Morgunblaðið - 02.02.1983, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.02.1983, Blaðsíða 30
62 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983 Strandferðaþjónusta við far- þega, nýting fjárfestinga o.fl. eftir Guöjón F. Teitsson Hinn 13. jan. sl. birti Tíminn fréttagrein undir svohljóðandi fjögurra dálka fyrirsögn: „Varð- skipin flytja fólk af Vestfjörðum - FLUTNINGARNIR ERU AL- GER NEYÐ — Engin aðstaða um borð, en brýnustu öryggiskröfum sinnt". Grein þessi var athyglisverð m.a. vegna þess að hún birtist í aðalmálgagni samgönguráðherra, sem hefir látið það viðgangast, að núverandi forráðamenn Skipaút- gerðar ríkisins sýni hina mestu lítilsvirðingu því hlutverki að láta vöruflutningaskip útgerðarinnar í ferðum kringum land bjóða upp á nokkra úrlausn til farþegaflutninga í viðlögum innan þeirra marka, sem alþjóðareglur heimila án þess að kröfur séu gerðar um búnað fyrir skip, sem beinlínis nefnast „far- þegaskip“. Skal í þessu sambandi bent á, að skömmu eftir að núverandi for- stjóri Skipaútgerðarinnar tók við því starfi, kom fram hjá honum sú skoðun, að lítil þörf virtist að hafa nokkurt teljandi fast farþegarými í umræddum vöruflutningaskipum útgerðarinnar. A.m.k. væri þess næstum engin þörf að vetrinum, þegar hagkvæmast væri að nýta allt tiltækt rými fyrir vöruflutn- ing, en að sumrinu, þegar minnst væri um vörur, mætti leysa meiri farþegaflutningaþörf með gámum, og hlaut þá fyrst og fremst að vera átt við lystiferðafarþega. Athygl- isvert hugmyndaflug!! Skip í smíöum í smíðum er strandferðaskip fyrir Skipaútgerð ríkisins úti í Bretlandi, sem kosta mun yfir 100 millj. kr., og sýnist þar mjög óvitur- lega á ýmsu haldið í fjárfestingu miðað við skilyrði hér og líklega nýt- ingu, en sami einstrengingsháttur og lýst hefir verið virðist þó eiga að ríkja varðandi búnað til far- þegaflutnings. Hekla bundin í höfn — erlent skip með erlendri áhöfn leigt í staðinn I'á er það ámælisvert í meira lagi, að forráðamcnn Skipaðutgerðarinn- ar hafa látið 12 ára gamalt eigið skip útgerðarinna (Heklu) í góðu standi liggja bundið í höfn frá miðju sl. sumri, vitanlega með ærnum kostn- aði, og leigt í staðinn norskt skip með norskri áhöfn. Heyrði ég formann stjórnar- nefndar Skipaútgerðarinnar í des. sl. gefa þá aðalskýringu á þessu í útvarpsviðtali, að hið norska leiguskip væri hepplegra til gáma- flutnings en Hekla, en auðvitað forðaðist nefndarformaðurinn að minnast á, að Hekla hefði notalegt Guðjón F. Teitsson farþegarými og frystilest umfram norska skipið og myndi auk þess halda betur áætlun i stórviðrum á leiðum kringum land. Nánar um gámamálið Þegar undirbúin var smíði Heklu og Esju 1967/68, var stefnt að aukinni véltækni í upp- og út- skipun og þar með að aukinni stöðlun farmeininga, svo sem á brettum og í gámum. Höfðu norskir hagsýsluráðgjafar á veg- um ríkisstjórnarinnar laust eftir 1960 lagt til, að staðlaðar flutn- ingaeiningar í strandferðum hér yrðu yfirleitt ekki þyngri en svo sem 1000 kg., svo að þær mætti færa til um borð í skipum og á landi með handknúnum trillum, en þetta taldi ég of smátt í snið- um. Komst ég að þeirri niðurstöðu eftir víðtækar athuganir, að með tilliti til fjárfestingar, einkum í ökulyfturum um borð í skipum og hjá afgreiðslum í landi, myndi einna heppilegast, að mestur fjöldi staðlaðra farmeininga mætti vera allt að 2500—2700 kg. að þyngd, og sýndist þá haganlegt að hafa verulegan fjölda gáma til hleðslu miðað við nefnd þunga- takmörk. Hittist svo á, að hið víðþekkta skipafélag Sameinaða (DFDS) í Danmörk hafði um nokkurra ára skeið haft 2 eða 3 skip í siglingum innan heimalands og notað mjög í þeim 3ja rúmmmetra viðargáma með járngrindum, sem hentuðu vel til hleðslu innan nefndra þyngdarmarka og voru mjög hag- stæðir í verði. Einnig var viðgerð oftast auðveld. Lét ég Skipaútgerðina fyrst kaupa nokkra gáma af nefndri gerð frá Danmörk, en síðan smíða hér heima að mig minnir 300 stk. með mjög hagkvæmum kjörum og nokkuð endurbætta að gerð. Kost- uðu fyrstu 100 gámarnir ekki nema rétt rúmlega 16 þús. kr. (gamlar) stk., og smíðin þó ljóm- andi vel af hendi leyst. Þar sem Sameinaða hafði notað umrædda tegund gáma í nærri 10 ár, áður en ég keypti hina fyrstu, spurði ég hvort ekki mætti reikna með því að nefnd gerð og stærð gáma væri orðin úrelt, en fékk það afdráttarlausa svar hjá félaginu, að svo væri ekki. Gámarnir væru jafngóðir og fullgildir í innan- landsflutningum og í upphafi, þótt stærri gámar væru yfirleitt notað- ir í utanlandssiglingum milli stórra hafna. Ekki munu fleiri gámar nefndr- ar tegundar hafa verið smíðaðir fyrir Skipaútgerðina eftir mína forstjóratíð, þar eð eftirmaður minn virtist telja þá úrelta, eins og skipin, er hann tók við, og stefndi að notkun allt að 20—40 tonna gáma með hleðslu. Nýting fjárfestinga Er hér komið að því þýðingar- mikla atriði í skipulags- og fjárfest- ingarmálum, ekki sízt á vegum skattborgara landsins, að kunna sér hóf og sníða sér stakk eftir vexti og ástæðum. Það er t.d. ekki sjálfsagt, að skip með hvers konar búnaði, sem sum- part kunna að henta annars staðar, svo sem í dönsku sundunum eða Miðjarðarhafi, henti einnig í strand- ferðum við ísland, eða að 20—40 tonna flutningaeiningar, sem henta kunna fyrir sendingar frá verksmiðj- um í miðríkjum Bandaríkjanna til sendingar með skipum frá New York til Kotterdam og þaðan inn til Mið-Evrópu, henti yfirleitt í flutning- um milli 30—40 hafna á íslandi. Vöruflutningagámar, t.d. fyrir 18—36 tonna hleðslu, eru býsna dýr tæki, og þeim er hætt við skemmdum, ekki sízt ef tilfærsla þeirra er ekki framkvæmd með fullgildum tækjum, sem eru svo dýr fyrir nefndar þyngdarein- ingar, að þau þyrfti helzt að nýta með vaktaskiptum nótt og dag. En hvað halda menn að nýtingin yrði að meðaltali margar klukkustund- ir á ári á 30—40 viðkomuhöfnum strandferðaskipanna hér á landi? Vitnað til erlends hagsýslu ráðgjafa Markus Markussen skipstjóri, sem var, síðast er ég frétti, deild- arforstjóri í Industrikonsulenten A/S í Osló, hefir um áratugaskeið helgað sig rannsóknum á hag- kvæmni í vöruflutningum. Hann hefir stjórnað eða verið framsögu- maður á ráðstefnum um þetta mál víða um iönd, í öllum heimsálfum, og verið vitnað til kenninga hans í blöðum og tímaritum, auk þess sem hann hefir skrifað fjölda blaðagreina og gefið út fræðslurit um málið. Má nefna The Unit Load og Promotion of the Unit Load Concept. — Var M.M. sér- staklega heiðraður á fjölmennri flutningamálaráðstefnu, sem haldin var í Sandefjord í Noregi haustið 1981. í rannsóknum sínum hefir M.M. komizt að þeirri niöurstöðu, að þróunin hafi mjög víða leitt til mik- illar oftrúar og ofnotkunar á vöru- flutningagámum, t.d. miðaö við flutning smærri og viðráðanlegri ein- inga á pöllum, sem henti fyrir mik- inn fjölda vörutegunda, þannig að þetta hafi verulega aukið flutnings- kostnað í stað hins gagnstæða, sem til hafi verið ætlazt. Til þess að flutningur í gámum skili góðum árangri telur M.M. þurfa að byggja á flutningi frá framleiðanda, t.d. verksmiðju, til neytenda eða miðstöðvar neyt- enda, og svo helzt nytjun til flutn- ings þaðan með svipuðum hætti. — En byggist notkun gáma aðal- lega á því, að skipafélag hlaði þá sjálft eftir móttöku vara á útskip- unarhöfn og losi þá á sama hátt eftir uppskipun, eins og jafnvel al- gengast sé, telur M.M., að slíkt hafi næstum undantekningarlaust reynzt kostnaðarlega neikvætt miðað við önnur úrræði í flutn- ingameðferð. Ég er yfirleitt mjög sammála kenningum M.M., en vil þó gefa þá skýringu, að með gámaflutningi, sem ég kom á í Skipaútg. — og taldi rétt að auka, eftir því sem fjárráð leyfðu — og þróun virtist mæla með, sá ég það hagræði að nýta vinnuafl milli gisinna skip- aferða til þess að setja fyrst og fremst viðkvæmar smávörur í gáma, en á palla sem flestar vör- ur, sem þannig hentaði að flytja. Andmælti ég á sínum tíma áleitni gosdrykkjaframleiðenda um það, að Skipaútgerðin legði þeim til gáma, þar eð slíkt væri allt of dýrt. Ö1 og gosdrykki og endursendar umbúðir væri réttast að flytja á pöllum, undir loki, með bindingu niður á pallana, og væri eðlilegast að verksmiðjurnar ættu sinn eigin búnað í þessu sambandi, sniðinn fyrir hverja tegund um- búða, eins og væri algild venja er- lendis, t.d. í Danmörk. Nýir siðir með nýjum herrum Ekki virtist eftirmaður minn í Skipaútgerðinni hafa sömu skoð- un og ég á síðast nefndu atriði, fremur en mörgu öðru, og mun hann t.d. telja til afreka að hafa náð rnestöllum flutningum fyrir Ölgerðina Egil Skallagrímsson milli Rvíkur og Vestmannaeyja undan ferjuskipi Vestmannaeyja með því að leggja ölgerðinni til gáma, sem sennilega hefðu verið réttar nýttir fyrir annað og aðra. — En fyrir ríkissjóð mun þetta hafa haft litla þýðingu; án mats gámakostnaðar, e.t.v. eitthvað minni hallagreiðslur vegna Skipa- útgerðarinnar, en þeim mun meira fyrir Herjólf. Samrýmist það hlutverki Skipaútgerðarinnar að blanda sér í stóriöjurekstur og samkeppni millilandaskipa? Með samningi sínum við Haf- skip hf. um flutning kísilgúr frá Húsavík til Rvíkur o.fl., virðist Skipaútgerðin að þarflausu og með mjög vafasömum hætti hafa tekið að blands sér í stóriðjurekst- ur og áður eðlilega samkeppni skipafélaga, sem stunda milli- landasiglingar. Mun áframhaldandi leiga á hinu Skagafjörður: Mælifclli, 24. janúar. í SL. VIKU var haldið organistanám- skeið í Húsmæðraskóla kirkjunnar á Löngumýri og var haukur Guölaugs- son söngmálastjóri þjóðkirkjunnar kennari þar. Námskeiðið sóttu all- margir organistar, einkum héðan úr Nkagafirði, en 1 kom frá Akureyri og 2 úr Austur-Húnavatnssýslu, því veð- urútlit og slæm færð aftraði fieirum þaöan að vestan þátttöku. Dvöldu organistarnir mismunandi lengi á Löngumýri og voru í einkatímum hjá söngmálastjóra í orgelleik og söng- stjórn, og æfðu sig þess á milli á hin mörgu harmonium, sem Margrét Jónsdóttir skólastjóri hafði útvegað í skólann af þessu tilefni. Námskeiðið mæltist mjög vel fyrir hjá organistunum, bæði nú- verandi og tilvonandi, og er enda nauðsynlegt að þessum mikilvægu starfsmönnum kirkjunnar sé sýndur áhugi og veittur stuðning- ur í vandasömu starfi. Síðustu tvo daga námskeiðsins norska skipi, Velu, og upplagning Heklu að einhverju leyti eiga ræt- ur að rekja til nefnds samnings um kísilgúrflutninga, þótt fram- kvæmdir séu fyrir óeðlilega lágt gjald. Einnig mun það tengt áætl- un um áframhald nefndra flutn- inga og tilsvarandi flutninga steinullar frá verksmiðju á Sauð- árkróki, ef til kemur, sem forstjóri Skipaútgerðarinnar hefir lagt áherzlu á að fá til umráða 3 skip þeirrar gerðar, sem í smíðum er í Bretlandi. En samkeppni milli skipaeig- enda hér hlýtur að skapa óvissu um áframhald umræddra flutn- inga á vegum Skipaútgerðar ríkis- ins, enda er augljóst, að verði fjár- festing með eðlilegum hætti tekin til greina, hafa nefnd óskaskip for- stjóra Skipaútg., lítinn eða engan möguleika að keppa við skip miklu einfaldari og ódýrari að gerð, sem fyrirvaralítið geta orðið tiltæk til samkeppni um alla meginflutninga fyrir hlutaðcigandi verksmiðjur o.fl. Önnur viðbrögð erlendis en hérlendis vegna óvitur- legra fjárfestinga Hér að framan var minnst á Det Forenede Dampskibsselskab (DFDS) í Danmörk, sem á sl. ári átti 9 farþegaskip að meðaltali rúmlega 10000 brúttótonna (br. reg. t.) hvert og 14 önnur skip samtals 175.000 burðartonna (dvyt.) Á miðju ári 1982 var opinber- lega skýrt frá mjög góðri rekstrar- afkomu hjá DFDS samfara veru- legum nýjum fjárfestingum, eink- um til farþegaflutninga við suð- austurströnd Bandaríkjanna, en þegar dró að árslokum, kom í Ijós, að bullandi tap var orðið á rekstr- inum. Var stjórn hluthafa kvödd saman til fundar hinn 16. des. og ákveðið að reka báða aðalfram- kvæmdastjóra félagsins tafar- laust (med öjeblikkelig virkning), en í staðinn var til bráðabirgða settur einn framkvæmdastjóri frá Lauritzen-auðhringnum, sem sjálfur hefir mikla og fjölbreytta skipaútgerð og annan rekstur (Aalborg Værft A/S, 6 olíubor- pallar o.fl.) Lauritzen-hringurinn átti m.a. á sl. ári 10 frystiskip að meðaltali 10,000 burðartonna hvert, og var talinn í 2. eða 3. sæti á þessu sviði á heimsmarkaði. Salén-félagið sænska í fyrsta sæti. Er ekki annað vitað en að rekst- ur frystiskipanna hjá báðum hin- um nefndu félögum hafi fram til þessa yfirleitt gefið góða útkomu, og stjórnendur séu því ekki búnir að fá inn í sína kolla þá kenningu, sem nýlega hefir verið boðuð hér á landi, að frystilestir í skipum séu úreltar, þar eð hagkvæmara sé að nota eingöngu frystigáma. var söngfólk kirkjukóranna hér um slóðir boðað til æfinga með organistunum hjá Hauki Guð- laugssyni og hrifust menn af frá- bærri kórstjórn hans og höfðu áreiðanlega gott gagn af, þótt ekki væri um lengri tíma að ræða. Var vel mætt, einkum á sunnudaginn, en þá voru 80 kórfélagar úr 6 kirkjukórum saman komnir í Mið- garði. Þar var æft af kappi og síð- an endað á helgistund í umsjá síra Gísla Gunnarssonar í Glaumbæ, en síra Þórsteinn Ragnarsson á Miklabæ predikaði. Var það einkar minnileg stund og hátíð- legt, er þessi stóri kór sameinaðist í sálmasöngnum, en alls önnuðust 6 organistar undirleik og einleik auk Hauks söngmálastjóra, þau Sigfús Arnþórsson, Gerður Aðal- björnsdóttir, Halldóra Jón- mundsdóttir, Heiðmar Jónsson, Helga Kristjánsdóttir og Edda Jónsdóttir. CiX. Ás([. nokkurt vil... í aö rangla svangur og kaffiþurfi um allan bæ? Er ekki nær að setjast niöur og fá sér aö boröa á rólegum og vistlegum staö, sem er opinn allan daginn? Organistanám- skeið á Löngumýri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.