Morgunblaðið - 16.01.1983, Page 30

Morgunblaðið - 16.01.1983, Page 30
 74 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1983 A DROmNSWGI ■UMSJÓN: Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir Gunnar Haukur Ingimundarson Séra Ólafur Jóhannsson „Leiklist er góð aðferð til kristinnar boðunar" - segir Kúnar Kcynisson Hérlendis var til skamms tíma enginn skóli fyrir kristna leik- menn, sem vildu uppfræðslu í kristinni trú og þjálfun i kristilegu starfi. Meft stofnun leiðtogalínu við Kkálholtsskóla stendur þetta að vísu til bóta. I>ó eru enn dæmi um íslendinga sem leita slíkrar menntunar og þjálfunar i biblíu- skólum erlendis. Einn þeirra er Rúnar Reynisson, tvítugur Reyk- víkingur, sem í vetur hefir gengið á Kundgárdens-folkehögskole í Helsingfors í Kvíþjóð. Nánar til- tekið stundar Rúnar nám á þeirri braut skólans sem ætlað er að þjálfa kristna leikmenn til að standa að leikrænni tjáningu í kristilegu starfi. Okkur fannst við hæfi að spyrja Rúnar fáeinna spurninga meðan hann var staddur hér heima í jólafríinu. I*að virðist augljóst, að þú munir að einhverju leyti eiga rætur í kristilegu starfi, fyrst þú velur þessa námsbraut? Já, þær á ég. Meðan ég var yngri, sótti ég fundi KFUM eins og algengt er um stráka á viss- um aldri. Eins og líka er algengt, hætti ég í KFUM nálægt ferm- ingaraldri og tók ekki þátt í neinu kristilegu starfi um tíma. En fáeinum árum síðar fór ég á kristilegt skólamót í Vatnaskógi fyrir tilstilli kunningja. Þar átti ég afturhvarf til Krists og hef lifað í samfélagi við hann síðan, og þá auðvitað tekið þátt í kristi- legu starfi. Mest hef ég starfað í KSS og KFUM, en einnig í beinu starfi Þjóðkirkjunnar. Þú segist hafa átt afturhvarf. Hvernig tóku vinir þínir og kunn- ingjar því, er þú sagðist vilja vera meira en nafnkristinn? Flestir virðast hafa þá af- stöðu, að trúin sé einkamál hvers og eins, öðrum óviðkomandi. I samræmi við það leyfa flestir mér að hafa trú mína í friði, en ætlast e.t.v. til þess, að ég leyfi þeim að vera annarrar skoðunar í friði. Einhver aðdragandi hlýtur að vera að utanferð þinni? Þar sem ég hef tekið þátt í kristilegu starfi, hefur notkun leikrænnar tjáningar færst í vöxt, í helgileikjum, leikrænni útfærslu eða heimfærslu biblíu- texta og öðrum leiknum þáttum, þar sem sannindi kristindómsins Tilraun til framsetningar á trúar- játningunni á táknrænan hátt Víð höldum þá áfram með trúarjátninguna framsetta á táknræn an hátt. en rifjum jafnframt upp fyrstu grein hennar. Ég trúi á Guó, föður almáttugan skapara himins og jarðar. Kg trúi á Jesúm Krist, hans einkason, Drottin vorn, sem getinn er af heilög- um anda, fæddur af Maríu mey, píndur undir valdi Pontíusar Pílatusar, krossfestur, dáinn og grafinn, steig niður til heljar reis á þriðja degi aft- ur upp frá dauðum. IC ’xc A uu' & Hinn jafnarma, svokallaði gríski kross, þar sem í eru upphafs- og loka- stafirnir grísku í Jesús (IC) og Krist- ur (XC). Einnig eru þar grísku bókstaf- irnir alfa og omega, sem tákna upphafið og endinn, „hinn fyrsta og hinn síð- asta“. (Op. 22:13.) Jatan og sexhyrnd Betlehemsstjarnan. Kristur (krossinn) sigrar herskara heljar, djöfulinn (orminn). Haus- kúpan táknar manninn án sam- vista við Guð. (1. Pét. 3:19.) Tóm gröfin og krossmark í sigur- fána. eru dregin fram. Ég fékk snemma tækifæri til þess að taka þátt í þessu — fyrst sem einn leikenda, en síðan var mér falið að sjá um ýmsa slíka þætti og ég fékk mikinn áhuga á að_ efla þennan þátt í kristilegu starfi. A vegum Æskulýðsstarfs Þjóðkirkjunnar komu sænsk hjón hingað til lands og héldu námskeið um efnið. Fyrir tilstilli þeirra komst ég í samband við þennan skóla, sem er rekinn af sænskri heimatrúboðshreyfingu innan kirkjunnar, — sú hreyfing heitir EFS. Hvaða námsgreinar eru á þess- ari námsbraut? Biblíufræði eru langfyrirferð- armest á stundatöflunni. Til þess að geta komið boðskap Ritningarinnar til skila í leik- rænni tjáningu, er nauðsynlegt að hafa almenna og góða þekk- ingu á honum. Þá erum við í fjöl- miðlafræði, því nú* á tímum hljóta kristnir menn að reyna að hafa áhrif á blöð, útvarp og sjón- varp og koma kristnum boðskap til skila með þeim hætti. Ekki má svo gleyma leiklistinni, en við þessi 11 á leiklistarbrautinni sjáum m.a. um kvöldbænir í öll- um skólanum og leikum þá gjarnan fyrir hina 150 nemendur skólans, sem eru á öðrum námsbrautum skólans og líta á okkur sem sérstakan, kristinn hóp. Geturðu fært þér lærdóminn í nyt þegar heim kemur? Það er alveg öruggt. Ég geri mér að vísu ekki vonir um að hafa atvinnu af leiklist, en mun reyna að styðja við leiklistar- áhuga í kristilegu starfi heima, einkum í KSS. Leiklist í kristi- legu starfi hefur tvær hliðar. Hún er góð aðferð til boðunar út á við, því oft verður boðskapur- inn skýr og lifandi í búningi leik- ins þáttar. Ekki síður stuðlar vinnan við undirbúning leiknu þáttanna að betra samfélagi þátttakenda og auknum skiln- ingi þeirra á boðskap viðfangs- efnisins. Með það kveðjum við Rúnar, óskum honum góðs í Kvíþjóð og vonum, að starf hans að loknu námi verði íslensku kristnilífi til góðs. ■löFte Sakkeus 2. sunnudagur eftir þrettánda. Lúkas 19. 1—10 Marinó kom til viðtals við mig um daginn og sagðist vera hálf leiður á lífinu, vinnan væri tilbreytingarlaus og grámugga yfir heimilislífinu. Svo yrði lítið um fé- lagslíf í fannferginu. Okkur kom saman um að þessi lífsleiði væri ekki af þeim toga spunninn, sem þykir alvarlegastur og þungbærastur, samt væri óþarfi að burðast með hann og láta hann skemma daga, sem ella gætu verið góðir og friðsælir. Marinó er trúaður maður, hann tekur þátt í lifandi kirkjusamfélagi. Hann hefur sjálfur sagt frá því hvern- ig líf hans breyttist þegar hann varð starfandi og ját- andi á trú sinni á Jesúm. Samt koma tímabil í lífi hans þegar þreyta og tilbreytingarleysi skyggir á gleðina í trúnni. Við töluðum saman um Sakkeus, hann, sem eignaðist nýtt og litríkara líf, dýpra og fyllra þegar hann hitti Jesúm og opnaði heimili sitt fyrir honum. Skyldi það ekki hafa gerzt í lífi Sakkeusar síðar að þreytulegar tilfinningar hafi stundum yfirbugað fögn- uð hinnar fyrstu trúargleði? Ég er viss um að það hefur gerzt og það gerist í lífi allra. En svo rofar aftur til, trúin yljar aftur um hjartarætur, hún varpar birtu og yl yfir allt í lífinu, vinnuna, heimilið, starfið í kirkjunni og samfélagið við aðra og sjálf okkur. Sakkeus fékk að lifa kraftaverk í lífi sínu. Við, sem höfum fengið að lifa sama kraftaverkið, megum treysta því að Jesús endurlífgar trú okkar aftur og aftur. Við getum þurft að hafa dálítið fyrir því að rækja samfé- lagið við hann en við megum ekki láta það aftra okkur. Ef Sakkeus hefði ekki klifrað upp í tréð hefði líf hans líklega ekki breytzt. Ef við hættum að bera okkur eftir uppörvun og festu í trú okkar hætta kraftaverk trúar- innar að gerast í lífi okkar. En við skulum halda áfram að vænta gleðinnar í trúnni. Biblíulestur vikuna 16.—22. jan. Sunnudagur 16. jan.: Jóh. 2:1—11. Mánudagur 17. jan.: Matt 5:27—32. Þriðjudagur 18. jan.: Matt. 5:33—37. Miðvikudagur 19. jan.: Matt. 5:33—58. Fimmtudagur 20. jan.: Matt. 6:1—5. Föstudagur 21. jan.: Matt. 6:5—15. Ijaugardagur 22. jan.: Matt. 6:16—23. Jesús Krístur — líf heimsins Alþjóólega bænavikan 17.—23. janúar 1983 Eftirfarandi bæn um einingu milli manna er ættuð frá Norður-írlandi. Efni alþjóðlegu bænavikunn- ar fyrir einingu kristinna manna að þessu sinni er Jesús Kristur — líf heimsins. Þetta efni var valið með tilliti til þess, að það verður meginefni Sjötta heimsþings alheimsráðs kirkna í Vancouver í Canada, 24. júlí til 10. ágúst í sumar. Allir kristnir menn eru hvattir til þess að minnast þessa þings með kærleika Krists í huga og í bænum sínum. íhugunarefni alþjóðlegu bænavikunnar nú er I. Jéh. 1:1—4. Jesús er orð lífsins og það er í gegnum hann og í hon- um, sem Guð miðlar lífi sínu til heimsins, sbr. Jóh. 3:16. Kirkjan, sem er líkami Krists, er náðarmeðal samfé- lags Guðs og manns og manna á milli. í hvers konar neyð og ranglæti í heiminum glata orð gildi sínu. Heimurinn þarfnast orðs lífsins. í slíkum kringum- stæðum er aðkallandi eining kirkjunnar s.s. í þjónustu, réttlæti, friði og trúboði, í stuttu máli fyrir lífi heimsins. 1. dagur. Orð lífsins er frá uphafi (v.l) 1. Mós. 1:1—2, 2:4b—7, Sálm. 33:1-12, Kol. 1:15-17, Jóh. 1:1-4. 2. dagur. Orð lífsins varð sýni- legt (v.2) 5. Mós. 30:11 — 14, 19-20, Sálm. 98, Gal. 4:4-7, Jóh. 1:9-18. 3. dagur. Líf er samfélag við Guð (v.3b) Jer. 31:31—34, Sálm. 63:1-9, 1. Jóh. 4:13-16, Jóh. 15:1-5. 4. dagur. Líf er samfélag hver við annan (v.3a) Esek. 37:15-22, Sálm. 133 (132), Post. 2:42-47, Jóh. 13:33-35. 5. dagur. Lífí er ógnað af myrkri (vv.5—7) Jes. 59:9b—15, 20, Sálm. 37:1-13, 1. Jóh. 1:5-7, Lúk. 23:44-49. 6. dagur. Líf er boðað heimin- um (w.2—3) Jes. 61:1—4, Sálm. 34 (33):1—10, 2. Kor. 4:7-15, Matt. 28:16—20. 7. dagur. Eilíft líf (v.2) Harmlj. 3:17-26, Sálm. 16:5-11, Kol. 3:1-4, 11-15, Jóh. 5:24-27. 8. dagur. Fögnuður lífains í samfélaginu (v.4) Jer. 31:10—13, Sálm. 149, Fil. 4:4-9, Jóh. 15:10-15. Faðir vor, vér erum börn vorra tíma, tengd kringumstæðum vorum. Allt í kringum oss eru merki og tákn ótta, haturs og dauða. Faðir, vér höfum leitað leiða til friðar og sátta, en ávallt of lítið og of seint, og alltaf hafa vonir vorar brostið. Vér erum ringluð og reið, jafnvel vonlaus. Vér viljum ekki hafa nein afskipti af þessu, heldur þvo hendur vorar og koma oss burt frá þessu. En í hvert sinn, sem vér snúum oss undan til að fara, þá er vegur vor lokaður með vegtálma úr krossi, krossi Krists. Gjör þú oss Drottinn að fólki vonarinnar. Frelsaðu oss frá kaldhæðni og örvæntingu. Gefðu oss von, sem byggir á sigri þínum yfir illsku, yfir hatri, jafnvel dauðanum sjálfum. Og þessi von á upprisulíf þitt brýzt þá inn í myrkvað líf sem ljós, er skín í niðamyrkri, sem sæði, er grær, jafnvel í eyðimörk. Faðir vor, vér erum börn vorra tíma. Allt í kringum oss eru tákn haturs, ótta og dauða, samt vonum vér á tákn táknanna, — þinn auða kross, vegna þess að þú lifir að eilífu og vegna þess að börn þín eru fangar, fangar vónarinnar. Guði séu þakkir. Amen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.