Morgunblaðið - 21.11.1982, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982
47
SATT undirbýr maraþontónleika:
Ætlunin aö hnekkja 321
klukkustundar heimsmeti
Maraþontónleikar eru líkast
til eitt af því síðasta sem
mönnum kemur til hugar þegar
rœtt er um lifandi tónlist. Þetta
er þó eitt af því, sem SATT er
alvarlega að velta fyrir sér nú á
næstu dögum.
Aö sögn Jóhanns G. Jó-
hannssonar, sem leggur nótt viö
dag í starfi sínu fyrir SATT, er
ætlunin aö reyna aö hefja þessa
maraþontónleika einhvern tíma
fyrir mánaöamótin. Myndu þeir
fara fram í Tónabæ ef af yröi og
taldi Jóhann sjalfur aö yfirgnæf-
andi líkur væru á því aö þetta
tækist.
Þegar rætt er um Maraþon-
tónleika er ekki von að fólk átti
sig almennilega á því hvaö hér er
á ferö. Til j>ess aö gefa lesendum
gleggrí mynd af því hvaö í vænd-
um er sakar ekki aö geta þess,
aö hér er verið aö hugsa í dögum
og jafnvel vikum, en ekki klukku-
stundum.
Oþinbert heimsmet er 321
klukkustund (13 sólarhringar og
9 klukkustundir). Er þaö frá árinu
1968 og í eigu einhverra þýskra
hljómlistarmanna. Ætlunin er aö
hnekkja þessu heimsmeti.
Aö sögn Jóhanns er ætlunin
meö jjessu fyrst og fremst sú, aö
vekja athygli á lifandi tónlist í
landinu og þá starfsemi SATT
um leiö. Fyrirkomulagiö er hugs-
aö þannig, aö fólk kaupi sér einu
sinni miða, sem gildir á meöan
tónleikarnir standa yfir. Hvort af
þessu verður ætti aö skýrast í
vikunni, en eins og Jóhann segir
sjálfur telur hann 80% líkur á aö
af þessu uppátæki veröi.
Islenskt efni
í Skonrok(k)i?
Eins og poppunnendur hafa
vafalítið tekið aftir hefur íslenskt
efni lítið eða ekkert veríð kynnt í
Skonrok(k)i.
Nú mun hugsanlega veröa ein-
hver breyting þar á. Viöraaður
standa nú yfir viö sjónvarpiö um
aö þaö kosti upptökur á nokkrum
lögum, sem siöan yröu væntanlega
sýnd meö erlendum lögum í þætt-
inum.
Þá hefur og komið til greina, aö
útgefendur kosti gerö slíkra upp-
taka og sjónvarpiö fái sýningarrétt
á þeim.
Fersk mynd af hinni
„nýju“ Whitesnake
Eins og poppunnendur lands-
ins hafa vafalítið rekið augun (er
Járnsíöan í flestum tilvikum fyrst
með allar stórfréttir úr poppinu.
Viö skýröum frá þvi á sunnudag,
aö liösskipan Whitesnake væri nú
endanleg. Nú bætum viö hlns veg-
ar um betur og birtum mynd af
hinni nýskipuöu sveit.
Á meöfylgjandi mynd eru frá
vinstri: Cozy Powell, Mel Galley,
Mick Moody, Jon Lord og Colin
Hodgklnson. Forsprakkinn David
Coverdale stendur fyrir framan fé-
laga sína.
nýjar plötur . . . nýjar plötur . . .
Mike Rutherford Acting Very Strange:
Gamla Genesis-
brýnið í stuði
★ ★ ★ ★
Kannski er það sú staðreynd, aö
ég hef aldrei hlustað mikið a
Genesis, sem gerir það að verk-
um, að sólóplata Mike Rutherf-
ord, eins kumpánanna úr þeirri
sveit, lætur jafn vel í mínum eyr-
um og raun ber vitni. Hver veit?
Svo mikiö er hins vegar víst, að
Rutherford er maður að mínu
skapi.
Um þessa plötu pilts er þaö
helst aö segja, aö hún er vissulega
undir talsveröum áhrifum frá Gen-
esis, en heildaryfirbragöiö er mun
léttara og aögengilegra en veriö
hefur hjá Genesis.
Skiptir þar verulegu máli, aö
mati umsjónarmanns Járnsíöunn-
ar, aö Steward Copeland, tromm-
ari í Police, lemur húöir á plötunni
og trommuleikur hans gerir þaö aö
verkum, aö platan nær aö sverja
sig út úr hinum heföbundna Gen-
esis-ramma.
E.t.v kann sumum rótgrónum
aödáendum Genesis aö finnast
Rutherford á köflum full léttvægur,
eins og t.d. í laginu „Couldn’t get
arrested”, en þeir eru vafalítiö
fleiri, sem fagna því aö kappinn
breytir út af slóðinni heföbundnu.
„Acting very strange” er um
flest afbragösplata. Falli hún ekki
gömlum og rótgrónum Genesis-
aödáendum í geö er næsta víst aö
hún vinnur sér hylli hinna, sem
aldrei hlustuöu á þá hljómsveit.
Svo var a.m.k. með undirritaðan.
- SSv.
Bringuhárin dregin
fram í dagsljósið
- enn ein ný hljómsveit skýtur upp koliinum
„Ný“ plata
Zeppelin í
næstu viku
Aö sögn breska poppblaösins
Sounds er í næstu viku væntan-
leg plata með Led Zeppelin.
Hljómsveitin gaf út sína sfðustu
plötu fyrir þremur árum, en nú á
að gefa út lög, sem ekki hafa
komið út með sveitinni áður.
Gamla reglan um að hagnast á
dauöum hljómsveitum er því enn
í fullu gildi.
Á þessari „nýju“ plötu Led
Zeppelin veröa átta lög, þar á
meöal lagiö „I cant quit you baby“,
sem kom út á fyrstu plötu Zeppel-
in. Hér mun þaö veröa í breyttri
útgáfu. Þá er eitt lagiö byggt upp á
trommusólói John heitins Bonham
og síöan má nefna lag Ben E. King,
„We're gonna groove".
Robert Ptant, fyrrum söngvari
Zeppelin.
Meðlimir Bringuháranna geifla etg.
Sífellt skýtur eitthvaö nýtt upp
kollinum. Hljómsveitir eru eitt af
því sem fæðast og deyja daglega
og fyrir nokkrum dögum fréttum
við af fæðingu einnar.
Hún ber þaö sérkennilega nafn
Bringuhárin. Aö sögn talsmanns
hljómsveitarinnar, sem tók þaö
skýrt fram aö hann væri alls ekki
meðlimur, ætlar sveitin fyrst um
sinn aö helga sig dansleikjatónlist.
Hefur hún m.a. tvívegis komiö
fram í Villta tryllta Villa og tvívegis
á framhaldsskóladansleikjum.
Hljómsveitin Bringuhárin er
skipuö þeim Hafþóri Hafsteinssyni,
sem leikur á trommur, Hannesi
Hilmarssyni, sem leikur á bassa,
Jóni Ólafssyni, sem leikur á feröa-
hljómborö og syngur, Siguröi
Kristinssyni, sem leikur á strengja-
tól og syngur og Stefáni Hjörleifs-
syni, sem leikur á gítar og syngur.
Tveir þessara ágætu manna
hafa eitthvað látiö aö sér kveöa á
tónlistarsviöinu áöur. Jón hefur
t.d. veriö í danshljómsveit Birgis
Gunnlaugssonar og leikiö á Sögu í
tvö sumur. Þá er Stefán annar aö-
standenda hljómplötunnar „Morg-
undagurinn", sem út kom fyrir
nokkru.
í lokin vildi talsmaöurinn geta
þess, aö Stefán væri alls ekki
nefmæltur eins og fram kom í einu
dagblaöanna, heldur væri þetta
visst stílbragö hjá honum í söng.
Þá skaut talsmaöurinn því aö
Járnsíöunní, aö ef guö lofaöi yröi
stefnan tekin á frumsamiö efni
uppúr áramótum.
Start-avoitin or hoiðursgestur á öðru tilraunakvöldi SATT.
Þegar búið að raða hljóm-
sveitunum á kvöld nr. 2
„Músíktilraunir ’82“, sem SATT
gengst fyrir í samvinnu við Tóna-
bæ viröast ætla að slá heldur bet-
ur í gegn.
Fyrsta kvöldiö var haldiö i Tóna-
bæ á fimmtudaginn og komu þar
fram hljómsveitirnar Vébandið,
Sokkabandiö, Svart/hvítur draum-
ur og Reflex, auk heiöursgestanna
i Bara-flokknum.
Nú hefur þegar veriö raöaö
niöur á annaö kvöldiö, sem haldiö
veröur í Tónabæ nk. fimmtu-
dagskvöld og hefst kl. 20. Koma
þar fram hljómsveitirnar Te fyrir
tvo úr Kópavogi, Strados frá
Stykkishólmi, Lótus frá Selfossi og
Meinvillingarnir úr Reykjavík.
Heiöursgestur kvöldsins veröur
hljómsveitin Start meö Pétur
Kristjánsson í broddi fylkingar.
Mun hún leika frá kl. 20-21 og síö-
an aftur eftir aö hinar hafa lokiö
sér af.