti sem leikmenn
gengu inn á völlinn.
En hann hefur einnig upplifað
skuggahliðarnar á lífi stórstjörnu
á Spáni, og hefur hann oft fengið
hótanir í síma um að honum yrði
rænt eða gert lífið leitt á einhvern
annan máta. Ekki bætti úr skák
að félaga hans hjá Barcelona,
Quini, var rænt eins og frægt
varð.
„Ég vil leika. Eftir tíu ár á
toppnum fer ég ekki að ljúka ferl-
inum á bekknum," sagði Simonsen
í samtali við danskan blaðamann
fyrir hálfu ári. Þessi orð fengu
fyrst alvarlega merkingu er Jose
Luis Nunez forseti Barcelona sna-
raði um 108.000.000 — eitthundrað
og átta milljónum — á borðið og
keypti Argentínumanninn Diego
Maradona.
Knattspyrnan mikil-
vægari en peningar
Eins og kunnugt er má hvert lið
á Spáni aðeins nota tvo erlenda
leikmenn í leik og það varð úr að
Barcelona tók Bernd Schuster
fram yfir Danann. Það er aðal-
ástæðan fyrir því að Allan Sim-
onsen er dýrasti og hæstlaunaði 2.
deildar leikmaður í veröldinni. En
peningar eru ekki aðalástæðan
fyrir því að hann tók tilboði
Charlton. Efst í huga hans er að
koma til liðsins til að leika
knattspyrnu af sama áhuga og af
sömu gleði og þegar hann var að
byrja í knattspyrnunni.
Forráðamenn Charlton hafa
ekki viljað gefa upp hvað Simon-
sen hefur í tekjur hjá félaginu en
vitað er að það eru engir smáaur-
ar. Ef hann hefði verið áfram hjá
Barcelona hefði hann ekki þurft
að kvarta vegna fjárskorts þótt
hann hefði ekki leikið með. Hann
hefði haft um 3,3 milljónir aðeins
fyrir að æfa með félaginu þar sem
hann var samningsbundinn því.
En hann vildi fá að spila áfram og
yfirgaf því félagið.
Mark Huyler, forseti Charlton,
er aðeins 28 ára og sagður
milljónamæringur. Félagið
greiddi Barcelona 325.000 pund
fyrir Simonsen og borgar það á
þremur árum. „Auðvitað tókum
við mikla áhættu með því að
kaupa Allan, en hver einustu kaup
eru áhætta. Við þurfum að fá
12.000 manns á völlinn til að tapa
ekki á þessu og ég er viss um að
Simonsen mun laða fólk að. Þegar
ég var í Barcelona kom fólk til mín
í hrönnum og sagði: „Ekki taka
Simonsen, taktu heldur Mara-
dona.“ Það er bersýnilegt að hann
er enn vinsælli en Argentinumað-
urinn,“ segir Huyler.
Það hefur að sjálfsögðu vakið
athygli að tveir fyrrverandi
knattspyrnumenn Evrópu skuli nú
leika í 2. deildinni ensku: Kevin
Keegan og nú Simonsen og bíða
menn spenntir eftir viðureign
Newcastle og Charlton á heima-
velli Charlton, The Valley, 4. dag
desembermánaðar.
„Aldrei hafði mér dottið í hug
að ég ætti eftir að leika gegn
Keegan í 2. deild hér í Englandi,"
segir Simonsen. „Hann er góður
vinur minn og frábær leikmaður."
Hann segir að þrátt fyrir mikla
pressu kvíði hann ekki fyrir.
„Knattspyrnumenn eru alltaf und-
ir mikilli pressu og við skulum ek-
ki gleyma að ég er vanur að leika
fyrir framan nærri 100.000 áhorf-
endur á Neu Camp, og þar var
alltaf búist við því að ég stæði mig
vel.“
Eftir að Simonsen æfði fyrst
með sínum nýju félögum í Charl-
ton lýsti framkvæmdastjóri fé-
lagsins, Ken Craggs, yfir mikilli
ánægju með hann.
„Hann er frábær leikmaður og
örugglega enn á meðal þeirra
bestu í heiminum. Hinir leik-
mennirnir hrifust af snilli hans og
framkoma hans er virkilega
skemmtileg."
Ótrúlegt en satt. Allan Simon-
sen hefur gerst leikmaður með
Charlton Athletic — nokkuð sem
menn hefðu eflaust hlegið mikið
að ef einhver hefði sagt það fyrir
skömmu.
Páll P. Pálsson stjórnar Karlskór Reykjavíkur.
Karlakór Reykjavíkur
heldur þrenna tónleika
NÆSTKOMANDI miðvikudag,
(ostudag og laugardag, 24., 26. og
27. nóvember, heldur Karlakór
Reykjavíkur tónleika fyrir styrktar-
félaga sína og gesti í Háskólabíói og
hefjast þeir kl. 19.00 miðvikudag og
föstudag, en kl. 15.00 á laugardag.
Á söngskrá kórsins eru að
vanda íslenzk og erlend lög en í
nokkrum þeirra syngja einsöng
þeir Hilmar Þorleifsson, tenór;
Hjálmar Kjartansson, bassi;
Hreiðar Pálmason, baritón, og
Snorri Þórðarson, baritón. Guð-
rún A. Kristinsdóttir aðstoðar
með píanóleik.
Páll Pampichler Pálsson er
stjórnandi, en hann er nýkominn
frá Vínarborg, þar sem hann
stjórnaði tveimur áskriftartón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar tón-
listarmanna í Wiener-Neustadt. Á
tónleikum þessum voru m.a. flutt
tvö nútímaverk tileinkuð Páli eftir
tónskáldin Werner Schulze
(„Snúningur") og Herbert Zagler
(„Kaleidoskop"). Auk þeirra var
flutt 4. sinfónia Brahms.
Höföar til
„fólks í öllum
starfsgreinum!
Við minnum á
Ein Pálmadóttur
í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
Viö viljum Elínu á þing:
• Vegna beinna kynna hennar af borgar-
búum og málefnum þeirra sem borgar-
fulltrúi um árabil og blaðamaöur á ferö í
tvo áratugi. Hún hefur sýnt aö hún tekur
mannlega á málum.
• Hún hefur hugkvæmni, kjark og dugnað til
aö nýta sína reynslu af málefnum Reykja-
víkur og þekkingu til aö koma málum fram.
• Rétta þarf hlut kvenna í þingliði Sjálfstæö-
isflokksins.
Studningsmenn
Þeir sem eru sama sinnis og vid, hafi samband við okkur í Dugguvogi 10 (Sigurplast)
eftir kl. 5 og um helgina. Símar 35590 og 32330.