Morgunblaðið - 16.01.1983, Side 31

Morgunblaðið - 16.01.1983, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 1983 75 Bridge Arnór Ragnarsson Bridgesamband íslands Á fundi 11. janúar ákvað stjórn Bridgesambandsins að fjöldi þátttökusveita frá hverju svæði í undankeppni íslands- mótsins í sveitakeppni yrði reiknaður út í beinu hlutfalli við árgjaldsgreiðslur félaga svæð- anna frá 1. janúar til 1. júní 1982. Alls taka 24 sveitir þátt í undankeppni Islandsmótsins, þar af er 8 sætum úthlutað mið- að við úrslit síðasta árs, en hin- um 16 sveitunum er úthlutað með hlutfallsreikningi. Þátt- 'tökuréttur svæðanna á ís- landsmóti 1983 er þá þessi: Sræói Sveitir Kcvkjavík 6+5=11 Reykjanes 2 =2 Vesturland 1+1=2 Vestdrðir 1 =1 Noróurland vestra 2 =2 NorAurland eystra 1+1=2 Austurland 1 =1 Suðurland 2 =2 íslandsmeistarar f. árs 1=1 Samtals 24 íslandsmótið í sveitakeppni verður haldið dagana 18.—20. mars, undankeppnin, og 31. mars — 3. apríl, úrslit. Islandsmótið í tvímenningi verður haldið 28. apríl — 1. maí og þar er öllum félögum Bridge- sambandsins heimil þátttaka. Dagana 4.-6. febrúar verða haldin íslandsmót kvenna og spilara 25 ára og yngri í sveita- keppni. öllum sem uppfylla þessi skilyrði er heimil þátttaka í mótunum. Þátttökufrestur er til 31. janúar og fyrirliðar eru beðnir að skrá sveitir sínar hjá Bridgesambandinu í síma 18350 eða í síma 24371 (Guðmundur Hermannsson). Keppnisgjald verður haft í lágmarki. Bridge- sambandið mun reyna að mynda sveitir ef einhver pör óska þess. Á fundinum lágu fyrir um- sóknir frá 4 bridgefélögum um inngöngu í Bridgesambandið: Bridgefélagi Blönduóss, Hvera- gerðis, Hvolsvallar og Þor- lákshafnar. Umsóknirnar voru allar samþykktar. Einnig var ákveðið að breyta bronsstigaskráningu félaganna. I stað bronsstigablokkanna munu félögin nú senda skýrslu til Bridgesambandsins tvisvar á ári með nöfnum og stigafjölda þeirra spilara sem hafa unnið til brosstiga hjá félaginu. Bridgedeild Breiðfirðinga- félagsins Enda þótt einni umferð sé ólokið í aðalsveitakeppni deild- arinnar hefir sveit Hans Nielsen þegar tryggt sér sigur í mótinu. Með Hans eru í sveitinni: Ágúst Helgason, Hannes Jónsson, Lár- us Hermannsson, Ólafur Lárus- son og Hermann Lárusson. Röð sveitanna er nú þessi: Hans Nielsen 292 Óskar Þór Þráinsson 245 Ingibjörg Halldórsdóttir 238 Kristín Þórðardóttir 223 Steingrímur Jónasson 214 Sigurjón Helgason 209 Elís R. Helgason 209 Magnús Halldórsson 208 Daníel Jónsson 206 Sigríður Pálsdóttir 194 27. janúar nk. hefst baromet- ertvímenningur deildarinnar og hafa þegar 42 pör tilkynnt þátt- töku sem tilkynnist til Guð- mundar Kr. Sigurðssonar í síma 21051. Síðasta umferðin verður spil- uð á fimmtudag í Hreyfilshúsinu og hefst keppnin kl. 19.30. Hreyfill — Bæjarleiðir Sjö umferðum af 11 er lokið í sveitakeppninni og er staða efstu sveita nú þessi: Daníel Halldórsson 135 Anton Guðjónsson 106 Birgir Sigurðsson 95 Steingrímur Aðalsteinsson 87 Kristján Jóhannesson 76 Jón Sigurðsson 75 Næsta umferð verður spiluð á mánudaginn í Hreyfilshúsinu og hefst klukkan 20. Bridgedeild Húnvetninga- félagsins Sveit Valdimars Jóhannssonar sigraði örugglega í hraðsveita- keppni sem nýlega er lokið hjá deildinni. Hlaut sveitin 2.905 stig. Með Valdimar eru í sveit- inni: Þórarinn Árnason, Jón Ólafsson og Ólafur Ingvarsson. Sveit Guðlaugs Sigurgeirssonar varð önnur með 2.728 stig og sveit Halldóru Kolka þriðja með 2.712 stig. Næsta keppni verður aðal- sveitakeppni deildarinnar og hefst á miðvikudaginn kemur. Spilað er í félagsheimili Hún- vetningafélagsins við Laufásveg og hefst keppnin kl. 19.30. Bridgedeild Skagfirðinga Þriðjudaginn 11. janúar var spilaður eins kvölds tvímenning- ur. Spilað var í tveim 10 para riðlum. Úrslit urðu sem hér seg- ir: A-riðill: Magnús — Baldur 137 Högni — Steingrímur 123 Ragnar — Bjarni 116 B-riðill: Karólína — Hildur 130 Kristján — Georg 125 Bergsveinn — Ragnar 120 Aðalsveitakeppni félagsins hefst þriðjudaginn 18. janúar. Félagar hvattir til að skrá sig. Aðstoðað verður við að mynda sveitir. Skráning og upplýsingar í síma 40605, Kristján Blöndal. Bridgehátíð 1983 Nú er ljóst, að auk gesta frá N-Ameríku og Danmörku kemur sveit frá Bretlandi. Sveitina skipa Tony Sowter, Steve Lodge, Tony Forrester og Raymond Brock. Allir þessir spilarar hafa spilað með breska landsliðinu og voru Lodge og Sowter í breska landsliðinu I heimsmeistara- keppninni í New York 1981. Er mikill fengur að þessum mönnum, sem þykja einkar skemmtilegir spilarar. Islenskir spilarar, sem hyggja á þátttöku í bridgehátíðinni, eru minntir á að skrá sig í síðasta lagi sunnudaginn 16. janúar. Tekið er við þátttökutilkynning- um í síma 72876 (Sigmundur) og síma 24371 (Guðmundur). Þátt- taka í tvímenningnum takmark- ast við 44 pör, en þátttaka í sveitakeppninni er ótakmörkuð. Bridgefélag Reykjavíkur Keppnisdagskrá félagsins til vors hefur verið ákveðin og verð- ur byrjað 26. janúrar með aðal-" tvímenningskeppninni, sem verður með barometersniði eins og undanfarin ár. Gert er ráð fyrir, að keppnin standi í 6 kvöld. Að henni lokinni verður Board a match-keppni í þrjú kvöld. Fjögur síðustu kvöldin verður butler-keppni. Fyrst verður undankeppni í þrjú kvöld, en fjórða kvöldið verður spilað til úrslita og samhliða þeirri keppni verður einmennings- keppni félagsins. Þeir sem ætla að vera með í aðaltvímenningskeppninni, en hafa ekki ennþá skráð sig, eru minntir á að gera það í síðasta lagi sunnudaginn 23. janúar hjá formanni sími 72876 eða öðrum stjórnarmanni. Skráningalisti liggur einnig frammi á Reykja- víkurmótinu í sveitakeppni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.