Morgunblaðið - 21.11.1982, Síða 46

Morgunblaðið - 21.11.1982, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 Reflex og Sokka- bandið áfram Það voru hljómaveitirnar Reflex úr Reykjavík og Sokkabandið frá ieafirði, sem tryggðu eér þátttðku- rétt í lokakeppninni í „Mús- íktílraunum ’82“, sem SATT og Tónabær gangaet fyrir, er fyrsta kvöldiö var haldið á fimmtudag. Rúmlega 150 manns greiddu aögangseyri. Fjórar. sveitir mættu til leiks. Tvær áðurgreindar, auk Svart/hvíts draums úr Kópa- vogi og Vébandsins frá Kefla- vík mættu til leiks. Þegar upp var staðið eftir atkvæöa- greiðslu reyndust þær tvær fyrsttöldu hlutskarpastar. Reflex hlaut 1.276 atkvæöi, Sokkabandið 1.035, Svart/- hvítur draumur 905 og Vé- bandið 736. Vegna þrengsla veröur nánari frásögn af kvöldinu aö bíöa næstu Járnsíðu. Af hverju eru plötur svo dyrar? Af hverju eru plötur jafn óheyrílega dýrar og raun ber vitni? Er nema von aö hinn almenni plötukaupandi spyrji. Járnsíðan fékk plötuinn- flytjanda til þess aö útskýra fyrir lesendum hvernig plötu- verðiö vindur upp á sig með hraöa Ijóssins upp í þá upp- hæð, sem þaö nær áöur en platan kemst í hendur kaup- enda. Innkaupsverð á hljómplöt- um til landsins er mismun- andi, en ekki er óalgengt aö þær kosti á bilinu 2—2,50 sterlingspund. Gengi punds- ins er í dag rúmar 26 krónur. Með kostnaöi er ekki óeðli- legt að pundiö sé í 30 krónum áöur en álagningarskriöan hefst. Ofan á þessar 30 krónur leggst fyrst 75% tollur. Viö þaö er pundið komiö í kr. 52,50. Þar ofan á kemur síö- an 40% vörugjald og viö það hoppar pundiö í kr. 73,50 og ekki eru ósköpin nema hálfn- uð. Þvi næst kemur heildsölu- álagningin, sem er venjulega 25%. Þar meö er pundið kom- iö í 92 krónur. Verslanir leggja 40% ofan á og þar meö er talan komin í 129 krónur. Ofan á þetta bætist síöan 23,5% söluskattur. Útkoman er því um 160 krónur. Á leiö sinni frá innkaupa- landinu og til kaupandans hérlendis hefur pundiö sex- faldast! Yröi tollur og vörugjald fellt niöur af piötum eins og lagt hefur veriö til, en viö dræmar undirtektir, myndi verð á hljómplötum lækka stórlega. Lætur nærri aö pundiö lækk- aöi um heilar 100 krónur. Ætti hljómplötuverö því aö vera á bilinu 150—170 krónur. Verð á plötu í dag er tvöföld síöari talan. Fimm plötur á leiö frá Gramminu Nú á næstunni eru væntanleg- ar fimm plötur og kassettur frá hljómplötuútgáfunni Gramminu. Þótt Grammiö hafi e.t.v. ekki veriö hugsaö þannig í byrjun hefur þróunin orðið sú, aö útgáfan er oröin eins konar málsvari „smæl- ingjanna", ef svo má aö oröi kom- ast, og hefur fyrir vikiö skapaö sér umtalsveröa sérstööu í saman- buröi t.d. viö Steina og Fálkann. Þær plötur og kassettur, sem Grammiö sendir frá sér á næstunni eru plötur Áskels Mássonar, ásláttarleikara, Vonbrigöa, Sveinbjörns Beinteinssonar, alls- Sveinbjörn Beinteinsson allsherj- argoði. herjargoöa, Þorsteins Magnússon- ar, „Steina í Eik“, og loks kassetta þeirra Peter Hammill og Graham Smith. Á plötu Áskels eru þrjú verk er nefnast Klarinettukonsert, Bláa Ijósiö og Sýn. Sér til aðstoöar hef- ur Áskell hóp úrvalshljóöfæraleik- ara og söngvara. Hjálmar H. Ragn- arsson ritar ítarlega um hvert verk fyrir sig í bæklingi, sem fylgir með plötunni. Hljómsveitina Vonbrigöi þarf lík- ast til ekki aö kynna, a.m.k. ekki fyrir yngri kynslóöinní. Plata Vonbrigöadrengjanna hefur aö geyma fjögur lög: Sjálfsmorð, Eitthvaö annaö, Börnin þín og Skítseyði. Plata Sveinbjörns Beinteinsson- ar, allherjargoöa, er eins og ein- hverja rennir e.t.v. í grun rímna- söngur viö Ijóö úr Eddukvæöum, Völuspá, Hávamálum og Sigur- drífamálum. Siguröur A. Magnús- son fylgir Sveinbirni úr hlaði. „Líf“ nefnist plata Þorsteins. Hann hefur samiö bæði tónlist og texta og sér aö auki um allan hljóðfæraleik. Þorsteinn er einn þeirra, sem ekki þarf aö kynna. Plata þessi sýnir nýjar og óvæntar hliðar á Þorsteini. Loks er þaö kassettan þeirra Hammill og Smith. Þeir léku áöur saman í Van Der Graaf Genera- tion, en Smith er landslýö kunnur fyrir afbragös fiöluleik. Þessi upp- taka var gerö í „Roxy“ í Los Angel- es 1979. Ásmundur Jónsson, höfuðpaurinn (Gramminu. „Þetta er orðin öfugþróun“ - segir Ási Jóns í Gramminu „Uppruna Grammains má aig- inlega rekja til fyrstu plötu Purrksins í apríl í fyrra. Síöan hef- ur þetta smám saman undið upp á síg,“ sagöi Ásmundur Jónsson, forsprakki hljómplötuútgáfunnar Grammsins, er Járnsíöan leit inn hjá henni í vikunni. Grammiö flutti um síöustu helgi af Vesturgötunni upp á Hverfis- götu 50 og hefur nú aðsetur í „kjailaranum hjá Báru“. Þar hefur Grammiö sett upp verslun, þar sem boöiö veröur upp á allar plöt- ur útgáfunnar, auk allra almennra platna og sömuleiöis verður reynt aö kynna tónlist, sem til þessa hef- ur átt erfitt uppdráttar hórlendis eða veriö lítiö kynnt. „Upphaflega voru viö mest meö plötur frá Rough Trade og pönk, en markaöurinn hefur breyst mikið á einu ári. Tónlistin er ekki næst- um því eins hrá og var. Kannski hefur fólk misskiliö Grammiö og litiö á útgáfuna, sem einhvers kon- ar pönk- eöa nýbylgjusjoppu. Þar er alröng mynd af starfsemi okkar, eins og best sést á þeím plötum sem viö erum nú aö gefa út,“ sagöi Ásmundur. „Það er talsvert um þaö, aö yngri hljómsveitir hafi leitaö til okkar og viljaö aö viö gæfum út plötur þeirra, en viö höfum oröiö aö vísa mörgum frá. Markaöurinn leyfir einfaldlega ekki alla þá út- gáfu, sem við vildum gjarnan standa aö. Þaö hefur sýnt sig áþreifanlega. „Commercial“- bransinn er á góöri leið meö aö ganga af allrl sjálfstaaöri sköpun dauðri. Fólk er oröiö miklu vél- rænna á tónlist en áöur var og viröist ekki eins opiö. Þaö hefur eölilega sitt aö segja fyrir þá, sem eru aö reyna aö brjótast út úr sölu- tónlistarskurninni. Þetta er óttaleg öfugþróun. Sumir vilja kalla þessa tónlist, sem ekki flokkast undir þennan „commerciar-ramma, tónlist fyrir fólk meö sérþarfir. Mér finnst rangt aö setja dæmiö þannig upp. Svo viö tökum nærtækt dæmi eru sjónvarp og útvarp fremur treg á aö veita þessari tónlist tækifæri. j Skonrok(k)i er t.d. ekkert nema erlent efni, sem f raun er bara auglýsingar stórfyrirtækjanna. Samkeppnisgrundvöllurinn er í raun ekki fyrir hendi. Þú segir nokkuö. Af hverju stend ég í þessu og viö hér í Gramminu? Ætli þaö sé ekki vegna þess aö mér finnst þörf á aö halda þessu áfram. Fyrirtækiö hefur skakklappast áfram án kaup- greiöslna og ég hef lifað á annarri vinnu utan þessarar. Maöur heldur samt alltaf í vonina um aö geta lifaö af þessu.* nýjar plötur . . . nýjar plötur . . . nýjar plötur . . . nýjar plötur . . . nýjar plötur Don Henley/I Can’t Stand Still: Örninn flýgur enn hátt þótt Ernirnir séu allir ★ ★ ★ ★ Vafalítið er sólóplata Don Hen- leys, söngvara og trommara Eagles, öllum aðdáendum sveit- arinnar kærkomin sending. Nokkuð er nú um liðið frá því Eagles lagði upp laupana, en plata Henleys kemur eins og frelsandi engill fyrir þá, sem teknir voru aö örvænta. Eins og kannski var viö aö búast er tónlistin hjá Henley óskaploga lík því sem var hjá Eagles. Þaö er helst aö heldur meira „fútt" só í sumum laganna hjá Henley en venja var til hjá Eagles. Sér til aöstoöar hefur Henley fengið stóran hluta hinnar rómuðu „session-klíku" Vesturstrandar Bandaríkjanna. Má þar nefna menn á borö viö Bob Glaub/bassi, Danny Kortchmar/gítar, Toto- piltana Jeff Porcaro/trommur, Steve Porcaro og Steve Lukather. Auk þeirra koma menn eins og Lee Sklar, Joe Walsh, Warren Zeavon, Waddy Watchel og Bob Seger eitthvaö viö sögu. Þaö er því e.t.v. ekki að undra þótt útkoman sé býsna góö. Þótt Henley fari að mörgu leyti troönar slóöir er ekki meö góöu móti hægt aö segja, aö hann breyti ekki út af þeirri hefö sem rikti orö- iö hjá Eagles. Flutningur allra lag- anna á plötunni er meö miklum ágætum og sum þeirra eru skrambi góð. Platan hefst á lagi, „I Can’t Stand Still", sem er reyndar svaka- lega keimlíkt því, sem Eagles voru aö gera áöur en þeir hættu, en f kjölfariö kemur hörkugott iag Danny Kortchmars, „You Better Hang Up“. Líkast til er þaö besta lag þessarar skífu. „Noþody’s Business" er ennfremur gott stuö- lag en á undan því er lagleg ball- aöa, „Long Way Home“. Önnur hliöin hefur aö geyma fjögur prýöisgóð lög, en þaö flmmta, „Lilah”, er svona heldur of rólegt fyrir stórgrýtta eyrnabotna mína. Slíkt eru þó smámunir einir á þessari plötu, sem er um langflest ákaflega heilsteypt og vel unnin. Hún geymir blöndu af þekktum vinnubrögöum og nýrri hugmynd- um. Utkoman er afbragösgóö.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.