Morgunblaðið - 16.01.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1983
49
97 KIUHKiS-tíMiÁL
Oueenstown
jf'
if£ v^Kmsate
England
Stefna
kaf-
bátsins
'ASTNfn
17. maí 1915. kl. 15.10:
U-20 sökkvlri .Lusitanlu'
UJSHM*'*
0 Kítometsr
Kveikjur á hafsbotni
Þannig lá
„Lusitania"
á hafsbotni
FJÁRSJÓÐUR
Kostnaðurinn við aðgerðirnar
hefur numið um 70 millj. ísl. kr. til
þessa og bandaríska fyrirtækið
Oceaneering International, sem
fæst við nýtingu olíu, hefur staðið
straum af honum. Bandaríkja-
mennirnir töldu að auk skotfær-
anna leyndist fjársjóður um borð í
flaki „Lusitaniu". Hann átti að
vera í peningaskáp skipstjórans.
Kafararnir notuðu sprengiefni
til þess að gera gat á skipshliðina
og fóru inn í fjársjóðsklefa „Lusi-
taniu". En í stað þess að finna gull
og demanta að verðmæti rúmlega
300 millj.'ísl. kr. fundu þeir ekk-
ert, a.m.k. ekki í þessari atrennu.
Kafararnir telja að peninga-
skápurinn, sem er úr þungu stáli,
hafi þeytzt í gegnum skipshliðina
þegar skipið rakst á hafsbotninn
og síðan sokkið til botns í eins
metra þykkri leðju. Þar verður
hans leitað næsta vor.
Leiðangursmennirnir hafa haft
lítið upp úr krafsinu til þessa.
Kafararnir, sem vinna á átta tíma
vöktum neðansjávar, hafa bjargað
koparstöngum og fimm eða sex
öskjum með armbandsúrum.
í fjórum öðrum kössum fundust
silfurhylki með myndum af
stríðshetjunni Kitchener lávarði. í
kvikmyndasalnum fannst fágætt
eintak af kvikmyndinni „Fljúg-
andi teppið frá Bagdad." Skips-
skrúfan, sem var gerð úr 22 lest-
um af þungu bronzi, seldist fyrir
rúmar 20 millj. ísl. kr.
MIKIL SPRENGING
„Lusitania" hvílir á 104 metra
dýpi á stjórnborðshliðinni. Það
var þar sem tundurskeytið mynd-
aði gat á skipssíðuna. Sprengiefn-
asérfræðingar Oceaneering Int-
ernational, Alf Lyden og Douglas
Brand, telja að gífurleg sprenging
hafi orðið inni í skipinu, því að
bakborðsmegin er 14 metra stórt
gat.
Sérfræðingarnir telja að tund-
urskeyti, sem hæfði skipshliðina
hinum megin, hefði ekki getað
valdið svona miklu tjóni. Að vísu
segir í skýrslu ensku rannsóknar-
nefndarinnar að „mikil sprenging
hafi orðið" um borð í „Lusitaniu".
Menn töldu að katlarnir hefðu
sprungið í loft upp.
Kafbátsforinginn, Walter
Schwieger, heyrði aftur á móti að-
eins veikan óm frá sprengingu
þegar hann hafði skotið tundur-
skeytinu. „Næstum því aðeins
brak.“ Fyrstu sekúndurnar á eftir
fannst gífurlegur titringur.
„Óvenjulega kröftug sprenging,"
sagði Schwieger við vakthafandi
liðsforingja.
Átján mínútum síðar sökk
„Lusitania", eða óvenjufljótt. Voru
það i raun og veru aðeins katlarn-
ir, sem höfðu sprungið í loft upp,
eða var orsökin eitthvað annað og
miklu hættulegra? Samkvæmt
farmskránni voru undir fram-
dekki 1250 kassar með „að því er
virðist óvirkum" sprengikúlum.
Nokkrar þeirra sprungu þegar
tundurskeytið hæfði skipið að
sögn „Lusitaniu“-sérfræðinganna.
Brezka landvarnaráðuneytið
hefur ennþá áhyggjur af „Lusi-
taniu“-málinu. Þegar köfunarst-
arfið hófst í júlí varaði ráðuneytið
bandaríska fyrirtækið við hættu,
sem í raun og veru átti ekki að
vera fyrir hendi ef trúa átti opin-
berum skýringum.
í bréfi til fyrirtækisins frá
brezka landvarnaráðuneytinu
sagði:
„Landvarnaráðuneytið veit að-
eins að um borð eru 500 kassar
með skotfærum fyrir handvopn.
En þar sem það virðist tilgangur
leiðangursins að finna önnur
sprengiefni og ef til vill að bjarga
þeim, ef það reynist unnt, væri
óviturlegt af okkur að benda ekki
á þá hættu, sem fylgir sprengiefn-
um. Þar sem svo ólíklega gæti vilj-
að til að slík efni fyndust leggjum
við eindregið til að verkinu verði
hætt án tafar og að menn íhugi
ástandið rækilega. Annars eru
mannslíf í hættu.“
Kafararnir fundu raunverulega
engar sprengikúlur í skipsflakinu.
Mennirnir á „Archimedes" telja
að svo framarlega sem sprengikúl-
urnar hafi ekki sprungið 1915, þá
hafi þær heldur ekki sokkið í leðj-
una á hafsbotni.
VERKSUMMERKI
FJARLÆGÐ
„Einhver hefur farið þangað á
undan okkur til þess að fjarlægja
öll verksummerki," segir blaða-
maðurinn Colin Simpson.
Grunsamlegt er að „Lusitania"
er nafnlaust flak. Áletranirnar
með nafni skipsins eru horfnar af
brúnni og hvalbaknum. Og engu er
líkara en fremsta lestarhólfið hafi
verið „ryksugað", svo rækilega
hafa öll verksummerki verið fjar-
lægð.
„Það er ekkert þarna inni —
nákvæmlega ekkert eftir. Einhver
hefur komið hingað á undan
okkur,“ segir skozki björgunarsér-v
fræðingurinn Jim Highlands.
Ekki nóg með það. Frammi í
skipinu var komið fyrir hreyfan-
legum skotpalli fyrir 15-cm fall-
byssu 1913. Hægt átti að vera að
breyta „Lusitaníu" í hjálparbeiti-
skip eins og flestum öðrum skip-
um Cunard-skipafélagsins.
Nú blasir við stærðar gat, fimm
metrar í þvermál, miðja vegu milli
kinnungsins og brúarinnar, þar
sem skotpallurinn átti að standa.
Highlands telur að hann hafi ver-
ið fjarlægður með krana, verks-
ummerki bendi til þess.
Raunar hafa björgunarskip tví-
vegis áður legið fyrir akkerum þar
sem „Lusitania“ sökk úti fyrir Old
Head við Kinsale. Það voru her-
skipið „Reclaim" 1946 og skipið
„Recovery”, sem brezka flotamála-
ráðuneytið tók á leigu, 1954.
Hver byrjaði á svona löngu og
kostnaðarsömu verki til þess eins
að eyða öllum verksummerkjum?
Og hvernig stóð á allri þessari
miklu fyrirhöfn, úr því að ekkert
grunsamlegt átti að vera um borð?
spyr blaðamaðurinn Colin Simp-
son.
THOMSON
THOMSON
THOMSON
Þvottavélar
Framhlaðnar
Topphlaönar
Hagkvæmni + afköst
Hverjir eru kostirnir við
topphlaðnar þvottavélar:
• FYRIRFERÐALITLAR:
Vélin er aöeins 45 cm breiö og kemst
vel fyrir í eldhúsi eða á baði.
• GÓO VINNUAÐSTAÐA:
Ekki er nauösynlegt aö beygja sig
þegar veriö er aö hlaða eða af-
hlaöa vélina. Þaö er hægt að opna
vélina, þó hún sé full af vatni. (Það
er gagnlegt þegar ýmis gerfiefni
eru þvegin).
• MEIRI ENDING:
Þvottabelgurinn er á legum báöu
megin, sem stóreykur endinguna
og minnkar titring.
TH0MS0N er stærsti framleiöandi þvottavéla í Evrópu.
TH0MS0N þvottavélarnar fara nú sigurföj; um ísland og
hljóta bestu meömæli.
Viö bjóðum:
5 kg topphlaðna vél meö mjög fullkomnu þvottakerfi og auk þess
þurrkara sem notar nýjustu tækni og þarf ekkert útblástursrör, þar
sem vélin breytir gufunni í vatn, sem er síðan dælt út á sama hátt og
annaö vatn. Þessi nýja tækni er margfalt öruggari, þar sem þessi
tækni krefst ekki flókins blástursbúnaðar.
Verö:
16.995.-
Útborgun: frá 4.000.
Eftirstöövar: Allt aö 6 mán.
Fáðu þér Thomson tryllitæki.
Sendum hvert á land sem er.
Skipholti 19.
Sími 29800.