Morgunblaðið - 21.11.1982, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 21.11.1982, Qupperneq 48
_^\uglýsinga- síminn er 2 24 80 ^^^skriftar- síminn er 830 33 SUNNUDAGUR 21. NÓVEMBER 1982 Hél -Hm ■- wKl mwá Morf(unbl»ðið/Kristján Einarsson. Þessi vetrarmynd er tekin í Kópavogi í vikunni. í Bláfjöllum voru skfðalyfturnar hins vegar teknar í notkun í gær, þó aðeins stólalyftan, þar sem ekki var nægilegur snjór i byrjendalyftunum. Er Morgunblaðsmenn voru á ferð yfir Bláfjöllum í gær, var þar þoka yfir og því ekki skyggni til loftmyndatöku. örkustofnun: Óvíst um áframhaldandi atvinnu 30 starfsmanna Verðbólgu- hraðinn er nú um 103% SEÐLABANKI íslands hefur reikn- að út lánskjaravísitölu fyrir desem- bermánuð og reyndist hún vera 471 stig eða 27 stigum hærri en hún var fyrir nóvembermánuð. Hækkun visi- tölunnar milli mánaða er því 6,08%. Noti menn þessa hækkun láns- kjaravísitölunnar sem mæli- kvarða á verðbólguhraðann nú og þessi prósenta, 6,08, reiknuð yfir á 12 mánaða tímabili kemur í ljós að verðbólguhraðinn nú samkvæmt þessari hækkun er 103,07%. Seyðisfjörður: E1 Grillo kannaður Seyðiafirði, 20. nóvember. ÞESSA dagana eru hér menn frá Landhelgisgæzlunni og varnar- liðinu að kortleggja og kanna kafbátagirðingar og duflasvæöi í firðinum. Eins og kunnugt er voru lögð tundurdufl í fjörðinn af Bretum á stríðsárunum til að koma í veg fyrir kafbátaferðir Þjóðverja. Þá hafa þessir aðilar einnig lýst áhuga á aö kafa niður að olíuskipinu El Grillo, sem sökk hér í firðinum á stríðsárun um. Það eru þrír menn frá varn- arliðinu, sem vinna að köfun hér við könnun á svæðinu og hafa þeir notið aðstoðar inn- fæddra við leit að kafbátagirð- ingunum. Nú um helgina var svo ætlunin að fara niður að E1 Grillo, en talið er að í skip- inu séu um 9.000 lestir af olíu og talsvert af sprengjum. Skipið varð fyrir árás þýzkrar orustuflugvélar hér á stríðs- árunum og sökk eftir hana. Áður en skipið sökk náðist nokkurt magn af olíu úr því og einnig nokkru síðar, er kafað var niður af því. E1 Grillo ligg- ur á um 50 metra dýpi út af Háubökkum á réttum kili. Er það ætlunin að könnunum þessum ljúki á mánudag og síðan stendur til að hefja duflaslæðingu síðar í vetur. — Fréttarrtari Björn Theodórsson: „Veit ekki ann- að en þetta flug haldi áfram“ „ÞAÐ ER rétt að samningurinn við Air India var framlengdur til 1. des- ember, en það er ekkert ákveðið með frekara framhald á þessari stundu og heldur ekki að við hættum þessu flugi,“ sagði Björn Theodórs- son framkvæmdastjóri markaðssv- iðs Flugleiða í samtali við Mbl. í gær, en um mánaðamótin renna út samningar um flug Flugleiða fyrir Air India. „Á þessari stundu veit ég reynd- ar ekki annað en að áframhald verði á þessu flugi. Okkur sýnist að það muni líklega halda áfram. Við höfum lýst áhuga á því að halda þessu flugi áfram," sagði Björn Theodórsson. UM þrjátíu starfsmönnum Orku- stofnunar hefur verið tilkynnt að alls óvíst sé um áframhaldandi starf þeirra hjá stofnuninni vegna fjár- skorts. Svo geti því farið að það verði að láta af störfum nú öðru hvoru megin við áramótin. Hér er ekki um fastráðiö starfsfólk að ræða, heldur fólk sem hefur verið lausráðið eða með skammtímasamn- inga, að því er Jakob Björnsson orkumálastjóri sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær. „Þetta eru ekki uppsagnir," sagði Jakob, „heldur er hér við störf talsvert af fólki með skammtímasamninga, sumar- vinnu frá síðasta sumri og fólk sem hefur verið að vinna við ýms- ar eftirhreytur eftir sumarið. Mik- ið af þessum samningum renna út nú í kringum áramótin, allt frá þessum tíma og fram í janúar og febrúar. Mörgu af þessu fólki hef- ur verið sagt að það sé alls óvíst um framhaldið þegar þvi verki ljúki. En hér er ekki um uppsagnir að ræða þar sem þetta fólk var aldrei ráðið nema til þessa tíma. Við erum að gera fólkinu aðvart, ef til vill betur en gert hefur verið áður, um hvernig horfurnar eru, og það er gert vegna þess að við erum í heldur meiri óvissu en stundum áður um fjármagn á næsta ári, auk þess sem samdrátt- ur er hjá þeim aðilum sem við vinnum fyrir, á jarðhitasviðinu til dæmis og við Blöndu." Jakob Björnsson var spurður hvort fyrir dyrum stæðu uppsagn- ir fastráðinna starfsmanna. Hann sagði: „Nei, ég vona nú ekki, ég vil nú ekki segja að það hafi komið til tals. Við erum enn það bjartsýnir að trúa því að við fáum nægilegt fjármagn svo ekki komi til þess.“ Sovéskir skipverj- ar sakaðir um stuld FJORIR skipverjar af sovéska skipinu Potsoin voru á fimmtudag kærðir til Rannsóknarlögreglu ríkisins fyrir grun á stuld á veski úr leikfangaverzl- un á Laugavegi 1. Mennirnir voru teknir og færðir til yfirheyrslu en neit- uðu staðfastlega að hafa tekið veskið. í þvi voru skilríki og 50 krónur af peningum. Ekkert fannst á mönnunum og var þeim sleppt. Málið var sent rík- issaksóknara, sem úrskurðaði að frekari aðgerða væri ekki þörf. Fyr- irhugað var að Potsoin sigldi frá Reykjavík með morgninum. Fræðsluskrifstofa Vestfjarða: Fjárreiður rannsakaðar RÍKISENDURSKOÐUN hefur farið þess á leit við Rannsóknarlögreglu ríkisins að fjárreiður fræðsluskrif- stofu Vestfjarða verði rannsakaðar með hugsanlegt skjalafals og fjár- drátt i huga. Unnið er að rannsókn málsins og vildi Erla Jónsdóttir deildar- stjóri ekkert tjá sig um málið. Kanínubú á Akureyri BR/EÐURNIR Guðmundur og Gunn- ar Blöndal hafa nú fengið leyfi og lóð fyrir byggingu kanínubús á Akureyri. Er það ætlun þeirra að vera með ang- órakanínur og nýta af þeim ullina. Að sögn Gunnars er lóðin á Hrappsstaðagrundum við ytri mörk bæjarins. Ekki er ætlunin að byggja strax, heldur leigja húsnæði til að byrja með og sjá hver framvindan verður. Gunnar sagði, að þeir von- uðust til að fá fyrstu kanínurnar í janúar, fremur fáar, en þær tímguð- ust mjög hratt, þannig að ekki væru vankantar á því að fjölga þeim eftir því, sem þyrfti. Þeir ætluðu sem sagt að byrja smátt og ef vel gengi væri hægur vandi að auka við sig og hefðu þeir fullan hug á því. Fóður fyrir kanínurnar væri fremur ódýrt, mestmegnis hey og nokkuð af inn- fluttu fóðri. Helzti kostnaðurinn lægi í hitun búsins. „Við verðum stórir í þessu ef vel gengur," sagði Gunnar. Nú eru fyrir tvö kanínubú á land- inu. Almenna bókafélagið: Tómas Guðmunds- son heiðursfélagi TÓMAS Guðmundsson skáld var gerður að heiðursfélaga Almenna bókafélagsins sl. fostudag, sam- kvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Brynjólfi Bjarnasyni, fram- kvæmdastjóra AB. Jafnframt lét Tómas af starfi formanns útgáfuráðs Almenna bókafélagsins, en því starfi hefur hann gegnt í 22 ár. Við for- mennsku tók dr. Jóhannes Nordal Seðlabankastjóri. Jóhannes hefur setið í bókmenntaráði, sem síðar varð útgáfuráð, fra stofnun fyrir- tækisins árið 1955. Tómas Guðmundsson er fyrsti heiðursfélagi Almenna bókafé- lagsins. Tómas Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.