Morgunblaðið - 11.02.1983, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 11.02.1983, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983 49 Morgunblaðið/Rax. SPURT ER: Er taka verðtryggðs láns hengingaról um háls almenns launafólks? SVAR: Viö ákvörðun um töku verö- tryggös láns ber, fyrst og síðast, að huga aö greiöslubyröinni, sem fer m.a. eftir lengd lánstímans og tekjum. Eftir því, sem lánstíminn er lengri og tekjurnar hærri, þeim mun léttbærari er greiðslubyrðin og svo öfugt. Hugsum okkur ungt par, sem stendur til boöa aö kaupa íbúö, meö því aöeins aö gefa út verö- tryggt veðskuldabréf aö fjárhæö kr. 1.000.000 til 15 ára meö 3% vöxtum á ári. Mánaöarlaun beggja eru nú 40.000 kr. Miöaö viö daginn í dag er afborgun og vextir af skuldabréfinu á fyrsta ári 96.667 kr. og á síöasta ári 68.662 kr. Unga pariö þyrfti því aö ráöstafa, sem samsvaraði 2,42 mánaöarlaunum á fyrsta ári til greiöslu afborgana og vaxta af láninu og sem samsvaraði 1,72 mánaöarlaunum á síöasta ári, aö því gefnu, aö almenn laun í land- inu hækki jafnmikið og greiöslur afborgana og vaxta. En stenst þessi forsenda? Hér erum við komin aö kjarna málsins og megin ástæöunni fyrir hræöslu fólks viö aö taka verö- tryggö lán, sem endurspeglast í spurningu spyrjanda, því þaö er útbreidd skoöun aö biliö á milli launa og verölags sé sífellt aö aukast launþegum í óhag, og þvi þurfi sífellt fleiri og fleiri mánaö- arlaun til greiðslu afborgana og vaxta af verðtryggðu láni. Þegar meta skal hvað muni gerast í náinni framtíð er ein leiö- in sú aö skyggnast til baka og athuga hver þróunin hefur í raun veriö á undanförnum árum. f því skyni skulum viö gera samanburð á þróun lánskjara- vísitölu, vísitölu kauptaxta allra launþega og vísitölu ráöstöfun- artekna einstaklinga á mann á síöasta 12 ára tímabili, þ.e. 1970—1982. Samanburðurinn leiöir í Ijós aö á áöurgreindu tímabili hefur lánskjaravísitalan hækkaö um 3.909%, vísitala kauptaxta allra launþega um 4.723% og vísitala ráöstöfunartekna einstaklinga á mann um 6.886%. Til frekari glöggvunar er fram- angreindur samanburöur sýndur I meðfylgjandi töflu. Hér kemur ótvírætt í Ijós, aö kauptaxtar allra launþega hafa hækkaö um tæplega 21% um- fram hækkun lánskjaravísitöl- unnar, og er sá munur þeim mun athyglisveröari, þegar haft er í huga aö vísitala kauptaxta allra launþega mælir aöeins almennar grunnkaupshækkanir og hækkun veröbótaþáttar launa, en tekur ekki tillít til yfirborgana, yfir- vinnu og launaskriös. Hér kemur ennfremur fram aö vísitala ráöstöfunartekna ein- staklinga á mann hefur hækkaö um 76% umfram hækkun láns- kjaravísitölunnar yfir sama tím- abil. Upplýsingar um ráöstöfun- artekjur einstaklinga á mann eru unnar af Þjóöhagsstofnun upp úr skattframtölum einstaklinga og eru skilgreindar sem brúttó tekj- ur aö frádregnum beinum skött- um. Eölilegast er þvi aö bera þróun vísitölu ráöstöfunartekna ein- staklinga á mann saman viö þróun lánskjaravísitölunnar í staö vísitölu kauptaxta allra laun- þega, eins og alltof algengt er í dag, þar sem menn greiða lán sín að sjálfsögðu af fullum at- vinnu- og ráöstöfunartekjum sínum, en ekki eingöngu af taxtakaupi sínu, án allra yfir- borgana, yfirvinnu og launa- skriðs. Niðurstaöan af þessum sam- anburöi er því sú, aö til lengri tíma litiö megi gera ráö fyrir því aö kauptaxtar launþega haldist í hendur við almennar verölags- hækkanir, enda þótt misvægi á hvorn veginn sem er geti orðiö á milli einstakra vísitalna til styttri tíma litið, enda veröa menn aö hafa í huga aö þegar lífeyrissjóö- irnir t.d. eru farnir aö bjóöa verö- tryggö lán til allt aö 32 ára, er samanburður á þróun einstakra vísitalna til styttri tíma litiö óraunhæfur meö tilliti til lengdar lánstímans. Hlýtur því allur samanburöur á þróun einstakra vísitalna aö verða aö skoðast meö hliösjón af því, til hve langs tíma hver og einn lántakandi hefur skuldbund- ið sig meö töku verötryggös láns. Veröur því ekki séö, meö hlið- sjón af því, sem áöur er rakið, aö sú staöhæfing, sem kemur fram í fyrirspurninni fái staöist, svo framarlega sem menn meti greiöslugetu sína rétt í upphafi. Samanburður vísitalna kauptaxta og ráðstöfunartekna við lánskjaravísitölu Reiknuö Kauptaxtar Réöstöfunar- lánskjara- allra tekjur á vísitala launþega mann 1970 100 100 100 1971 111 119 123 1972 124 150 155 1973 149 185 209 1974 212 274 319 1975 318 349 422 1976 416 437 560 1977 539 630 826 1978 779 990 1.284 1979 1.117 1.426 1.918 1980 1.759 2.148 2.953 1981 2.673 3.215 4.637 1982 4.009 4.823 6.986 1) Áætlun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.