Morgunblaðið - 16.01.1983, Blaðsíða 18
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1983
Leiguhúsnæði
Til leigu er húsnæöi á einum besta staö í austurborg-
inni í verslunarmiöstöðinni Nóatúni 17, (áöur Spari-
sjóöur vélstjóra og Sparisjóöurinn Pundiö). Húsnæöiö
er innréttað og laust nú þegar. Góö og mikil bíla-
stæöi. Upplýsingar í símum 18955 og 35968.
Tilkynning um flutning
Endurskoðunarmiðstöðin hf. N. Manscher hefur flutt
starfsemi sína í Höföabakka 9, 5. hæö. Nýtt síma-
númer 85455.
Viðskiptamönnum er bent á rúmgott bílastæði norö-
an viö húsiö, á milli Höföabakka 9 og Prentsmiöjunn-
ar Odda hf.
Nýir félagar
Um síöustu áramót bættust 3 löggiltir endurskoö-
endur á hóp eigenda skrifstofunnar, þeir Reynir Vign-
ir og Símon Á. Gunnarsson í Reykjavík og Björn St.
Haraldsson á Húsavík.
Endurskoóunar-
mióstöóin hf.
N.Manscher
Höfðabakki 9
Pósthólf 5256
125 REYKJAVlK
Sími 85455
ALLTAF A ÞRIÐJUDOGUM
—tHm—
Rætt við Rafn Hjaltalín
knattspyrnudómara
Markvörðurinn
Toni Schumacher
átti ekki sjö dagana sæla eftir HM-keppn-
ina á Spáni
Hver er rétti maðurinn til þess
að vera í treyju númer 9 í enska
landsliðinu?
Knattspyrnuúrslit
frá Englandi, Spáni, ítalíu, Hollandi og
Skotlandi og margt fleira.
Itarlegar og spennandi íþróttafréttir
SVIPMYND A SUNNUDEGI
MIGUEL
DE LA MADRID
STJÓRNMÁLAMENN í Mexíkó
voru ekki allir á eitt sáttir er
Miguel De La Madrid tók við for-
setaembætti landsins fyrir
nokkrum dögum. Mörgum þótti
hinn rólyndi Harvard-lærði
Madrid ekki vera spegilmynd
þess manns sem margir telja að
þurfi að sitja í sæti þessu í Mex-
íkó, en þar hafa að öllu jöfnu
staðið sig best miklir járnkarlar
og stjórnir landsins hafa jafnan
borið keim af því. Menn deildu
um hvort De La Madrid væri
nógu harðskeyttur til að ráða við
verkefnið.
En allar götur síðan flokkur
De La Madrid útnefndi hann
sem frambjóðanda sinn og þar
til hann sór embættiseið hinn
flugmælskir á enska tungu. Þá
er De La Madrid fyrsti forseti
landsins í marga áratugi, sem
tilheyrir ekki frímúrararegl-
unni.
Leið De La Madrid á toppinn,
hefur verið hæg og sígandi,
raunar endurspeglað manngerð-
ina. Hann fæddist inn í milli-
stéttarfjölskyldu 12. desember
1934. Faðir hans var lögfræðing-
ur og þegar De La Madrid var
aðeins tveggja ára var faðir hans
myrtur. Hann var þá verjandi
smælingja sem voguðu sér að
stefna voldugum landeigendum.
De La Madrid fæddist í bænum
Colima, en eftir fyrrgreinda at-
burði flutti hann með móður
sinni til Mexíkóborgar. Þar gekk
La Madrid þeirri stöðu í stjórn
Portillo. 1979 skipaði Portillo
hann fjárlagaráðherra sinn.
Staða hans var þar með orðin
afar sterk, því fram að þessu var
hann lítt kunnur af þjóð sinni,
en aðallega kunnur af erlendum
bankajöfrum. Nú var hann orð-
inn áhrifamikill stjórnmálamað-
ur og borgarstjórar, sýslumenn
og aðrir stjórnmálamenn runnu
til hans í stríðum straumum þar
sem hann réði fjármagnsstreym-
inu til þeirra.
De La Madrid og forsetinn
Portillo voru ávallt miklir og
nánir samstarfsmenn og oft
virtist mönnum sem forsetinn
væri að búa yngri manninn und-
ir að verða eftirmaður sinn. Það
fyrsta þessa mánaðar, hefur
ímynd hans breyst hreint ótrú-
lega. Nú velta menn ekki lengur
vöngum yfir því hvort hann
reynist nógu mikill járnkarl,
heldur hvort hann hreinlega
verði ekki einum of harðhentur,
ekki einungis hvað varðar að-
gerðir gegn dalandi efnahagslífi
landsins, heldur einnig tengslum
við kosningaloforð um að upp-
ræta spillingu í Mexíkó. Þessa
breytingu þykjast menn hafa
merkt á þeim 34 mánuðum sem
kosningabaráttan stóð yfir, eða
þegar De La Madrid var út-
nefndur af flokki sínum.
Hans nánustu eru ekki sömu
skoðunar. Vinir hans segja hann
í engu hafa breyst, því á bak við
afslappaða og yfirvegaða fram-
komu hans hafi alltaf leynst
staðfastur og sjálfsöruggur mað-
ur. Kona hans, Paloma Cordero
De La Madrid, gat þess að þegar
þau kynntust fyrst, hafi faðir
hennar nær strax spáð því að
þessi maður myndi ná langt, því
hann liti mikilvæg málefni al-
varlegum augum og hann væri
gæddur feiknalegum viljastyrk.
Hinn nýi forseti og hinn fráfar-
andi, Jose Lopez Portille þykja
vera eins og svart og hvítt; Port-
ille skapmikill og flókinn per-
sónuleiki, Madrid hins vegar
rólegur á yfirborðinu og gæddur
miklu sjálfstrausti. De La Mad-
rid er einnig 15 árum yngri en
Portille og það þykir boða
breytta tima í Mexíkó, því flestir
af nánustu samstarfsmönnum
De La Madrid, eru á svipuðum
aldri, menntaðir erlendis og
Miguel De La Madrid, t.h.
minniat vii fréfarandi for-
setann og samstarfsmann
sinn, Jose Luis Portillo, 1.
desember síðastliöinn.
hann í skóla og árið 1953 skráði
hann sig í lögfræði við Háskól-
ann þar í borg. Fjórum árum síð-
ar útskrifaðist hann. 24 ára
gamall gekk hann í það heilaga
með núverandi eiginkonu sinni
Palomu og eiga þau fimm börn á
aldrinum 12—22 ára. Þá þegar
var hann farinn að vinna í ríkis-
banka sem lögfræðiráðunautur,
en fljótlega lá leiðin til Mexíkó-
bankans. Þar fékk hann með-
mæli með umsókn sinni um
skólavist í Harvard-háskólanum
og 1965 útskrifaðist hann þaðan
með MA-próf í stjórnsýslustörf-
um.
Leiðin lá aftur heim til Mexíkó
og þar hélt hann áfram á frama-
brautinni. Hann vann ýmis
stjórnarstörf á efnahags- og
fjármálasviðum uns hann var
ráðinn fjármálastjóri Olíuversl-
unar Mexíkó. Þaðan lá leiðin í
fjármálaráðuneytið þar sem
hann vann sem deildarstjóri og
var þá í þrjú ár undirmaður hins
fráfarandi forseta Portillo, en
hann var þá fjármálaráðherra.
Stjórnmálaframi De La Madrid
var nú kominn á mikinn skrið og
þegar Portillo bauð sig fram til
forsetakjörs 1976, varð De La
Madrid aðstoðarfjármálaráð-
herra. Eftir kjör Portillo hélt De
kom því fáum á óvart, er Portillo
lýsti yfir ákvörðun sinni að gefa
ekki kost á sér til endurkjörs á
ársþingi Byltingarflokksins síð-
astliðið sumar og tilnefndi De La
Madrid sem eftirmann sinn. Það
kom fáum á óvart, en var ekki
öllum til sannrar gleði. Þeir sem
fyrtust voru fyrst og fremst
gamlir og skólaðir stjórnmála-
menn, sem líta á forsetakjör De
La Madrid sem enn einn sigur
nýrrar og upprennandi kynslóð-
ar stjórnmálamanna í landinu.
Þrátt fyrir yfirburðasigur, þar
sem De La Madrid fékk 76 pró-
sent atkvæða og keppti við sex
aðra frambjóðendur, stendur
hann frammi fyrir miklum
vanda að ná tökum á flokki sín-
um og hrófla við hinni rótgrónu
flokksvél og hinu pólitíska
skrifræði. En takist honum það,
gæti orðið gjörbylting á stjórn-
arfari í Mexíkó.
Það er mál margra að honum
takist þetta. Hann er orðlagður
fyrir heiðarleika og hans nán-
ustu eru sannfærðir um að hann
muni ekki misnota stöðu sina í
eigin þágu eins og margir stjórn-
málamenn í Mexíkó gera og hafa
gert í gegnum árin. Einn af nán-
ustu vinum hans segir: „Ég verð
afar undrandi ef hann á einni
krónu meira þegar hann lætur af
embætti heldur en hann átti er
hann tók við því.“ Þessi orð
þykja lýsa manninum afar vel,
það virðist vera hagur þjóðar-
innar fyrst og fremst sem vakir
fyrir honum og reynist það rétt,
mega Mexíkanar sitja sáttir yfir
nýja forsetanum.