Morgunblaðið - 16.01.1983, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.01.1983, Blaðsíða 4
48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1983 „LusiUnia“ sekkur. Skipið varð fyrir aðeins einu tundurskeyti. Skipið sökk á aðeins 18 mínútum. 1198 manns voru um borð, 761 var bjargað. Lusítaníu-ráðgátan virðist vera leyst Deiiur hafa staðið um það í mörg ár hvort enska farþegaskipið „Lusitania“ hafi verið með skotfæri innanborðs þegar þýzkur kafbátur sökkti því við strönd írlands 1915 með þeim afleiðingum að upp reis mikil hreyfing fyrir því í Bandaríkjunum að stjórn Woodrow Wilsons forseta léti af hlutleysisstefnu sinni í fyrri heimsstyrjöldinni og gengi í lið með Bandamönnum. Nú virðist fjögurra mánaða rannsókn, sem hefur verið gerð á flakinu á þessu ári, hafa leitt í Ijós að kenningin um að skipið hafi flutt skotfæri hafi við rök að styðjast. „Lusitania" var eign Cunard- skipaféiagsins eins og „Titanic", sem sökk eftir siglingu á ísjaka 1912, og var 34.000,lestir. Afdrif beggja þessara skipa voru mikið reiðarslag. Afdrif „Lusitaniu" komu mönnum að vísu ekki eins mikið á óvart og þegar „Titanic" sökk, en missir „Lusitaniu" hafði mjög afdrifaríkar, pólitískar af- leiðingar. Árásin á skipið olli gífurlegri reiði í Bandaríkjunum og magnaði upp mikið hatur á Þjóðverjum og kafbátahernaði þeirra. Því hefur verið haldið fram að enginn annar atburður hafi haft eins mikil áhrif í þá átt að Wilson ákvað að segja skilið við hlutleysisstefnuna og ganga til liðs við Bandamenn. „Lusitania" sökk 7.maí 1915 við höfðann Old Head við Kinsale á suðurströnd írlands þegar tund- urskeyti frá þýzkum kafbáti hæfði það. Yfirmaður þýzka kafbátsins hafði varað við því að ráðizt yrði á skipið. Alls voru 1959 manns um borð í skipinu og 1198 fórust, þar af 124 bandarískir ríkisborgarar. „Lusitania" var hraðskreiðasta farþegaskipið, sem þá var í förum milli Englands og Norður-Amer- íku, og mjög íburðarmikið. I skip- inu voru t.d. baðherbergi með inn- réttingum úr kjörviði, í því voru fyrstu lyftur, sem notaðar voru um borð í skipum, og símar voru í farþegaklefunum. Meðal farþeg- anna voru auðkýfingurinn Vand- erbilt og kampavínskóngurinn Kessler, sem snæddu alltaf sam- an. ÁRÓÐURSSTRÍÐ Gífurlegt áróðursstríð fylgdi í kjölfar atburðarins. Wilson for- seti bar Þjóðverja þungum sökum, krafðist þess að þeir hættu kaf- bátahernaði sínum og var ómyrk- ur í máli. Brezka stjórnin for- dæmdi einnig tundurskeytaárás- ina og kallaði hana „tilefnislausa stríðsaðgerð gegn varnarlausu skipi." Yfirstjórn þýzka sjóhersins með von Tirpitz í broddi fylkingar benti á að um þremur mánuðum áður hefði því verið lýst yfir að brezkar siglingaleiðir væru stríðssvæði. Þjóðverjar töldu auk þess að „Lusitania" flytti að stað- aldri „mikið magn skotfæra" til Englendinga og árásin á skipið hefði því verið réttlætanleg sam- kvæmt alþjóðalögum. Hvorki Tirpitz né seinni tíma sagnfræðingar Þjóðverja gátu sannað að skipið hefði verið notai^, til að flytja skotfæri. í endanlegri farmskrá „Lusitaniu* stóð að í skipinu væru „1250 kassar með að því er virðist óvirkum sprengikúl- um“, en þeir hurfu í djúpið ásamt þúsundum rifflaskothylkja. Flota- málaráðuneytið í London neyddist til að viðurkenna að skipið hefði flutt þennan farm. Nú, um tveimur mannsöldrum síðar, hafa hergagnasérfræðingar og þrír kafarar sagt að þeir hafi að miklu leyti leyst „Lusitaniu“- gátuna með rannsókn þeirri á flakinu, sem nú er nýlokið. Við rannsóknina hafa þeir notað skip- ið „Archimedes", sem er sérstak- lega útbúið til að stunda athugan- ir af þessu tagi. KVEIKJUR Aftarlega í skipinu fundu þeir hergögn, sem ekki var minnzt á einu orði í 24 blaðsíðna farmskrá „Lusitaniu". Hér var um að ræða kveikjur fyrir sprengikúlur. Kass- arnir með kveikjunum lágu eins og hráviði á hafsbotninum að sögn eins kafaranna. Þessi fundur var aðeins ein vísbendingin af mörgum um að brezka flotamálaráðuneytið hefði farið með rangt mál. Yfirmaður þýzka kafbátsins, Walter Schwi- eger, virðist þar með hafa verið hreinsaður af sök og sama máli virðist gegna meö yfirstjórn þýzka sjóhersins í Berlín. Brezkur blaðamaður, Colin Simpson, lýsti fyrir rúmum ára- tug grunsemdum sínum um að skotfæri hefðu verið uhi borð í „Lusitaniu" og telur að nú hafi grunsemdirnar verið staðfestar. Simpson hafði haft upp á gömlu farmskránni og sakaði Winston Churchill, sem var flotamálaráð- herra þegar atburðurinn gerðist, um að hafa vísvitandi stofnað „Lusitaniu" í hættu til þess að fá Bandaríkin í stríðið. Milljónir sjónvarpsáhorfenda í Bretlandi hafa fylgzt með loka- kafla aðgerða „Archimedesar". BBC hefur tekið þátt í aðgerðun- um og fól fréttamanni sínum, Pet- er Hobday, að taka þátt í leiðangr- inum. Kafararnir festu á filmu starfið fyrir utan skipið og inni í sjálfu flakinu og það voru áhrifa- ríkustu atriðin, sem sýnd voru í sjónvarpinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.