Morgunblaðið - 02.02.1983, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 02.02.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983 39 Sovétríkin hafa aukið hernaðarmátt sinn á kostnað almennings, sem stynur undan þunga vaxandi hernaðarútgjalda. Skortur er á ýmsum nauðsynjum, einkum matvælum. Mynd þessi sýnir biðröð fyrir utan verslun í Moskvu. sína að undanförnu að talsverðu leyti hershöfðingjunum að þakka. Rétt eins og Brezhnev á undanförnum árum, má Andro- pov gera ráð fyrir því, að lagt verði hart að honum af hálfu hershöfðingjanna að leggja fram enn meira fé til varnarmála, þrátt fyrir hinar geysilegu byrð- ar, sem hernaðarútgjöldin eru nú þegar fyrir efnahag Sovét- ríkjanna. Yfirmenn sovézka hersins hafa sennilega þótt setja ofan með því, hve illa helztu vopn þeirra reyndust gegn Israel í Líbanon og Brezhnev varð að heita þeim bæði endurbættum og auknum vopnabúnaði. Af öllum þeim vandamálum, sem Andropov hefur hlotið í arf frá Brezhnev, er ekkert alvar- legra en hið hnignandi efna- hagskerfi, en afleiðingar þess birtast í versnandi lifskjörum og víðtækum skorti á ýmsum vör- um, einkum matvælum. Sumir sérfræðingar telja, að stjórnvöld í Moskvu taki á sig mikla áhættu, ef þau halda áfram að vanrækja þetta vanda- mál. Hinn nýi aðalritari komm- únistaflokksins á hins vegar eft- ir að mæta margvíslegum hindr- unum rétt eins og Brezhnev og Krúsjoff á undan honum, ef hann hyggst ráðast gegn grundvallarorsökinni að efna- hagsvandræðum Rússa, en hún er hið miðstýrða kommúníska stjórnunarkerfi. Ef unnt á að vera að taka á vandamálinu, er nauðsyn á um- bótum, sem hlytu að vekja mót- spyrnu hjá embættismönnum kommúnistaflokksins með því að draga úr valdi þeirra. Enginn leiðtogi er líklegur til þess að hætta á slíkt, á meðan hann er enn að tryggja sig á veldisstóli. Þannig er Andropov fastur, líkt og í gildru, vegna þrýsti- hópa, sem sækja að honum úr öllum áttum. Neytendur kvarta undan skorti á nauðsynjum, hershöfðingjarnir heimta aukin framlög til hermála og fulltrúar skrifræðisins eru andvígir um- bótum þeim sem nauðsynlegar eru til þess að auka framleið- nina. Þá er ótalinn sá kostnaður, sem ævintýramennska í utanrík- ismálum, t.d. í Afganistan, hefur í för með sér og þær afleiðingar, sem samdrátturinn á lánum frá Vesturlöndum leiðir af sér. Fyrir Andropov skiptir mestu máli, með hvaða hætti liann getur helzt komizt út úr þessum víta- hring. Brezhnev, sem þjáðist heilan áratug af alls konar kvillum, hirti ekki um, þótt vandamálin mögnuðust og yrðu fleiri. Svo er sagt, að um skeið hafi hann að- eins haft nægilegan þrótt til þess að vinna fáeina klukkutíma á dag. Af þessum sökum skapað- ist eins konar lömunarástand í miðstöð valdsins í Kreml. Valdabaráttan byrjuð fyrir löngu í reynd var baráttan um, hver verða skyldi eftirmaður Brezhn- evs, byrjuð löngu áður en hann lézt, að minnsta kosti var hún byrjuð fyrir sex mánuðum, er Andropov lét af embætti sínu sem yfirmaður KGB og tók aftur við starfi hjá hinni voldugu framkvæmdastjórn kommún- istaflokksins. Þessi skipti sköp- uðu honum stökkpall, sem hann gat hagnýtt sér til þess að ná forystunni í flokknum í sínar hendur. En jafnframt losaði hann sig við þau beinu tengsl við leynilögregluna, sem hefðu getað reynzt honum fjötur um fót í baráttunni um völdin. Brezhnev hefði helzt kosið skjólstæðing sinn, Chernenko, sem eftirmann sinn sem aðalrit- ara kommúnistaflokksins. Chernenko hefur hins vegar, þrátt fyrir mikla reynslu í flokksstörfum, aðallega getið sér orðstír fyrir störf sín í þágu Brezhnevs persónulega fremur en eigin forystuhæfileika. En svo fór, þegar á reyndi, að fyrrver- andi yfirmaður leynilögreglunn- ar var tekinn fram yfir hann. A meðal erlendra stjórnmála- fréttaritara í Moskvu er þetta gjarnan túlkað á þann veg, að þetta sé enn ein sönnunin um ósk um sterkan leiðtoga. Er valdabaráttunni lokið eða á Andropov enn fyrir höndum harða baráttu til þess að tryggja völd sín? Þeirri spurningu verð- ur ekki svarað að sinni með neinni vissu, en benda má á, að nú, þegar Chernenko hefur í allri vinsemd lýst yfir samþykki sínu með hinn nýja leiðtoga með því að tilnefna hann sjálfur, er varla nokkur annar meðlimur forsæt- isnefndar flokksins fyrir hendi, sem keppt getur við hann um völdin. Hvað Bandaríkin og önnur Vesturlönd snertir, á enn eftir að sjást, hvaða þýðingu þessi mannaskipti í forystu Sovétríkj- anna hafa endanlega. Stjórn- málafréttaritarar eru almennt sammála um, að á breytingatím- um hafi forystumenn Sovét- ríkjanna tilhneigingu til þess að snúa sér að innanlandsvanda- málum og það þeim mun frekar nú, vegna þess hve alvarleg vandamál steðja að Sovétríkjun- um. En hverjar svo sem breyt- ingarnar verða, sem kunna að vera framundan í Sovétríkjun- um, þá eru flestir sérfræðingar þeirrar skoðunar, að Bandaríkin geti ekki vænzt neins hlés á vígbúnaðarkapphlaupinu í bráð, né heldur á samkeppni stórveld- anna um áhrif í heiminum. Það, sem stjórnendur á Vesturlönd- um geta vænzt, er „stefna Brezhnevs án Brezhnevs". (Þýtt úr U.S. News & World Report.) áður á ítalíu og í Þýskalndi. Að sjálfsögðu getur þetta gerst hér- lendis. Islendingar eru hvorki betri né verri en aðrar þjóðir, kvislingar og einræðisseggir og menn með kvalalosta eru til með öllum þjóðum. Mér fannst þó að ýmsu mætti bæta við lýsingu höf- undar, fylla upp í eyður til þess að tengja afleiðingu við orsök. Hvernig getur lýðræðisríki orðið við sæmilega friðsamlega þróun að einræðis- og jafnvel alræðis- ríki? Við höfum tvö nýleg dæmi um hættuna á slíkri þróun. Þau eru frá Portúgal og Möltu. í Portúgal létu sameignarsinanr mjög að sér kveða fyrir nokkrum árum og not- uðu vald sitt yfir verkalýðsfélög- um til þess að takmarka málfrelsi andstæðinga sinna. Prentarar þeir, sem unnu við borgaraleg blöð, stöðvuðu vinnu, ef eitthvað var birt, sem þeim líkaði ekki. Gerður var aðsúgur á almanna- færi að fólki, sem barðist gegn sameignarskipulagi, og ekki síður að fjölskyldum þess. Þessi þróun snerist að vísu við, en ekki fyrr en eftir mikta mæðu. Á Möltu vofir hættan enn yfir. Þar ríkir Dom Mintoff og Verkamannaflokkur hans, sem nýtur fylgis tæps helm- ings kjósenda, en hefur rúman helming þingsæta. Mintoff beitir mjög hljóðvarpi og sjónvarpi Möltu, sem er hvort tveggja ríkis- rekið. Andstæðingar hans á Möltu komu því upp sjónvarpsstöð frá Sikiley, en Mintoff hótaði, að ríkið hætti öllum viðskiptum við þau fyrirtæki, sem auglýstu þar, og hann fékk einnig ítalska ríkið til að torvelda rekstur sjónvarps- stöðvarinnar. Hann notar og hag- vald ríkisins til að hygla fylgis- mönnum sínum, þeir fá samninga við ríkið, embætti og bitlinga. Hvað gæti gerst, ef Alþýðu- bandalagið fengi meirihluta þing- sæta í konsingum á íslandi? Sá er Frá fundi í Alþýðubandalaginu. munurinn á Islnadi og þeim ríkj- um, sem nefnd hafa verið, að hér er sterk mannréttindahefð. Á hana hlytu sameignarsinnar að rekast. En Friedrich Hayek hefur lýst því á snilldarlegan hátt í Leið- inni til ánauöar, hvað getur gerst, ef ríkisafskipti aukast úr hófi. Ég held, að af bók hans og reynslu þeirra þjóða, sem nefndar hafa verið, megi draga ýmsar ályktan- ir. Sameignarsinnar gætu í fyrsta lagi reynt að ná valdi yfir hljóð- varpi og sjónvarpi og nota þessi tæki í sínum tilgangi. Það ætti að vera auðvelt, enda er ekki nauð- synlegt að breyta miklu í þessum stofnunum. Þeir gætu í öðru lagi reynt að ná valdi yfir Morgunblaðinu og I)ag- blaðinu og Vísi. Þetta gætu þeir gert með því að nota verkalýðsfé- lögin til að ritskoða blöðin eða með því að sverfa að þeim með hagvaldi ríkisins, setja sérstakan skatt á auglýsingar, banna þeim að hækka áskriftargjald og annað slíkt. Þeir gætu í þriðja lagi reynt að þjóðnýta ýmis fyrirtæki, sem ella gætu verið stjórnarandstæðingum skjól. Álverið í Straumsvík og stærstu útgerðar- og iðnaðrfyrir- tækin væru í þeim hópi. Það hag- vald, sem þeir fengju, gætu þeir síðan notað til að hygla sínum mönnum. Þeir gætu í fjórða lagi reynt að hræða dómstólana til hlýðni. Það ætti að vera jafnauðvelt og að ná valdi yfir ríkisfjölmiðlunum. Reynslan hefur því miður sýnt, að dómarar telja sig margir fremur þjóna ríkisins en verði einstakl- inganna og að þeir eru sumir held- ur miklir friðkaupsmenn. Þeir gætu í fimmta lagi sigað skattalögreglunni og rannsóknar- lögreglunni á andstæðinga sína, fóðrað fjölmiðlana á hneykslis- málum. Þeir eru fáir, sem þola það, að öll þeirra mál séu dregin fram í dagsbirtuna. Allir höfum við einhverjar syndir á samvisk- unni, ef grannt er skoðað. Þeir gætu í sjötta lagi rofið viðskiptatengsl okkar við vestræn- ar þjóðir og treyst tengslin við Ráðstjórnarríkin, svo að Islend- ingar yrðu háðir Kremlverjum um alla aðdrætti eins og þeir voru háðir Noregskonungi á þrettándu öld. Allt þetta gætu þeir gert án þess að beita teljandi ofbeldi. Smám saman gætu þeir þrengt svo að andstæðingum sínum, að þeir flyttu úr landi eða þögnuðu. Og þeir gætu fengið meiri hluta atkvæða í kosningum.ef þeir hög- uðu þessu hyggilega, enda hefðu þeir nægilegt hagvald til þess að kaupa öflugan hóp áróðursmanna, vald yfir fjölmiðlunum og þannig vald til að móta skoðanir almenn- ings. Annað mál er það, hvort þeir hlytu að gera það, sem þeir gætu gert. Ég held, að fáir menn í Al- þýðubandalaginu láti sig dreyma um flokksríki, þótt þeir Hjörleifur Guttormsson og Svavar Gestsson hafi að vísu hlotið menntun sína í Austur-Þýskalandi og Lúðvík Jós- epsson hafi alltaf harðneitað að lýsa yfir samúð með andófs- mönnum í austri. En sennilega er spurningin ekki um ætlun manna, heldur um afleiðingar gerða þeirra. Menn geta hleypt af stað þróun, sem lýkur með öðrum hætti og ólíkum en þeir ætluðu sér. Hayek leggur áherslu að það í Leiöinni til ánauðar, að sameign- arsinnarnir festist í vefnum, sem þeir hafa spunnið, þeir neyðast til að auka ríkisafskiptin til þess að ráða við þau vandræði, sem hlut- ust af ríkisafskiptunum, þeir lenda í vítahring, sem þeir komast ekki úr. Að skynja og að skilja Þeir Ólafur Ormsson og Ronald Símonarson hafa báðir skynjað það, að sumt í viðhorfi og vinnu- brögðum Alþýðubandalagsmanna er hættulegt. En ég er ekki viss um, að þeir hafi skilið að fullu, hvers vegna það er hættulegt. Ég vona þó, að þeir haldi áfram að skrifa um þetta, og þeir sýna meiri hugrekki en flestir aðrir íslenskir rithöfundar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.