Morgunblaðið - 21.11.1982, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 21.11.1982, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 43 hátíðarræðu. Eftir mikla umhugs- un skrifaði ég Páli á Aðalbóli og bað hann taka þetta að sér. En hann neitaði því með öllu og af- dráttarlaust. Páll var frábitinn því að vera í margmenni. Hann var einþykkur í skapi, jafnvel ein- rænn og sérlundaður eða sérvitur eins og sagt er, enda það einn af þeim kostum sem löðuðu mig að manninum. En hann heimsótti alloft ýmsa sveitabæi hér um dal- ina. Hafði ánægju af spjalii við fólk, sem lifði og starfaði í strjál- býlinu. Heimsótti bæina, sem enn voru við lýði i likingu við það er var, þótt fámennara væri nú orðið. Skyldfólk eða kunningja, sem t.d. urðu til við göngur og fjárleitir. En Aðalból gegndi þar miklu hlut- verki. í slikum heimsóknum veitti Páll sér þær dýrmætu stundir, sem aðrir e.t.v sækja frekar í fjöl- menni. Páll var sonur Gísla Helgasonar bónda í Skógargerði. Gísli lést um áramótin 1963—1964. Mér er sagt að þegar Páll hafi fengið fregnina hafi hann að kvöldi þess dags hringt til nágrannabónda, Aðal- steins Jónssonar á Vaðbrekku, en þær tvær jarðir eru í Hrafnkels- dal. Páll segir þá Aðalsteini þær fréttir að nú sé Gísli í Skógargerði hættur að búa. Aðalsteinn verður víst lítið eitt undrandi í bili, hon- um kunnir þeir búskaparhættir að á fengitíma var ekki venja að hverfa frá búskap. En þarna töl- uðust tveir nágrannar við, sem engir skynskiptingar voru og Að- alsteinn mun fljótlega hafa skilið hvað í fréttinni fólst. Þessi frá- sögn má gjama vera til. Gísli í Skógargerði var bóndi, bóndi og rithöfundur, safnaði t.d. miklum þjóðlegum fróðleik. íslenski bónd- inn, sem um aldir skóp og hélt við íslenskri bændamenningu. Fyrir þessu hefir Páll sonur hans gert sér grein og þegar Gísli í Skógar- gerði hætti að búa var hann allur. Og þessir skarpgreindu nágrannar skildu hvor annan og mátu, þótt nýstárlegur væri talsmátinn. Eitt af áhugaefnum Páls, eink- um er leið á ævi hans, var söfnun bóka og blaða, ekki síst þess er fágætt var og átti hann orðið mik- ið safn, sem nú er að mestu geymt á Aðalbóli. Var elja hans og ein- beitni mikil í þessu efni og bera manninum vitni. Kona Páls var Ingunn Einars- dóttir frá Fjallsseli og lifir hún mann sinn. Eg hefi fyrr í þessum minningarorðum látið í það skína að hún hafi verið skörungshús- freyja og enginn veifiskati. Ég hefi kynnst henni alllengi jafn- hliða kynnum okkar Páls og hún vaxið því meir, sem þeim árum hefir fjölgað sem við höfum þekkst. Það var og er engu síður ánægjulegt að koma á þennan innsta dalabæ á Austurlandi og mæta glaðlegu og alúðlegu við- móti húsfreyjunnar. Fyrri bú- skaparár þeirra hjóna voru oft örðugleikum háð, það veit ég án þess að þau hafi á nokkurn hátt tíundað það fyrir mér. Því gleði- legra er það að hafa aðeins hitt fyrir bros og æðruleysi, ánægju yfir lífinu, frelsi dalsins og aust- firsku heiðanna og sigurkennd og öryggi við langan búskap með óumdeilanlegri manndómshetju og stórum barnahóp, sem sæmd er að. Páll og Ingunn giftust árið 1937, séra Sigurjón á Kirkjubæ gaf þau saman. Páll var alinn upp á Krossi hjá Páli móðurbróður sinum, en Ingunn í Fjallsseli í foreldrahús- um. Er ekki löng leið á milli bæj- anna sem báðir eru í Fellahreppi. Þau eignuðust 10 börn. Fyrsta barnið drengur, skírt Grímur, dó aðeins fárra mánaða. Hin níu lifa öll, mannvænlegur hópur í hóflegu orðavali sagt. Þau eru eftir aldri: Dagný, Einar, Páll, Baldur, Ing- unn, Kristrún, Brynhildur, Gísli, Sveinn. Fjögur þeirra búa á Aðal- bóli, Einar og Kristrún með mök- um, Gísli og Sveinn ógiftir. Ing- unn og Brynhildur búa á Akur- eyri. Þrjú eru hér á Mið-Héraðinu. Strjálbýlinu er mikið traust í fjöl- skyldunni á Aðalbóli. Gæfa fylgi þeim öllum og Aðalbóli. 15. nóv. 1982 Jónas Pétursson Hólmlaug Halldórs- dóttir - Minning Fædd 25. janúar 1922 ■■ •• 11 I)áin 13. nóvember 1982 Á morgun verður jarðsungin frá Fossvogskapellu tengdamóðir mín, Hólmlaug Halldórsdóttir, Goðheimum 21, Reykjavík. Hún fæddist að Garðakoti í Hólahreppi, Skagafirði, dóttir hjónanna Ingibjargar Jósefsdótt- ur og Halldórs Gunnlaugssonar. Fyrstu 9 æviárin ólst hún upp hjá foreldrum sínum, en þá veiktist faðir hennar alvarlega og þau hjónin brugðu búi. Börnunum 5 var þá komið fyrir hjá ættingjum, en frá fermingaraldri varð Hólm- laug að sjá fyrir sér sjálf og oft var atlætið misgott þótt ekki væru um það höfð mörg orð. Skólagangan varð aldrei löng í bernsku, en það bætti hún upp með sjálfsnámi á lífsleiðinni. Haustið 1939 rættist þó langþráð- ur draumur og var hún þann vetur við nám í húsmæðraskólanum á ísafirði. Þaðan átti hún góðar minningar. Vorið 1944 hitti hún eftirlifandi mann sinn, Árna Stefánsson hrl., og gengu þau í hjónaband 22. sept- ember 1945. Þau eignuðust 2 börn, Stefán og Guðnýju, bæði búsett í Reykjavík, og einnig ólu þau upp dótturson sinn, Árna, sem enn er við nám, en alls eru barnabörnin 5. Heimili þeirra hjóna ber þess greinilega vott, hversu annt henni var um það. Hún hafði mikið yndi af blómum, kom það bæði fram á heimilinu og þó einkum í sumar- bústað þeirra hjóna í Grímsnesi, þar sem þau höfðu skapað sér sannan unaðsreit. Hvers konar hannyrðir og saumaskapur léku i höndum hennar, saumaði hún t.d. síðustu ár mikið af fallegum brúð- arkjólum og leigði þá út. Ömmu- börnin áttu alltaf vísan samastað hjá henni. Þegar þau komu mátti oft og iðulega sjá þau sitja öll uppi á eldhúsborðinu með vonarglampa í augum, hvort ekki félli nú til ein- hver góður biti og aldrei brást hún vonum þeirra í því sem öðru. Hólmlaugu var gefið að geta glaðst yfir litlu, hún var alltaf ánægð með sig og sitt, leit björt- um augum til framtiðarinnar og óhrædd að takast á við það sem upp kynni að koma. Með Hólm- laugu er horfin góð kona, sem öll- um vildi gott gera og var reiðubú- in að veita hjálp, ef hún vissi hennar einhvers staðar þörf. Fjöl- skyldu sinni, heimili og vinum helgaði hún líf sitt. Kynni okkar hófust þegar ég 16 ára fór að koma á heimilið og var alltaf jafn gott að koma til henn- ar, hvert sem erindið var eða hvenær komið var. Það var ekki ósjaldan, að ég kom eða hringdi til þess að spyrja ráða um ýmsa hluti og alltaf voru svör á reiðum hönd- um, eða mér var hjálpað við það, sem þurfti að gera, hvort sem það var saumaskapur á börnin eða mig, sláturgerð eða svo ótalmargt annað. Ég man sérlega vel eftir því, þegar ég var nýbyrjuð minn búskap, 17 ára. Þá kom tengda- mamma í heimsókn eitt kvöld og rétti mér kleinujárn og sagði: „Jæja, nú ætla ég að kenna þér að baka kleinur." Svona var hún, kom alltaf beint að efninu. Nú líður að jólum og þá eru laufabrauðin ’igsandi, en þau hafði ég aldrei séð, fyrr en ég kom á hennar heimili. Þegar litið er til baka yfir kynni okkar eru svo ótrúlega mörg svipuð atvik sem koma upp í hug- ann. Þegar veikindi hennar bar snögglega að fyrir tæpum tveimur árum fundum við öll glögglega, hve mikinn þátt hún hafði átt í lifi okkar allra. Lengi héldum við í vonina um bata, en síðar kom í ljós, að sú von var borin. Söknuðurinn er sár og eftir stendur skarð, sem aldrei verður fyllt, en ég veit að mín elskulega tengdamóðir er í góðum höndum, þar sem hún er nú komin. Stebba Bladburöarfólk óskast! Austurbær Lindargata 1—29 Lindargata 39—63 Þingholtsstræti Hverfisgata 63—120 Freyjugata 28—49 Úthverfi Klapparás Gnoöarvogur 44—88 Hjallavegur Heiðargeröi 2—124 Þaö er alveg ótrúlegt, hve margir slíta sér út viö erfiðisvinnu í jólamánuðinum. Þvottar, hrein- gerningar og lagfæringar innan- húss eru sannarlega erfiöisvinna, sem margir vildu vera lausir við svona rétt fyrir jólin. Við leggjum til, að þúleysirþennan vanda á þínu heimili með því að mála - já, mála íbúðina með björtum og fallegum Kópal-litum. málninghlf Með Kópal sparast ótrúlega mikið erfiði, og heimilið verðursem nýtt, þegar sjálfur jólaundirbúningur- inn hefst. osfti iilóern nni'i msií amo8 ibf/.'iK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.