Morgunblaðið - 21.11.1982, Page 44

Morgunblaðið - 21.11.1982, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 Sovétmenn sigruðu á eftir- minnilegu Ólympíuskákmóti Skák Margeir Pétursson Ólympíuskákmótinu í Luzern í Sviss lauk cins og vænzt hafði ver- ið fyrirfram með miklum yfir- burðasigri sovézku sveitarinnar. Margar þjóðir börðust hins vegar um annað sætið en það kom óvænt í hluta Tékka sem skutu stiga- hærri sveitum Bandaríkjamanna og Ungverja ref fyrir rass. íslenzka sveitin á mótinu hafnaði í viðun- andi sæti og hlaut hálfum vinningi meira en á Ólympíumótinu á Möltu 1980. En þar sem teflt var eftir Monrad-kerfi fengu sveitirn- ar á mótinu mjög mismunandi harða mótspyrnu og öfugt við á Möltu tókst sveit okkar vart að blanda sér í toppbaráttuna nú. Liðsmenn voru þvi ekki fyllilega ánægðir með niðurstöðuna þegar upp var staðið þó tekist hafi að bjarga i horn með stórsigri yfir Belgíu, 3'/i—Vi í síðustu umferð. Lokastaðan á mótinu varð sem hér segir: 1. Sovétríkin (Karpov, Kasparov, Polugajevsky, Beljavsky, Tal og Jusupov.) 42 Vz v. 2. Tékkóslóvakía (Hort, Smejkal, Ftacnik, Jansa, Plachetka og Ambroz) 36 v. 3. Bandaríkin (Browne, Seiraw- an, Kavalek, Alburt, Christi- ansen og Tarjan) 35V4 v. 4. Júgóslavía 35 v. 5. -6. Ungverjaland og Búlgaría 33'Æ v. 7. Pólland 33 v. 8. -9. Kúba og Danmörk 32V4 v. 10.—14. Argentína, England, Rúmenía, Austurriki og Israel 32 v. 15.—20. Svíþjóð, Filippseyjar, Holland, Kólumbía, V—Þýskaland og Kanada 31 'Æ v. 21. Chile 31 v. 22. -25. ísland, Ástralía, Finn- land og Noregur 30 'k v. 26.-32. Sviss, Spánn, Frakk- land, Indónesía, Wales, Sviss B og írland 30 v. Fílsterk sveit Sovétmanna var ekki í vandræðum með að vinna mótið með keppinautana Karpov og Kasparov á efstu borðum. Að vísu tefldi heimsmeistarinn af miklu öryggi, hlaut 6V4 v. af 8, en engu að síður voru flestallir á því að hinn 19 ára gamli Kasp- arov hefði stolið senunni með 8'A v. af 11. Bæði tefldi hann fleiri skákir og oft á fyrsta borði. Þá þótti mörgum einkennileg til- viljun hversu oft meistarinn ungi þurfti að hafa svart, t.d. tók Karpov sér frí þegar hann átti að máta Viktor Korchnoi með svörtu. Kasparov fékk því tæki- færið í staðinn og nýtti sér það til hins ýtrasta því hann hrein- lega malaði áskorandann fyrr- verandi í skák sem flestir töldu vera þá mest spennandi á mót- inu. Mótið jók því enn hróður Kasparovs og nú telja flestir fullvíst að hann verði næsti áskorandi heimsmeistarans, svo frábærlega vel tefldi pilturinn á Ólympíumótinu. Sú sveit sem líklegust var tal- in til að veita Sovétmönnum keppni, sú ungverska, var langt frá sínu bezta og máttarstólpar hennar, þeir Portisch, Ribli og Sax, voru allir langt frá sínu bezta. Innbyrðis deilur beztu skákmanna Ungverjalands ollu því einnig að Adorjan var ekki með og slíkt hefur ekki góð áhrif á liðsandann. Leiðin var því opin fyrir frískt lið Tékka og sérstaka athygli vakti ungur stórmeistari á þriðja borði, Lubomir Ftacnik, 25 ára, en hann lagði meðal ann- arra Polugajevsky að velli í glæsilegri skák auk þess sem gamalreyndu kempurnar Hort og Smejkal stóðu að vanda fyrir sínu. Árangur einstaklinga í ís- lensku sveitinni varð þannig: (*uðm. Sijjurjónss. 4 v. af 9 44,4% Jón L ÁrnaHon 7 v. af 11 63,6% lleljji ÓlafKHon 5Vi v. af 11 50,0% IMarjjeir Pétursson 8». af 12 66,6% Jóhann lljartarson 5'/i v. af 10 55,0% Ingi K. Jóhannsson '/i v. af 3 16,6% Jón, Margeir og Jóhann áttu allir þokkalegt mót, þó á góðum degi megi gera mun betur. Ingi var æfingarlaus og náði ekki að komast í form, en áður fyrr var hann oft akkeri íslensku ólympíusveitarinnar. Helgi byrj- aði vel en var síðan heillum horfinn og ekki þarf að taka fram að Guðmundur Sigurjóns- son var langt frá sínu bezta og óþekkjanlegur frá því fyrst á þessu ári er honum tókst vel upp á svæðamótinu í Esbjerg og Reykjavíkurskákmótinu. Á fyrri Ólympíumótum hefur oft verið svo að íslenska sveitin hefur öll átt góðan dag, eða þá tapað stórt. Svo var sjaldan nú og vart kom sú umferð að ein- hver okkar tapaði ekki skák. Bezti dagurinn var ómótmælan- lega er við sigruðum Búlgarana 2Ví—IVi, en 1—3 tap fyrir Eng- landi og Vt —3 'k gegn Hollandi voru stórir og bitrir ósigrar sem komu í veg fyrir að við næðum að festa okkur í sessi í toppbar- áttunni. Kvennakeppnin Þótt ekki tefli margar konur hér á landi náði íslenska sveitin einstaklega góðum árangri í Luzern. Það var aðeins fyrir A-Evrópuþjóðunum sem stúlk- urnar hlutu slæma skelli, en jafntefli við England og sigrar yfir Brasilíu, Venezúela, Finn- landi og Kólumbíu eru svo sann- arlega árangur sem fæstir hefðu átt von á. Lokaniðurstaðan í kvennamótinu varð þessi: 1. Sovétríkin (Chiburdanidze, Al- eksandrija, Gaprindashvili og Joseliani) 33 v. af 42 möguleg- um. 2. Rúmenía 30 v. 3. Ungverjaland 26 v. 4. Pólland 25'A v. 5. V-Þýskaland 24 Vi v. Islenska sveitin hlaut 21 v. eða 50% slétt og varð því um miðbik mótsins, en tvö 3—0 töp í röð undir lokin komu í veg fyrir möguleika á hærra sæti. Arangur einstaklinga í ís- lensku kvennasveitinni: Cuólaug l-orsteiiwd. 7V4 ». «f 11 67,3% Otóf iTáinud. 3 v. af 9 33,3% Sigurlaug KriAþjór.sd. 4 v. af 11 36,4% íslaui; Krutiniid. fi'/tv.af II 59,1% Árangur Guðlaugar á fyrsta borði var auðvitað frábær og hún var ekki langt frá því að ná árangri alþjóðlegs meistara kvenna, en tefldi ekki við nægi- lega marga titilhafa. Hins vegar mun hún koma inn á næsta stigalista FIDE fyrir konur á bilinu 2050—2100 stig sem er svipað og flestir alþjóðlegir meistarar kvenna hafa. Hinar stúlkurnar stóðu sig einnig vel þótt mótspyrnan væri hörð og þessi sveit á mikla framtíð fyrir sér á næsta móti. Allir þeir beztu voru mættir Það mátti telja þá af fremstu skákmönnum heims á fingrum annarrar handar sem ekki voru mættir á þetta Ólympíumót og að öllum líkindum var það hið sterkasta frá upphafi vega. Mörg snilldin sá því dagsins ljós og í hverri umferð var tefldur ara- grúi athyglisverðra skáka. Heið- urinn af því að varðveita þær áttu íslendingar að mestu óskiptan því tímaritið Skák, með Jóhann Þóri Jónsson ritstjóra í fararbroddi, sá um útgáfu móts- blaðsins. Utgáfa þess heppnaðist eins og bezt varð á kosið eftir nokkra byrjunarörðugleika, þrátt fyrir að við hrikalegt verk- efni væri að etja þar sem var að birta allar skákirnar strax dag- inn eftir að þær voru tefldar. Þetta heppnaðist Jóhanni og liði hans og gott betur því með skákunum fylgdu oft skýringar þekktra meistara og fróðlegar greinar um skák í hinum ýmsu löndum og fleira. Út komu alls 15 blöð og samtals varð ritið 720 síður að stærð! Hér kemur að lokum ein af skákunum 2500 á mótinu. Hún er af auðmeltara taginu þótt hún sé frá viðureign tveggja stór- meistara: Hvítt Beljavsky (Sovétrikjunum) Svart: Stean (Englandi) Sikileyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — a6, 6. Bg5 - e6, 7. Í4 — Db6. Eitraða peðsafbrigðið, en það þekkja báðir teflendur afar vel. 8. Dd2 - Dxb2, 9. Rb3 — Rbd7, 10. Bd3 — b5, 11. (M) — Rc5? Þó Stean hafi skrifað bók um þetta afbrigði hefur hann samt ruglað illilega saman afbrigðum. 10. — Rc5!? kom til greina, en nú varð svartur að leika 11. — Bb7. 12. Rxc5 —dxc5, 13. Bxf6 — gxf6, 14. Habl — I)a3 15. Rxb5! og svartur gafst upp, því eftir 15. — axb5,16. Bxb5+ — Ke7,17. Hfdl er öllu lokið. Sinfóníutónleikar Tónlist Jón Ásgeirsson Efnisskrá: Wagner: Hátíðarmars úr Tann- háuser. Haydn: Sinfónía nr. 100 Dvorák: Konsert fyrir selló, op. 104 Einleikari: Gisela Depkat. Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquill- a*. Hátíðarmarsinn úr Tann- háuser er eitt af glansnúmer- unum úr þessari glæsilegu óperu. Wagner átti íöluverðu hasli með söngvarana, sem frumfluttu verkið, en sumir áheyrendur töldu efni óper- unnar vera dýrðarsöng um kaþólskuna og öðrum þótti það jafnvel klámfengið og allt of háspennt tilfinningalega. Á annarri sýningu verksins var nærri tómt hús en með þriðju sýningu tók fólk við sér og rúmum áratug seinna hafði óperan verið sýnd í þrettán borgum í Þýskalandi. I París var óperan sýnd þrisvar sinn- um. Félagar í vinsælu hesta- félagi, sem voru vanir að koma seint til óperunnar, misstu af ballettþættinum, sem Wagner samdi sérstaklega fyrir París- aruppfærsluna og lét leika í upphafi óperunnar. Þegar far- ið var fram á það við Wagner að ballettinn væri leikinn aft- ur, neitaði hann. Fyrir það efndi þessi hestaklúbbur til óláta, sem náðu hámarki á þriðju sýningu. Annað verkið á efnisskránni var hundraðasta sinfónía Haydns, ein af Lundúnasin- fóníunum, sem fékk nafnið „Military", vegna sérstæðrar notkunar slaghljóðfæra í öðr- um þætti og stuttu lúðrakalli fyrir trompett. Að öðru leyti er sinfónían „syngjandi" Haydn og var hún skemmti- Gisela Depkat lega og vel leikin undir stjórn Jacquillat. Síðasta verkið var svo eitt af meistaraverkunum eftir Dvorák, Konsert fyrir selló og hljómsveit , í h-moll, ópus 104. Gisela Depkat lék á sellóið með miklum glæsibrag. Depakt er frábær cellóleikari og flutti konsertinn án þess að gera minnstu tilraun til að troða fram „virtúósískri" tækni sinni. Margt er fallegt í þessum konsert og oft vitnað til hans um notkun hljóm- sveitarinnar, t.d. hornsóló- anna í fyrsta þætti, sem var mjög fallega flutt af Ognibene; 1. hornista sveitarinnar. I heild var hljómsveitin góð og samstilling hennar við einleik- arann með fáum undantekn- ingum mjög góð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.